Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						J8    FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1996

MORGUNBLAÐIÐ

BREF • FORSETAKJOR

Guðrún Agnarsdóttir

sameinar kosti allra

frambjóðenda

Frá Asgeiri Helgasyni:

VALUR          Pálson,          leiðandi

»   kontrabassaleikari í Fílharmoníunni

\okkar hér í Stokkhólmi, skrifaði í

jbréfi til blaðsins fyrir nokkru að

I hann styddi Guðrúnu Agnarsdóttur

til forseta íslands öðrum fremur,

*|vegna þess að hún væri eini fram-

\bjóðandinn   sem   hefði   pólitíska

r Weynslu án þessa að vera bundin á

"bann hægri-vinstri bás sem skipað

(íefur þjóðinni í fylkingar í ára tugi.

Þó erfitt sé að vera ósammála

/al um þetta tel ég að aðrir kostir

Guðrúnar Agnarsdóttur vegi ekki

síður þungt á metunum. Guðrún

sameinar nefniléga í einni konu alla

*þá kosti sem hinir frambjóðendurn-

?ir vilja lyfta fram sem sínum sér

jeinkennum.   Hún   hefur  pólitíska

freynslu Ólafs Ragnars án þess þó

|að  hafa bendlað  sig við hægri-

|vinstri togstreituna eins og Valur

ibendir  á.  Hún  hefur stefnufestu

Guðrúnar Pétursdóttur (sem Guð-

rún Pétursdóttir hefur óneitanlega

fram yfir Ólaf Ragnar) og síðast

en ekki síst þá hefur hún alla burði

til að vera það sameiningartákn á

erfiðum tímum sem Pétur Hafstein

vill markaðssetja sig með. Það er

eitt helsta persónuleikaeinkenni

Guðrúnar Agnarsdóttur að vilja

sætta og sameina stríðandi öfl.

Að lokum vil ég benda á að stuðn-

ingsmenn Guðrúnar Agnarsdóttur

hafa opnað kosningaskrifstofu á

Norðurlöndum með aðsetur í Stokk-

hólmi. Að sjálfsögðu höfum við sett

upp heimasíðu á alnetinu þar sem

hægt er að senda inn fyrirspurnir

og fræðast um persónu og stefnu-

mál Guðrúnar Agnarsdóttur.

Slóð heimasíðunnar er hér innan

sviga (http://www.met.kth.se/

mattek/gifs/ Agnarsdottir.html).

ÁSGEIR R. HELGASON,

Svíþjóð.

I

Forsetaframboð!

Frá Karli Ormssyni:

ÞAÐ eru margir sem velta fyrir sér

þessa dagana hvern þeir vilja fá sem

næsta forseta íslenska lýðveldisins.

Það ætti ekki að vera vandasamt

að velja sér forseta úr þeim hópi

sem nú hefur tilkynnt framboð sitt.

Það hefur öllum forsetaframbjóð-

endunum verið gefinn kostur á að

koma fram í smáyfirheyrslu í Dags-

ljósi sjónvarpsins. Miðvikudaginn

17. apríl síðastliðinn talaði Logi

Bergmann Eiðsson við frambjóð-

andann Pétur Kr. Hafstein. Undir

lokin sagði Logi Bergmann: „Pétur,

nú hefur þú einn frambjóðenda ver-

ið sagður alveg vammlaus að öllu

leyti. Ekkert hefur verið hægt að

segja misjafnt um þig, þú hefur

ekki verið stjórnmálamaður né

umdeildur að neinu leyti. Og þá

segir fólk að þú sért kannski nokk-

uð stífur og ekki nógu spennandi,

hvernig viltu svara því?" Pétur svar-

aði þessu á sinn einstaklega hóg-

væra hátt: „Það er ekki mitt að

dæma um hvort ég sé spennandi

en ég er bara svona."

