Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ1996    49

MINNINGAR

KRISTRUN

JÓHANNSDÓTTIR

+ Kristrún Jó-

hannsdóttir

fæddist í Reykjavík

2. nóvember 1927.

Hún lést á Landspít-

alanum 10. júní síð-

astliðinn. Foreldrar

hennar voru Stein-

dóra Camilla Guð-

mundsdóttir frá

Sólheimum í Hruna-

mannahreppi og Jó-

hann Guðmundsson

frá Dalbæ í sömu

sveit. Börn þeirra

voru, auk Kristrún-

ar: Gyða, Guðmund-

ur og Hörður og er Gyða nú

ein á lífi. Þá ólu þau upp fóstur-

dóttur, Önnu Sigurðardóttur.

Hinn 8. febrúar 1947 giftist

Kristrún Halldóri V. Sigurðs-

syni frá Akranesi, fyrrv. ríkis-

endurskoðanda, f. 13.7. 1924,

d. 27.10. 1993. Foreldrar hans

voru Valgerður G. Halldórs-

dóttir og Sigurður Símonarson.

Börn  þeirra  voru:   1)  Sigrún

Camilla, f. 10.6.

1947, búsett á

ísafirði, sambýlis-

maður Heiðar Guð-

mundsson, hún á

þrjú börn. 2) Jó-

hann, f. 15.4. 1951,

búsettur í Hafnar-

firði, maki Guðrún

Siguróladóttir og

eiga þau þrjú börn.

3) Halldór, f. 18.12.

1952, búsettur í

Hafnarfirði, sam-

býliskona Margrét

Sigurðardóttir og á

hann eina dóttur.

4) Sigurður Valur, f. 3.2. 1954,

d. 26.4.1994. 5) Valgerður Guð-

rún, f. 14.10. 1965, búsett í

Reykjavík.

Kristrún lauk verslunarprófi

frá Verslunarskóla íslands

1945 en starfaði alltaf sem hús-

móðir.

Útför Kristrúnar fer fram

frá Bústaðakirkju í dag og

hefst athöfnin klukkan 13.30.

Hin langa þraut er liðin,

nú loksins hlaustu friðinn,

og allt er orðið rótt,

nú sæll er sipr unninn

og sólin björt upp runnin

á bak við dimma dauðans nótt.

(V. Briem.)

Amma er farin eftir erfið veikindi.

Fyrst þegar ég man eftir mér,

átti amma heima í Sólheimunum

með afa, Sigga frænda og Völu

frænku. Þar var alltaf gaman og oft

mikið af fólki.

Haustið 1992 fluttu amma, afi

og Siggi út til Brussel og ég var svo

heppin að fá að heimsækja þau

þangað. Þau ætluðu að vera þar í

fjögur ár, en amma og Siggi fluttu

heim og í Espigerðið þegar afi dó.

Amma var sterk baráttukona

fram til síðasta dags, þrátt fyrir að

missa bæði afa og Sigga með hálfs

árs millibili. I tíu ár hafði amma

þurft að fara í nýrnavél, en reyndi

samt alltaf að vera kát og glöð og

hugsa vel um okkur börnin sín. Síð-

ast sá ég ömmu daginn áður en hún

dó og við kvöddumst með bros á vör.

Elsku Sigrún, Jóhann, Vala og

pabbi.

Megi guð styrkja ykkur í sorg

ykkar.

Það er komið að kveðjustund og

ég ætla að enda þessi orð svona:

Elsku amma mín. Takk fyrir allar

stundirnar okkar saman. Ég bið að

heilsa afa og Sigga.

Þín sonardóttir,

Þorgerður María.

Vinátta,

dýrmæt sem gull.

Þú átt hana

og gefur í senn.

Vinátta,

einstök sem demantur,

endist um aldur

og ævi.

Vinirnir hverfa, en vináttan deyr

ekki, hún lifir áfram í perlum minn-

inganna sem við eigum um vinkonu

okkar Kristrúnu Jóhannsdóttur, sem

við kveðjum í dag með söknuði.

