Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						44    FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996

MORGUNBLAÐIÐ

AÐSENDAR GREINAR

Blindraletur á íslandi

Hlutur Vinafélags Blindra-

bókasafns íslands í

vexti og viðgangi þess

BLINDRALETUR hefur þá sér-

stöðu að einungis örfámennur hóp-

ur í hverju þjóðfélagi les það. Það

var fundið upp í Frakklandi árið

1825 og hefur staðist tímans tönn.

Stöðugt er verið að bæta aðstöðu

til bókagerðar á blindraletri og

hafa ýmsir lagt hönd á plóginn til

þess að Blindrabókasafn Islands

verði í fremstu röð framleiðenda

blindraleturs í Evrópu.

Á aðalfundi Vinafélags Blindra-

bókasafns íslands, sem haldinn

var 2. maí síðastliðinn, afhenti

stjórn félagsins sérstakan pappírs-

hníf að gjöf. Hnífur þessi vinnur

með eftirfarandi hætti: Hann sker

pappír jafnóðum og hann kemur

út úr prentvél safnsins. Einnig er

hægt að stilla hann þannig að

hann skeri pappírinn eftir að

prentað hefur verið á hann. Eins

og menn vita er blihdraletrið gert

úr upphleyptum punktum. Þessi

hnífur er þannig hannaður að

punktarnir bælast ekki.

Blindraletur barst hingað til

lands skömmu fyrir 1930. Senni-

lega hefur Þórsteinn Bjarnason,

sem síðar varð formaður Blindra-

vinafélags íslands um 5 áratuga

skeið, orðið fyrstur til að kenna

blindraletur hér á landi. Ragnheið-

ur Kjartansdóttir nam blindra-

kennslu í Danmörku eftir árið

1930 og varð kennari við Blindra-

skólann sem Blindravinafélag ís-

lands stofnaði árið 1933. Nokkrir

urðu á þessum árum til þess að

Iæra að skrifa blindraletur. Það

var þannig gert að tvö blöð voru

sett í einfaldar blindra-

ritvélar og var þannig

hægt að búa til tvö

eintök af sömu bók-

inni. Á árunum

1934-41 voru þannig

skrifaðar um 80 bæk-

ur eða bókarhlutar.

Af          einhverjum

ástæðum lagðist síðan

bókagerð af að mestu

leyti. Þegar Einar

Halldórsson, blindra-

_kennari, kom til starfa

árið 1956 fékk hann

Lionsklúbb Reykjavík-

ur til þess að gefa

tæki til bókagerðar

blindra. Um var að ræða sérstaka

ritvél sem notuð var til þess að

skrifa letrið á málmþynnur. Papp-

ír var síðan lagður á milli þynn-

anna og punktunum þrýst á hann

með því að renna þynnunum gegn-

um þvottavindu.

Þegar þessi tæki höfðu runnið

sitt skeið á enda árið 1965 voru

keyptar hingað til lands blindrarit-

vélar frá Bandaríkjunum. Þá var

á ný farið að skrifa bækurnar á

pappír. En um leið var keypt sér-

stök fjölföldunarvél sem gerði

kleift að fjölfalda blindraletrið á

sérstakar plastþynnur. Þessi ódýra

fjölföldunaraðferð hafði þá nýlega

verið kynnt í Bandaríkjunum og

urðu íslendingar fyrstir Evrópu-

þjóða til þess að tileinka sér hana.

Plastþynnurnar höfðu þann ókost

að einungis var hægt að setja letr-

ið öðrum megin á þær. Þær urðu

einnig stamar og urðu því hraðlæs-

ir einstaklingar að dreifa yfir þær

púðri (talkúmi) til þess að ná meiri

lestrarhraða. Þær höfðu og hafa

Arnþór

Helgason

þó þann ótvíræða kost

að hægt er að búa til

upphleyptar myndir

með þeim.

Bókaútgáfa          á

blindraletri var með

nokkrum blóma á ár-

unum 1957 til 1965.

Þá var svo komið að

blindir nemendur

þurftu á öllum mann-

afla að halda til bóka-

framleiðslu og lagðist

því almenn bókagerð

að mestu af.

