Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						58    FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996

MORGUNBLAÐIÐ

+

MINNINGAR

BIRGIR

STEINDÓRSSON

+ Birgir Steindórs-

son fæddist í

Siglufírði8.júlíl950.

Hann lést á Sjúkra-

húsi Siglufjarðar 9.

maí         síðastliðinn.

Birgir var sonur

Steindórs Hannes-

sonar, bakarameist-

ara á Siglufirði, og

konu hans, Sigríðar

Jónsdóttur. Eftirlif-

andi eiginkona Birg-

is er Asta Margrét

Gunnarsóttir og áttu

þau fjóra syni. Þeir

eru Halldór, f. 28.10

1967, sambýliskona

hans er Esther Ingólfsdóttir og

eiga þau eina dóttur, Astu Björk,

tvíburarnir Jónas og Steindór, f.

10.7.1975, og Þórður, f. 4.2.1983.

Birgir fór ungur til Kaup-

mannahafnar og var þar við nám

og störf í tengslum við verslun,

lærði m.a. útstillingar. I septem-

ber 1978 keypti Birgir Aðalbúð-

ina  á  Siglufirði  og  sameinaði

Ævidegi vinar míns, Birgis Stein-

dórssonar, er lokið. Degi hans lauk

löngu áður en kom að ævikvöldi.

Eigi að síður var hvíldin kær, því

ekkert var lengur framundan í þess-

um heimi annað en meiri þrautir

þess sjúkdóms, sem svo marga legg-

ur að velli. Einnig í þeirri baráttu

nutu sín hans góðu kostir, sem birt-

ust í raunsæi, yfirvegun og kjarki.

Hversu erfiðar sem ytri aðstæður

gátu verið brást hann við af ábyrgð

og festu. Það var kappsmál að stand-

ast hverja raun. Ég kynntist Birgi í

félagsstörfum þar sem leiðir okkar

lágu saman. Einkum var það í marg-

háttuðum trúnaðarstörfum hans fyr-

ir Sjálfstæðisflokkinn, þar sem hann

var traustur og heill í afstöðu til

manna og málefna. Af þeim vett-

vangi er hann kvaddur með þakk-

læti og virðingu.

Birgir var einlægur í því að vinna

Siglufirði allt sem hann mátti. Hann

horfðí tíl framtíðar bæjarins, Ieitaði

umbóta, framfara og hvatti aðra til

hins sama. Framganga hans og

áhugi hreif aðra með. Drifkraftur

starfa hans fyrir samfélagið byggðist

á trúnaði við fólkið og staðinn, sem

fóstraði hann. Þar kom einnig til virð-

ing fyrir sögu, lífí og þess sérstaka

í menningu bæjarins sem hann vildi

gjarnan draga fram. Þessum áhuga

deildi hann með góðum félagsskap

heimamanna, sem hefur unnið at-

hyglisvert starf að ferðamálum og

uppbyggingu síldarminjasafnsins.

Þessi sami hugur og vilji bjó að baki

öllum félagsstörfunum. Rík ábyrgð-

artilfinning ásamt heillyndi og trú-

verðugleika gerðu hann að góðum

félaga og forystumanni. Það sýndi

hann rrteð óyggjandi hætti í félags-

og þjónustustörfum sínum. Engu

breytti þótt hann væri sjálfur með

umfangsmikinn einkarekstur, sem

þyngdist og yki við áhyggjur, þegar

samdráttur varð í þjóðfélaginu. Nota-

legt andrúmsloftið, yfirsýnin á mál-

efnin sem ræða þurfti ásamt hlýleika

þeirra hjóna Birgis og Ástu Margrét-

ar gerðu ferðirnar til Siglufjarðar

ánægjulegar. Það var tilhlökkunar-

efni að koma við hjá þeim í Aðalbúð-

inni.

Góðar minningar eru okkur dýr-

mætar og þannig er og verður minn-

ingin um Birgi Steindórsson.