Langt er síðan við kynntumst þeim

hjónum Halldóri og Dúnu, er þeir

unnu saman Bergur og Halldór og

þau nýflutt aftur til Reykjavíkur frá

Akranesi, þar sem þau höfðu búið

fyrstu hjúskaparár sín. Við höfum

átt ótal ánægjulegar samverustundir

á heimilum hvors annars. Á öllum

hátíðarstundum innan fjölskyldunn-

ar var sjálfsagt að þau væru með

okkur, enda minnast börnin okkar

þeirra sem okkar bestu heimilisvina.

Eins áttum við ótal hátíðarstundir á

þeirra heimili, sem eru okkur

ógleymanlegar.

Kristrún var fædd í Reykjavík og

ólst þar upp í faðmi elskulegra for-

eldra, þeirra Steindóru og Jóhanns,

ásamt systkinum sínum Gyðu og

Guðmundi og fóstursysturinni Önnu.

Anna kom á heimilið kornung og

leit Dúna alltaf á hana sem „litlu

systur" og jafnvel sem dóttur því

nokkur aldursmunur var á þeim.

Ung giftist hún Halldóri. Þau

höfðu kynnst í Verslunarskólanum

og áttu þaðan marga sameiginlega

vini. Þau eignuðust fimm mannvæn-

leg börn.

Dúna var einstakur fagurkeri og

unni öllu sem fagurt var, enda ber

heimili hennar þess glöggt vitni.

Allt lék í höndum hennar. Sjálf var

hún ákaflega smekkleg í klæðaburði

og til þess tekið, þegar börnin voru

lítil, hversu fallega klædd þau voru.

Það hefur þurft mörg handtök að

útprjóna allar þær peysur sem hún

prjónaði á þau og a!lt sem hún saum-

aði, því þá var ekki alltaf farið í

búðir að kaupa fatnað. Hún var

heimavinnandi og sjálfsagt að nota

hverja stund fyrir heimilið.

Halldór og Dúna voru einstaklega

glæsileg hjón og var alltaf tekið eft-

ir þeim hvar sem þau komu. Þau

voru einstaklega samhent og báru

mikla virðingu hvort fyrir öðru og

var sérstaklega ánægjulegt að vera

með þeim hvort heldur var á heimili

þeirra eða á mannamótum, innan-

lands eða erlendis, þar sem við áttum

margar ánægjulegar stundir og

eignuðumst marga vini.

Ekki hefur líf Dúnu verið leikur

einn, en þau stóðu ávallt saman sem

einn maður. Þegar Halldór veiktist

og þurfti að fara í hjartaaðgerð til

Bandaríkjanna, fór Dúna með hon-

um eins og vænta mátti og stóð með

honum eins og klettur. Dúna var

einstök kona og allir sem kynntust

henni vel, elskuðu hana og báru

mikla virðingu fyrir henni. Hún var

vel greind og ákaflega minnug.

Hafði lifandi áhuga á öllu sem var

að gerast, bæði innanlands og utan,

hvort heldur voru stjórnmál, íþróttir

eða listir. Hún var mikill tónlistar-

unnandi og dáði allt sem fagurt var

og vel var gert, hvort heldur var

klassískt eða popp. Hún var ákaflega

minnug á nöfn þeirra sem sköruðu

fram úr. Hún hafði mikinn áhuga

fyrir ættfræði og ef hún kynntist

fólki, var hún ekki ánægð fyrr en

hún hafði fundið einhver deili á for-

eldrum eða ætt. Þetta var fróðleiks-

fýsn, sem ekki allir skilja. En maður

gat alltaf spurt Dúnu, ef maður

mundi ekki nöfn eða langaði að vita

eitthvað meira, en því miður átti hún

orðið erfitt með lestur því hún hafði

misst sjónina á öðru auga og þreytt-

ist því fjótt og margar bækur voru

of þungar fyrir þrek hennar. Alltaf

var jafn ánægjulegt að koma í heim-

sókn til Dúnu. Þótt hún væri illa

farin af erfiðum sjúkdómi tók hún

ákaflega vel á móti öllum. Ávallt

glöð, aldrei kvartaði hún yfir veik-

indum sínum, en vildi heldur vita

hvað hinir voru að upplifa sér til

ánægju.

