Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						14    FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996

MORGUNBLAÐIÐ

AKUREYRI

Frystihús KEA í Hrísey

Arni ráðinn fram-

kvæmdastjóri

ÁRNI Ólafsson hefur-verið ráðinn

framkvæmdastjóri frystihúss KEA

í Hrísey og tekur hann við starfinu

af Magnúsi Helgasyni einhvern

næstu daga.

Árni er fæddur á Akureyri árið

1970, hann varð stúdent frá

Menntaskólanum á Akureyri 1990

og stundað síðan nám við fisk-

vinnsluskólann á Dalvík. Hann

starfaði um tíma í Alaskafylki í

Bandaríkjunum og við verkstjórn

í frystihúsum KEA, en hann hefur

einnig unnið síðustu níu sumur

með námi hjá Kaupfélagi Eyfirð-

inga og komið þá að ýmsum störf-

um, m.a. hefur hann starfað á

vegum félagins í Grímsey og Hrís-

ey, en síðstu fimm sumur hefur

hann verið verkstjóri í frystihúsum

félagsins.

Árni lauk námi í iðnrekstrar-

fræði við Tækniskóla íslands árið

1992 og nú síðar í þessum mán-

uði útskrifast hann sem útflutn-

ingsmarkaðsfræðingur BS frá

Tækniskólanum. Eiginkona hans

er Elín Árnadóttir úr Hrísey.

„Það má búast við nokkuð erfið-

um róðri framundan, botnfisk-

vinnslan hefur gengið illa að

undanförnum, hún hefur verið að

tapa peningum vegna óhagstæðs

gengis," sagði Árni.

Morgunblaðið/Berglind H. Helgadóttir

Skák og mát

STJÓRNUDAGUR var í Síðuskóla

nýlega, en það er Foreldra- og

kennarafélag skólans sem fyrir

honum stóð. Farin var skrúðganga

um hverfið og þá var gestum boð-

ið að fá andlit sitt málað í ölium

regnbogans litum, spákona var á

svæðinu, keppt var í götukörfu-

bolta og farið í ýmsa leiki, en auk

þess voru lögreglumenn á staðnum

og skoðuðu reiðhjól barnanna.

Hann Víkingur, sem brá sér í gervi

Batmans, notaði daginn m.a. til að

tefla við hettuklæddan félaga sinn.

Rúmlega 50 kílómetra strengur lagður frá Kópaskeri að Brúarlandi í Þistilfirði

LENGSTA einstaka háspennulögn

sem logð hefur verið hér á landi

verður lögð í sumar þegar 33 kW

jarðstrengur verður lagður frá

Kópaskeri að Brúarlandi í Þistil-

firði, en hann er alls 52 kílómetrar

að lengd. Strengurinn kemur í stað

núverandi línu sem liggur svipaða

leið og strengurinn. Áætlaður

kostnaður við framkvæmdirnar er

130 milljónir króna.

Aukið öryggi í

afhendingu raforku

Núverandi lína þjónar Þórshöfn,

Bakkafirði og Þistilfirði og er orð-

in fulllestuð vegna álagsaukning-

ar. Þar við bætist að línan var

ekki traustbyggð í upphafi og hef-

ur verið erfið í rekstri á undanförn-

um árum. Mjög tíðar truflanir

hafa verið á línunni, sem liggur

um erfitt ísingasvæði, og hafa við-

gerðir og endurbætur verið nær

árvissar. Línan er tveggja víra og

þriðji fasinn rekinn til jarðar, en

vegna þess hefur einangrun lín-

unnar einnig verið að gefa sig.

Afhendingaröryggi raforku á

þessu svæði mun aukast verulega

með nýjum streng, en flutnings-

geta hans verður um 6MW til

Þórshafnar sem er tvöfalt meira

en núverandi lína flytur.

Verkinu flýtt

I framkvæmdaáætlun RARIK

til næstu ára var búið að gera ráð

fyrir lagningu strengs á árinu

1998, en vegna þess hve línan fór

Lengstaein-

staka háspennu-

lögn landsins

Grfmsey

:Raufarhðfn

\ ÞMil-

fjörður   /

J%sH6fn ^

HúsavíK

, Grenivík


Akureyri

Bakkafjörður

Ráðgert er að leggja 33 kV jarð-

streng milli Kópaskers og Brúar-

lands í Þistilfirði, 52 km leið.