Eg kveð hann með virðingu og

þökk og votta Ástu Margréti, son-

unum og öllum ástvinum öðrum

dýpstu samúð.

Hjálmar Jónsson.

Afi er dáinn, farinn og ég, sem

er bara fimm ára, á svolítið erfitt

með að skilja þetta. Þú sem varst

svo góður við mig. Oftast kom ég

með mömmu og pabba í heimsókn

til ykkar ömmu á Lindargötuna um

( helgar og þá var svo spennandi þeg-

ar við skruppum á rúntinn og komum

við í búðinni, bara við tvö, og ekki

spillti það ánægjunni þegar Doddi

vildi koma með okkur. Einnig minn-

hana Bókaverslun

Hannesar Jónasson-

ar og hóf sjálfstæð-

an atvinnurekstur.

Birgir sinnti marg-

víslegur félagsstörf-

um. Hann var

stjórnarmaður og

síðast         formaður

Björgunarsveitar-

innar Stráka á Siglu-

firði. Þá var hann

einn aðalhvatamað-

ur að uppbyggingu

Sildarminjasafnsins.

Hann sat í bæjar-

stjórn Siglufjarðar

1982-1986 og gegndi

ýmsum trúnaðarstörfum fyrir

Siglufjarðarkaupstað. Birgir var

formaður fulltrúaráðs sjálfstæð-

isfélaganna á Siglufirði og

gegndi margvíslegum störfum

fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjör-

dæminu svo og á landsvísu.

Útför Birgis verður gerð frá

Siglufjarðarkirkju í dag og hefst

athöfnin klukkan 14.

ist ég allra sundferðanna okkar sam-

an og stundum fengu amma og Doddi

að koma með, en nú verður skrítið

að fara í sund og enginn afí Biggi.

Eitt er það sem verður erfitt, en það

er þegar sunnudagaskólinn byrjar

næsta haust og enginn afí sem kem-

ur og nær í mig á sunnudagsmorgn-

um til að fara í barnamessu, eins og

þú, elsku afi, hefur gert síðan ég var

2 ára. Það voru ekki margar mess-

urnar sem ég missti af, enda fékk

ég alltaf verðlaun fyrir mætingar

yfír veturinn eða réttara sagt vorum

það við sem fengum þessi verðlaun.

Ótrúleg var þolinmæði þín við mig

allan þennan tíma, því ekki var ég

alltaf stillt og prúð, og eitt má ekki

gleymast, það, hvað þú varst góður

að lofa Eiríki frænda mínum og besta

vini að koma með, en það var ekki

alltaf auðvelt að hafa okkur ormana

saman. Alltaf enduðu þessar messu-

ferðir okkar á Lindargötunni hjá

ömmu Ástu, sem var alltaf tilbúin

með eitthvert góðgæti handa okkur

til að taka með í nesti heim.

Elsku afí Biggi, nú eru þrautir

þínar á enda, en mikið óskaplegá

sakna ég þín sárt, og það gera

mamma og pabbi líka, en nú vitum

við að þér líður vel.

Hvíl í friði, elsku besti afí minn.

Þín

Ásta Björk.

Biggi afí er dáinn. Ég minnist þín

méð söknuði. Þú varst afí hennar

Ástu frænku minnar sem var einu

ári eldri en ég og ég fékk að kalla

þig afa líka eins og hún. Ég minnist

þeirra mörgu sunnudaga sem ég

beið í glugganum heima eftir að þú

kæmir að ná í mig til að fara með

mig í sunnudagaskólann. Þá varstu

búinn að ná í Astu frænku mína og

við fórum öll saman.

Alltaf var þolinmæði þín næg við

mig, þó ég ætti stundum erfitt með

að sitja kyrr og allar þær myndir sem

ég litaði í sunnudagaskólanum litaðir

þú líka með mér og eru þær mér

mjög mikils virði nú. Að loknum

messum fórum við svo alltaf heim

til ömmu Ástu á Lindargötuna og

fengum eitthvert góðgæti. Nú verða

þessar stundir ekki fleiri en dýrmæt-

ar minningar um þig, elsku afi Biggi,

geymi ég í hugamínum.

