Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996    59

NIINNINGAR

í

<

að taka í notkun tækjageymslu

Björgunarsveitarinnar í apríl sl. og

minnist ég þess hve stoltur hann var

þegar slysavarnafélagið bauð Sigl-

fírðingum til samsætis af því tilefni.

Birgir vissi þá að hverju dró, en

það var ánægjulegt að hann fékk

að sjá þennan draum sinn rætast.

Hann var mikill áhugamaður um

ferðamál og var umboðsmaður Flug-

leiða, Flugfélags Norðurlands og

Ferðaskrifstofunnar Úrvals/Útsýn-

ar; Hann var einn af stofnendum

FÁUM sem byggði Síldarminjasafnið

í Siglufírði.

Birgir lét sér annt um Siglufjarð-

arkirkju og starfaði sem meðhjálpari

í afleysingum.

Birgir var sjálfstæðismaður og sat

fyrir flokkinn í bæjarstjórn Siglu-

fjarðar 1982-1986, hann var for-

maður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag-

anna á Siglufirði og gegndi ýmsum

trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í kjör-

dæminu og á landsvísu.

Birgir starfaði í Lionsklúbbnum

Tý meðan hann bjó í Reykjavík og

var félagi í Lionsklúbbi Siglufjarðar

og gegndi þar störfum ritara

1980-81 og gjaldkera 1988-1989

og átti að taka við ritarastörfum í

vor.

Birgir tjáði mér að hann ætlaði

að reyna að lifa með þennan sjúkdóm

og njóta þess tíma sem honum væri

ætlaður.

Hann seldi verslunina og undirbjó

sig og fjölskylduna eins vel og hann

gat fyrir það sem framundan var.

Hann ætlaði að minnka störf, vera

meira úti við og hafði ferðaskrifstof-

una opna hálfan daginn.

Ég útvegaði honum veiðileyfi í

byrjun júní, en honum var ekki ætluð

sú veiðiferð. Veit ég hans verður

sárt saknað af veiðifélögunum sem

eru félagar úr Stangveiðifélagi Sigl-

firðinga.

Birgir var kvæntur Ástu Margréti

Gunnarsdóttur, og eignuðust þau

þrjá drengi.

Lionshreyfingin hefur misst

áhugasaman félaga á besta aldri,

hans er nú sárt saknað og vottum

við eftirlifandi eiginkonu somim og

öðrum ættingjum okkar dýpstu sam-

úðarkveðjur.

F.h. Lionsklúbbs Siglufjarðar,

Sverrir Sveinsson.

Kveðja frá Sjálfstæðisfélögunum

í Siglufirði

Mann brestur orð þegar maður

heyrir svo váleg tíðindi sem þau að

hann Birgir Steindórsson sé látinn,

aðeins 45 ára.

Mín fyrstu kynni af Birgi voru

þegar við byrjuðum að starfa saman

fyrir Sjálfstæðisflokkinn árið 1981.

Birgir var kosinn bæjarfulltrúi árið

1982 og sat í bæjarstjórn Siglufjarð-

ar til ársins 1986 og gegndi ýmsum

trúnaðarstörfum fyrir Siglufjarðar-

kaupstað. Birgir var formaður full-

trúaráðs sjálfstæðismanna í Siglu-

firði og gegndi margvíslegum störf-

um fyrir Sjálfstæðisflokkinn í kjör-

dæminu svo og á landsvísu.

Sjálfstæðisfélögin í Siglufírði

þakka Birgi fyrir vel unnin störf og

votta Ástu  Gunnarsdóttur og fjöl-

skyldu sína dýpstu samúð. Þeirra er

söknuðurinn sárastur. Megi algóður

Guð gefa þeim styrk í erfíðri raun.

Guðmundur Skarphéðinsson.

Það eru innan við þrír mánuðir frá

því við Birgir Steindórsson hittumst

á biðstofu læknis á Sjúkrahúsi Siglu-

fjarðar og fórum að tala um erindi

okkar þar og sagði Birgir mér þá

að eitthvað hefði sést óeðlilegt í

maga hans og ætti hann að fara í

myndatöku. Stuttu seinna sagði hann

mér að þetta hefði reynst illkynja

og ætti hann að fara í frekari rann-

sóknir. Ég var undrandi þá þegar,

af hvað mikilli yfírvegun hann virtist

taka þessum tíðindum. Stuttu seinna

fór Birgir til Reykjavíkur þar sem

reiknað var með að gerð yrði aðgerð

á honum. Niðurstaða lækna var sú

að meinið væri það útbreitt að að-

gerð mundi ekki skila árangri.

