Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Alfreðsson SÉÐ upp að skerinu umrædda þar sem „fljúgandi virkið“ endaði för sína. Jökullinn neðan við það er ekki beinlínis frýnileg flugbraut. Fyrir nokkru birtist hér í blaðinu grein um atburði tengda því þegar bandarísk sprengju- flugvél fórst í norðanverðum Eyjafiallajökli. Sú saga byggðist á frásögnum heima- manna. Nú hefur leynd verið létt af gögnum frá Bandaríkjaher varðandi slysið. Þar er að finna lýsingar áhafnarinnar á sjálfu slys- inu og því sem fylgdi í kjölfarið. Hér rekur Ami Alfreðsson þennan hluta sögunnar um þetta sérstæða flugslys. FLUGSVEIT B-17G sprengiflugvéla á Keflavíkurflugvelli árið 1944. ARLA morguns þann 16. september 1944 hefur sig til flugs frá Keflavíkur- flugvelli B-17G sprengju- flugvél nr. 43-38471 úr áttunda flug- her Bandaríkjanna. Hliðarvindur á brautinni er svo mikill að næstu vél- um sem á eftir koma er beint inn á aðra braut. Hið „fljúgandi virki“, eins og þessar vélar voru gjaman kallað- ar, klifrar upp í 7000 feta hæð þar sem við tekur blindflug með stefnu 131o. Flugstjórinn, C. J. McCollum frá Texas, og áhöfn hans hafa haft tveggja daga viðdvöl í Keflavík eftir iangt flug frá Kandada. Nú liggur "leiðin til Bretlands þaðan sem til stendur að gera sprengjuárásir á Þýskaland. Aðstoðarflugmaðurinn, Frederic W. Harding frá Ohio, situr honum á hægri hönd, en aftan við þá er vélstjórinn, Edward L. Polick frá Texas, sem jafnframt gegnir hlutverki tumskyttu. Eftir flugtak koma siglingafræðingurinn, Stephen A. Memovich frá Oregon, og sprengjuvarparinn, Joseph F. Harms frá New York, sér fyrir í nefi vélar- innar. Aftur í fjarskiptaherberginu situr loftskeytamaðurinn, Morley R. Conger frá Texas. Hann á í ein- hveiju basli með fjarskiptatækin og nær engu sambandi við flugtuminn. Hinir sitja í hrúgu á gólfinu hægra ' rriegin í herberginu. Þar er eina hit- ann að fá þama afturí vegna bilunar í miðstöðinni. Þetta eru kúluskyttan Robert S. Bell Jr. frá Kaliforníu, aðstoðarvélvirkinn og bakborðs- skyttan Richard Weemes frá Texas, stjómborðsskyttan Oscar Lane frá New Hampshire, sem jafnframt hef- ur umsjón með sprengjufarmi vélar- innar, og stélskyttan Larvin L. Jenn- ings frá Tennese. Það eru blendnar tilfmningar sem bærast í brjósti þess- ara manna, eftirvænting og ótti í senn að verða komnir í stríð innan ... skamms. Þungar drunur berast frá hreyfl- um „virkisins" þar sem það seiglast áfram í slyddu og sunnan hvass- viðri. Mikil ókyrrð er í lofti og sífellt upp- og niðurstreymi á víxl veldur því að að vængimir og vélin öll nötr- ar. Það gengur því illa að halda hæðinni stöðugri. Smám saman versnar veðrið auk þess sem flug- mennirnir taka eftir að hraði vélar- innar hefur minnkað. Þá grunar að ís sé farinn að safnast á vængina, þó að afísingarbúnaðurinn sé í stöð- ugri notkun. Hreyflamir eru nú keyrðir til hins ýtrasta en þrátt fyrir það eykst hraðinn ekki neitt. Skyndi- legt og mikið niðurstreymi veldur því og vélin fellur á örskammri stundu um nokkur hundruð metra. Þetta tekur verulega á vængina og Conger loftskeytamanni finnst eins og þeir ætli hreinlega af. Hraðamælirinn sýnir nú aðeins 150 hnúta ferð. Til að forða því að vélin falli enn meir er flugstöðu vélarinnar breytt þannig að nefið liggi hærra en áður. Harding aðstoðarflugmaður, sem stöðugt hef- ur fylgst með ísingu á hægri væng, rekur allt í einu upp vein og öskrar; varaðu þig, fjöll til hægri. Brotlending Harms sprengjuvarpari hefur gott útsýni þar sem hann sem situr yfir oyssunum í glerbúrinu fremst í nef- inu. Honum er mikið brugðið þegar hann tekur eftir fjalishlíð á hægri hönd. Hann stendur upp og ætlar að hlaupa afturí og láta flugstjórann vita. En hann kemst ekki langt. Um leið og Harding tilkynnir um fjöllin snarbeygir Mcollum vélinni til vinstri. Það er þó um seinan því augnabliki síðar tekur vélina niðri. Brotlendingin er ekki mjög