Elsku amma Ásta, Jónas, Stein-

dór, Doddi, Halldór, Esther og Ásta

Björk, ég sendi ykkur innilegar sam-

úðarkveðjur og bið Guð að styrkja

ykkur á þessari miklu sorgarstund.

Hvíl í friði.

Eiríkur Ingi.

Vinur okkar og nágranni, Birgir

Steindórsson, er látinn, aðeins 45 ára

að aldri.

Við spyrjum okkur hver sé tilgang-

urinn að leggja á fólk slíka raun sem

illkynja sjúkdómur er. Er sá sem öllu

stýrir að reyna á þolrifin í mannanna

börnum?   Ef  svo  er  hefur  Birgir

Steindórsson staðist hverja þraut.

Æðruleysi hans og hetjuskapur í

baráttu hans við ólæknandi sjúkdóm

vakti aðdáun og virðingu okkar.

Aldrei heyrðum við hann kvarta eða

vorkenna sjálfum sér í stuttri en erf-

iðri banalegu. Frá því að sjúkdómur

sá sem dró hann til dauða uppgötvað-

ist liðu aðeins 3 mánuðir þar til hann

var allur.

Það er mikils virði að eiga góða

að á erfiðleikastundum og þar var

Birgir lánsamur. Eiginkona, synir,

tengdadóttir og barnabarn stóðu við

hlið Birgis og af sama æðruleysi og

hann tóku þau því sem að höndum

bar. Megi góður Guð gefa þeim styrk

í þeirra miklu sorg.

Fallinn er í valinn öndvegisdreng-

ur, sem vakti athygli fyrir prúðmann-

lega framkomu og snyrtimennsku.

Allt sem hann gerði, hvort sem var

heima við, í versluninni eða í mörgum

félagsskapnum, sem hann tók þátt

í, gerði hann af trúmennsku og ná-

kvæmni.

Við höfum þekkt Birgi og fjöl-

skyldu hans í mörg ár og á milli fjöl-

skyldnanna hefur myndast sterkur

vinskapur, sem aldrei mun bresta.

Við söknum góðs vinar en erum

jafnframt   þakklát   fyrir   að   hafa

kynnst Birgi og fjölskyldu hans.

Hólmfríður Alexandersdóttir,

Runólfur Birgisson.

Þó að kali heitur hver

hylji dali jökull ber

steinar tali og allt hvað er

aldrei skai ég gleyma þér.

Kæri vinur og skólabróðir.

Þetta litla ljóð skrifaðir þú í minn-

ingabókina mína þegar við vorum

aðeins 12 ára börn sem áttum lífíð

framundan. Við áttum yndisleg

æsku- og uppvaxtarár á Siglufirði

og þó leiðir skildu þegar alvara lífs-

ins tók við og langt liði á milli þess

er við hittumst gleymdum við aldrei

hvort örðu. Nú hefur þú kvatt þenn-

an heim en minninguna um góðan

vin og skólabróður tekur enginn frá

mér og aldrei mun ég gleyma þér.

Þegar ég frétti um veikindi þín

vildi ég ekki trúa, ég vildi trúa því

að næst þegar ég kæmi til Siglufjarð-

ar tækir þú mér eins og alltaf áður,

með bros á vör og glettnina í augun-

um. Við myndum setjast saman og

skoða myndirnar þínar frá gömlu

góðu dögunum eins og við vorum

búin að ákveða. En veruleikinn er

annar og þú farinn svo alltof alltof

fljótt.

Þegar ég nú sit og hugsa til þín

opnast sjóður minninganna frá ár-

unum heima á Sigló. Það eru minn-

ingar sem gott verður að orna sér

við þar til við hittumst á ný.

