58 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ BREF FORSETAKJOR Þjóðarsálin rangtúlkuð Frá Unni A. Hauksdóttur: ÞJÓÐARSÁLIN og hlutleysið" er yfirskrift greinar Hildigunnar Högnadóttur í Morgunblaðinu 12. júní. Hildigunni er auðsjáanlega heitt í hamsi, eins og hún segir sjálf, svo heitt að meira að segja seinkaði kvöldskattinum það kvöldið. Vegna ákafs stuðnings hennar við einn frambjóðandann í væntan- legum forsetakosningum sínum . manni" litast öll hennar hlustun og túlkun á því sem aðrir segja eða segja ekki. Hún að mínu mati rang- túlkar orð starfsmanna þjóðarsálar. Hingað til hefur hún ekki látið í sér heyra svo mér sé kunnugt um til að kvarta yfir því að það sé ekki í neins þágu að leyfa fólki að láta gamminn geisa í alls konar bulli í opnum umræðuþætti eins og þjóð- arsálinni...". Er það ekki fólk eins og ég og hún sem látum þar gamm- inn geisa? Samanber, hún komst ekki sjálf að í þeim þætti umrætt kvöld. Ekki heyrði ég viðtalið" við stjörnuspekinginn fyrr þennan dag sem hún vitnar í. Þau fáránleg- heit" eins og Hildigunnur segir, en hver er hún sem fullyrðir að hópur fólks taki e-ð sem fúlustu alvöru, sem hún afgreiðir sem rugl. Ef þetta var algjört rugl þá efast ég ekkert um að við hin getum tekið þessu innleggi sem léttu gamni eða í góðu lagi eins og Hildigunnur. Vestfírðingar, sama hversu af- skekktir þeir eru, er fólk sem ekki þarf að tala niður til á nokkurn hátt, né til þjóðarinnar almennt. Þeir eru alveg jafnvel upplýstir og minnugir eins og hver annar. Leyfum fólki að vega og meta sjálft, vera ekki svona ofurvið- kvæm. Sama hvern þjóðin velur sem forseta er ég þess fullviss að það verður einstaklingur sem er full- sæmdur af þeim heiðri. Þjóðin mun standa þar að baki er öldurnar lægja, öll sem ein. Því trúi ég. UNNUR A. HAUKSDÓTTIR, Háholti 12, Hafnarfirði. Guðrún Pétursdóttir - ein af okkur Frá Önnu Pálsdóttur: EINKUNNARORÐIN ein af okk- ur" finnast mér hæfa Guðrúnu Pétursdóttur mjög vel því hún á ákaflega gott með að umgangast hvern sem er og hefur lifandi áhuga * á því sem viðkemur landi og þjóð hvort sem er á innlendum eða er- lendum vettvangi. Ég hef þekkt Guðrúnu lengi og umgengist hana töluvert á undanförnum árum. Mér var það mikið fagnaðarefni að hún skyldi gefa kost á sér til embættis forseta íslands og finnst mér hún bera af hinum frambjóðendunum. Ég var nú svo bjartsýn að halda að konur stæðu meira saman en raun ber nú vitni um. Ég taldi að við værum komnar lengra í því að treysta hver annarri til að takast á við veigamikil embætti. Um ára- bil vann ég að því innan Sjálf- stæðisflokksins ásamt öðrum kon- um að reyna að gera veg kvenna meiri. Róðurinn var oft þungur þar eins og dæmin sanna. Mér eru það sannarlega von- brigði ef konur eru að missa móð- inn og mér er spurn hvort við höf- um gengið til góðs ef við treystum ekki jafnglæsilegri og greindri konu og Guðrúnu Pétursdóttur til að gegna embætti forseta íslands. Látum ekki skoðanakannanir hafa þau áhrif á okkur að við veljum þann næstbesta bara vegna þess að við höldum að hann sé líklegast- ur til að fella þann sem við viljum ekki. Baráttunni er ekki lokið. Konur sýnum samstöðu og kjósum Guð- rúnu Pétursdóttir. ANNA PÁLSDÓTTIR, Vesturbergi 140, Reykjavík. IDAG Forseti minnihlutans? Frá Ásgeirí Jónssyni og Hrafnhildi Ólafsdóttur: ER EKKI einkennilegt að lýðræðis- þjóð sætti sig við að sumir kjósend- ur hafi fimmfaldan atkvæðisrétt í kosningum til Alþingis og samþykki að