Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.12.1996, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Aðventu- og minningartónleikar KÓR Öldutúnsskóla heldur að- ventu- og minningartónleika í Víðistaðakirkju þriðjudaginn 10. desember kl. 20. Þar kemur kór- inn fram í þremur hópum með á annað hundrað kórfélögum auk gesta. Efnisskráin er fjölbreytt en þar má finna fjölda laga, inn- lendra og erlendra. Gestir kórsins á þessum tón- leikum eru söngkonurnar Hanna Björk Guðjónsdóttir og Margrét Pálmadóttir en þær eru báðar fyrrverandi kórfélagar. Tónleikarnir eru helgaðir minningu Berglindar Bjarna- dóttur, en þann 10. desember eru liðin rétt 10 ár frá andláti henn- ar. Berglind var ein af stofnend- um kórs Öldutúnsskóla 1965 og fyrsti einsöngvari hans. Hún lét mjög að sér kveða á fyrstu mót- unarárum kórsins og starfaði þar af miklum dugnaði allt til ársins 1974. Stofnandi og stjórnandi Kórs Öldutúnsskóla er Egill Friðleifs- son. KÓR Öldutúnsskóla heldur aðventu- og minningartónleika í Víðistaðakirkju á þriðjudag. Gjafir og góð kaup Morgunblaðið/Golli VALGERÐUR Guðlaugsdóttir. Rauða serían. VII. Leikrit byggt á ljóðum Tómasar LEIKRIT Karls Ágústs Úlfssonar, Fagra veröld, verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins 11. janúar næstkomandi, á 100 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Fagra veröld er leikrit byggt á ljóðum Tómasar Guðmundssonar með tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Um Tómas segir í kynningu: „Orð- snilld hans, marg- þætt skírskotun sem ljóð hans höfðu og makalaus frumleiki í meðferð málsins hitti ís- lendinga í hjartastað. Og á meðan önnur skáld og talsverður hluti þjóðarinnar lýstu af bölmóði og vandlætingu siðspillingunni í höfuð- borg landsins og hörmuðu fólks- flóttann úr blómlegum og óspilltum sveitunum, gerði Tómas hina und- arlegu „stórborg" Reykjavík spenn- andi, rómantíska og fjörmikla, gerði hana að borg æsku og_ ásta“. Meðal leikara eru Ásta Arnar- dóttir, Árni Pétur Guðjónsson, Bjöm Ingi Hilmarsson, Ellert A. Ingimundarson, Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir^ Helga Braga Jónsdótt- ir, Hinrik Olafsson, Jóhanna Jónas, Jón Hjartarson, Kjartan Guðjóns- son, Margrét Helga Jóhannsdóttir, María Ellingsen, Pétur Einarsson, Sóley Elíasdóttir, Theódór Júlíusson og Þórhallur Gunnarsson. Söngstjóri er Jóhanna V. Þór- hallsdóttir söngkona. Lýsing er í höndum Lárusar Bjömssonar. Leik- mynd og búninga sér Sigutjón Jó- hannsson um og leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. MYNPLIST Kjarvalsstaðir MÁLVERK O.FL. Ný aðföng Listasafns Reykjavíkur 1991-96. Opið kl. 10-18 alla daga til 22. desember. Aðgangur 300 kr; sýningarskrá 200 kr. ÞAÐ er bundið í lög um Listasafn íslands að eitt meginhlutverk þess sé að eignast og varðveita myndlist með skipulegum hætti, og Listasafn Reykjavíkur sinnir sömu skyldum í samræmi við starfsreglur, sem borg- aryfirvöld setja því. Vegna þessa er athyglisvert að fá með nokkurra ára bili tækifæri til að sjá hvernig söfnin gegna þessum skyldum sínum, þ.e. hvað þau hafa eignast af listaverkum og með hvaða hætti þau verk gefa nokkra mynd af þróun myndlistar- innar. Sýningin á nýjum listaverkum sem Listasafn Reykjavíkur hefur eignast á síðustu fimm árum fyllir allt sýn- ingarrými Kjarvalsstaða, og er þá aðeins kominn lítill hluti þess sem safninu hefur áskotnast á þessu tímabili. Samkvæmt orðum Guðrún- ar Jónsdóttur formanns menningar- málanefndar Reykjavíkurborgar í formála aðfangaskrár hefur safnið vaxið