MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1996 29 LISTIR Manuela Wiesler með Sinóníuhljómsveit íslands Verk eftir Þorkel, Haydn og Sibelius Petri Sakari Manuela Wiesler A TONLEIKUM Sinfóníuhljómsveit- ar íslands í Háskólabíói á morgun föstudag kl. 20 verða flutt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Josef Haydn og Jean Sibelius. Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari. Einleikari Manuela Wiesler. Það er mikið fagnaðarefni fyrir Sinfóníuhljómsveitina að fá flautu- leikarann Manuelu Wiesler sem ein- leikara á tónleika eftir nokkurra ára hlé. Manuela fæddist í Brasilíu en flutti ung til Austurríkis þar sem hún ólst upp. Hún lauk prófi frá tónlistar- háskólanum í Vín árið 1971. Síðar nam hún hjá Alain Marion, James Galway og Auréle Nicolet. Manuela flutti til íslands árið 1973 og bjó hér til ársins 1983. Árið 1976 vann hún til fyrstu verð- launa í Norrænau kammertónlistar- keppninni í Helsinki og hefur síðan átt einstæðan feril sem alþjóðlegur listamaður. Auk þess að halda ein- leikstónleika í Skandinavíu, Bret- landi og Þýskalandi hefur Manuela Tjarnarkvartettinn Kristján Hjartarson, Kristjana Arn- grímsdóttir, Hjörleifur Hjart- arson og Rósa Kristín Bald- ursdóttir Tjarnar- kvartettinn í Gerðubergi TJARNARKVARTETTINN heldur tónleika í Gerðubergi næstkomandi laugardag kl. 17. Á efnisskránni eru meðal annars ný sönglög eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson samin fyrir kvartettinn og einnig ýmsar nýstárlegar útsetningar á íslenskum söng- og dægurflugum allt frá Sig- valda Kaldalóns til Spilverks þjóð- anna. Allt efni er flutt án undirleiks a capella". Tjarnarkvartettinn er skipaður þeim Kristjáni Hjartarsyni bassa, Kristjönu Arngrímsdóttur alt, Hjör- leifi Hjartarsyni tenór og Rósu Krist- ínu Baldursdóttur sópran. Þau hafa starfað saman í sjö ár og á þeim tíma komið víða fram bæði hér á landi og erlendis, sungið í útvarpi og sjón- varpi og sent frá sér tvo hljómdiska. Sjónvarpsþáttur um Tjarnar- kvartettinn sem sýndur var í Ríkis- sjónvarpinu nú á dögunum vakti mikla athygli og munu eflaust marg- ir höfuðborgarbúar taka því fagnandi að fá tækifæri til að hlýða á söng hans nú um helgina," segir i frétt frá Gerðubergi. -----------? ? ?----------- Fjórir kórar að Laugalandi FJÓRIR kórar koma fram í Lauga- landi í Holta- og Landssveit næst- komandi laugardag kl. 15. Kórarnir eru Samkór Oddakirkju, Karlakór Rangæinga, Kvennakór Hafnarfjarðar og Kór eldri Þrasta. Kórarnir eiga það allir sameiginlegt að vera stjórnað af Halldóri Oskars- syni. Aðgangseyrir er 1.000 kr. -----------? ? ?----------- Sigga Vala sýnir á 22 SIGGA Vala opnar sýningu á veit- ingahúsinu Laugavegi 22 laugardag- inn 18. maí kl 17. AUir velkomnir. komið fram sem einleikari með flest- um sinfóníuhljómsveitum Norður- landa. Hún hefur leikið bæði ein- leiks- og hljómsveitarverk inn á fjöl- marga geisladiska. Manuela hefur spilað mikið af nútímatónlist og hafa mörg tónskáld sérstaklega samið verk fyrir hana. Petri Sakari gegnir nú stöðu aðal- gestastjórnanda S.í. Síðan hann lét af störfum sem aðalhljómsveitar- stjóri S.í. árið 1993 hefur hann stjórnað helstu hljómsveitum Norð- urlanda auk hljómsveita í Þýska- landi, Hollandi, Englandi, Ungverja- landi og Rúmeníu. Hann hefur starf- að mikið í óperuhúsunum í Stokk- hólmi, Gautaborg og Helsinki. Petri Sakari er nú aðalhfjómsveitarstjóri Lohja hljómsveitarinnar í Finnlandi. Að loknum tónleikunum á föstu- daginn hyggst Petri Sakari ferðast um ísland í vikutíma til þess að safna kröftum fyrir hljóðritanir sem hann mun stjórna fyrir NAXOS útgáfufyr- irtækið, en nú eru að hefjast fyrstu upptökur af verkum Sibeliusar en áætlað er að taka upp öll hljómsveit- arverk hans á næstu 3 árum fyrir NAXOS. Tónleikarnir hefjast á Sinfóníu nr. 22 eftir Haydn. Hún þykir sérstæð fyrir óvanalega hljóðfæraskipan en hún er skrifuð fyrir 2 englahorn, 2 horn og strengjasveit. Flautukonsertinn Evridís eftir Þor- kel Sigurbjörnsson er skrifaður fyrir Manuelu Wiesler. Höfundur segir um verk sitt þessi konsert varð til fyrir áeggjan Manuelu Wiesler og Páls P. Pálssonar. Heitið bendir til að hér sé á ferðinni enn ein musica>ap- prestentiva" um þekktu goðsögnina- og að þessu sinni frá sjónarhóli Evri- dísar. Ekki þarf að rekja kunnan söguþráðinn. Reynt er að fylgja hon- um. Þar sem heimildum sleppir, er Manuela eiginlega ein til frásagnar - og það gerir hún orðalaust." Tónleikunum lýkur á Lemminkáin- en svítunni eftir Sibelius. M-ED ED ENGIN víðtai víð Hrafnhíld ,£lomsterberg HlfcDR, ©0 AK Guðrún AgnarsdQ'iíii -EöT ÁSTARS A. Eínar G|þrldal og Guörún Guðmundsdóttir &iá Jlk Suðrún K, Eínarsdóttir í Saudí Arabíu