Morgunblaðið - 06.11.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.11.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. NÓVEMBER 1996 C 3 FRÉTTIR Gislason Fish Selling Ltd. selur bæði rækju og jarðýtur BALDVIN Gíslason í Gislason Fish Selling Ltd. flutti til Hull fyrir rúmum 10 árum. Hann býr þar ásamt eiginkonu sinni, Helenu Sigtryggsdóttur, og 12 ára gömlum syni, Hlyni Fannari. Tvö uppkomin börn þeirra hjóna búa á íslandi. Baldvin Gíslason hefur verið áratug í Hull „Ég vann í sjávarútvegsráðu- neytinu þegar fyrirtækið J. Marr, hér í Hull, auglýsti snemma árs 1986 í Morgunblaðinu eftir manni. Það sóttu 50-60 manns um og ég var ráðinn," segir Baldvin um til- drög þess að hann lenti á Humber- svæðinu. Verkefni hans hjá J. Marr var að annast umsjón og afgreiðslu íslenskra fiskiskipa pg innflutning á ísuðum fiski frá Is- landi. Ari síðar var stofnað sam- eignarfélagið Gislason & Marr Ltd. um íslandsfiskinn með jafnri hlut- deild Baldvins og J. Marr. Þegar framboð af ísfiski minnkaði seldi hann J. Marr sinn hlut og hefur starfað sjálfstætt um þriggja ára skeið. „Ég fæst aðallega við _að selja rækju og frosinn fisk frá íslandi,“ segir Baldvin. „Einnig hef ég selt rússafisk til Spánar og Portúgal. Ég hef iíka selt þangað á hveiju ári nokkra gáma af saltfiski sem ég hef keypt hér á svæðinu." Baldvin hefur_ selt rækju fyrir aðila á borð við íslenskt marfang, Bakka hf. í Hnífsdal, Hafex og fleiri. Hann segir að rækjumarkað- urinn hafi verið erfiður um skeið og verð lækkað vikulega. „Ég stefni að því að gera betur í sölu á íslenskri rækju og frosnum fiski,“ segir Baldvin. „Maður er orðinn það sjóaður í þessu og ég hef góð sambönd. Maður getur selt þeim sem maður þekkir og veit að eru öruggir kaupendur." Þrátt fyrir áföll í rækjunni hefur reksturinn gengið vel - eiginlega of vel. Umfangið varð meira en Baldvin hafði ætlað svo hann stofnaði hiutafélag um reksturinn. Undanfarin þijú ár hefur ársveltan hjá honum verið frá 1,2 milljónum punda (um 130 millj. kr.) upp í 1,7 milljónir punda (184 millj. kr.). Mörg ár í þróunarhjálp Baldvin einskorðar sig ekki við sjávarafla heldur hefur hann einn- ig útvegað tækjabúnað af ýmsu tagi, til dæmis frystivélar og þungavinnuvélar til malamnnslu, og selt til íslands og Afríku. Hann hefur keypt þungavinnuvélarnar af breska varnarmálaráðuneytinu Morgunblaðið/Guðni BALDVIN Gíslason hefur búið á ellefta ár í Hull. Hann hefur bæði selt rækju, fisk, frystivélar og jarðýtur. og segir þær oft lítið sem ekkert notaðar. Þá hefur hann selt marga vörubíla og jeppa til Kenýa. En hvers vegna selur hann til Afríku? „Ég var fyrsti fasti starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar ís- lands og þekki vel til í Afríku,“ segir Baldvin. Hann var sendur til Grænhöfðaeyja 1977 og lagði grundvöll að verkefni sem íslend- ingar unnu þar. Þá stjórnaði hann fiskveiðiverkefni og var skipstjóri í Kenýa 1978-82, eins kenndi hann Kenýamönnum siglingafræði. Einnig var hann tvö ár skipstjóri á rannsóknaskipi í Jemen á vegum FAO. Undanfarin ár hefur Baldvin veitt ráðgjöf varðandi sókn