En margt breyttist þegar hún

varð fyrir þeirri sorg er Halldór dó

snögglega þar sem þau bjuggu í

Brussel vegna starfa hans. Þar höfðu

þau búið sér yndislegt heimili ásamt

Sigurði syni þeirra, sem fluttist með

þeim og var þeim einstakur styrkur

þar sem Dúna hafði þá þegar hafið

baráttuna við sín erfiðu veikindi.

Eftir lát Halldórs flytur Dúna

heim og eignast íbúð í Espigerði 4

og einnþá tekst henni að byggja upp

fallegt heimili með góðri aðstoð

barna sinna og þar ætla þau Sigurð-

ur sonur hennar að búa, en sorgin

kemur ekki ein. Hún á margar syst-

ur, nú er Siggi sóttur heim. Hann

veikist aðeins nokkrum mánuðum

síðar af illvígum og ólæknandi sjúk-

dómi. Sex mánuðum eftir andlát

Halldórs er Sigurður dáinn. Ennþá

stendur Dúna eftir, en hún er aldrei

ein. Hún átti sína sterku trú, þangað

sækir hún styrk sinn. Hún bar hvorki

t Eiginkona mín, systir og mágkona, KATRÍN EINARSDÓTTIR HUDSON, Juliette, Atlanta, USA, lést á heimili sínu 21. maí. Útför  hefur farið  fram,   frá   Fossogs-kapellu, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Robert Hudson, systkini og makar.		

	4    wL	

		

t

Útför  elskulegs   sonar  okkar,   bróður,

mágs, frænda og dóttursonar

GUNNLAUGS SIGURBJÖRNSSONAR

bifreiðasmiðs,

verður gerð frá Kópavogskirkju fimmtu-

daginn 20. júnf kl. 13.30. Þeir sem hafa

hug á að minnast hans er bent á Hjúkr-

unarþjónustu Caritas.

Sigríður Gunnlaugsdóttir,      Sigurbjörn Bjarnason,

Bjarni Sigurbjörnsson,            Sóley Jakobsdóttir,

Ingvar Örn Sigurbjörnsson,   Sigurbjörn Bjarnason,

Guðrún Finnbogadóttir.

Lokað

fimmtudaginn 20. júní vegna jarðarfarar GUNN-

LAUGS SIGURBJÖRNSSONAR bifreiðasmiðs.

Bifreiðasmiðja Sigurbjörns Bjarnasonar.

sorg sína né trú á torg, en kunni

þeim mun betur að fara með það

og vinna úr því sem henni var ætl-

að. Og börnin hennar fjögur og

tengdadætur stóðu með henni og

sýndu henni einstaka umhyggju og

hjálpsemi. Ekki tel ég að á neinn

sé hallað þótt Sigrúnar sér sérstak-

lega minnst, því hún stóð sem klett-

ur með móður sinni í öllu mótlætinu

og ráðstafaði öllum hlutum eins og

best mátti.

Nú hefur Dúna lagt í sína hinstti

för, en hún er ekki ein á ferð. Ég

er þess fullviss að Halldór og Siggi

hafa verið tilbúnir að taka á móti

henni, þar sem hún fær að njóta

hvíldar og friðar eftir sín löngu og

erfiðu veikindi. Sjálf vissi hún að

hverju dró, hún kveið ekki vistaskipt-

unum. Trú hennar veitti henni vissu

um að fá að hitta ástvini sína sem

á undan voru farnir.

í dag er mér þakklæti efst í huga

fyrir allar góðu stundirnar sem við

höfum átt saman í gegnum árin.

Ég bið börnum hennar, tengda-

börnum og ömmubörnunum allrar

blessunar og megi Guð styrkja þau

og hjálpa þeim að standa saman í

minningu góðrar móður og ömmu.

Margrét Stefánsdóttir.

Vorið 1945 markaði tímamót í

veraldarsögunni. Síðari heimsstyrj-

öldinni lauk og hörmungar stríðsins

voru á enda.