Þegar Blindra-

bókasafn íslands var

stofnað árið 1983 var

fljótlega farið að huga að nýjung-

um. Fenginn var lítill, tölvustýrður

blindraletursprentari til safnsins

haustið 1984 og hófust þá tilraun-

ir til að nota tölvur til þess að

prenta út blindraletur. Veturinn

1985 var Hilmari Skarphéðins-

syni, verkfræðingi, falið að gera

úttekt á þeim kostum sem fyrir

hendi væru vegna tölvuprentunar

blindraleturs. Niðurstaðan varð sú

að ákveðið var að hanna sérstakt

umbreytiforrit til þess að breyta

texta í blindraletur. Skilaði Hilmar

forritinu til prófunar í september

1985 og hefur það verið notað síð-

an með litlum breytingum.

Árið 1986 var fengin til safnsins

tölvustýrð prentvél frá Bandaríkj-

unum að mestu leyti fyrir fé sem

safnaðist vegna sölu hljómplöt-

unnar Ástarjátningar sem þau

hjónin Gísli Helgason og Herdís

Hallvarðsdóttir gáfu út til styrktar

þessu málefni. Ekki skal gleymt

þætti Alberts Guðmundssonar,

fjármálaráðherra, en hann studdi

Blindraletur, segir Arn-

þór Helgason, hefur

aldrei verið jafnmikið

notað hér á landi og um

þessar mundir.

þetta mál ásamt öðrum. Því miður

var þessi prentvél dæmd ónýt

haustið 1989. Blindrabókasafnið

efndi þá til eins konar lokaðs út-

boðs og varð niðurstaðan sú að

keypt var ný blindraletursprentvél

frá fyrirtækinu Braillo Norway.

-Sú vél hefur þjónað safninu síðan

í mars 1990. Nýlega hefur vélin

verið endurbyggð. Skipt hefur ver-

ið um tölvubúnað í henni og annar

rafbúnaður endurnýjaður. Gera

þessar breytingar safninu unnt að

veita notendum blindraleturs mun

víðtækari þjónustu en áður. Og

nú kemur þessi ómetanlegi hnífur

sem starfsmenn safnsins hefur

dreymt um að eignast í bráðum

10 ár. Ef fyrir hendi væri betri

búnaður til þess að gata pappírinn

fyrir gormabindingar væri aðstaða

við frágang bókanna nær fullkom-

in.

Með því að fjárfesta í prentvél

safnsins árið 1990 var keypt tæki

sem væntanlega mun duga safn-

inu fram á næstu öld. Ætla má

að hið sama gildi um pappírshníf-

inn sem einnig er keyptur frá Bra-

illo Norway, en það fyrirtæki hef-

ur breytt hnífnum lítillega til þess

að hann henti betur til skurðar á

pappír með blindraletri.

Vinafélag Blindrabókasafns ís-

lands hefur reynst útgáfustarf-

semi á blindraletri haukur í horni.

Árið 1993 gaf félagið tölvu, skima

og hugbúnað sem notaður er til

þess að skima bækur beint inn á

tölvur. Fyrsta árið sparaði þessi

búnaður blindrabókasafni íslands

um hálfa milljón króna í lyklun á

texta. Nú er svo komið að þær

bækur, sem við fáum ekki á diskl-

ingum frá útgefendum, eru skim-

aðar inn. Þetta gerir vinnuferlið

mun hraðvirkara og eykur fram-

boð á lesefni fyrir þá sem eru

háðir blindraletri.

Einungis lesa blindraletur um

15 manns hér á landi. Ef við ber-

um fjölda þeirra saman við það

sem gengur og gerist í nágranna-

löndum okkar ættu lesendur

blindraleturs að vera 50-60. Ýms-

ar skýringar eru á þessu; strjál

bókaútgáfa framan af og ef til

vill ekki nægilega markviss þjálfun

og endurhæfing. Þar sem um svo

fáa einstaklinga er að ræða er

þjónusta við notendur blindralet-

urs einstaklingsbundin. Blindra-

bókasafnið er í þeirri stöðu að

geta útvegað lánþegum að mestu

þær bækur sem þeir biðja um.

Blindraletur hefur aldrei verið

jafnmikið notað hér á landi og um

þessar mundir. Flestir notendur

þess hafa nú yfír að ráða sérstök-

um blindraletursbúnaði sem

tengdur er við tölvur. Einnig er

nú miklu meira prentað af blindra-

letri en nokkru sinni áður. Fyrir

árið 1986 voru sjaldan framleiddar

fleiri en 5.000-6.000 síður á ári

en á undanförnum árum hefur

framleiðslan aldrei verið minni

en 25.000 síður. Ahugi á lestri

bóka á blindraletri mætti hins

vegar vera meiri. Vinna þarf

að því að efla hann með öllum

tiltækum ráðum. Þar verða allir

að leggja sitt lóð á vogarskál-

arnar.