á fjar- læg mið. Hann fór til Viktoríuvatns á vegum indversks fyrirtækis og í vetur til Kólumbíu að kanna mögu- leika á veiðum fyrir íslenska út- gerð. Næst heldur hann til Eritreu. Hann var á vegum FAO í Eritreu þegar mestu óeirðirnar gengu þar yfir. Baldvin telur Eritreu áhuga- vert svæði fyrir smærri og meðal- stóra báta frá íslandi. Hann segir að þar séu góð rækjumið og fiskim- ið ofantil í köntunum í Rauðahafi vestanverðu. Sardínan sést ekki við Namibíu • HELDUR illa áraði fyrir sjávarútvegfinum í Namibíu á fyrra misseri þessa árs. Þá var til dæmis tap á fyrirtæk- inu Namibian Sea Products og einnig og mikiu meira á samstarfsfyrirtækinu Namib- ian fishing Industries. Á sama tíma í fyrra var nokkur hagnaðar á báðum fyrirtækj- unum. Meginástæðan fyrir þess- um umskiptum er, að sardín- an hefur ekki látið sjá sig við Namibíu að þessu sinni og hafði engri verið landað 31. ágúst þegar vertíðinni iauk. Veiðar á öðrum bræðsiufiski eru þó svipaðar og i fyrra. Fyrirtækið Seaflower Whitefish, sem er að hiuta til í eigu íslenzkra sjávarafurða, byggir afkomu sína á veiðum á lýsingi og öðrum bolfiski. Því hefur sardínuhvarfið ekki sömu áhrif á rekstur þess. Sama sagan í Angóla Við Angóla er iíka afla- brestur og fiskifræðingar kunna ekki skýringar á því hvers vegna ekkert er um sardinu og Iítið um annan fisk. Verulegir möguleikar í útgerð á fjarlægum slóðum um víða veröld Afla þarf víðtækari þekkingar og reynslu ÍSLENDINGAR þurfa að afla sér mun víðtækari reynslu og þekk- ingar til að geta stundað útgerð og veiðar á fjarlægum miðum. Er þar bæði átt við beinar úthafsveið- ar og veiðar í lögsögu annarra ríkja í fjarlægum heimsálfum. ís- lenskir skipstjórar þurfa að öðlast meiri reynslu meðal annars í því að starfa með framandi þjóðum í framandi umhverfi og útgerðar- menn þurfa að setja sér langtíma- markmið og stefna að þátttöku í fyrirtækjum í þessum fjarlægu löndum til þess að fá nýja mögu- leika fyrir skip sín. Þetta segja þeir Jens Valdimarsson hjá ísbú og Sigurbjörn Svavarsson hjá Granda í samtali við Morgunblaðið þegar þeir eru spurðir um mögu- eika íslendinga á fiskveiðum á fjarlægum miðum. Umfjöllunin og upplýsingarnar á kortinu byggjast á samtölum við þá. Fram kom á ráðstefnu um út- hafsveiðar Islendinga sem nýlega var haldin að þær skila kringum 10 milljörðum í þjóðarbúið á þessu ári. Veiðarnar standa misjafnlega lengi eftir því hvert svæðið er og hvaða tegund er um að ræða og eru allt frá 20 til 60 skip að veið- um í senn. Sé úthald þeirra reikn- að saman skapa veiðarnar nærri 30 togurum verkefni árið um kring. Utlit er fyrir nokkurn sam- drátt á næsta ári og er það talið samsvara úthaldi 40 til 50 togara í tvo mánuði eða 8 til 10 togara í heilt ár. Gert er ráð fyrir heldur minni tekjum af veiðum á íjarlæg- um miðum á næsta ári eða um 8,3 milljörðum króna. En hvaða möguleika hafa íslenskir útgerðar- menn til að mæta slíkum sain- drætti? Sameign í stað kvóta Þar sem líklegt má telja að sam- ið verði um veiðar í Barentshafi og komið verði á stjórn á veiðum á Flæmska hattinum fækkar nokkuð möguleikum