MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ1996 33 LISTIR Með hamsleysi og krafti TONLIST liafnarhorg KAMMERTÓNLEIKAR Tríó Reykjavíkur lék verk eftir Beet- hoven, Jónas Tómasson og Tchaikov- sky. Sunnudagurinn 12. maí,1996. TRÍÓ Reykjavíkur hélt sína síð- ustu tónleika á þessum starfsvetri og tileinkaði þá forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Gunnar Kvaran ávarpaði forsetann og" þakkaði 16 gifturík ár. Tónleikarn- ir hófust með þriðja píanótríóinu (op.l, nr.3 ) glæsilegu verki, sem Tríó Reykjavíkur lék mjög vel og náði Tríó Reykjavíkur að túlka vel þann kraft og óþol, sem einkenndi alla tíð tónlist Beethovens, nema þá helst undir það síðasta. Allt þetta kemur skýrlega fram í c- moll tríóinu, sérstaklega þó í fyrsta kaflanum og reyndar þeim síðasta. Þrátt fyrir að J.S. Bach væri ekki uppgötvaður fyrr á róman- tíska tímabilinu, þekktu bæði Moz- art og Beethoven ýmis verk meist- arans og það sem meira er, að tveir sýnir Johanns Sebastians, Carl Philipp Emanuel og Johann Christian höfðu mikil áhrif á klass- ísku meistarana. Johann Christian, sem Mozart mat mjög mikils og það svo mjög, að hann hnuplaði frá honum ýmsum stefjum og vist er að Mozart varð fyrir áhrifum af píanókonsertum og sinfóníum Johanns. Haydn og Beethoven sóttu ýms- ar hugmyndir til Carls Philipps Emanuels, sem heyra má glöggt í sumum hægu þáttunum í píanó- sónötum Haydns. Ýmislegt í tónst- íl Beethovens minnir mjög sterk- lega á Philip Emmanuel, t.d. er upphafsstefið í 1. sinfóníunni og Prometheus forleiknum beinlísnis útfærla á upphafstefinu í c-moll sinfóníunni eftir Philipp Emanuel. Annað tónverkið á tónleikunum var frumflutningur á verki eftir Jónas Tómasson, er hann nefnir "í kyrrð norðursins". Þetta er sér- lega kyrlátt verk, þó heyra megi stundum þungan undirtón, eins konar ógnandi vá, sem býr að baki friðsæld kyrrðarinnar. Þetta er hugþekkt verk en var vel flutt. Tónleikunum lauk með stór-tríó- inu í a-moll, eftir Tchaikovsky, sem hann samdi fyrir frú Meck. Verkið er bæði erfitt og langt, þó það sé aðeins í tveimur köflum. Seinni kaflinn eru tilbrigði, þar sem Tchaikovsy spinnur með mikilli hugkvæmni mörg áhrifamikil til- brigði og umturnar einföldu stefinu í dansa og fúgato þætti og klæðir það í margvíslegar rómantískar stemmningar. Verkið er sérlega erfitt fyrir píanóið og þar fór Peter Máté á kostum. I þessu verki "forte" ráðandi og gerir það strengjunum oft erfitt fyrir. Það getur verið eftitt að halda styrk- leikanum uppi á strengjahljóðfæri, án þess að það kosti eitthvað í blæmótun og tónstöðu. í gegnum þessa boða hamsleysis hjá Tcha- ikovsky sigldu Guðný Guðmunds- dóttir og Gunnar Kvaran með glæsibrag, þó oft syði á keipum, eins og sjómenn sögðu, þegar djarft var siglt. Tónleikarnir í heild voru afburða góðir og glæsileg kveðja til sumarkomunnar og for- seta íslands, frú Vigdísar Finn- bogadóttur. Jón Ásgeirsson - - Fjölbrautaskóli Suðurnesja ¦^Sunnubraut 36 230 Keflavík Slmi 421 3100 Fax 421 3107 Fjölbrautaskóli Suðurnesja 20 ára Afmælisárgangar FS - Afmælisárgangar FS - Afmælisárgangar FS Fjölbrautaskóli Suðurnesja er tuttugu ára og af því tilefni verður afmælisfagnaður í íþróttahúsinu í Keflavík 24. maí nk. og hefst með borðhaldi kl. 19.00. Skemmtiatriði og dans í lokin. Lærðir þú að verða: Smiður, sjúkraliði, flugliði, vélstjóri, vélavorður, -meistari, hár- greiðslukona/maður, tækniteiknari, netagerðarmaður eða laukstu.stúdentsprófi eða einhverju öðru námi frá Fjölbrauta skóla Suðurnesja? Eigið þið útskriftaraf- mæli í ár? Varstu kannski í stjórn FS? Þeir árgangar og fyrrverandi stjornarmenn NFS sem eiga 5, 10, 15 ára útskriftaraf mæli eða voru í fyrstu útskriftarhópum skólans haustið 1978 og vorið 1979 og hafa hug á því að taka þátt í afmælisfagnaðinum, láti vita á skrifstofu skólans fyrir 22. maí nk. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans eða í síma 421 3100. Afmælisnefnd FS. BEINT FLUG: AUSTURRIKI 21775.- 6 da Brottför: 24. júní pr. mann. Beintflug til Klagenfurt. Innifalið: Flug og flugv.skattar. FERÐIR Faxafeni 5 108 Reykjavík. Sími: 568 2277 Fax: 568 2274 Drauma- bíllinn Ríkulega búinn eðalvagn sem þú þarft ekki lengur að láta þig dreyma um. Margir eiga sér draum um að eignast eðalvagn, stóran bíl sem tekur öðrum fram í útliti o aksturseiginleikum. Við getum boðið þér bíl sem á við þessa lýsingu. Og við getum boðið þér hann á svo góðu verði að þér er óhætt að vakna upp af góðum draum og láta hann rætast. Gerið eigin samanburð, þið komist eflaust að sömu niðurstöðu og aðrir ánægðir Sonata eigendur. Allt þetta fyrir aðeins 1.678.000 kr. á götuna 1» ÁRMÚLA 13, SlMI: 568 1200 BEINN SlMI: 553 1236 HYunoni til framtíðar Rafknúnar rúður Rafknúnir hliðarspeglar Samlæsing í hurðum Þjófavörn Vökva- og veltistýri Tveir styrktarbitar í hurðum Útvarp/kassettutæki með 4 hátölurum Rafknúið loftnet titað gler Statíf fyrir drykkjarmál Hólf milli framsæta Stafræn klukka Snúningshraðamælir o.m.fl.