um tæplega tvö þúsund lista- verk á þessu tímabili, og munar þar mest um stórmannlega gjöf Guðrún- ar Nielsen á rúmlega níu hundruð teikningum eftir Alfreð Flóka. í skránni er einnig ánægjulegt að sjá að listaverkaeign safnsins vex ekki aðeins fyrir innkaup, heldur ekki síð- ur fyrir gjafir ýmissa aðila, bæði innlendra og erlendra, og er listafólk- ið sjálft þar framarlega í flokki. Er ánægjulegt að sjá með þessum hætti þá velvild, sem safnið nýtur í raun hjá breiðum hópi listunnenda. Fyrir tveimur árum urði skipti á yfirstjóm Reykjavíkurborgar og þar með menningarmálanefnd. Núver- andi meirihluti lýsti m.a. í sínum kosningaundirbúningi því vafasama markmiði að hlutur kvenna þyrfti að aukast í innkaupum listaverka. Af þeim listum yfír aðföng sem fylgir sýningunni nú verður þó ekki séð að hér hafi orðið afgerandi breyting, og er það vel. Má af þessu helst ráða tvennt; að hlutur listakvenna hafi verið og sé enn góður hvað varðar innkaup listaverka, og að fram- kvæmdin sé viðurkenning á að í raun sé rangt að líta á þennan málaflokk út frá þröngum kynjahlutföllum - gæði listarinnar hljóti að ráða. Sýningunni má í grófum dráttum skipta í þijá hluta. I vestursal og á vesturgangi em einkum verk sem gefa nokkra yfirsýn yfir það sem hefur verið að gerjast í íslenskri myndlist á síðustu árum, í miðrými eru gjafaverk eftir erlenda listamenn sem og nokkur verk Stefáns Jónsson- ar (Stórvals), og í austursal eru verk sem fylla enn betur en áður inn í þá mynd, sem safnið í heild gefur af ýmsum tímabilum í sögu myndlist- ar á Islandi. Þessi skipting tekst ágætlega svo langt sem hún nær, enda getur sýn- ingin aðeins gefið örlitla mynd af þeim mikla fjölda verka, sem safnið hefur eignast. Flestir munu eflaust dveljast í vestursalnum, þar sem er að finna mörg skemmtileg listaverk yngri listamanna, en vert er að benda á að í austursal eru einnig ýmsir gullmolar, sem eflaust eiga eftir að njóta sín enn betur í samhengi sér- tækari sýninga. Hér er ekki ástæða til að ræða einstök verk eða listamenn, enda eru verkin vel á annað hundrað og lista- fólkið skiptir tugum. Hér er mikil- vægast að nefna að nær allt sem hér getur að líta virðist falla vel að heild- inni; verkin eiga erindi í sínu sam- hengi og eru fullgildur hluti af list- sköpun sinnar samtíðar. Allt listrænt mat umfram það hlýtur að bíða sög- unnar. Samhliða sýningunni fer fram kynning á því merka starfi sem er unnið í safnakennslu undir hand- leiðslu starfsfólks safnsins. Safna- kennslan hefur nokkur undanfarin ár án efa skilað meiru en flest annað í auknum myndlistaráhuga og ánægju skólanemenda sem og ann- arra, sem hafa notið leiðsagnar safnakennara á listsýningum á hverj- um tíma. Er rétt að hvetja fólk til að kynna sér þessa þjónustu og nýta hana eftir föngum til að njóta sem best þeirra sýninga, sem þannig eru kynntar. Eiríkur Þorláksson Tómas Guðmundsson Fjögur hundruð ára veraldlegir söngvar Musica Antiqua eru fluttir á upp* runaleg hljóð- færi. Söngvarar eru Marta Hall- dórsdóttir og Sverrir Guðjóns- / Vóndud (ónlist í ffutningi fagfóiks Bók um Vatnajökul ÚT ER komin bókin Vatnajökull - frost og funi eftir Ara Trausta Guðmundsson og Ragnar Th. Sigurðsson. I bókinni eru um 50 ljósmynd- ir og texti, sem skýra frá undra- heimi Vatnajökuls. Fjallað er um nýliðið gos og hlaupið í kjölfar þess, sagt frá öðrum eldstöðvum ogjarðhitasvæðum í jöklinum. Einnig er sagt frá framhlaupum skriðjökla í vestanverðum Vatna- jökli fyrir fáeinum árum og vísað til vegar í þjóðgarðinum í Skafta- felli. Höfundar