24 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1996 MÖRGUNBLABIÐ LISTIR Á SJÓ eftir Gunnlaug Scheving er dýrasta verkið á sýningunni' Listaverkin seljastekki l ÍHÚSAKYNNUMLánasýslu ríkisins hanga 29 málverk eftir hina svokðlluðu gömlu meist- ara" í íslenskri myndlist og nú- lifandi listamenn. Þau eru öll til sölu og þar á meðal verk eftir Jóhannes Sveinsson Kjarval, Asgrím Jónsson, Kristínu Jóns- dóttur, Þórarin B, Þorláksson og Mugg. Verkin eru frá gam- alli tíð og tilheyra Fram- kvæmdasjóði Islands sem verið er að leggja niður. Verðskrá hangir uppi á staðnum og feng- ust þær upplýsingar að verkin hefðu verið til sölu í tvö ár en lítil eftirspurn hefði verið og ekkert þeirra selst. Morgunblaðiö/Ásdís Það er falt fyrir 3.450.000 kr. HORNBJARG er ein fimm mynda eftir Kjarval sem til sýnis eru. Nýjar bækur EFTIR að Fjölvaútgáfan lauk á sl. ári útgáfu þriggja binda verks Hríngadróttinssögu, eru áfram lögð drög að útgáfu fleiri verka Tolkiens. Fjölvi undirbýr síðar í sumar útgáfu á listaverkabókum í stóru broti með myndskreyting-: um við verk hans. Þá er unnið að þýðingu á Silmerlinum. Nú hefur Fjölvi sent frá sér úrval úr ljóðum Tolkiens. Nefnist kverið Vegljóð Fararheill til framtíðar. I kverinu er um 30 ljóð, eins og um Tuma Bumbalda, Tínuvíel, Tröllabragurinn, harm- ljóðin um Gandalfog Boromír, hetjuljóðin um Þjóðan konung og lofgjörð Sóma um Sól og stjörnur. I Vegljóðunum birtast líka í fyrsta skipti hér á landi nokkrar þeirra myndskreytinga sem gerðar hafa verið út frá Hringadróttins- sögu. Eru það tíu listaverk sem tengjast ákveðnum ljóðum. Meðal listamanna má nefna Alan Lee, John Howe TedNashmith.. Geir Kristjánsson þýddi ljóð Tolkiens. Þorsteinn Thorarensen semur skýringar með ljóðunum og sér um frágang. Bókin er öll ífullum litum. Hún er unnin hjá PMS Súðarvogi og GBen-Eddu Grafík, 96síðurog innbundin. Hún kostar 1260 krón- ur á sértöku vortilboði, sem stend- urímánuð. Eftirhann hækkar verðið í 1580 krónur. 0 ÍSLENSKI kiljuklúbburinn hef- ur sent frá sérþrjár bækur: Falsarínn er heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Hún segir frá Þorvaldi Þorvaldssyni, ungum dreng frá Skógum á Þela- mörk á ofanverðri 18. öld, sem freistaðist til að falsa peningaseðil og kaupa fyrir hann. Þegar hann varð uppvís að þessu broti dæmdi íslensk réttvísi hann til dauða. Var hann sendur til Kaupmannahafnar og afplánaði þar refsivist, en var þó ekki líflátinn. Afkomendur hans urðu frammámenn í Danmörku og gerist sagan að hluta þar og í hinu fjarlæga landi Chile. Bókin er391 blaðsíða og kostar 990 krónur. Kryddlegin hjörtu er funheit skáldsaga frá Mexíkó og fjallar um ástir og mat eftir Lauru Esqui- vel. Tita, yngsa dóttir De la Garza- fjölskyldunnar, á sér samastað í eldhúsinu. Þar notar hún sköp- unargáfu sína til að erta bragð- lauka fjölskyldunnar. Öllu öðru í húsinu ræður móðirin, hin freka ekkja Mamma Elena, sem hefur fjölskylduhefðina í hávegum. En eldamennska Titu veitir fjölskyld- unni annað og meira en mat á borðið og um síðir nær matseldin algjörum tökum á tilfinningalífinu. Sigríður Elfa Sigurðardóttir þýddi bókina sem er 233 blaðsíður. Hún kostar 899 krónur. Veröldsem var ervíðfræg sjálfsævisaga Stefans Zweig, en íslenska þýðingin hefur verið ófáanleg um margra ára skeið. Bókin lýsir ekki fyrst og fremst afdrifum Zweigs sjálfs, heldur ör- lögum heillar kynslóðar Evr- ópubúa sem sáu veröld sína hverfa í hildarleik fyrri heimsstyrjaldar- innar. Halldór J. Jónsson og Ing- ólfur Pálmason íslenskuðu. Bókin er 400 blaðsíður og kostar 899 krónur. 