Þegar Birgir kom heim og sagði

vinum og kunningjum hvernig komið

væri, var það með jafn mikilli ró og

yfirvegun sem einkennt hafði hann

frá því að veikindin komu í ljós. Nú

tók við ótrúlegur kafli í lífi Birgis.

Það var að undirbúa brottför sína

héðan úr þessari jarðvist. í samtölum

sem við áttum um hin ýmsu mál

sagði hann ,já, en ég hef svo lítinn

tíma". Eins og nærri má geta var

erfítt að sitja hjá honum og hlusta

á hann segja þetta og finna hve

skipulega hann var farinn að und-

irbúa brottförina. Að sjálfsögðu var

það fjölskyldan sem þá bar hæst eins

og jafnan áður.

Við Birgir vorum saman í bæjar-

stjórn Siglufjarðar í eitt kjörtímabil

ásamt því að starfa saman fyrir Sjálf-

stæðisflokkinn í á annan áratug. Þar

vann hann störf sín af áhuga og

samviskusemi og ekki síst nutu

kraftar hans sín vel við útgáfu mál-

gagns sjálfstæðismanna, Siglfírð-

ings, þar sem hann var ábyrgðar-

maður um tíma, en Birgir hafði lært

hönnun og útstillingu í Kaupmanna-

höfn á árum áður.

Helstu áhugamál hans sem bæj-

arfulltrúa voru umhverfismál en

seinna hefur áhugi hans beinst að

Félagi áhugamanna um byggingu

minjasafns og Björgunarsveitinni

Strákum, þar sem hann var formað-

ur nú seinustu árin. Þar mætti hann

á aðalfund, fársjúkur, fyrir hálfum

mánuði til að segja af sér sem for-

maður.

Árið 1978 fluttust þau Ásta og

Birgir hingað heim á ný eftir 'að

hafa byrjað sinn búskap í Reykjavík,

þar sem hann starfaði hjá Heimilis-

tækjum hf. Þau keyptu Aðalbúðina

og sameinuðu fjölskyldufyrirtæki

Birgis og ráku fram undir síðasta

dag. Þegar þau byrjuðu reksturinn,

full bjartsýni, var íbúatala bæjarins

u.þ.b. tvö þúsund og fj'ögur hundruð

íbúar, nú eru þeir komnir niður fyrir

átján hundruð, auk þess sem verslun

hefur f alltof ríkum mæli flust frá

landsbyggðinni til höfuðborgarsvæð-

isins og segja þessi tvö atriði sína

sögu um hvers vegna reksturinn

gekk ekki sem skyldi hin seinni ár.

En í öllum hans störfum kom vel

fram að fyrst og fremst var það fjöl-

skyldan sem skipaði æðstan sess hjá

Birgi,_konan, drengirnir og nú síðast

litla Ásta.

Við Ásdís vottum fjölskyldunni

innilega samúð og biðjum góðan Guð

að styrkja hana í sorginni.

Björn Jónasson.

Góður vinur er látinn, það er erf-

itt fyrir okkur sem eftir lifum að

horfast í augu við þá staðreynd, en

við verðum að gera það engu að síð-

ur. Biggi er horfínn frá okkur og

kemur ekki aftur. En við eigum

minningarnar, bæði margar og góð-

ar, og við þær getum við yljað okkur

um ókomin ár. Hlýtt faðmlag, bros

og hlýtt handaband, var það sem tók

á móti okkur þegar við „tengdalið-

ið", eins og hann kallaði okkur, kom-

um í heimsókn á fallega heimilið

þeirra Ástu og Bigga á Lindargót-

unni. Þær voru ófáar ferðirnar sem

við fórum til þeirra norður á Siglu-

fjörð í heimsókn, bæði um páska og

í sumarfrí. Biggi tók okkur öllum

eins og við værum hans systkini,

allt var gert til að láta okkur líða

sem best, bæði Ásta og Biggi lögðu

sig í líma við að gera dvöl okkar hjá

þeim sem ánægjulegasta, og þeim

tókst það líka svo sannarlega.

Biggi var afskaplega ljúfur mað-

ur, hann gat verið kíminn og þá ljóm-

uðu í honum augun, sérstaklega þeg-

ar hann var að gera góðlátlegt grín

að okkur „tengdaliðinu". Hann hafði

mikinn áhuga á félagsstörfum og

starfaði vítt og breitt á þeim vett-

vangi, bæði í Lions, Björgunarsveit-

inni Strákum og íþróttahreyfingunni,

einnig vann hann ötullega fyrir Sjálf-

stæðisflokkinn. Þau verkefni sem

hann tók að sér voru unnin af krafti

og áhuga, hann bar hag Siglufjarðar

fyrir brjósti í einu og öllu, það fór

ekki framhjá þeim sem hann ræddi

við um félags-, íþrótta-, eða stjórn-

mál. Biggi var mikil félagsvera og

léttur í lund í góðra manna hópi.