Laxáryirkjun

Vopnafjörðtírr,

YV \

,     Reykjahlíð

illa í ísingaveðrinu í október síð-

astliðnum var ákveðið að flýta

lagningunni. Ljóst er að kosta

hefði umtalsverðu fjármagni til

linunnar ella til að gera hana

rekstrarhæfa næstu tvö ár.

Undirbúningur vegna þessa

verks hefur staðið frá því fyrir

áramót, en m.a. voru rör lögð í

Hölkná, Sandá og Svalbarðsá í

vetur til að draga strengina í og

valda þannig sem minnstu raski

yfir laxveiðitímabilið. Sá Arnarfell

hf. um lagníngu röranna í árnar.

Lagðir verða þrír einleiða-

strengir með 150 mm2 álleiðurum,

hver um 52 kílómetrar, en streng-

urinn er nú í framleiðslu hjá Alcat-

el í Noregi en tengiefni kemur frá

Raychem. Gert er ráð fyrir um 165

tengingum á strengnum. Áætlaður

verktími við lagningu strengsins

er frá miðjum júlí næstkomandi

og til 1. október. Jafnframt þessu

verður settur upp nýr spennir í

aðveitustöðina á Kópaskeri.

Átta tilboð

Átta tilboð bárust í lagningu

strengsins frá Kópaskeri að Brúar-

landi en þau voru opnuð í gær.

Austfirskir verktakar á Egilsstöð-

um áttu lægsta boð, tæpar 19

milljónir króna eða 56,7% af áætl-

uðum kostnaði, Ingileifur Jónsson,

Svínavatni, bauð 24 milljónir eða

71,9% af kostnaði, Eik hf. Blöndu-

ósi bauð 26,9 milSjónir sem er

80,5% af kostnaði, Guðjón Jóns-

son, Hvolsvelli, bauð 28,3 milljónir

sem er 84,7% af áætluðum kostn-

aði, Guðmundur Hjálmarsson,

Akureyri, bauð 29 milljónir eða

87,1% af kostnaði, BHS, Húsavík,

bauð 29,1 milljón, 87,2% af kostn-

aði, tilboð Sigurverks í Mosfellsbæ

var upp á tæplega 31 milljón sem

er 92,8% af kostnaði og Vinnuvél-

ar Pálma Friðrikssonar, Sauðár-

króki, buðu 41,8 milljónir sem er

125,4% af áætluðum kostnaði sem

er tæplega 33,4 milljónir.

Slys í Krossanes-

verksmiðjunni

Brunninn

eftir að olía

spýttist

yfir hann

KARLMAÐUR á sjötugsaldri,

starfsmaður Krossanesverksmiðj-

unnar, liggur þungt haldinn á

Landspítalanum eftir að sjóðheit

olía spýttist yfir hann. Slysið varð

skömmu eftir miðnætti aðfaranótt

miðvikudags.

Maðurinn var einn við vinnu sína

í vinnslusal verksmiðjunnar, en

vinnufélagar hans komu þegar á

vettvang.

Samkvæmt upplýsingum rann-

sóknarlögreglunnar á Akureyri er

talið að slysið megi rekja til bilun-

ar sem varð í rafmagnsmótor í

þurrkara, þegar olían hitnaði

sprakk gler í hæðamæli með þeim

afleiðingum að hann sprakk og

glussinn spýttist út.

Maðurinn var fluttur með

sjúkraflugi til Reykjavíkur í fyrri-

nótt, en hann er mikið brunninn

og liggur þungt haldinn á Land-

spítalanum.

? » »

Lýkur 8.

stigi í

fiðluleik

ÞRÚÐUR Gunnarsdóttir heldur út-

skriftartónleika á sal Tónlistarskól-

ans á Akureyri á laugardag, 18.

maí, og hefjast þeir kl. 17. Þrúður

er að ljúka lokaprófi frá skólanum

með 8. stig í fiðluleik.

