MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996 55 i 6 i 4 4 4 I 4 4 4 4 4 i \ 4 MINNINGAR anna. Til marks um það er ánægju- legt að minnast þess hversu ham- ingjan geislaði af Stjána þegar elsti sonur Helga og Ingu var fæddur og skírður eftir afa sínum. Já, það var stoltur afi sem hafði fengið uppskeru fórnfýsi sinnar og erfiðis. Ekki er hægt að hugsa til Krist- jáns á uppvaxtarárum okkar Helga, án þess að upp í hugann komi sam- býli systkina hans, þeirra Ástu, Hannesar, Jóns og Ingibjargar, þar sem Helgi var í góðri umsjá Ástu meðan Kristján var á sjó. Öll eru þau nú látin, þá síðast Ingibjörg nú fyrir skömmu. Blessuð sé minn- ing þeirra. Þegar hugsað er til baka og rifj- uð upp viðkynning af fólki í litlu sveitarsamfélagi, sem Stykkishólm- ur var á þessum árum, ber hæst manngæsku þeirra og gott nábýli sem sérhver gæti verið stoltur af. Helgi, Inga og börn, Valgerður og börn, Fjóla og Unnur, ég og fjöl- skylda mín vottum ykkur samúð vegna fráfalls Kristjáns. Blessuð sé minning hans. Ingólfur Vestmann. Nú þegar stundin er komin vitum við að þú hefur hlotið þá hvíld sem þú áttir skilið. Þó erfitt sé að sætta sig við þetta, er þetta endir okkar allra. Hugsunin beinist að minningun- um sem við eigum um húsið hans afa í Hólminum, lömbunum okkar og fjárhúsunum. Tilhlökkunin um að fara út á flugvöll að sækja afa i sveitinni, sem svo ósjaldan eyddi hátíðisdögum sem öðrum hér hjá okkur í bænum. Eftir að hann veikt- ist urðu ferðir hans í bæinn færri en á sama hátt fjölgaði ferðum okkar vestur. Ég horfi yfir hafið um haust af auðri strönd, í skuggaskýjum grafið það skilur mikil lönd. Sú ströndin strjála' og auða, er stari' eg héðan af, er ströndin stríðs og nauða, er ströndin hafsins dauða, og hafið dauðans haf. (V. Briem) Góði Guð, geym þú afa okkar vel og hugsaðu vel um hann. Þetta er okkar hinsta kveðja. Jóhanna, Kristján og Ingólfur. 4 4 4 - ERFIDRYKKJUR Næg bílastæði P E R L A N sími 562 0200 Crfisdrukkjur VcitifMjohö/ið Gfun-ian l Sími 555-4477 Biddu um Banana Boat ef þú vilt spara 40-60% Þegar þú kaupir Aloe Vera gel. ? Hvers vegna að borga 1200 kr. fyrir kvartlitra af Aloe geli þegar þú getur fengið sama magn af Aloe Vera geli frá Banana Boat á um 700 kr eða tvöfalt meira magn af Banana Boa! Aloe Vera geii á lOOOkr. ? Hvers vegna að bera á sig 2% af ratvarnarefnum þegar þti getur fengið 99,7% (100%] tireint Banana Boat Aloe Vera gel? O Banana Boat rringarkremið Brún-án-sólar i úðabrúsa eða með sólvörn #8. D Stýrðu sólbrúnkutóninum með t.d. hraðvirka Banana Boat dökksólbrúnkuoliunni eða -kreminu eða Banana Boat Golden oliunni sem framkallar gyltta brúnkutóninn. D Hefur þú prófað Naturica húðkremin sem allir eru að rate um, uppskrill Birgittu Klemo, eins virtasta ttúðsérfasðings Norðurlanda? Naturica Ört-kram og Naturica Hud-krám. Banana Boat og Naturica fást i sólbaðsstofum, apótekum, snyrtiv. verslunum og öllum heilsubúðum utan Reykjavikur. Banana Boat E-gelið fæst líka hjá Samtökum psoriasis-og exemsiúklinaa. ___________ ____________ Heilsuval - Barónsstía 20 ts 562 6275 Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvclli og Rábhústorginu -kjarni málsinv! INGOLFS APÓTEK Kringlunni 8-12 HRAUNBERGS APÓTEK Hraunbergi 4 eru opin til kl. 22 Narca koíurúm