Manstu!          Tómstundaheimilið,

kvöldin er við áttum þar í leik og

starfi skólasystkinin? Þar kepptum

við í bobbi, spiluðum vist og þú á

kafí í ljósmyndun, og má þakka

áhuga þínum á ljósmyndun að mörg

atvik voru fest á filmu í þá daga.

Manstu útilegurnar? Þegar okkur

unglingunum fannst nóg að komast

í ferðalag „fram á Fjörð" eða inn í

Fljót, þar sem við undum saman úti

í náttúrunni. Manstu skólaleikritið í

„Gagganum"? Þegar bekkurinn setti

upp leikritið „Þorlákur þreytti" og

við urðum allt í einu svo feimin hvort

við annað þegar við áttum að kyss-

ast. Jú, ég veit þú manst! og manst

líka þegar eitthvað kastaðist í kekki

milli okkar eitt sýningarkvöldið og

ég setti svo mikinn rauðan varalit á

mig að þú varðst allur útklíndur þeg-

ar kossaatriðið var búið, þú varst

nú ekki mjög glaður við mig þá. En

við gátum fljótt hlegið saman aftur

og allt var gleymt.

Manstu þegar bekkurinn okkar

hittist þegar við urðum fertug og

skemmtum okkur saman eins og í

gamla daga? Það voru yndislegir

dagar og margar minningar rifjaðar

upp þá með skólafélögurtum sem

ekki virtust deginum eldri en tvítug-

ir, að okkur fannst sjálfum.

Elsku Biggi, það er svo erfítt að

sjá á eftir þér, en ennþá erfiðara er

það fyrir fjölskylduna þína, sem sér

á eftir heimilisföðurnum í blóma lífs-

ins.

Kæra fjölskylda. Ég veit að engin

orð eru þess megnug að lina sorg

ykkar, en ég veit að góður drengur

hverfur ekki, hann lifir áfram í hjört-

unum. Ég votta ykkur mina dýpstu

samúð.

Far þú í fríði, kærí vinur.

Jóhanna B. Jóhannsdóttir.

Mitt í veðurblíðunni barst sorgar-

fregnin frá Siglufirði, Birgir Stein-

dórsson var látinn. Illvígur sjúkdóm-

ur hafði lagt hann að velli í blóma

lífsins, aðeins 45 ára að aldri. Það

dimmdi í huga mínum. Svo mun fleir-

um hafa farið.

Kynni okkar Birgis hófust

skömmu eftir að hann kyæntist eft-

irlifandi eiginkonu sinni, Ástu Gunn-

arsdóttur. Henni hafði ég kynnst

áður, því hún ólst upp að nokkru hjá

vinafólki mínu á Leysingjastöðum í

Þingi.

Birgir og Ásta byggðu upp heim-

ili sitt við Lindargötu og keyptu

Aðalbúðina og Bókaverslun Hann-

esar Jónassonar við Aðalgötu og

ráku þar bókaverslun. Tæpast kom

ég svo til Siglufjarðar að ég liti ekki

inn til Birgis í Aðalbúðinni, oft var

Ásta þar líka og stundum kom ég

heim til þeirra. Rausn og hlýja var

þeim báðum eðlislæg og þau virtust

ákaflega samhent. Það var ánægju-

legt að fylgjast með bjartsýni þeirra

og gleði við uppbyggingu heimilisins

og verslunarinnar.

Birgir hafði fleiri járn í eldinum

og var sívinnandi. Hann vann m.a.

að ferðamálum og var umboðsmaður

flugfélaga, einnig var hann liðsmað-

ur Björgunarsveitinnar Stráka og

formaður hennar síðustu árin. Birgir

var sterkur liðsmaður Sjálfstæðis-

flokksins, tók vaxandi þátt í félags-

starfi flokksins í kjördæminu og var

formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfé-

laganna í Siglufirði og sat í bæjar-

stjórn .Siglufjarðar eitt kjörtímabil.

Birgir Steindórsson unni sinni

heimabyggð og vildi veg hennar sem

mestan. Prúðmennska, gjörhygli og

traust einkenndu hann öðru fremur.