gefa bókina út sjálf- ir í íslenzkri og enskri útgáfu. Bókin er 48 síður, 24x26 sm, og unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Verð: íslenzk útgáfa 1.900 krón- ur og ensk 2.075 krónur. Morgunblaðið/Ásdis HÖFUNDARNIR Ari Trausti Guðmundsson og Ragnar Th. Sig- urðsson við ísjaka, sem hlaupið bar úr Skeiðaráijökli og fluttur var til Reykjavíkur m.a. í tilefni af útkomu bókar þeirra. Nýtt tímarit • HA USTHEFTI Skírnis, 170. árgangs, er að þessu sinni með rómantísku ívafi. Þórir Óskarsson skrifar grein um hugtakið rómantík í íslenskri bókmenntasögu 19. ald- ar, Sigríður Al- bertsdóttir, fjallar um ásjónur ástar- innar í nýróman- tískum ljóðum Davíð Stefánsson- ar og Klaus Böldl ræðir um róman- tíska túlku Þjóð- veija á íslenskum Eddum og áhrif hennar á Niflungahring Richards Wagners. Davíð E. Erlingsson á í heftinu grein um sannleikagerð frá- sagna í ljósi Göngu-Hrólfs sögu, Ármann Jakobsson sýnir fram á mikilvægi Hallberu í Urðarseli fyrir skilning á Sjálfstæðu fólki og Guð- rún Björk Guðsteinsdóttir fjallar um lífsskoðun og skáldskap vestur- íslenska skáldsins Stephans G. Step- hanssonar. Þá er birt þýðing Geirs Sigurðssonar á Sögu mannkyns eft- ir ítalska heimspekinginn Giacomo Leopardi. í Skírnismálum fjallar Jón Sig- urðsson um þróun háskólamála hér á landi og heimspekingarnir Krist- ján Kristjánsson og Mikael M. Karlsson skiptast á skoðunum um lauslæti. Þeir Eiríkur Guðmundsson og Lars Lönnroth skrifa greinar um bækur. Skáld Skírnis að þessu sinni eru Elísabet Kristín Jökulsdóttir og eru birt eftir hana þijú Ijóð. Mynd- listarmaður Skírnis er Magnús Páls- son. Ólafur Gíslason fjallar um verk eftir Magnús. Ritstjórar Skírnis eru Jón Karl Helgason og Róbert H. Haraldsson. Nýjar bækur • BRÚÐUHÚSIÐ er spennusaga eftir Evelyn Anthony. Þetta er önnur bók þessa breska metsöluhöf- undar sem Vaka-Helgafell gefur út en í fyrra kom út bókin Uppljóstrun. „í kynningu segir: „Rósa Bennet er einn efnilegasti starfsmaður bresku leyniþjónustunnar. Hún er að jafna sig eftir skilnað þegar henni er falið að gera venjubundna athug- un á einum af fyrrverandi njósnur- um hennar hátignar, Harry Oak- ham. Kalda stríðinu er lokið og Oakham farinn að reka hótel úti í sveit, Hótel Brúðuhúsið. Þar skráir Rósa sig inn sem gestur.“ Útgefandi er Vaka-Helgafell. Bókin er 288 bls. að lengd. Þorberg- ur Þórsson þýddi en kápan var hönn- uð hjá Vöku-Helgafelli. Bókin var prentuð í Portúgal. Leiðbeinandi verð 2.480 kr. • VÍSNA GAMAN og vinamál er eftir Hörð Zóphaníasson. Það er skátafélagið Hraunbúar, St. Ge- orgsgildin á íslandi og Bandalag íslenskra skáta sem standa að út- gáfunni, en Hörður hefur samið mikinn fjölda ljóða og söngtexta fyrir skátahreyfinguna. Bókin skiptist í þijá kafla sem nefnast: Úr ýmsum áttum, Pjölskyldan og Skátastarfið. í fyrsta kaflanum má finna ljóð af ýmsu tagi, tæki- færisljóð, ættjarð- arljóð, ljóð trúar- legs eðlis og af- mælisljóð. Annan kaflann hefur Hörður tileinkað fjölskyldu sinni. Þriðja kafiann tileinkar Hörður skátastarfinu. Flest þeirra ljóða eru samin við sönglög en einnig má finna bálbænir og tækifærisljóð. „Bókin er létt aflestrar þar sem fjölbreytileikinn er mikill, saman fer léttleikinn og erfiðu stundirnar, rétt eins og í lífinu sjálfu,“ segir í kynn- ingu. Útgefandi er Bandalag íslenskra skáta. Bókin geymir 223 Ijóð á 224 síðum. Myndskreytingar gerði Mar- ía Krista Hreiðarsdóttir. Hönnunar- húsið vann bókina ogPrentbær prentaði. Þórir Óskarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.