30 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ t LISTIR Hátíðasöngvar séraBjarna Þorsteinssonar HATIÐASONGVAR séra Bjarna Þor- steinssonar hafa fram að þessu ætíð ver- ið gefnir út í einni bók. Þetta þýddi það fyrir söngf ólk að miklar flettingar voru fram og aftur í bókinni hvort sem um var að ræða jól eða páska eða aðrar hátíð- ir ársins. Nú hefur verið tekin upp sú nýbreytni að gefa hverja hátíð út sérstak- lega og nú fyrir jólin komu út fjórar slík- ar. Voru það Aðfangadagskvöld jóla", Messa á jólum", Gamlárskvöld, aftan- söngur" og Messa á nýársdag". Síðan kom Messa á páskum", Messa utan há- tíða" (sem hægt er að flytja á öðrum tíma- bilum kirkjuársins við hátíðleg tækifæri). Einnig er nú komin Messa á hvítasunnu" og síðan kom Samfélagið um Guðs borð" og að lokum Litanían og bæn við útför". Hátíðarsöngvarnir ætlaðir söngflokknum og söfnuðinum Fyrir jólin voru einnig gefin út safn- aðarhefti og þau voru ætluð söfnuðinum til að fylgjast betur með því sem er að gerast í messunni og í reynd verður því mun meiri þátttaka hinna almennu kirkju- gesta við þessar fjölmennustu athafnir ársins sem stórhátíðir kirkjunnar eru ætíð. Er því hér um að ræða að gera söfnuðinn mun virkarí í söngnum, enda sagði séra Bjarni Þorsteinsson í formála endurútgáfu hátíðasöngvanna árið 1926, en þá voru þeir endurskoðaðir af honum, að hátíðasöngvarnir séu ætlaðir söng- flokknum og söfnuðinum". Hátíðasöngv- ar séra Bjarna Þorsteinssonar hafa nú fylgt kirkjunni um 100 ára skeið og er almenn notkun þeirra um allt land. Myndskreytingar Á kápu hvers heftis hátíðasöngvanna eru myndskreytingar eftir kunna ís- lenska og erlenda myndlistarmenn, Jó- hann Briem, Guðmund Thorsteinsson, Barböru Árnason, Jóhannes S. Kjarval og Adrian van der Werff. Myndskreyt- ingarnar sjást hér á síðunni. ALTARISTAFLA í Innrihólmskirkju eftir Jóhannes S. Kjarval. THE Penteeost eftir Adriaen van der Werff. KRISTUR birtist lærisveinunum á leið til Emmaus eftir Guðmund Thorsteinsson. ALTARISTAFLA í Kvennabrekku- kirkju eftir Jóhann Briem. MYNDIN er máluð af Barböru Árnason árið 1967. Styrktartónleikar í Grafarvogskirkju sunnudaginn 19. maí 1996 kl. 17.00 Grafarvogsbúar, tökum þátt í því að byggja okkar kirkju" með því að taka þátt í átakinu sem fram undan er. Óskum Grafarvogsbúum til hamingju með þann áfanga kirkjubyggingarinnar sem kominn er. Fram koma ð fyrstu tónleikum í aöalsal kirkjunnar: Kór- og barnakór Grafarvogskirkju Karlakór Reyk|avíkur Skólahljómsveit Grafarvogs Börn úr Tónlistarskóla Grafarvogs Einleikarar: Gunnar Kvaran og Eiríkur Örn Pálsson Einsöngvarar: Egill Ólafsson, Inga Backman og Sigurður Skagfjörð AHKITEKTASTOFA FINNS BJÖRGVINSSONAR OG HILMARS ÞÓRS BJÓRNSSONAR fgrpAyW^fea hömuuthf rsí$LOFT,\^Z7 Allir listamennirnir gefa Grafarvogskirk|u VERKFRÆÐISTOFA !------------:---------... x. , .." , ...------------------- jOHANNSINOmOASONAHMr ., VinnU 5^0 VIO 10^ 161 ^0(1 0 ICj 10. f