íslenskra skipa til raunverulegra úthafs- veiða. í framhaldi af því horfa útgerðarmenn til veiða í lögsögu annarra ríkja. Fram til þessa hefur verið unnt að semja um kvóta við mörg strandríki og þannig hafa t.d. Rússar og Spánveijar fengið kvóta hjá ríkjum í Afríku og Suð- ur-Ameríku. Þessir möguleikar eru nú að þrengjast því ríkin vilja ekki lengur semja um kvóta heldur fá beina þátttöku í útgerð og jafn- vel fiskvinnslu. Þar liggja mögu- leikar íslendinga og þegar hafa verið numin lönd á þennan hátt í Chile, á Falklandseyjum, Indlandi, Namibíu, Mexíkó og Kamtsjatka. Getur verið um að ræða að kaupa hlut í fyrirtækjum sem þegar eru starfandi, stofna ný með sameigin- legu eignarhaldi eða jafnvel að taka þátt í eins konar þróunar- verkefni sem styrkt er af þriðja aðila, t.d. FAO. verður á svæðisbundinni fiskveiði- stjórn, skipaðar sérstakar nefndir til að koma stjórn á veiðar á ákveðnum svæðum. Ljóst er að íslendingar geta tekið þátt í störf- um slíkra nefnda ef þeir hafa þeg- ar aflað sér reynslu og þekkingar á viðkomandi svæði á sama hátt og Japanir hafa aflað sér reynslu af túnfiskveiðum og Færeyingar af veiðum á búra, m.a. suður und- ir Azoreyjar. Ný reynsla íslend- inga er aðallega af Barentshafinu, Flæmska hattinum og Reykjanes- hrygg og telja þeir útgerðarmenn sem hafa áhuga á þessum fjarlægu veiðum að afla verði reynslu sunn- ar úr Atlantshafi. Hafa t.d. Rússar einnig mikla reynslu af þessum svæðum og hafa stundað það rannsóknir og spurning hvort ná mætti samvinnu við þá. Aðrar tegundir - ný mið Möguleikarnir felast m.a. í því að sækja í aðrar tegundir en nú þegar eru veiddar við þessi lönd. Getur(Sæði þurft að sækja á ný mið vegna ofveiði eða vegna þess að menn hafa ekki haft tæknilega möguleika eða áhuga á að sækja lengra út og er oft talað um 50 m dýptarmörk sem viðmiðun í þessu sambandi. Þá getur nýr hugsunar- háttur sem kemur með nýjum skipstjórum opnað nýja mögu- leika, t.d. þar sem íbúar hafa van- ist því að veiða aðeins á daginn og finnst fráleitt að hægt sé að stunda veiðar á vöktum allan sól- arhringinn. En það getur líka ver- ið snúið að benda á þessa mögu- leika og þess vegna rekast menn á ýmsar hindranir þegar hefjast skal handa í fjarlægum löndum og framandi í allt öðru umhverfi og hugsunarhætti en menn eru vanir hér norður frá. Lykilatriði í þessum efnum er að undirbúningur. Kanna þarf hvaða möguleikar eru fyrir hendi, hvaða tegundir, hvers konar fyrir- komulag á útgerð, hvaða sam- starfsaðilar gætu komið til og hversu mikil fjárfesting. Einnig þarf að kanna hvaða breytingar þarf hugsanlega að gera á skipun- um. Ljóst er til dæmis að eigi að veiða á svæðum nálægt miðbaug þar sem hiti er mikill verður að útbúa bæði íbúðir, vélar og fiski- geymslur með sérstökum kælibún- aði. Þar sem samvinna um útgerð og/eð_a fiskvinnslu hefur tekist með íslendingum og fyrirtækjum hjá öðrum þjóðum hafa annars konar viðskipti siglt í kjölfarið. Má þar nefna sala á veiðarfærum, fiskvinnslutækjum og öðrum bún- aði. Þá er einnig ljóst að víða komið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.