Hann gaf ekki alltaf upp álit sitt

samstundis þegar eftir var leitað,

heldur hugsaði sitt ráð og lét síðan

vita um afstöðu sína sem þá varð

yfirleitt ekki haggað. Hann var lík-

legur til að verða vaxandi burðarás

í sínu samfélagi ef eigi hefði svo

skjótt „sól brugðið sumri".

Með fátæklegum orðum flyt ég

þakkir fyrir vináttu, margvíslegan

stuðning og samskipti. Það verður

tómlegra að koma til Siglufjarðar

eftir fráfall Birgis Steindórssonar og

heimabyggðin hans hefur mikið misst.

Mestur er þó missir þeirra sem

næstir standa. Við Helga sendum

Ástu og sonum þeirra hjóna dýpstu

samúðarkveðjur og biðjum Guð að

styrkja þau í þungri sorg.

Pálmi Jónsson.

Fallinn er frá á besta aldri Birgir

Steindórsson. Allur aldur er góður

aldur ef menn nýta hann vel. Ævi-

skeiðið frá þrjátíu og fímm ára til

fimmtugs er mörgum notadrjúgt í

þjónustu fyrir samfélagið. Birgir

Steindórsson var einn þeirra sem

utan dagslegs vinnutíma lét samfé-

lagsmál til sín taka af áhuga og virkri

þátttöku. Margt má nefna í þeim

efnum en ég vil aðeins fjalla um í

fáum orðum þátt hans í uppbyggingu

Síldarminjasafnsins á Siglufirði og

afskipti 'af ferðamálum.-

Frá því að Birgir flutti aftur heim

á æskuslóðirnar var hann einn ötul-

asti baráttumaður fyrir að leitað yrði

leiða til að laða að ferðamenn og

greiða götu þeirra á einn eða annan

hátt. Hann lét ekki sitja við hug-

myndir einar heldur beitti sér í fram-

kvæmd þeirra.

Alla tíð hafði Birgir ríka tilfínn-

ingu fyrir sögu Siglufjarðar og

hvernig við gætum fært okkur í nyt

hina glæsilegu fortíð. Hann var því

einn af stofnendum Félags áhuga-

manna um minjasafn árið 1989 og

var í stjórn þess alla tíð. Birgir var

ákaflega mikilvægur í öllu því sam-

starfi, tillögugóður og raunsær, sér-

staklega er á reyndi eða á móti blés,

þá var hann hinn traustasti félagi.

Það var mikið gleðiefni er árangur

safnstarfseminnar fór að skila sér í

vaxandi ferðamannastraumi og já-

kvæðum áhuga fjölmiðla á Siglu-

firði. Þá sá Birgir gamla drauma

og baráttumál verða að veruleika.

Birgir hafði orð á því í síðasta

samtali okkar að gaman væri  að

fylgjast með því gerast sem við Sigl-

fírðingar hefðum á prjónunum í

ferðamálum í sumar. En hann féll

fyrir illvígum sjúkdómi fyrr en flest-

ir ætluðu.

Örlögum sínum mætti hann af ein-

stakri hugprýði og lauk störfum fyr-

ir samfélag okkar með reisn. Ég vil

fyrir hönd Félags áhugamanna um

minjasafn kveðja traustan félaga og

votta eiginkonu hans og sonum inni-

legustu samúð.

Örlygur Kristfinnsson.

Kveðja frá skólafélögum

Látinn er skólabróðir okkar, Birg-

ir Steindðrsson, langt um aldur fram.

