54 FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- hlaðborð, fallegir salir og mjög góð þjórmsía Upplýsingar ísíma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIBIR HÍTEL l,IIFTU:illl(l MINNINGAR KRISTJAN JÓNSSON + Kristján Jónsson var fæddur í Stykkishólmi 3. desember 1920. Hann lést á Sjúkrahúsi Stykkishólms 10. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Jón G. Jónasson frá Helgafelli í Helgafellssveit, f. 1.11. 1879, d. 1957, og Margrét Andrésdótt- ir frá Búðanesi við Stykkishólm, f. 15.7. 1877, d. 1963. Kristján kvæntist Guðríði Valgeirsdóttur, en þau slitu samvistir. Saman eignuðust þau tvö börn: 1) Helgi, f. 1951, kvænt- ur Ingibjörgu Markúsdóttur, f. 1954, börn þeirra eru: Kristján, Jóhanna og Ingólfur. 2) Valgerð- ur, f.. 1953, börn hennar eru: Hulda, Halldór, Ragnar, Þórólf- ur, Agúst og Erling Óskar. Kristján starfaði mestan hluta ævi sinnar við sjómennsku, lengst af sem kokkur á Flóabátn- um Baldri. Þar næst starfaði hann í nokkur ár við fiskvinnslu í Þórs- nesi. Síðustu árum ævi sinnar eyddi hann á Ðvalarheimili aldraðra í Stykk- ishólmi. Jarðarför Krist- jáns fer fram frá Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 16. maí og hefst athöfnin kl. 14. Eftir að hafa háð sína lokaorrustu við Elli kerlingu er nú allur Kristján Jónsson frá Stykkishólmi, farinn á fund feðra sinna, þangað sem lún- ir menn sækja sína hvíld að jarðvist lok- inni. Kristján stundaði mestan hluta ævi sinnar sjómennsku, þar sem hann starfaði sem matsveinn á Flóabátn- um Baldri. Á uppvaxtarárum okkar Helga voru Rútan" og Baldur helstu tengiliðir Hólm- ara við umheiminn. Það voru því ófáar stundirnar sem ég beið með Helga vini mínum eftir að Baldur kæmi úr áætlunarferð og var sú bið alltaf þess virði, því ein- att kom Stjáni færandi hendi, hvers ég líka fékk að njóta. Fyrir rúmum 40 árum var ekki eins algengt og nú að hjón slitu samvistir og ennþá sjaldgæfara að feður hefðu einir forræði barna sinna eftir hjúskaparslit. Kristján hafði fengið forræði beggja barna sinna, þeirra Helga og Valgerðar, en Valgerður var síðan í fóstri hjá kjörforeldrum sínum. Við sem bjuggum hjá móður okkar og nutum ekki- okkar feðra fannst það erfitt, og öfunduðum oft Helga, sem naut ekki aðeins ástúðlegrar umhyggju föður síns heldur einnig systkina Kristjáns á Sólvöllum í Stykkis- hólmi, er við ólumst þar upp sem nágrannar og vinir. Það er ekki erfitt að rifja upp svipmyndir af Kristjáni frá þeim tíma sem við vorum nágrannar í Stykkishólmi, þótt langt sé um lið- ið. Alltaf hafði hann sitt glaðlega fas og mikla umburðarlyndi. Greini- legt var að Kristján hafði helgað líf sitt umhyggju og ástúð barna sinna og síðar einnig barnabarn- Skilafrest- ur minn- ingar- greina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunn- inn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Níðsterkir, mótaðir úr framtiðarefninu akrýli, sem er hita- og efnaþolið og auðvelt að þrífa. Fást með loki eða öryggishlíf. Fáanlegir með vatns- og loftnuddkerfum. Margir litir, 6 stærðir sem rúma 4-12 manns. Veitum ráðgjöf um niðursetningu og frágang. Verð frá aðeins kr. 84.888 Framleiðum einnig hornbaðkör og sturtubotna úr akryli. Komið og skoðið baðkörin og pottana uppsetta í sýningarsál okkar eða hringið ogfáið séndan litprentaðan bækling og verðlista. TREFJAR »/, Hjalluhrauni 2, sítni 555 1027.