Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31 .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						<Q>

AS/400 er...

m&wMMfo

OPÍN KERFI HR

Sími: 567 1000

HPVe

ctraPC

MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,

PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL^CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85

FIMMTUDAGUR 16. MAI1996

VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK

Morgunblaðið/Jón Stefánsson

SLÖKKVILIÐSMAÐUR sprautar vatni inn um brotinn glugga og félagi hans brýtur rúður til þess að hægt sé að koma vatni að eldinum.

Tuga milljóna króna tjón er trésmíðaverkstæði í Hafnarfirði brann

Húsið fullt af timbri og

fuðraði upp á svipstundu

TUGA milljóna króna tjón varð í

stórbruna í Glugga- og hurðasmiðju

Sigurðar Bjarnasonar við Dalshraun

17 í Hafnarfirði í gærkvöldi. Húsið,

sem er eitt stærsta trésmíðaverk-

stæði bæjarins og var fullt af timbri,

fuðraði upp á svipstundu og fengu

slökkviliðsmenn úr Hafnarfirði og

Reykjavík ekki við neitt ráðið. Mik-

ill eldsmatur var einnig í lakk- og

límbirgðum. Eldsupptök eru ókunn.

Húsið var mannlaust en eigna-

tjónið er gífurlegt. Jónas Sigurðsson

framkvæmdastjóri segir tjónið nema

tugum milljóna og ólíklegt að trygg-

ingar bæti það að fullu.

Slökkviliðið í Hafnarfirði fékk til-

kynningu um eldinn kl. 20.06. Eldur-

inn var svo mikill að biðja varð um

aðstoð og sendi Reykjavíkurslökkvil-

iðið tvo bíla á staðinn.

Breiddist ótrúlega hratt út

Slökkvistarfið beindist ekki sízt

að því að verja næstu hús, en um

tíma óttuðust menn að rúður

spryngju í veitingastaðnum

Kentucky Fried Chicken, sem stend-

ur örskammt frá trésmiðjunni.

Slökkvistarfi lauk að mestu um kl.

22 í gærkvöldi. Vakt var höfð við

brunarústirnar í nótt.

Kristín Helgadóttir, fram-

kvæmdastjóri á Kentucky Fried

Chicken, sá loga koma upp úr þaki

húss trésmiðjunnar. „Húsið varð al-

elda eins og skot. Eldurinn breiddist

ótrúlega hratt út," sagði Kristín.

Hún sagði að klukkustund eftir að

hún varð eldsins vör hefði húsið virzt

brunnið til kaldra kola.

Gífurlegan hita lagði af eldinum

og sagði Kristín að starfsfólk veit-

ingastaðarins hefði þegar í stað beð-

ið gesti að forða sér og vísað bílum

frá. Bílalúgur staðarins snúa að

húsinu sem brann og eldurinn kom

upp  á  kvöldmatartíma þannig  að

mikil umferð var við veitingahúsið.

Kristín sagði stefna í að þrífa yrði

staðinn vegna sóts.

Mökkinn lagði yfir

Kaplakrikavöll

Fjöldi fólks varð vitni að brunan-

um, enda var knattspyrnuleikur að

hefjast á Kaplakrikavelli, sem er

nokkurn spöl frá trésmiðjunni.

Reykjarmökkinn frá eldinum lagði

yfir völlinn. Slökkviliðið kvartaði

undan því að fótboltaáhugamenn af

yngri kynslóðinni hefðu misst áhug-

ann á íþróttinni um stundarsakir og

þvælzt fyrir slökkvistarfinu.

Norðurheim-

skautsráðið

Ráðherrar

við stofn-

fund í júlí

UTANRÍKISRÁÐHERRAR Banda-

ríkjanna og Rússlands, þeir Warren

Christopher og Jevgeníj Prímakov,

munu að öllum líkindum sækja

stofnfund Norðurheimskautsráðs-

ins, sem nú er ákveðið að verði í

Ottawa í Kanada 9.-10. júlí. Hall-

dór Ásgrímsson utanríkisráðherra,

sem er í vinnuheimsókn í Kanada,

segir að stofnun ráðsins muni nú

ekki frestast frekar.

„Það er ljóst að utanríkisráðherra

Bandaríkjanna kemur til að undir-

rita stofnyfirlýsinguna, sem er mjög

mikilvægt því að Bandaríkjamenn

hafa ekki viljað taka þátt í málinu

með þeim hætti fram að þessu.

Þetta mun hafa mikla þýðingu og

þetta mál er að komast á meiri

skrið en nokkru sinni fyrr," segir

Halldór.