Það var nefnilega svona, Pétur

Kr. Hafstein er bara vammlaus svo

ekki er hægt að segja neitt mis-

jafnt um hann. Nú vill svo til að

undirritaður er alæta á fjölmiðla

og þekkir að auki vel til Péturs, ég

þekkti föður hans ákaflega vel,

hann var einstakur öðlingsdrengur

sem ekki mátti vamm sitt vita í

neinu. Ég þekkti líka föðurbróður

hans, Jakob, sem nú er látinn, og

Hannes Þ., sem lengi var forstjóri

Slysavarnafélags íslands, hef ég

þekkt af öllu góðu í áratugi. Ef það

er ekki kostur fyrir forseta að vera

svo vammlaus að ekkert sé misjafnt

hægt að segja um hann þá er illa

farið fyrir okkar þjóð, varla vill

ábyrg þjóð fá einhvern og einhvern

sem forseta, bara ef hann er spenn-

andi? Ég þekki menn úr öllum

stjórnmálaflokkum sem styðja Pét-

ur Kr. Hafstein í komandi kosning-

um, einmitt fyrir hans drenglyndi

sem þeir þekkja hann af. Fráleitt

væri að halda að Pétur væri skap-

laus maður, það getur enginn haft

þann feril sem hann nema að vera

ákveðinn, traustur og kjarkaður.

Að lokum vildi ég skora á fólk að

kynna sér störf og mannkosti Pét-

urs Kr. Hafstein. Þá er ég ekki

hræddur um að fólk verði í vafa

um hvern frambjóðendanna þeir

eigi að velja.

KARL ORMSSON

Gautlandi 5,

Reykjavík.

IDAG

FLOTT

FÓtA

FÍNU

A

KMMA

ENGtABORNIN

Bankastræti 10 • Simi 552 2201

HUG8ÚNABUR

FYRIRWINDOWS

Tölvufyrirtækið OZ

valdi Stólpa bókhaldskerfið

W\ KERFISÞRÚUN HF.

01 Fákafeni 11 - Sími 568 8055

Blað allra landsmanna!

- kjarni málsins.'

Trefjagifsplötur til notkunar á veggi, loft og gólf

*  ELDTRAUSTAR

*  HUÚÐEINANGRANDI

I MJÖG GOTT SKRÍIFUHALQ

*  UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR

VIÐURKENNDAR AF

BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS

Þ. ÞORGRÍMSSON &CO

fl     ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÖtF 8360 • 128 flEYKJAVÍK

1    SlMI 553 8640/568 6100

VELVAKANDI

Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags

Netfang: lauga@mbl.is

Þakkir til

Alþingis

MIG LANGAR að koma á

framfæri þókkum til Al-

þingis fyrir að samþykkja

ný nafnalög. Þá langar mig

að spyrja þá sem eru á

móti lögunum hvað þeir

geti haft á móti því að is-

lendingar beri t.d. íslensk

ættarnöfn. Er það óís-

lenskara en endingin sonur

og dóttir?

Ragnheiður

Dónaleg

framkoma

ÉG OG vinkona mín kom-

um í Gleraugnasöluna,

Laugavegi 65, á sólríkum

sumardegi til að skoða sól-

gleraugu. Við vorum ný-

komnar inn og ég fer að

máta gleraugu. Ég set upp

ein, síðan önnur og set þau

á sinn stað á eftir. Þá kem-

ur til mín maður og spyr

hvorthann geti aðstoðað

mig. Ég spurði hvort hann

gæti mælt með einhverju

sérstðku   en   hann   benti

autt pláss í hillunni og

spurði hvort ég væri með

gleraugun sem hefðu átt

að vera á þessum stað. Ég

sagði það ekki svo og benti

á gleraugun sem ég hafði

mátað og baðst velvirðing-

ar ef ég hefði sett þau á

rangan stað. Hann sagði

okkur þá að það vantaði

gleraugu í rekkann og

spurði ítrekað hvort ég

hefði ekki mátað þessi til-

teknu gleraugu. Ég varð

mjög hissa og sagði honum

að ég hefði ekki snert þau.