Á slíkri stundu rifjast upp í huga

okkar úr Árgangi '50 margar minn-

ingar, flestar ljúfar, sumar sárar. Á

Siglufirði, þar sem blámóðan sveipar

fjöll, ólumst yið upp, upplifðum

bernsku- og unglingsárin í frjálsum

leik milli fjalls og fjöru, unnum í síld-

inni á sumrin, gengum í skóla á vetr-

um. Margt dreif á dagana, sumt

stendur upp úr eins og þegar við í

12 ára bekk vorum sett í að skrúbba

krot af veggjum skólans; þegar við

fórum í skólaferðalagið, sigldum með

Drang út fjörðinn og ókum suður á

land og sungum „Þótt þú langförull

legðir", auðvitað með okkar lagi;

óvænt útvistarfrí eftir jarðskjálfta

af því að allt var á öðrum endanum

í skólanum; minningar tengdar

þjóðdönsum og uppsetningu skóla-

leikritsins; líka sárar minningar þeg-

ar við fyrst í barnaskóla og síðan í

gagnfræðaskóla sáum á eftir skóla-

félögum yfir móðuna miklu.

En við urðum fullorðin og hópur-

inn tvístraðist snemma eins og geng-

ur og gerist einkum á landsbyggð-

inni. Við fórum ýmsar leiðir í námi

pg starfi, giftumst og eignuðumst

börn. Sum okkar sneru aftur heim

til Siglufjarðar og settust þar að.

Einn þeirra var Biggi Steindórs, sem

eftir nám í Danmörku og nokkur ár

við störf í Reykjavík, gerðist kaup-

maður á Siglufírði og sinnti að auki

ýmiss konar þjónustu fyrir Siglfirð-

inga meðal annars á sviði ferðamála.

Hann var einnig virkur þátttakandi

í bæjarmálum og sat um tíma í bæj--

arstjórn og sinnti mörgum trúnaðar-

störfum fyrir bæinn. I Siglufjarðar-

ferðum var það fastur liður að koma

við í Aðalbúðinni hjá Bigga.

Sumarið 1990 var komið að ár-

gangsmóti okkar úr Árgangi '50.

Við áttum saman eftirminnilega

helgi í dæmigerðu Siglufjarðarveðri

og fundum öll hve ræturnar eru

sterkar og hversu nátengd við vorum,

þrátt fyrir að sum okkar hefðu ekki

sést í mörg ár. Þarna var Biggi eins

og við höfðum alltaf þekkt hann,

einn af mátarstólpunum, traustur,

yfirvegaður, góður félagi, og þannig

munum við ávallt minnast hans. Að

leiðarlokum þökkum við samfylgd-

ina. Fyrir hönd skólafélaga frá Siglu-

firði sendum við þér Asta, sonum

ykkar og fjölskyldunni allri okkar

innilegustu samúðarkveðjur.

Anna Þóra og Björg

Skarphéðins.

Birgir Steindórsson kaupmaður er

látinn á Sjúkrahúsi Siglufjarðar eftir

stutta legu, en hann greindist með

krabbamein fyrir örfáum mánuðum.

Birgir ólst upp á Siglufirði og lauk

þaðan gagnfræðaprófí. Hugur hans

stóð strax til verslunarstarfa, enda

varði hann miklum tíma í versluninni

hjá Kristínu Hannesdóttur. Hann fór

ungur til Kaupmannahafnar, þar sem

hann stundaði verslunarstörf og

lærði m.a. útstillingar.

Þegar heim kom vann hann nokk-

ur ár við verslunarstörf í Reykjavík,

m.a. hjá Herrahúsinu og Heimilis-

tækjum hf. þar sem hann var versl-

unarstjóri um tíma.

Birgir kemur aftur til Siglufjarðar

1978 og kaupir hann Aðalbúðina á

Siglufírði og sameinar rekstur Bóka-

búðar Hannesar Jónassonar sem

hann rekur þar til í mars í ár.

Birgir tók virkan þátt í margvís-

legum félagsstörfum Siglufjarðar,

hann var í unglingaráði Knatt-

spyrnufélags Siglufjarðar og fór víða

með yngri flokkunum á knattspyrnu-

mót. Hann var mörg ár stjórnarmað-

ur Björgunarsveitarinnar Stráka og

var formaður sveitarinnar síðastliðið

ár. Honum var það mikið kappsmál

í

i

I

I

I

í

i

i

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80