Stofnríki Norðurheimskautsráðs-

ins verða norrænu ríkin fimm, Rúss-

land, Bandaríkin og Kanada. Gert

er ráð fyrir að utanríkisráðherrar

allra ríkjanna átta sæki stofnfund-

inn.

NAMMCO-aðild rædd

Halldór hitti í gær að máli Ron

Irwin, ráðherra málefna Norður-

svæða og frumbyggja í Kanada,

Fred Mifflin sjávarútvegsráðherra

og Lloyd Axworthy utanríkisráð-

herra. Meðal þess, sem Halldór

færði í tal við ráðherranna var

hugsanleg aðild Kanada að Norður-

Atl antsh afssj ávarspendýraráðinu

(NAMMCO). Halldór segir Kanada-

menn ekki hafa gefið nein skýr

svör, en fram hafi komið að þeir

séu jákvæðir í garð aukins sam-

starfs á sviði nýtingar sjávarspen-

dýra.

Góður andi í garð íslands

„Það ríkir góður andi í garð ís-

lands hér og við teljum að þessi

dagur í Ottawa hafi verið mikilvæg-

ur til að koma á góðu sambandi

við Kanadamenn fyrir framtíðina,"

segir Halldór.

Hann var í gær viðstaddur fyrir-

spurnatíma Chrétiens forsætisráð-

herra í þinginu í Ottawa. Þingheim-

ur vottaði utanríkisráðherra virð-

ingu sína með lófataki.

Sólin eyk-

ur fram-

leiðslu

GRÍÐARLEG grænmetisfram-

leiðsla er í gróðurhúsum þessa

dagana vegna sólar. Verð á

kílói af tómötum og gúrkum

er nú 50% lægra en á sama

tíma í fyrra, að sögn Kolbeins

Ágústssonar hjá Sölufélagi

garðyrkjumanna.

Kolbeinn segir að mikið ber-

ist að af gúrkum og þó sérstak-

lega tómötum vegna bjartviðr-

isins og enn meira sé á leið-

inni. Algengt verð á tómötum

út úr stórmarkaði er nú tæpar

400 krónur og tæpar 200 krón-

ur á gúrkum. Gæðin eru einnig

mikil, vegna góðrar tíðar.

Verkalýðsf élög eitt hundrað starf smanna við gerð Hvalfjarðarganga

Kröfur um sérstakan kjara-

samning kynntar Fnssíirki

VERKALÝÐSFÉLÖG starfsmanna

við Hvalfjarðargöng hafa samræmt

kröfugerðir um kaup og kjör.

Kröfugerðirnar voru kynntar Foss-

virki, sem annast gerð ganganna,

í gærmorgun. Loftur Árnason yfir-

verkfræðingur staðfesti við Morg-

unblaðið í gær að kröfugerðin hefði

verið afhent og sagði að hún væri

til skoðunar hjá Vinnuveitendasam-

bandi íslands.

Rafiðnaðarsamband         íslands

kynnti hinum verkalýðsfélögunum

sína kröfugerð fyrr í mánuðinum

og þar kom meðal annars fram að

ef viðræður yrðu ekki hafnar í

gær, 15. maí, yrði heimildar leitað

til verkfalls. Segir Guðmundur

Gunnarsson formaður Rafiðnaðar-

sambandsins að framhaldið ráðist

af viðbrögðum forsvarsmanna

Fossvirkis.

Erfiðara að koma frá sér vatni

Kröfurnar     varða     um     100

starfsmenn  og segir Guðmundur

þær koma til af því að ekki hafi

verið unnið við framkvæmdir á

borð við fyrirhugaða gangagerð

áður.

„Göngin halla niður á við og

verða undir sjávarmáli. Það er mun

erfiðara að eiga við göng af því

tagi, til dæmis að koma frá sér

borvatni og vatni sem hugsanlega

kemur fram í göngunum. Hingað

til hafa menn verið að bora gegnum

fjöll og þó að vatn brjóti sér leið inn

í göngin rennur það bara út aftur.

Þarna verður um þveröfug áhrif að

ræða," segir hann.

Verkalýðsfélögin vilja að settur

sé saman sérstakur kjarasamningur

um vinnu við slíkar aðstæður, að

sögn Guðmundar. „Við höfum nefnt

þetta áður í óformlegum viðræðum

við Fossvirki og látið í það skína

við Vinnuveitendasambandið fyrr í

vetur en þeir hafa svarað því á

þann veg að óþarfi sé að semja

sérstaklega. Þetta séu venjulegar

byggingaframkvæmdir."

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80