Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ1996    55

FRETTIR

<

i

Athugasemd frá

Aðalskoðun hf.

MORGUNBLAÐINU hefur borist

eftirfarandi frá Markaðseftirliti

Aðalskoðunar hf., Bergi Helga-

son, leikfangasviði, og Erni Guð-

mundsson, raffangasviði:

„Vegna umfjöllunar í fréttum

Ríkissjónvarpsins 13. júní sl. um

hættulega göngugrind fyrir smá-

börn vill Aðalskoðun hf. koma

eftirfarandi á framfæri.

Aðalskoðun hf., sem hlutlaus

óháð skoðunarstofa, annast

markaðseftirlit rneð leikföngum

og rafföngum á íslandi. Markaðs-

eftirlitið er unnið samkvæmt

samningi við Löggildingarstofuna

og Rafmagnseftirlit ríkisins.

Markaðseftirlitið fer þannig

fram að farið er í verslanir og tíl

innflytjenda og skoðað hvort sú

vara sem er á markaði uppfylli

þær reglur sem gilda um mark-

aðssetningu hér á landi og sé

ekki hættuleg neytendum.

Árlega berst fjöldi ábendinga

erlendis frá um hættuleg leikföng

sem hafa fundist þar á markaði

og er þá kannað hvort þau finnist

á markaði hérlendis.

í byrjun síðastliðinnar viku

barst Aðalskoðun hf. ábending

um göngugrind með áfestum leik-

föngum sem gæti verið hættuleg

smábörnum. Strax var kannað

hvort varan væri hér á markaði

og reyndist svo vera. Er þetta í

fyrsta skipti sem leikfang, sem

ábending hefur kbmið um erlend-

is frá, finnst á markaði hér á

landi.

Löggildingastofunni var send

skýrsla um meðferð ábendingar-

innar og hafði fulltrúi hennar

samband við forsvarsmenn sölu-

aðila sem stöðvaði strax sölu á

göngugrindunum. Pyrir liggur að

innkalla þær göngugrindur sem

nú þegar hafa verið seldar.

Málið hefur fengið mjög skjóta

afgreiðslu í fullu samráði við for-

svarsmenn söluaðila.

Aðalskoðun hf. vill vekja at-

hygli á því að ef fólk verður vart

við leikföng eða rafföng á mark-

aði hér sem það telur hættulegt,

skal ábendingum um það komið

til Aðalskoðunar hf."

ÞAU voru heiðruð fyrir bindindisviðhorf sín á Stórstúkuþingi.

Viðurkenningar á

Stórstúkuþingi

Fyrirlestur um f orseta-

vald í Ungverjalandi,

Slóvakíu og Tékklandi

DR. SPENCER M. Zifcak, dósent

í lögfræði við LaTrobe University

í Melbourne í Ástralíu, heldur

fyrirlestur fimmtudaginn 20. júní

i boði félagsvísindadeildar og laga-

deildar Háskóla íslands og Félags

stjórnmálafræðinga. Fyrirlestur-

inn verður fluttur á ensku og heit-

ir: „Presidental Power in Hungary,

Slovakia and the Czeck Republic:

A Comparative Analysis".

I fyrirlestrinum fjallar dr. Zifc-

ak um og ber saman forsetavald

í þremur fyrrum kommúnistaríkj-

um Austur-Evrópu.

Dr. Spencer M. Zifcak er sér-

fræðingur í stjórnarskrárfræðum

og hefur sérstaklega kynnt sér

breytingar á stjórnarskrám hinna

nýju lýðræðisríkja í Evrópu. Hann

hefur dvalist í þessum löndum við

rannsóknir og kennslu, m.a. sem

gistiprófessor við UNESCO Center

for Human Rights at Comenius

University í Bratislava í Slóvakíu

á árinu 1995.

Dr. Zifcak lauk doktorsnámi frá

London School of Economics árið

1992. Undanfarin ár hefur hann

skipulagt nám í stjórnskipunarrétti

við LaTrobe University og kennt

námskeið á því sviði. Jafnframt

hefur hann verið ráðgjafi ástr-

alskra stjómvalda. Dr. Zifcak hefur

birt fjölda rita á sínu fræðasviði.

Fyrirlesturinn hefst kl. 17.15 í

stofu 101 í Lögbergi og er öllum

opinn.

STORSTÚKUÞING og Unglinga-

regluþing voru haldín í Templarahöll

Reykjavíkur dagana 6.-8. júní sl. Á

Unglingaregluþingi var kosin ný

stjórn til tveggja ára: Lilja Harð-

ardóttir, formaður og stórgæslumað-

ur, Jóna Karlsdóttir, ritari, Bryndís

Þórarinsdóttir og Sólveig Granz,

meðstjórnendur. Varamaður var kos-

inn Andrés Ingólfsson.

Opinn fundur var haldinn í Vinabæ

að kvöldi fimmtudagsins 6. júní. Yfir-

skrift fundarins var: Átak gegn

vímuefnum. Eftir stutt frumvörp

Ástu Sigurðardóttur, bæjarfulltrúa

frá Akureyri, Ómars Smára, aðstoð-

aryfirlögreglumanns, og Hilmars

Jónssonar, rithöfundar, hófust um-

ræður. í þeim tóku þátt m.a. fulltrú-

ar þriggja ráðuneyta, Ásdís Halla

Bragadóttir frá menntamálaráðu-

neytinu, Dögg Pálsdóttir frá dóms-

og kirkjumálaráðuneytinu og Davíð

Gunnarsson frá heilbrigðisráðuneyt-

inu. Að ónefndum Magnúsi Scheving,

þolfimimeistara og rithöfundi.

