Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						p I

18    MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1996

Hafnarfjörður, Kópavogur,

Reykjavík, Seltjarnarnes,

Mosfellsbœr, Skálafell,

Mosfelisheiði, Lambhagí,

Akranes, Borgarnes,

Reykhoit, Ólafsvík, Grundarfjörður,

Stykkishólmur, Patreksfjörður,

Bolungarvík, ísafjörður,

Hvammstangi, Blönduós,

Varmahlíð, Sauðárkrókur,

Siglufjörður, Ólafsfjörður, Dalvík,

Akureyri, Húsavík, Egilsstaðir,

Seyðisfjörður, Neskaupsstaður,

Eskifjörður, Reyðarfjörður, Höfn, Vík,

Vestmannaeyjar, Hvoisvöilur,

Hella, Laugarvatn, Grímsnes,

Selfoss, Hveragerði, Stokkseyri,

Eyrarbakki, Þorlákshöfn, Grindavík,

Garður, Sandgerði, Kefiavík,

Njarðvík,

Kefiavíkurfiugvöllur,

MORGUNBLAÐIÐ

VIÐSKIPTI

Vogar og Bláfjöll.

Rannsókn á máli Sumi-

tomo verður æ víðtækari

London. Reuter.

RANNSÓKN á hneykslinu á

koparmarkaði heims hefur verið

víkkuð út og nær til Bretlands og

Bandaríkjanna. Fjársvikadeild

brezku lögreglunnar hefur unnið

að rannsókn málsins síðan fyrir

helgi og samkvæmt blaðafréttum

frá New York hefur skrifstofa sak-

sóknara á Manhattan kallað saman

alríkisdómstól til að kanna kopar-

viðskipti japanska fyrirtækisins

Sumitomo. Eins og kunnugt er á

einn angi þessa fyrirtækis, Sumi-

tomo Corporation, 15% hlut í ís-

lenska Járnblendifélaginu.

Málið kom upp á fimmtudag

þegar Sumitomo tilkynnti brott-

rekstur starfsmannsins Yasuo

Hamanaka, heilans á bak við um-

fangsmikil koparviðskipti á undan-

förnum 10 árum. Sagt var að hann

hefði viðurkennt 1.8 milljarða

punda tap af óleyfilegum viðskipt-

um.

Aðferðir Hamanaka byggðust á

því að hann gat ábyrgzt skilvísa

affhendingu á kopar af birgðum

sem hann hamstraði, en hann virð-

ist einnig hafa þrýst upp verði á

kopar þegar staða annarra málma

veiktist snemma á þessum áratug.

Nú er áherzla lögð á að rann-

saka ýmis fyrirtæki, sem skiptu

við Sumitomo, til að fá nákvæma

mynd af því sem gerðist og hvern-

ig Hamanaka stórtapaði á viðskipt-

unum og fór að því að halda þeim

leyndum um árabil. Talsmaður

fyrirtækisins Global Minerals &

Metals í New York sagði Wall

Street Journal að búizt væri við

að því og stofnanda þess, David

Campbell, yrði stefnt fyrir dóm.

Rannsóknarmenn í Banda-

ríkjunum og Bretlandi hafa einnig

beint athyglinni að gömlu tapi Kín-

verja á koparviðskiptum og

hneyksli, sem ríkisfyrirtækið Cod-

elco í Chile var viðriðið 1995. Cod-

Búizt við meiri

óstöðugleika á

málmmörkuðum

elco tapaði 170 milljónum dollara

á óheimilum koparviðskiptum.

Brezk blöð segja að tvö fyrir-

tæki í Bretlandi verði líklega spurð

um viðskipti við Sumitomo: Winch-

ester Commodities og Iceni

Commodities Limited, en engin

fyrirtæki hafa verið sökuð um

ólögleg viðskipti. Verð á kopar

breyttist lítið á málmmarkaði í

London í gær þrátt fyrir hrakspár

um hrun þegar Hamanaka var rek-

inn. Kopar til afhendingar eftir

þrjá mánuði seldist á rétt innan

við 2.000 dollara tonnið samanbor-

ið við um 1.800 dollara á mánu-

dagsmorgun. Ekki er vitað hve

mikið Hamanaka hefur selt af

birgðum sínum.

Mál gegn

Hamanaka?

í Japan sagði Sumitomo fyrir-

tækið í gær að það kynni að íhuga

málsókn gegn Hamanaka, en ekki

væri vitað hvar hann væri niður-

kominn. Jafnframt sagði Mutsumi

Hashimoto varastjórnarformaður

af eftirlit með starfsmönnum

Sumitomo yrði hert.

Hashimoto neitaði að skýra frá

því hve miklar koparbirgðir væru

í eigu fyrirtækisins, en óttazt hefur

verið að sala á birgðunum geti

valdið offramboði. Ýmsir telja að

Sumitomo kunni að hafa samið um

400.000 tonn, sem jafngildir fjórð-

ungi árlegrar kopareftirspurnar

Japana.