harkaleg, vélin rennur áfram stutta stund en stöðvast síðan mjög skyndilega. Það hlýtur þó að vera tilkomumikið þegar ferlíkið æðir eftir jöklinum þar sem það plægir snjó og ís með braki og brestum. Þegar vélin hefur stöðvast fara þeir Harms og Memovitch siglinga- fræðingur, báðir ómeiddir, út um neyðarlúguna á nefínu. Úti er kaf- aldssnjór og snarvitlaust veður, slydda og mjög hvasst. Vélin hefur lent í stórum gljúpum skafli sem dregið hefur úr högginu. Polick vél- stjóri, sem stendur hjá flugmönnun- um og fylgst hefur grannt með afís- ingartækjunum, fínnur þegar vélin skellur niður, en man svo næst eftir sér þar sem hann liggur niðrí göngunum sem liggja fram í nef vélarinnar. Hann heyrir að flugstjór- inn æpir; komið ykkur út, það er kviknað í vélinni. Hann kemur sér í snarhasti út um nefhurðina. Harding aðstoðarflugmaður kemst strax út um hægri gluggann á stjórnklef- anum. McCollum flugstjóri á í erfið- leikum með að losa beltið af sér, en kemst fljótlega skólaus út um gluggann sín megin. Hann hefur tek- ið eftir því að ytri hreyfíllinn á hægri væng skíðlogar. í fjarskiptaherberginu er atburða- rásin öllu skrautlegri. Conger loft- skeytamaður situr grunlaus í sæti sínu með hugann við fjarskiptatækin. Það næsta sem hann veit er að hann þeytist út úr vélinni og út á vinstri vænginn ásamt stélskyttunni. Hann berst við að komast aftur inn í vélina til að sækja fallhlíf. Það rennur hins vegar upp fyrir honum að þeir eru kyrrstæðir í slyddu og hífandi roki, en ekki á flugi eins og hann hafði haldið. Hvorki hann né Jennings stél- skytta hljóta skrámu. Jennings upp- lifír þetta svipað, því hann finnur að vélin rekst á eitthvað og síðan svífur hann út á vænginn á eftir Conger. Það sem gerst hefur er að þegar flugvélin stöðvast þá hefur hún brotnað á samskeytunum milli fjar- skiptaherbergisins og sprengirýmis- ins þannig að afturhlutinn og stélið liggja nánast í vinkil að hægri vængnum. Vinstra megin er því stór rifa á búknum fremst í fjarskiptaher- berginu. Um þá rifu höfðu þeir kast- ast út. Lane stjómborðsskytta rankar við sér þar sem hann liggur við flak- ið fastur með fæturna í snjó sem ruðst hefur upp. Weemes bakborðs- skytta er einnig fastur í snjónum. Þeim er hjálpað á fætur en báðir missa þeir klunnaleg fóðruð flugstíg- vélin af sér í þéttum snjónum. Bell kúluskytta hafði setið við hurðina, sem lá fram í sprengjurýmið, þegar óhappið á sér stað. Það eina sem sést af honum er höndin þar sem hún stendur upp úr sjónum, nánast undir flakinu, í rifunni milli fram- og afturhlutans. Þegar grafið er frá andlitinu kemur í ljós að hann er á lífí og fljótlega tekst að grafa hann upp. Eins furðulegt og það kann að virðast er hann svo til ekkert slasað- ur frekar en aðrir áhafnarmeðlimir. Allir sem voru í fjarskiptaherberginu hafa því henst út um rifuna. Eldurinn hefur breiðst hratt út og því getur vélin sprungið á hverri stundu. Flugstjóranum tekst að bijóstast gegnum hurðina afturí vél- ina og ná neyðarsendinum. Hann fleygir eins miklu af neyðarbúnaði út eins og hann þorir áður en þeir koma sér burt frá brennandi flakinu. Stutt þarna frá er klettasker þar sem þeir leita vars. Þangað komast þeir ýmist gangandi eða skríðandi vegna veðurofsans, en þeir skólausu eiga erfítt með að fóta sig í snjónum og ísnum á sokkaleistunum einum saman. í kaldri flugvélinni voru þeir að venju í hnausþykkum fluggöllum, með húfur og hanska sem núna ver þá gegn veðurhamnum sem þeim hefur verið „fleygt út í“ án fyrirvara. Þessi búnaður hefur einnig hlíft þeim við hnjaski í brotlendingunni. Fyrsta hugsun hjá þeim er að koma neyðarsendingum frá sér til flugvélanna sem þeir eiga að vera í samfloti við. Neyðarsendinum fylgir flugdreki, sem á að koma loftnetsvír- unum nógu hátt, en handsveif á litl- um kassa gefur sjálfa sendinguna. Sökum veðurofsans er útilokað að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.