sameiningartákn hennar, forseti íslands, þurfi ekki meirihlutafylgi til að hljóta kosningu? Nú þegar kjósa á fimmta forseta lýðveldisins er löngu augljóst að kosningaregiur eru ólýðræðislegar. Tímabært er að kosið sé í tveimur umferðum um forseta landsins þeg- ar frambjóðendur eru fleiri en tveir og enginn þeirra fær meirihluta- fylgi. Núverandi kosningareglur eru ósanngjarnar gagnvart þjóðinni og einnig gagnvart því ágæta fólki sem gefur kost á sér til forsetaembætt- is. Að óbreyttu vita frambjóðendur ekki hvert raunverulegt fylgi þeirra er, því þegar kosið er einu sinni ræðst val margra kjósenda enn frekar af niðurstöðum skoðana- kannana. Viljum við ekki reglur sem stuðla að því að frambjóðendur fái raun- verulegt fylgi sitt upp úr kjörköss- unum og á þjóðin ekki heimtingu á að eiga endanlegt val? Við skorum á verðandi forseta og Alþingi að beita sér fyrir breyt- ingum á kosningalögunum. Fyrr verða forsetakosningar ekki réttlát- ar og lýðræðislegar og aðeins þá geta frambjóðendur tapað og sigrað með reisn! ÁSGEIRJÓNSSON, HRAFNHILDUR ÓLAFSDÓTTIR, Hringbraut 136h, Keflavík. Athugasemd vegna greinar Jóns Steinars Gunnlaugssonar í Morgunblaðinu 15. júní sl. fjall- ar Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., um það þegar Ólafur Ragnar Grimsson staðfesti framburð sinn fyrir dómi 20. maí 1989. Af gefnu tilefni er rétt að fram komi að vegna forfalla var ég ekki viðstaddur þing- hald þetta, og er þess getið í þing- bókinni. EGGERT ÓSKARSSON, héraðsdómari Með morgunkaffinu Ást er ... aðgeta ekkihugsað um annað en hann. ÞAÐ eru þrjú ár síðan ég pantaði hann. HOGNIHREKKVISI , 771 hariting/u me& brubkaupsæfmxoi" Farsi *& t 3-22 01995 Farcus Cartoorw/cist. by Unhwsal Press Syndkate UAIS&LASS/cöOCTUAIi-T l/andamáCiirzr, Idtkn'ir, ob enginn, htu&tarno/ckru sinni- d* mip/ " VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: lauga@mbl.is Ábending til Elínar Ólafsdóttur GOTT ER til þess að vita að fólk drífur sig í leikhús til þess að sjá verk Nönnu Ólafsdóttur og Sigurjóns Jóhannssonar eftir lestur á umfjöllun minni um sýn- inguna Féhirsla _ vors herra. En að Elín Ólafs- dóttir hafi orðið fyrir von- brigðum af því hún bjóst við að sjá ballett (væntan- lega hefðbundinn) er ekki skrifum mínum um að kenna. Ég bið Elínu því um að lesa umfjöllunina aftur og betur. Þar tala ég um dansverk og mynd- verk, hvergi ballett. ís- lenski dansflokkurinn hefur í gegnum þann tíma sem hann hefur verið starfræktur bæði dansað hefðbundin ballettverk, rokk, nútímadans og það sem ég kýs að kalla dansverk"." Ásdis Magnúsdóttir. Að hringja til ítalíu GUNNLAUG Ólafsdóttir hafði samband við Vel- vakanda með fyrirspurn um af hverju Póstur og sími lækkar gjald til Kanada en ekki Italíu, þar sem þessi tvð lönd eru í sama gjaldflokki. Gunnlaug á dóttur sem býr á ítalíu og að undan- förnu hefur hún hringt í hana eftir kl. 19 á kvöldin í þeirri trú að það sé ódýr- ara en komist að raun um að svo er ekki. Þakkar góða grein SÓLVEIG Eiríksdóttir, Furugerði 1, hafði sam- band við Velvakanda til að koma á framfæri þakk- læti til Ólöfu Stefaníu Eyjólfsdóttur, er skrifaði bréf til blaðsins föstudag- inn 14. júní sl. er nefnd- ist: Af því læra börnin ylhýra málið". Sólveigu fannst greinin afskaplega góð og orð tíma töluð, því notkun útlendra orða hjá börnum, fullorðnum og fjölmiðlum er orðin ískyggileg og til skammar og eldra fólki til ergelsis. Tekið á einelti NEMENDUR í ungl- ingadeild í