Stórstúkuþing hófst með guðs-

þjónustu í Hallgrímskirkju þar sem

Karl Sigurbjörnsson predikaði. Það-

an var gengið í TemplarahöIIina til

þingstarfa. Stórtemplar sr. Björn

Jónsson las ítarlega skýrslu um störf

framkvæmdanefndar á liðnu kjör-

tímabili. I kvöldverðarboði Stórstúk-

unnar voru nokkrir talsmenn bind-

indisviðhorfa heiðraðir. Þeir eru Ár-

mann Gunnlaugsson, Ásta Sigurðar-

dóttir, Janus Guðlaugsson, Jón Hj.

Jónsson, Njörður P. Njarðvík, Krist-

ján Pétursson, Ómar Smári Ár-

mannsson, Óttar Guðmundsson og

Ragnar Jónsson. Veislustjóri var

Hörður Pálsson.

Gerðir voru að heiðursfélögum

innan Stórstúkunnar þau: Árni Norð-

fjörð, Árni Valur Viggósson, Björn

Eiríksson, Eiríkur Jónsson, Erna

Haraldsdóttir, Guðrún Geirdal, Sig-

urgeir Sigurpálsson, Sigurlaug Jóns-

dóttir, Skúli Skúlason og Valdór

Bóasson.

Sumarhótel að Bifröst

í 41.sinn

HOTEL Bifröst í Borgarfirði hóf 15.

júní sl. sumarstarfsemi sína í 41.

sinn. Á Hótel Bifröst er aðstaða fyr-

ir smærri ráðstefnur, fundi, ætt-

armót, brúðkaup og hvers kyns aðrar

uppákomur.

Á hótelinu eru 26 herbergi svo og

svefnpokaplás í skólastofum. Á hót-

elinu er einnig gufubað og ljósabekk-

ur. í veitingasal er boðið upp á rétt

dagsins, sérrettamatseðil og hópmat-

seðil og hótelið hefur fullt vínveit-

ingaleyfi. í sumar líkt og fyrri sumur

verður veisluhlaðborð á sunnudögum

frá og með 30. júní til 11. ágúst.

Meðal athyglisverðra staða í

göngufæri frá hótelinu má nefna

Grábrók, Glanna, Paradísarlaut,

Hreðavatn og svo hestaleiguna að

Jafnaðarskarði. Hótelstjóri á Hótel

Bifröst er Jóhannes Jóhannesson,

aðstoðarhótelstjóri Björk Hákonar-

son og yfirmatreiðslumaður er Ró-

bert Scobie. Sem fyrri sumur eru það

Samvinnuferður Landsýn sem standa

að hótelrekstri á Hótel Bifröst.

Forseta-

kosningar á

stuttbylgju

EFTIRTÖLDUM   dagskrárliðum   á   '

vegum  Fréttastofu  Utvarps vegna

forsetakosninganna verður útvarpað

á stuttbylgju sem hér segir:

Framboðsfundur í sjónvarpssal.

Föstudaginn 28. júní klukkan 20.30

til 22.30 á 3295 og 7740 KHZ. Kosn-

ingaútvarp laugardaginn 29. júní frá

klukkan 21.40 og fram til klukkan

5 að morgni sunnudags á 3295 og

7740 KHZ. Kosningaúrslit sunnu-

daginn 30. júní milli klukkan 13 og

14. Hádegistíðnir 11402, 13860 og

3295 KHZ. Fyrir hlustendur í Bret-

landi, Skandinavíu og á meginlandi

Evrópu og sjómanna sem eru að

veiðum á Reykjaneshrygg og Flæm-

ingjagrunni.

Gengið á landa-

merkjum gamla

Laugarness

HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í

miðvikudagskvöldgöngu sinni, 19.

júní, í gönguferð með ströndinni inn

að landamerkjum gamla Laugarnes-

landsins og Víkurlandsins og fylgir

þeim suðurundir Fossvog og síðasta

spölinn með landamerkjum gamla

Laugarness og Skildinganesslarids-

ins til strandar.

Val verður um að ganga um*

Öskjuhlíð og Vatnsmýri til baka eða

fara með SVR. Lagt verður af stað

frá Hafnarhúsinu kl. 20 og eru allir

velkomnir.

Sólarhátíð

í Grindavík

ÞAÐ er orðinn árviss viburður !

Grindavík að fagna lífi og yl sólar

með hátíð 21. júní, en þá er sól hæst

á lofti.

Dagskráin hefst kl. 18 í hofinu

sem staðsett er í gamla hverfinu í

Grindavík skammt frá höfninni. Þar

fer fram giftingarathöfn og er það

önnur giftingin í hofi Jarðar- og

mánagyðjunnar.

Eftir giftingarathöfnina er gengið

í Sólarvé kl. 20, þar verður eldur

kveiktur, ljóð kveðin, hljómsveitin

Seiðbandið leikur og syngur og dans

stiginn. Eftir það er gengið á Þor-

björn og sungið við miðnætureld.

Um og upp úr miðnætti er farið í

Bláa lónið.

Tollalækkiiii

á Charade

sedan 1500

Nýtt útlit og nýr

og gjörbreyttur

Charade Sedan!

Innifalið: Vökvastýri, bein innspýting,

1,5 lítra, 90 hestafla vél og fullur bensíntankur

BRIMBORG

FAXAFENI 6 • SlMI 515 7010

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68