Hamanaka hefur ekkert látið

hafa efir sér síðan hneykslið kom

upp, en það er talið það mesta sem

um getur á fjármálamörkuðum.

Hamanaka var eitt sinn talinn

nokkurs konar „páfi" koparvið-

skipta heims og kallaður „herra

fimm prósent" vegna þess að hann

og félagar hans voru taldir ráða

yfir 5% koparviðskipta í heiminum.

Staða Sumitomo

batnar

Staða Sumitomo hefur batnað

nokkuð á fjármálamörkuðum. Eftir

16,5% tap á mánudag hækkuðu

hlutabréf í fyrirtækinu um 20 jen

í gær í 1030 jen. „Markaðurinn

virðist búinn að melta fréttina,"

sagði Yasuo Ueki, forstjóri Nikko

Securities, en spáð er óstöðugleika

á málmmörkuðum.

Hamanaka var rekinn í þann

mund er hann reyndi að styrkja

verð á kopar gegn fjárfestingar-

sjóðum, sem höfðu ákveðið að selja

vegna þess að verðið væri of hátt.

Kunnugir segja að hér kunni að

vera um að ræða Quantum-sjóð

fjármálájöfursins Georgs Soros,

Tiger-sjóð Julians Robertsons,

kanadíska          brotajárnskónginn

Herbie Black og að minnsta kosti

eitt umsvifamikið málmviðskipta-

fyrirtæki í Evrópu.

Fjársvikadeild brezku lögregl-

unnar, (Serious Fraud Office, SFO)

og Lundúnalögreglan rannsaka

hvort Hamanaka hafi verið einn

að verki eða hvort komizt hafi upp

um alþjóðlega tilraun til að hag-

ræða verði á heimsmarkaði.

Vitað hafði verið að Hamanaka

kom sér upp miklum koparbirgðum

í London, en hann neitaði því að

hann reyndi að þrýsta upp verði

og hélt því fram að hann þyrfti

að eiga kopar til afhendingar með

stuttum fyrirvara ef til óvæntra

erfiðleika kæmi í koparframleiðslu

Sumitomo.

Reykjavíkurborg semur við Landsbréf hf.

um 1.600 milljóna skuldabréfaútgáfu

Vextir verða 8punktum

yfir húsbréfaávöxtun

BORGARRÁÐ samþykkti í gær að

ganga til samninga við Landsbréf

hf. um umsjón með 1.600 milljóna

skuldabréfaútgáfu Reykjavíkur-

borgar á innlendum markaði. Tilboð

Landsbréfa hljóðaði upp á útgáfu

verðtryggðra bréfa til 25 ára og

miðast vaxtakjör þeirra við ávöxt-

unarkröfu húsbréfa á söludegi að

viðbættum 8 punktum. Kaupávöxt-

unarkrafa húsbréfa var í gær 5,38%.

Fyrirtækið sölutryggir útboðið

þannig að helmingur fjárhæðarinnar

kemur til greiðslu 15. júlí og helm-

ingur 1. ágúst.

Að sögn Önnu Skúladóttur, fjár-

reiðustjóra Reykjavíkurborgar, mið-

ast kjör bréfanna við lægstu ávöxt-

unarkröfu húsbréfa hjá verðbréfa-

fyrirtækjunum fímm á söludegi. Eru

þetta nokkuð hagstæðari kjör en

fengust í skuldabréfaútgáfu borgar-

sjóðs árið 1995, þegar bréfin báru

12 punkta álag á húsbréfakröfuna.

Anna sagði að kjör Reykjavíkur-

borgar á bankamarkaði í Evrópu

væru nú hliðstæð ávöxtunarkröfu

húsbréfa, en þar fengjust hins vegar

einungis lán til 5-7 ára. Til að fá lán

til 25 ára þyrfti að leita á skulda-

bréfamarkað þar sem vextir væru

enn hærri. Að teknu tilliti til geng-

isáhættu og fleiri þátta hefði niður-

staðan orðið sú að hagstæðara væri

að bjóða út skuldabréf á innlendum

markaði.

Fjármagninu verður að mestu

leyti varið til endurfjármögnunar á

eldri lánum borgarsjóðs.

?  ? ?

KDISQDia

Umhverfisvæn

Ijósritun

i gæðaflokki

mf

aco

SKIPHOLTI 17 ¦ 105 REYKJAVÍK

SÍMI: 562 7333 ¦ FAX: 562 8622

Fintmir

svartsýnt

Helsinki. Reuter.

FINNAIR er svartsýnt á horfur í

nánustu framtíð, en segir að flutn-

ingar félagsins hafi slegið met

1995/96 og hagnaður aukizt um

27%.

Hagnaður fyrir skatta nam 533

milljónum finnskra marka (113.4

milljónum dollara) á reikningsár-

inu til 31. marz miðað við 419

milljónir á fyrra reikningsári.

Greiddur verður eins marks arður

á hlutabréf, meiri en dæmi eru um.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68