Hólabrekku- skóla létu kennara sinn vita af einelti innan bekkj- arins. Kennarinn vann mjög faglega og af skipu- lagi og festu í málinu. Hann ræddi við sam- starfsfólk, foreldra, eins- lega við nemendur og síð- an við allan bekkinn. Þetta var einelti á byrjun- arstigi sem hvorki kenn- arar né foreldrar höfðu hugmynd um. Áræði nemenda að segja frá varð til þess að það var tekið á málinu og í þessu tilfelli farsællega til lykta leitt. Einelti er því miður til staðar í víða, en það getur enginn tekið á máli sem hann veit ekki um." Móðir barns sem varð fyrir einelti. Tapao/fundio Úr fannst GULLÚR fannst í Kringl- unni, í matvöruverslun Hagkaupa, á laugardag- inn 1. júní. Úrið er kven- mannsúr. Uppl. í síma 587-3887. Grænn pels tapaðist FLÖSKUGRÆNN gervi- pels tapaðist á Gauk á Stöng fyrir nokkrum mánuðum. Hans er sárt saknað. Ef einhver veit eitthvað um afdrif pelsins vinsamlegast hafið sam- band í síma 565-0060. Gæludyr Kisi er týndur GULUR og hvítur köttur fór að heiman frá sér í vesturbænum 13. júní sl. Hann er eyrnamerktur númerinu R-5280. Hann sást síðast við Kvisthaga. Allir sem geta veitt upp- lýsingar um hann vinsam- legast hafi samband í síma 552-4621. Víkverji skrifar... STUNDUM getur Víkverji ekki annað en hlegið, þegar hann les raðauglýsingar í Morgunblaðinu, því meira að segja þar getur leynst eitthvað spaugilegt. Þannig var t.d. með raðauglýsingu sem fyrir skömmu birtist undir fyrirsögninni Au pair - USA". Auglýsingin var þannig orðuð: Vantar au pair" strax til að sjá um tvö lítil börn. Þarf að vera reyklaus og hafa alþjóð- legt ökuskírteini. Fær eigið her- bergi." Sér er nú hver lúxusinn, sem á að bjóða vinnukonunni upp á - hún á að fá eigið herbergi! Vafalaust hafa umsóknir skipt tugum, þegar svona kostaboð var annars vegar. XXX NÚ FER í hönd sá tími, sem er hvað erfiðastur fyrir þá sem þjást af frjókornaofnæmi. I síðustu viku birtist frétt um það hér í Morgunblaðinu, að hin góða tíð gerði það að verkum, að frjó- korn í lofti hafa aldrei mælst fleiri í maímánuði en í ár. Það getur hjálpað þeim sem þjást af slíku of- næmi, að fá daglega að fylgjast með mælingum, því þannig geta þeir reynt að haga útivist sinni í samræmi við ástandið hverju sinni. XXX MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í síðustu viku til Margrétar Hallsdóttur, jarðfræðings hjá Raun- vísindastofnun Háskólans, en hún annast frjókornamælingarnar. Var þess óskað við Margréti að upplýs- ingar um fjölda frjókorna yrðu veittar daglega, svo hægt væri að veita þeim sem þjást af ofnæminu daglegar upplýsingar. Margrét sagði að fjármunir þeir sem ætlaðir væru til mælinganna væru af svo skornum skammti, að ekki væri unnt að bjóða tíðari tæmingu úr frjókornagildrunni en vikulega. Þetta þótti Víkverja heldur slappt, ekki.hjá Margréti, heldur hjá þeirri stofnun sem ákveðið hefur að bjóða þjónustu sem þessa. XXX INÝJASTA fréttabréfi Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, Margt smátt, er svohljóðandi klausa: Til eru 6.691 tungumál í heiminum og eru þau flest í Asíu og Afríku eða 2.004 í fyrrnefndu álfunni en 2.143 í þeirri síðarnefndu. Til samanburð- ar má nefna að í Evrópu eru tungu- málin alls 214. Biblían eða hlutar hennar eru nú til á um þriðjungi þeirra tungumála sem töluð eru í heiminum eða alls 2.123 málum, segir í upplýsingum frá Sameinuðu biblíufélögunum. Öll Biblían er til á 349 tungumálum og Nýja testa- mentið er til á 841 tungumáli." Fróðlegar upplýsingar að tarna!