Á tónleikunum leikur hún verk

eftir J.S. Bach, Beethoven, César

Franck, Pablo de Strasate og Þor-

kel Sigurbjörnsson. Helga Bryndís

Magnúsdóttir leikur með á píanó.

Þrúður Gunnarsdóttir hóf fiðlu-

nám hjá Lilju Hjaltadóttur, sem var

aðalkennari hennar til 13 ára ald-

urs, en síðan hefur hún verið hjá

Önnu Podhajska. Þrúður hefur leik-

ið með Sinfóníuhljómsveit æskunn-

ar, Kammerhljómsveit Akureyrar

og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands

auk Kammerhljómsveitar Tónlistar-

skólans. Þrúður lýkur stúdentsprófi

af tónlistarbraut Menntaskólans á

Akureyri nú í vor.

Sinubruni

Einn bruna-

vörður inni

EINN slökkviliðsmaður var inni

þegar beðið var um aðstoð vegna

töluverðs sinubruna við bæinn

Þórustaði í Eyjafjarðarsveit síðdeg-

ís á þriðjudag. Aðrir á vaktinni

voru að sinna sjúkraflutningum.

Verið var að brenna rusl við

bæinn þegar eldurinn komst í sinu.

Mikill trjágróður er í landinu og var

óttast að hann skemmdist. Sá sem

var á vaktinni dreif sig á einum

slökkvibíl á staðinni en fékk ágæta

aðstoð frá lögreglumönnum.

MESSUR

HJÁLPRÆÐISHERINN: Lof-

gjörðarsamkoma í kvöld,

fimmtudagskvöld kl. 20.30.

Barnastarf á föstudag, 11+

kl. 17.30 og unglingaklúbbur

kl. 19.30.

Morgunblaðið/Hólmfríður

Áróló

ÞAÐ er kominn vorhugur í fé-

lagana Hinrik, Árna Snæ og Sig-

urð Sævar sem voru úti að róla

sér á leikvellinum í Grímsey á

dögunum. Til stendur seinna í

vor að betrumbæta leikvöllinn

og smíða ný leiktæki, sem

eflaust gleður börnin í eynni.

Norðlenskir gigtarsjúklingar

minnast 20 ára af mælis

Fundir norðan-

lands og raðganga

í TILEFNI af 20 ára afmæli Gigtar-

félags íslands á þessu ári ætla fé-

lagar í gigtarfélaginu á Akureyri

að heimsækja Húsvíkinga næst-

komandi laugardag, 18. maí, og

efna þar til fundar sem hefst kl.

14. Farið verður frá Umferðarmið-

stöðinni á Akureyri kl. 11 og þurfa

þátttakendur að tilkynna sig hjá

Ingibjörgu Sveinsdóttur á Akureyri

eða Guðrúnu Guðmundsdóttur á

Hallandi.

Byrjað verður að fara í sundlaug-

ina á Húsavík og verður hún 34

gráður af því tilefni, en það er kjör-

hiti fyrir gigtarsjúklinga. Ætlunin

er að heimsækja fleiri staði á Norð-

urlandi síðar á árinu og sagði Ingi-

björg Sveinsdóttir að hugmyndin

væri að fá forráðamenn fleiri sund-

lauga til að hita laugarnar í þennan

kjörhita einn dag í sumar. Gigtar-

sjúklingar hafa einn tíma á viku í

Glerárlaug og er hún þá hituð upp

áður en farið er ofan í.

Afmælisins verður einnig minnst

síðar í sumar með raðgöngu frá

Munkaþverá í Eyjafjarðarsveit og

til Akureyrar.

Aðalbaráttumál gigtarsjúkra á

Akureyri hefur verið að fá fastráð-

inn gigtarsérfræðing til starfa við

Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri

og er það nú í höfn því Björn Guð-

björnsson gigtarsérfræðingur hefur

verið ráðinn yfirlæknir lyflækninga-

deildar. Ingvar Teitsson læknir hef-

ur verið aðaldriffjöðrin í starfsemi

félagsins, að sögn Ingibjargar, en

hún vildi hvetja sem flesta til að

ganga í félagið til að efla starfsem-

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80