Við vorum 60 skólasystkini, sem

laukum prófi úr 4. bekk Verslunar-

skólans þetta vor. Löngu og þreyt-

andi prófstriti var lokið, hugurinn

léttur og framundan skólaferðalag.

Síðan tæki við alvara lífsins, lífs-

starfið sjálft.

í tímans rás hefir maðurinn með

ljáinn höggvið stórt skarð í þennan

ágæta hóp skólasystkina og nú er

svo komið að 19 eru látin. Oneitan-

lega er það mikil reynsla að sjá

skólafélagana hverfa af sjónarsvið-

inu. Eftir stendur tómarúm í lífs-

mynstrinu og lífsmyndin verður önn-

ur.

Nú síðast sjáum við á bak kærri

Erfidrykkjur

Glæsileg kaffi-

hlaðborð, fallegjr

salirogmjög

góðþjónusta

Upplýsingar

ísíma 5050 925

og 562 7575

FLUGLEIÐIR

lÍTELLIFTLEIBIK

skólasystur, Kristrúnu Jóhannsdótt-

ur, sem er látin eftir langt og erfitt

veikindastríð. Kristrún var um ára-

bil haldin erfiðum nýrnasjúkdómi og

þurfti stöðugt að leita ásjár lækna

og hjúkrunarliðs. Hún dvaldi af þeim

sökum af og til á sjúkrahúsi þar sem

hun naut reglubundinnar meðferðar.

Eftir lát eiginmannsins, Halldórs

V. Sigurðssonar, ríkisendurskoð-

anda, þess góða drengs, naut hún

aðhlynningar barna sinna, einkum

þó sérstaklega yngsta sonarins, Sig-

urðar, sem bjó hjá henni þar til hann

lést í blóma lífsins eftir skammvinn

veikindi.

Ég minnist Kristrúnar meðal

glæsilegustu stúlknanna í bekknum.

Hún var góðum gáfum gædd, dug-

legur námsmaður og samviskusöm,

enda námsárangur eftir því. Hún var

glaðsinna og kát á góðri stund. Hún

var kjarkmikil kona, sem ekki lét

bugast og bar harm sinn í hljóði,

þegar andstreymi lífsins sótti að

henni.

Rétt um það bil ár er síðan við

héldum upp á 50 ára útskriftaraf-

mæli. Á slíkri stundu er horft til

baka til æskuáranna, minningar frá

skólaárunum rifjaðar upp og glaðst

yfir gömlum dögum og góðum kynn-

um, slegið á létta strengi.

Kristrún lét sig ekki vanta í hóp-

inn þrátt fyrir veikindin og naut

þess að vera með. Átta skólasystr-

anna hafa haldið sérstökum vináttu-

tengslum allt frá skólalokum. Þær

hafa skipst á að hafa saumaklúbb

og haft náin samskipti og vinátta

eflst og dafnað með þeim í rás

tímans. Ein úr hópnum var Kristrún.

Hennar er nú sárt saknað af þeim

sem eftir lifa. Nú að leiðarlokum

flytja þær sérstakar kveðjur og

þakkir fyrir allar góðu og ánægju-

legu samverustundirnar.

Góð kona er gengin. Við skóla-

systkinin kveðjum góðan skólafé-

laga. Börnunum og öðrum ástvinum

sendum við hugheilar samúðarkveðj-

ur.

F.h. bekkjarsystkinanna,

Þórhallur Arason.

LAUGAVEGS

APÓTEK

Laugavegi 16

HOLTS

APÓTEK

Álfheimum 74

eru opin til kl. 22

Næturafgreiðslu

eftir ki. 22 annast

Laugavegs Apótek

aStaca

LEGSTEINAR

MOSAIK H.F.

Hamarshöfða 4 - sími 587 1960

10% staðgreiðshiafsláttur

á legsteinum úr graníti, marmara o.fl. teg.

Verðfrákr.20 34Q

IN AR

Opiö kl. 13-18 alla virka daga

Nybýlavegi 30, Dalbrekkumegin, Kópavogí, sími 564 3555.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68