Ég hélt kannski að hann

hefði misskilið mig, því

hann talaði ekki fullkomna

íslensku, og reyndi að út-

skýra betur hvaða gleraug-

um ég hafði haft hönd á

og hvar ég hefði sett þau.

Þá spurði vinkona mín

hvort hann væri að þjóf-

kenna okkur og sagði hann

svo vera. Mér var mjðg

brugðið, rétti honum jakk-

an minn og bað hann vin-

samlega að leita í honum

til að hreinsa mig af áburð-

inum. Hann sagðist þá trúa

því að ég hefði ekki tekið

nein gleraugu og vildi ekki

leita.

ítrekað bað ég hann að

leita í jakkanum mínum

svo ég gæti gengið út úr

búðinni án þess að vera

með þjófstimpil á bakinu

en hann vildi það alls ekki.

Þá kom að annar maður

og fóru þeir tveir að tala

saman og virtu okkur ekki

meir viðlits. Við fengum

enga afsökunarbeiðni og

vorum skildar eftir eigin-

lega í lausu lofti þarna á

gólfinu.

Ég var svo miður mín

vegna þessa  áburðar og

dónalegu framkomu að ég

get ekki orða bundist.

Sveindís Jóhannsdóttir,

Blöndubakka 7,

' Reykjavík.

Tapað/fundið

Fjallahjól tapaðist

TAPAST hefur nýlegt 18

gíra Capricorn-fjallahjól.

Það var horfið frá Kjarr-

hólma 36 að morgni sum-

ardagsins fyrsta. Ef ein-

hver hefur séð hjólið er

hann vinsalega beðinn að

hafa samband í síma

564-1614. Fundarlaun.

Veski og bankabók

SVART veski með þremur

bankabókum tapaðist við

strætisvagnabiðstöð         í

Mjódd, í Kaupgarði eða við

Landspítalann. Veskið var

vafíð innan í tvo hvíta

plastpoka. Hafi einhver

fundið veskið er hann beð-

inn að hringja í síma

587-0624.

Lyklar

fundust

LYKLAR fundust á

Sunnuveginum           fyrir

nokkru. Kippan er merkt

Toyota. Upplýsingar í síma

581-2201.

Gleraugu

fundust

KVENGLERAUGU fund-

ust laugardaginn 4. maí sl

í Bókabúð Steinars, Berg-

staðastræti 7. Upplýsingar

í síma 551-2030 milli kl.

13 og 18.

SKAK

llmsjón Margeir

Pétursson

Hvítur leikur

og vinnur

STAÐAN kom upp á stór-

móti sem nú stendur yfir í

Madrid  á  Spáni.  Fremsti

skákmaður        Spánverja,

Miguel Illescas Cordoba

(2.635), var með hvítt og

átti leik, en Viktor

Kortsnoj, 64 ára, hafði

svart.

27. Rxg6! og

Kortsnoj gafst

upp, því eftir 27.

- Kxg6 28. gxf5

- gxf5 29. Dg4+

-  Bg5 30. Hxf5

er hann varnar-

laus með öllu.

Staðan eftir fjór-

ar umferðir á

mótinu          var

þannig:

1.          Gelfand,

Hvíta-Rússlandi,

3 v., 2.-3. Salov,

Rússlandi, og II-

lescas, Spáni,

2'/j    v.,    4.-8.

Topalov, Búlgaríu, Adamsu

Englandi, Azmajparashvili,

Georgíu, Shirov, Lettlandi,

og Morosjevitsj, Rússlandi,

2 v., 9. Kortsnoj 1 % v. 10.

San Segundo, Spáni, 'A v.

HOGNIHREKKVISI

«v /€", JC /,.. nú er sýru'ngarti'ryu;."

Víkverji skrifar...