0 Söngh'óð heitir nýútkomin bók með ljóðum við vinsæl ogþekkt lóg eftir Auðunn Braga Sveinsson. Ljóðin í bókinni eru að mestu fru- mort viðlögsem Auðunn hefur hrífist afæá löngum tíma eða allt frá unglingsárum til efri ára. Fá- ein eru þýdd. Þá eru nokkur ljóð ort á dönsku. Bókin fæst hjá höf- undi og kostar 1000 kr. MYNDLIST Listasafn ASI Ásmundarsalur MALVERK/VATNSLITIR Svavar Guðnason. Opið virka daga 16-19,14-19 um helgar. Lokað mánudaga tíl 23 júni. Að- gangur ókeypis. ÞAÐ er alveg rétt, sem Hrafnhildur Schram listsögufræðingur segir í skrá varð- andi sýningu á verkum Svavars Guðnasonar í Ásmundarsal á Listahátíð; Það er vel við hæfi að fyrsta sýning Listasafns ASÍ í hinum nýju húsakynnum að Freyjugötu 41 skuli vera á verkum Svavars Guðnasonar í eigu safnsins." Er hér um að ræða myndir, sem ekkja málarans frú Ásta Eiríksdóttir færði því að gjöf fyrir tveim árum, auk viðbótar úr stofng- jöf Ragnars Jónssonar, svo sem lykilverkin Fönsun frá 1943, Einræðisherrann frá 1945 og Hágöngur frá 1947. Hér er þannig öðru fremur verið að kynna gjöf, sem styrkt er með nokkrum alþekktum öndvegisverkum á ferli listamannsins. Hins vegar kemur ekki neitt fram um umfang gjafarinnar á sýning- unni. Öll framkvæmdin samanstendur af sjö olíumálverkum á striga, sex vatnslitamynd- um á pappír, einni sem er pastel á masónít, einni sem er olía og pastel á masónít og loks einni sem er olía og pastel, en gleymst hefur að upplýsa um undirlagið í því tilvikinu, - samtals gerir þetta 16 myndverk. Þetta er lítil en afar falleg sýning, en þó er undrunarefni að verkin skuli ekki njóta sín betur í nýuppgerðu húsinu. Auðséð er að hér hefur íslenzkt kapp ráðið ferðinni og forsjáin mætt afgangi, því tekin hefur verið sú stefna að mála alla veggi skjannahvíta, sem ekki skal lastað, en einhvern veginn eru fínheitin og nýjabrumið svo mikil í innvolsinu að upprunalegi andi hússins hefur beðið hnekki. Hvítt er ekki einungis hvítt, heldur margir tónar af hvítu, stundum hráum eins og hér er tilfellið, en einnig geta þeir verið gæddir dýpt, efnis- og tímalegri fyllingu. Undarlegt er svo að sjá stóran og kolsvartan konsertflygil í einu herbergjanna, sem að auk blasir við að utan er að húsinu er komið. Fönsun og hágöngur Morgunblaðið/Þorkell TVÖ frábær dæmi um óformlega sköpun og hugsæi í litaþróun. Telst sjónrænt slys og veldur miskilningi. Hins vegar hefur vel tekist með gólfið, sem er matt og hlutlaust, sem er einkum mikils- vert fyrir hvers konar rýmislist og innsetning- ar. Engan veginn er svo að skrifari sé tiltakan- lega á móti fínheitum, en hann ber mikla virðingu fyrir tímunum sem húsið var byggt á og vill álíta, að rétt hefði verið að innrétta húsið í samræmi við þá með húsgögnum í ekta funkisstíl. Húsið er einnig hluti af list- rænu uppeldi hans, bæði hvað höggmyndir Ásmundar sem áður prýddu garðinn snertir, og svo hefur hann verið fastagestur á mikið til allar framkvæmdir í húsinu á sýningarvett- vangi um langt árabil. Ósjálfrátt fær maður á tilfinninguna, að