En skjótt skipast veður í lofti,

undanfarna þrjá mánuði hefur Biggi

háð hetjulega baráttu við illvígan

sjúkdóm, þar til yfir lauk að morgni

hins 9. maí síðastliðinn. Hann var

yfírvegaður fram á síðustu stund,

sýndi mikinn sálarstyrk og æðru-

leysi. „Ég vann ekki úr mínu lífs-

hlaupi eins og ég hefði viljað og

tíminn sem ég fékk var of stuttur."

Þetta sagði Biggi stuttu áður en

hann dó.

Svo verður saga mín,

svipuð og líka þín.

Allt, sem við áttum hér,

enginn fær burt með sér.

Kvöldstundin kemur blíð,

kallið á náðartíð,

opnast þá æðra svið,

eilífðin tekur við.

(Valdimar Guðmundsson)

Við kveðjumgóðan vin með hlýjum

huga.  Elsku Ásta, Halldór, Jónas,

Steindór,   Doddi,   Esther  og  Asta

Björk, við sendum ykkur öllum okkar

innilegustu samúðarkveðjur á þessari

sorgarstundu. Guð blessi ykkur öll.

Inga og Benedikt,

Albert og Ragna,

Þorbjörn og Sigríður.

Efst

á óskalista

brúðhjónanna!

KitchGnAid

mest selda heimilisvélin í 50 ár

5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu, rauðu og gráu

Fjöldi aukahluta

Islensk handbók fylgir með uppskriftum

Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir

Sérstök brúðkaupsgjöf:

Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðu nafni

sínu og brúðkaupsdegi

Þú gefur ekki gagnlegri gjöf

Reykjavikurevæðl: Byggl og búið, H.G. Guðjónsson, Suðutveri. Glóey, Átmúla 19, Rafbúðin, Álfaskeiði 31,

Hafnarf. Miðvangur, Hafnarfirði. SUOURNES: Stapafell hf., Keflavík. Samkaup, Keflavik. Rafborg, Grindavík.

VESTURLAND : Rafþjónusta Sigutdófs. Akranesi. Trésmiðjan Akur, Akranesi. Kf. Borgfitðinga. Borgarnesi.

Blómsturvellir, Hellissandi. Versl. Hamar, Gtundarfitði, Versl. E. Stefánssonat, Búðatdal. VESTFIRÐIR: Kf. Króks-

fjarðar, Króksfjatðarnesi. Skandi hf., Tálknafitði. Kf. Dýrfiiðinga, Þingeyii. Laufið, Bolungarvik. Húsgagnaloft-

ið, Isafiröi, Straumur hf., isafirði. Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavik. NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyti.

Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga. Blönduósi. Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki. KEA, Akur-

eyri og útibú á Norðurlandi. Kf. Þingeyinga, Húsavik. Kf. Langnesinga, Þóshöfn, Versl. Sel., Skútustöðum.

AUSTURLAND: Kf. Vopnfiiðinga, Vopnafiiði. Kf. Fiam, Neskaupstað, Kf, Héraðsbúa, Seyðisfirði. Kf. Hér-

aðsbúa, Egilsstöðum. Rafalda, Neskaupstað. Kf. Héraðsbúa, Reyðarfitði. Kf. Fáskiúðsfjaiðai. Kf. A-Skaftfell-

inga, Djúpavogi. Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga. Vík. Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Kf.

Rangæinga, Rauðalæk, Versl. Moslell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum. Kf. Árnesinga, Selfossi.

Einar

hf.

Borgartúni 28 « 562 2901 og 562 2900

Blað allra landsmanna!

kjarnimálsins!


EIMGIIMIM  L3IIMIDITI

SkyndibréfSkandia eru alltafinnleysanleg oggefa íflestum tilvikum hœrri ávöxtun en bankabœkur og bankareikningar.

Skyndibréf Skandia má innleysa hvenær

sem er án nokkurs aukakostnaðar og því

einfalt að kaupa þau og selja. Nafnávöxtun

Skyndibréfa síðustu 6 mánuði var 8,5%.

Lokaðu bókinni og

skoðaðu Skyndibréf.

Ráðgjafar Skandia veita

allar frekari upplýsingar.

nýtt símanúmer

54Q 50 60

.fáið nánari upplýsingar

*%

Skandia

FJÁRFESTINGARFÉLAGIB     skandia     hf

LAUGAVEGI      17 O-    •     SlMI     B4Q     50     BO     •     F A X     5 4 O     50     B  1

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80