Höfundur er deildarsérfræðingur

hjá Blindrabókasafni íslands.

Nýjar leiðir í iðju-

þjálfun geðsjúkra

IÐJUÞJÁLFUN er

mikilvægur þáttur í

meðferð og endurhæf-

ingu geðsjúkra. Iðju-

þjálfun geðsjúkra og

einstaklinga sem eiga

við             sálfélagsleg

vandamál að stríða

hefur hingað til ein-

gðngu verið bundin við

geðdeildir sjúkrahús-

anna og Reykjalund.

Eingöngu þeir sem

leggjast inn eða eru í

tengslum við sjúkra-

húsin hafa átt kost á

iðjuþjálfun. Og þá

spyrja eflaust margir:

Hvað í ósköpunum er

iðjuþjálfun fyrir geðsjúka og hafa

einhverjir aðrir en sjúklingar á

sjúkrahúsum þörf fyrir slíka iðju-

þjálfun? Til að útskýra nánar þörf-

ina á iðjuþjálfun utan sjúkrahúsa

er best að byrja á að skoða hvað

fram fer í iðjuþjálfun á geðdeild.

Iðjuþjálfun á geðdeild

Iðjuþjálfar á geðdeild vinná við

Annetta A.

Ingimundardóttir

	............................. iffio"c® flísar			

		_    j_		

		í^	Lriít	k

	4ðlí	'ÍBI	| ífl »	1

	vv	lS4j-		

	i	T _„		

s	tórhfifða 17, við C.ullinbrú, sími 567 4844			

að greina eðli vanda-

mála sjúklinga sinna,

þjálfa, hæfa og endur-

hæfa þá sem þurfa

þess með. Viðfangs-

efni iðjuþjálfa eru at-

hafnir hins daglega

lífs, athafnir sem

nauðsynlegar eru öll-

um til að geta lifað

sjálfstæðu lífi. Sjúkl-

ingarnir fá þjálfun

sem miðar að því að

þeir nái tökum á dag-

legu lífí sínu. Þessi

þjálfun getur verið af

ýmsum toga, t.a.m.

starfsþjálfun, sjálfs-

bjargarþjálfun eða

jafnvel félagsþjálfun, allt eftir hver

þörf viðkomandi einstaklings er.

Þegar leitað er lausna á þeim

vandamálum sem há sjúklingnum

vinna iðjuþjálfi og sjúklingur sam-

an út frá styrk, hæfileikum eða

jafnvel áhugamálum viðkomandi.

Allir hafa hæfíleika á einhverjum

sviðum, hæfileika sem geta verið

meðvitaðir eða ómeðvitaðir. Það

er líka hægt að segja að verið sé

að aðstoða einstaklinginn við að

vinna upp eða auka við þá færni

sem fyrir var áður en hann veikt-

ist. Þegar sjúkdómar eða vanda-

mál koma upp gerist það því mið-

ur oft að viðkomandi einstaklingur

missir niður færni og hæfileika

sem sjálfsagðir þykja í hinu dag-

lega lífi. Athafnir sem við fram-

kvæmum nánast hugsunarlaust,

eins og t.d. að taka til í kringum

okkur og elda mat, eiga samskipti

við annað fólk og sækja vinnu,

verða flóknar og óyfirstíganlegar.

Kvíði fyrir athöfnum sem áður

voru einfaldar og léku í höndum

viðkomandi verður svo mikill að

framkvæmd þeirra rennur út í

sandinn áður en hafist er handa.

Stundum er sagt að lykillinn að

lífsgæðum sé að sem mest jafn-

vægi sé milli tómstunda, félags-

lífs, vinnu og fjölskyldulífs. í iðju-

þjálfun er unnið markvisst að að

auka lífsgæði einstaklingsins.

Ýmist er um að ræða einstaklings-

þjálfun eða hópþjálfun sem er al-

gengasta meðferðarformið í dag.

Draumahús

í dag er hér á landi eingöngu

hægt að fá geðræna iðjuþjálfun á

sjúkrahúsum eða stofnun. Víða

erlendis viðgengst annarskonar

geðræn iðjuþjálfun, það er að segja

iðjuþjálfun sem fram fer utan

sjúkrahúsa og stofnana. Sparnað-

ur í heilbrigðiskerfinu í þessum

löndum leiddi til þess að leitað var

nýrra leiða, nýrra úrræða sem eru

hagkvæmari en bjóða um leið upp

á fjölbreyttari þjónustu við geð-

sjúka. Þessi nýja tegund iðjuþjálf-

unar ætti að henta vel hérlendis

við þær aðstæður er nú ríkja: Mik-

ið aðhald hefur verið í fjárveiting-

um til geðheilbrigðismála og þörf-

in fyrir fjölbreyttari úrræði fyrir

geðsjúka eftir að meðferð á sjúkra-

húsi lýkur hefur ekki minnkað

undanfarin ár.