VÍKVERJA var bent á það í til-

efni frétta af Óslóarferð Önnu

Mjallar Ólafsdóttur, söngkonu, að

það væri tímanna tákn að skömmu

eftir að við fögnuðum því að 25 ár

voru frá heimkomu handritanna,

sendi ríkissjónvarpið íslenzka til

keppni lag, sem heitir Sjúbídú. Og

það sem meira væri, ekkert annað

dygði en að fá bandarískar bak-

raddir til að tryggja íslenzka laginu

brautargengi.

Allt um það óskar Víkverji söng-

konunni ungu góðs gengis í Ósló.

VÍKVERJA hefur borist eftir-

farandi bréf frá Kristjáni

Pálssyni alþingismanni sjálfstæðis-

manna í Reykjaneskjördæmi:

„í Víkverja fyrir nokkru voru til

umfjöllunar fyrirhugaðar fram-

kvæmdir við Reykjanesbraut og

gert lítið úr nauðsyn lýsingar og

talið nær að leggja þá peninga til

hliðar fyrir tvöföldun.

Ég vil upplýsa Víkverja um það

að ef litið er á eina einstaka fram-

kvæmd með tilliti til kostnaðar þá

er ódýrasta og jafnframt fljótleg-

asta leiðin til að auka öryggi á

brautinni að lýsa hana.

Ef að líkum lætur þá mun lýsing

kosta um 120-140 millj. kr. og allt

það öryggi á brautinni um 30%

miðað við erlenda öryggisstaðla.

Það var því talið við núverandi

aðstæður vera eina aðgerðin sem

gæti skilað umtalsverðum árangri

í öryggismálum á brautinni, fyrir

þá peninga sem til eru.

Eg er einn af þeim sem sé enga

aðra varanlega lausn á öryggismál-

um á brautinni en að tvöfalda hana.

Slík framkvæmd kostar um 1,5

milljarða króna og mun auka ör-

yggið um 80%, miðað við sömu

staðla. Að leggja út í slíkan kostn-

að er að mfnu mati fyllilega rétt-

lætanlegt og fjöldinn af rökum sem

mæla með því önnur en öryggis-

málin.

Til að nefna einhver þá eru Suð-

urnesin með rúmlega 20 þúsund

íbúa, þegar herstöðin á Keflavíkur-

flugvelli er meðtalin. Þar er nánast

allt millilandaflug landsins og far-

þegar um 200 þúsund á ári. Suður-

nesin eru einnig að verða mikill

ferðamannastaður með Bláa lónið

og fjölda annarra áhugaverðra

staða fyrir ferðamenn að skoða. Á

Suðurnesjum eru einnig tvær

stærstu . verstöðvar   landsins   og

stærstu vinnustaðir landsins hjá

verktökum á Keflavíkurflugvelli og

hjá Flugleiðum.

Höfuðborgarsvæðið og Suður-

nes eru orðin eitt atvinnusvæði þar

sem fólk fer á milli til vinnu sinnar

daglega. Á Suðurnesjum er einnig

eitt stærsta gufuforðabúr landsins

og það eina sem er það nálægt

höfn að hagkvæmt geti talist að

virkja hana til stóriðju.

Það verður því áfram forgangs-

verkefni að tvófalda Reykjanes-

brautina. Á meðan aflað er fjár-

magns til þess eru minni fram-

kvæmdir nauðsynlegar og við sem

keyrum Reykjanesbrautina dag-

lega, í öllum veðrum í svartasta

skammdeginu, vitum hve erfitt það

er._

Ég bið hófund Víkverja að taka

þetta til athugunar og minnast

þess að á mestu álagstímum er

umferðin um veginn sennilega um

14.000 bílar á sólarhring og þegar

slydda, myrkur og saltaustur fara

saman þá er Reykjanesbrautin

hættulegasti vegur landsins. Lýs-

ing er því sannkölluð himnasend-

ing, ljós í myrkrinu."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80