hlaupið hafi verið að sýn- ingu, sem hefði þurft mun rýmri undirbún- ingstíma, enda mjög stutt síðan gengið var frá kaupunum á húsinu. Og hafi þessi sýning verið löngu ráðgerð á Grensásvegi, var mis- ráðið að hafa hana ekki þar, því myndir Svavars hefðu notið sín stórum betur í þeim rúmgóðu salarkynnum. Ásmundarsalur er öðru fremur fyrir svo- nefndar mini"-sýningar og prýðilegur sem slíkur, en eigiþetta að vera framtíðarstaður listasafns ASÍ krossar maður sig í bak og fyrir, því hvar er rými til varðveislu lista- verka og aðstaða til viðgerða á þeim, for- vörslu, sem er eitt hið mikilvægasta við öll samtímasöfn? Það er alltaf drjúg lifun að berja verk Svavars augum, og það er ekki vansalaust ef það þarf sérstakt tilefni og listahátíðir til að svo geti orðið, en víst er að það myndi auka heimsóknir útlendinga til landsins, ef þeir hefðu aðgang að skilvirkri íslenzkri sjón- listasögu á listasöfnum höfuðborgarinnar. Þetta er undarleg þróun, sem ekki telst til framfara, og enn neyðarlega er, að enn skulum við vera svo smátt hugsandi útnesja- þjóð að miða allar gjörðir okkar við einhvern ímyndaðan útlenzkan samhæfingarstaðal, í stað þess að rækta af stolti okkar eigin þjóð- arsál, halda stíft fram verkum sem gerð eru hér á landi af íslenzkum listamönnum og í viðeigandi húsakynnum. Kominn er tími til að við lyftum upp okkar eigin listmenningu í nútíð og fortíð og biðlum minna til útlands- ins. Þá mun eftirleikurinn verða auðveldari, því útlendir munu sækjast eftir að kynnast sérkennum íslenzkrar listmenntar og halda hér sýningar. Svavar er eins og ég hef ítrekað bent á í skrifum mínum rammíslenzkur listamaður, þrátt fyrir öll útlend áhrif. Einnig í strang- flatamyndum sínum, sem verða að teljast frávik frá óformlegum tjáhætti listamanns- ins, þótt óhlutlægar séu. Eitt elsta málverk- ið, sem er Olía á striga" 114x73, án ártals, er um leið ein eftirtektarverðasta mynd sýn- ingarinnar, því hún er vafalítið gerð á þeim árum er hin giftudrjúga samvinna þeirra Egils Jacobsen var hvað mest. Þá er litaþró- unin einstök í Komposition" frá 1943. Hvorki Svavar né félagar hans gátu búist við þeirri framþróun og nýviðhorfum, sem ofurtækni framtíðarinnar hafði í för með sér, né að manninum yrði lyft aftur á stall í málverkinu, og skoðanir þeirra yrðu með tímanum að þröngsýni og íhaldssemi. Jafnvel næsta kynslóð á eftir var sömu sökinni seld um langt skeið og sumir halda enn í uphaf- lega útgangspunktinn og neita að viðurkenna breytingarnar, sem í mörgum tilfellum er eins gott fyrir list þeirra, skal alls ekki lastað. Að lokum vil ég biðjast velvirðingar á að rýnin tók á sig aðra mynd en upprunalega var gert ráð fyrir og slíkri sýningu hæfir, en þetta eru mál sem brenna á í tíðinni og erfitt er að sneiða hjá, vilji maður vera trúr sannfæringu sinni, stefnumörkum og hug- sjónum. Gjöf frú Ástu Eiríksdóttur er stór og þýð- ingarmeiri en svo, að verða dæmd til að hafna einhvers staðar í geymslum og rekkum líkt og 90% af allri íslenzkri samtímalist. Þessi sýning var gott tækifæri til að minna á staðreyndir og spyria, nær verður hér breyt- ing á og menn líti út yfir kampavínsglösin, glampandi parkettgólfin, marmarann, sítar- spil og söng, og þá einkum og sér í lagi þegar útlenda gesti ber að? Bragi Ásgeirsson I \