Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 24.11.1996, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Síðasti bærinn í dalnum * Unaðsdalur, yst á Snæfjallaströnd við Isa- fjarðardjúp, er nú farinn í eyði og þar með „fegursta bæjamafnið sem íslandssagan á“ HEYVINNA í Unaðsdal snemma á sjötta áratugnum. Eftir Rúnar Helga Vignisson HVAR er nú verndar- hönd Rindils og huldukonunnar? Síð- asti bærinn í dalnum, æskuslóðir dvergsins sem lék Rindil í samnefndri mynd, virðist vera farinn í eyði. A þá að falla frá fegursta bæjarnafnið sem Islandssagan á? eins og Guðmund- ur Ingi Kristjánsson kvað í ljóðinu „Snæfjallaströnd"? Svarið endurómar um þennan harðbýla sveitasal. Nú er stórbýlið Unaðsdalur ekki annað en sumar- bústaður síðustu ábúendum sínum, afdrep og tilbreyting frá lífi í mild- ari heimkynnum syðra. Ogþað sem meira er, allur hreppurinn er nán- ast kominn í eyði. Þar Sem áður var um 400 manna byggð standa nú aðeins minjar um mannlíf, sums staðar reisuleg mannvirki sem bera vott um stórhug og dugnað horf- innar tíðar. Hvernig er þér innanbijósts hér í tómu fjósinu? spyr ég Kjartan Helgason, síðasta bóndann. Hér þar sem þijátíu kýr hafa baulað og maulað áratugum saman, þar sem Kjartan og fjölskylda hefur sveist blóðinu, fyrst við að reisa þetta mannvirki, síðan við mjaltir og gjöf alla daga, ár og síð. Hvern- ig tilfinning er það að sjá básana auða, mjaltavélamar famar, kýrn- ar þagnaðar? En það er ekki tregi og eftirsjá sem ráða för eins og rómantíkerinn í greinarhöfundi bjóst við. Það er öðm fremur léttir. Það er léttir manns sem gengur uppréttur, þrátt fyrir allt, frá ára- tuga glímu við náttúruöflin í harð- býlustu sveit á Islandi. Manns sem hefur orðið að strengja kaðal milli bæjarhúsa og fjóss svo að hann fyki ekki út í buskann á leið til gegninga. Manns sem hefur barist á dráttarvél mót hríðarbyljum til að koma lífsviðurværinu á Djúp- bátinn og átt hundi líf-að launa. Ekki furða þótt þeir á bátnum hefðu stundum þurft að bíða eftir Kjartani í Dal. Osjaldan var hann nokkra klukkutíma að beijast þessa fjóra kílómetra á bátinn. Eitt sinn þurfti hann hvað eftir annað að taka farminn af og bera hann yfir snjóskaflana til að létta kerruna. Nú kemur Djúpbáturinn með ferðalanga. Það eru fyrri ábúend- ur, afkomendur þeirra og forvitnir gestir í leit að sveitasælu. Þeir kjaftfylla litlu kirkjuna á eyrinni niðrundan bænum, nýuppgerða sveitakirkjuna þar sem goðsögnin séra Baldur Vilhelmsson í Vatns- firði predikar eins og honum einum er lagið. Hér hafa íbúar hreppsins, sumir komnir alla leið utan af strönd eða innan úr Kaldalóni, oft- lega hlýtt á fagnaðarerindið, en stundum hin seinni ár var messan reyndar flutt heim í stofuna hjá frú Stefaníu í Unaðsdal. Nú talar séra Baldur um stíg- vél. Nei, ekki hlæja, stígvél eru tákn tímanna tvennra í þessum dal sem öðrum, þar sem gengið var blautum fótum til verka á sjó og landi. Þangað til stígvélin komu. „Á þetta minnist enginn," segir séra Baldur og heldur athygli kirkjugesta frá orði til orðs. Um leið fer að rigna og greinarhöfund- ur sér konu sína og börn vaða kafgresið ofan frá bænum — á stígvélunum sem hann sótti fyrir þau áður en hann hélt til kirkju. Kjarkmaður Kolbeinn í Dal Hann er ekki viss, en telur sig hafa verið fyrsta bamið sem fædd- ist foreldrum sínum, Hejga Guð- mundssyni og Guðrúnu Ólafsdótt- ur, í hinum nýju heimkynnum með fagra nafninu. Það var í gamla bænum, sem nú er tóftir einar. Þar bjó áður frændi Kjartans, hinn nafntogaði Kolbeinn í Dal. Frægð- ina hlaut hann fyrir að vera djarf- tækur til kvenna. Sagan segir að hann hafi einu sinni átt þijár kon- ur óléttar eftir sig á sama tíma, eiginkonuna og tvær vinnukonur. Eitt sinn var hann kallaður fyrir sýslumann út af þessum umsvifum sínum, en sór af sér kvennafarið. Þá varð sýslumanni að orði: Kjark- maður Kolbeinn í Dal. Þetta varð síðan fleygt þar í sveit og víðar. Við göngum niður að leiði Kol- beins og konu hans. Kjartan spaugar með það að hann hafi allt- af verið stoltur af skyldleikanum við þann mikla kvennamann. Og getur sér þess til að Kolbeinn hafi losað sig úr klípunni með því að láta vinnumenn sína gangast við