Marga   iðjuþjálfa   hefur   lengi

dreymt um að koma upp aðstöðu

til þjálfunar sem auðveldar geð-

sjúkum að fara úr tryggum faðmi

heilbrigðisstofnananna út í hinn

oft og tíðum kalda veruleika. Víða

erlendis er slík aðstaða í boði, oft

í svokölluðum athafnahúsum þar

sem boðið er upp á margskonar

starfsemi. Sem dæmi um starfsemi

sem fram fer í slíkum húsum má

Með því að færa iðju-

þjálfun að hluta til frá

sjúkrastofnun inn á

heimili má, að mati

Annettu A. Ingimund-

ardóttur, auka gæði

þjónustunnar og ná

fram sparnaði.

nefna, kaffíhús, ferðaskrifstofu,

fræðslumiðstöð, viðgerðir á hús-

gögnum og reiðhjólum svo eitt-

hvað sé nefnt. Það sem m.a. ein-

kennir athafnahúsin er sérdeilis

lýðræðislegt rekstrarform. Skjól-

stæðingar hússins taka þátt í öll-

um ákvarðanatokum og daglegum

rekstri. Smám saman eru skjól-

stæðingarnir þjálfaðir í að taka

meiri og meiri ábyrgð á daglegum

rekstri og lokamarkmiðið er að

þeir öðlist styrk og getu til að sjá

um allan reksturinn.

Heima er best

Önnur tegund iðjuþjálfunar fyr-

ir geðsjúka og fólk með sálfélags-

leg vandamál er þjálfun í heima-

húsi. Eins og fram kom hér að

framan er röskun á athöfnum dag-

legs lífs fylgifiskur geðrænna

vandamála. Með því að veita þjálf-

un og jafnvel hluta af endurhæf-

ingu inni á heimili viðkomandi eða

í nánasta umhverfí hans geta iðju-

þjálfar miðað þjálfunina við þann

raunveruleika sem viðkomandi býr

í. Einnig er mikilvægur forvarna-

þáttur fólginn í að iðjuþjálfunin

fari fram á heimili skjólstæðings-

ins. Með auknu innsæi iðjuþjálfans

í daglegt líf skjólstæðingsins auk-

ast möguleikar á að hægt sé að

fyrirbyggja að vandamálin verði

allsráðandi og viðkomandi þurfi

e.t.v. á innlögn á sjúkrahús að

halda. Iðjuþjálfun í heimahúsi get-

ur einnig verið mikilvægur þáttur

í meðferð að lokinni innlögn á

sjúkrahúsi. Við getum hugsað

okkur einstakling sem dvalið hefur

um nokkurt skeið á geðdeild og

komið er að útskrift. Hvernig mun

honum ganga að tileinka sér aftur

þær athafnir sem tilheyra því að

búa heima, athafnir eins og að sjá

um heimilið, sækja vinnu og hitta

fjölskyldu og vini á ný, athafnir

sem voru svo yfirþyrmandi fyrir

innlögn? Það gefur auga leið að

viðkomandi kann að þurfa stuðn-

ing og jafnvel á þjálfun að halda

við ná tökum á þessum athöfnum.

Iðjuþjálfi gæti komið heim til við-

komandi og aðstoðað hann við að

ná tökum á þessum athöfnum og

að skipuleggja daginn þannig að

sem mest jafnvægi verði á milli

allra þeirra athafna sem tilheyra

daglegu lífi.

Betri og ódýrari þjónusta

Eins og fram kemur hér að ofan

eru ýmis verkefni sem bíða iðju-

þjálfa sem starfa við geðheilbrigð-

ismál. Með því að færa iðjuþjálfun

að einhverju leyti frá sjúkrastofn-

unum inn á heimili og koma upp

sérstökum athafnahúsum er ekki

eingöngu verið að auka gæði heil-

brigðisþjónustunar heldur má

einnig gera ráð fyrir að verulegur

sparnaður fylgi slíkri tilhögun þeg-

ar fram líða stundir.

Höfundur er iðjuþjálfi við

Geðdeild Landspítalans.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80