lausaleikskrógunum. Helgi í Dal hélt uppi merki for- vera síns að því leyti að hann átti með Guðrúnu konu sinni stóran barnahóp, sextán stykki. Næstelst- ur í þeim hóp var Guðbjörn, sem lék Rindil í kvikmyndinni áður- nefndu. Hann fékk beinkröm í æsku og varð dvergur. Nú er Guð- björn allur, dalurinn kominn í eyði og tröllin einráð. Kjartan og Stefa létu ekki sitt eftir liggja, eignuðust fjögur börn og hafa þau öll hleypt heimdragan- um, tvö þeirra alla leið til Noregs. Það eru engir heimdragar í tún- inu lengur. Engar kátar vinnukon- ur að fleka, engin hundgá, ekkert hanagal, ekkert mal í dráttarvél. En fuglasöngur undir, yfir og allt um kring. Iðandi mannlíf Hver getur ímyndað sér iðandi mannlíf í þessari sveit? Ekki roskin bændahjón á stangli, heldur fríðan hóp sprækra ungmenna í þéttbýlfi sveit, að ógleymdum vinnuhjúun- um, ekki aðeins í þessum dal, held- ur út eftir allri Snæfjallaströnd og inn í Kaldalón? Greinarhöfundur man þá tíð, Á BRÚÐKAUPSDEGI Kjartans og Stefaníu, 21. júlí 1951. Þau halda þarna á frumburðinum í fanginu, Elínu. SYSTKININ sextán úr Unaðsdal samankomin ásamt móður sinni við jarðarför heimilisföðurins haustið 1945. Aftari röð frá vinstri: Sigurborg, Haukur, Guðbjörg, Kjartan, Matthías, Steingrímur, Sigurlína, Jón, Hannibal. Fremri röð: Lára, Auðunn, Ólafur, Guð- ríður, móðirin Guðrún Ólafsdóttir, Guðmundur, Guðbjörn, Lilja. Öll eru systkinin á lífi nema Guðbjörn, en Guðrún lést árið 1987, á 91. aldursári. MESSA í Unaðsdalskirkju sumarið 1996. Eitt síðasta verk hrepps- nefndarinnar var að láta gera upp kirkjuna. fyrir þijátíu árum, að búið var í Bæjum, Lyngholti, Unaðsdal og á Tyrðilmýri, svo ekki sé talað um perlu Djúpsins, eins og séra Baldur kallar Æðey. En í ungdæmi Kjart- ans var öllu fjölmennara, þá iðaði sveitin öll af snarborulegum krökk- um frá Kaldalóni og langt út eftir Snæfjallaströnd. Kjartan gefur mér yfirlit yfir mannvalið og við stiklum á staksteinum: „Á Lónseyri bjó Jens Guðmunds- son og Guðmunda Helgadóttir og eignuðust sex börn... í Bæjum var fjórbýli. í Hærri bænum voru hjónin María Ólafsdóttir og Sigurð- ur Ólafsson, þau áttu saman 14 böm og að auki átti Sigurður einn son .. . í Lyngholti bjuggu hjónin Ingvar Ásgeirsson og Salbjörg Jó- hannsdóttir, ljósmóðir flestra barna í hreppnum eftir 1930, þar á meðal okkar barna ... þegar ég man eftir mér er þríbýli á Tyrð- ilmýri. Þar er fyrstan að telja Elías Borgarsson og Elísabetu Hregg- viðsdóttur, hálfsystur Jens frá Lónseyri, sem búa á stærsta hlut- anum ... Hlíðarhús var næsta býli í byggð fyrir utan Mýri. Þar var stór fjölskylda, þrettán manns eða svo... Á Skarði bjó Jakob sonur Kolbeins og Símonía kona hans, þau eignuðust sjö börn ... Svo er Sandeyri, þar var ein dóttir Kolbeins, Elísabet, gift Tómasi Sigurðssyni og hann var lengi vel hreppstjóri, þau eiga fjögur börn og var nú ekki talið mikið í þá daga ... Svo eru það Snæfjöll, þar býr Rósinkar sonur Kolbeins og þau eiga mörg börn ... Þá er líka búið á Gullhúsá og þar er Guð- mundur Maríasson ... Þá er óget- ið perlu Djúpsins, Æðeyjar, þar voru stór býli, og oft 40 manns í eynni.“ Og á hveiju þreifst allt þetta fólk? Ekki á landbúnaði öðru frem- ur, heldur á útgerð. Það var út- ræði frá hveijum bæ, enda gjöful mið skammt undan landi. „Það var áður en þeir eyðilögðu miðin með snurvoðinni," segir Kjartan. í ungdæmi Kjartans var ung- mennafélagið ísafold stofnað og gekk margt af unga fólkinu á ytri ströndinni í það. Var þá komið á hestum á sumrin og farið fram á Dalsdal, en þar var byggð sund- laug við volgru á fjórða áratugn- um. „Pabbi gefur ungmennafélag- inu landspildu til þess að koma upp aðstöðu og byggja sundlaug í því augnamiði að kenna sund. Þá var að vakna áhugi fyrir því að þeir sem færu á sjó kynnu að synda. Það voru fengnir sundkennarar og þeir kenndu þama í nokkur ár.“ Unga fólkið miklaði ekki fyrir sér fjarlægðir og stöku sinnum var farið fótgangandi yfír heiði til að mæta á dansleik norður í Grunna- vík eða á Flæðareyri. Það var nokkurra tíma gangur hvora leið. Stundum var þó farið á milli á vélbátum eftir að þeir komu til sögunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.