46 FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ +^ Dýraglens J& ER. KDNUN6UR pýj&mq M U$w '// /WG ÖSKRA i STURTA N&U& OfZ I f<UÓSBTr/T l Grettir T ^eíA/ÖKETriR,. BSERTIL60INM11 /4LDREI 6V6SZA VIRKl PÍTTOFAN í'UAUT Áttu blýant sem þú getur lánað Og kannski svolítið blað, og svo Magga! mér, Magga? strokleður og reglustiku og reikningsbók og... BREF TIL BLAÐSESfS Kringlan 1103 Reykjavík Sími 5691100 Símbréf 5691329 Netfang:lauga@mbl.is Er ekki sann- leikurinn sagna bestur? Frá Birgi Hólm Björgvinssyni: MÉR blöskraði þegar ég las viðtal við Binar Hermannsson, fram- kvæmdastjóra Sambands íslenskra kaupskipaútgerða, í Morgunblaðinu, fyrir fáum dögum. Þar fullyrðir Ein- ar að flest skipa Eimskipafélagsins séu með lokaða björgunarbáta, svo- kallaða frífallsbáta. Astæðuna segir Einar vera hversu nýleg flest skip félagsins séu. Þetta er rangt. Aðeins eitt skipanna er nýtt, það er Brúar- foss, og um borð í honum er lokað- ur björgunarbátur. í öðrum skipum félagsins, sem óll eru komin vel til ára sinna, eru slíkir bátar ekki. Því fer Einar, einhverar ástæðu vegna, vísvitandi með rangt mál, þegar hann segir annað. Einar hefur áður sagt margt til að reyna að fegra ásýnd hentifánaflotans, enda þiggur hann laun frá þeim sem gera út með þeim hætti. í sömu Morgunblaðsgrein segir Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, orðrétt: Við munum fara yfir það hvort þessir bátar eigi að vera á öllum skipum félagsins, en við höf- um hagað björgunarbúnaði og öðr- um búnaði í skipunum eins og við teljum_ best vera." Einnig er haft eftir Ólafi að lokaðir bátar séu í Arnarfellinu og systurskipi þess Heidi, sem hefur siglingar fyrir Samskip, í næsta mánuði. Um hvað er Ólafur að tala? Samskip á engin skip. Hann er að vitna tl skipa sem dönsk útgerð á og leigir Samskipum. Þessi danska útgerð hefur metnað til að hafa góðan björgunarbúnað í sínum skipum. Samskip á engan heiður skilið. Mér er til efs að Sam- skip hafi gert það skilyrði að lokað- ir björgunarbátar séu á þeim skipum sem þeir taka á leigu. Ég get ekki hugsað það til enda, hefði Dísarfell- ið verið komið í þjónustu Eimskips, eins og til stóð þegar slysið varð. Skipinu var ætlað að fara í Ameríku- siglingar og hefðu þessar hremm- ingar hent á þeirri siglingu, þar sem mun erfiðara hefði verið að bjarga mönnunum, er víst að verr hefði farið, en þó fór. Hentifánaskip I sumarbyrjun 1996 skaut upp þeim orðrómi að Eimskip væri að taka nýtt skip í sína þjónustu, það er Víkartind þar sem áhöfnin átti að vera skipuð erlendum láglauna- mönnum. A sama tíma var beðið eftir nýsmíðuðu skipi, Brúarfossi, meðan hann væri baðaður sól og athyglin beindist að honum og ís- lenskri áhöfn, læddist hitt skipið, það er Víkartindur, að næturþeli, enda undir hentifána. Við hjá Sjó- mannafélagi Reykjavíkur áttum erf- itt með að trúa þessu, þrátt fyrir að við séum ýmsu vanir í samskipt- um við útgerðirnar. Sjómannafélag Reykjavíkur og Verkamannafélagið Dagsbrún eru meðal_15 þúsund hluthafa í Eim- skip. Á aðalfundi félagsins bentum við á, með ályktun sem borin var upp á fundinum, að með því að manna skipin erlendum sjómönnum missum við dýrmæta þekkingu úr landi. Hvað kemur I staðinn? Jú, þekkingarleysi sem sannast hefur í sjóprófum vegna strands Víkar- tinds. Allar athafnir skipstjóra skipsins og útgerðar segja okkur að fyrst hafi verið hugsað um pen- inga, annað mætti afgangi, og þar á meðal mannslíf. íslenskir farmenn eru, eins og aðrir íslenskir launamenn, langt undir launum norrænna félaga sinna. Auk þess eru íslensk kaup- skip ekki mönnuð tveimur áhöfnum, eins og tíðkast á Norðurlöndum. Samt telst það hagstætt hjá Sam- skipum að leigja dönsk skip mönnuð Dönum, mönnum sem hafa til muna hærri laun, en íslenskum farmönn- um er greitt. Með hálaunuðum" dönskum sjómönnum ætla Samskip að keppa við Eimskip, þar sem sjó- mennirnir þiggja mun lægri laun. Er einhvervitglóra í þessu? Ólafur Ólafsson lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali að stefna hans væri að hafa erlenda sjómenn á sínum skipum. Sjómannafélag Reykjavíkur mun halda áfram að berjast fyrir tilveru íslenskrar farmannastéttar og sigl- ingum undir íslenskum fána. Það er krafa okkar til stjórnmálamanna að búa svo að skráningargjöldum að kaupskipaflotinn komi aftur heim. BIRGIR HÓLM BJÖRGVINSSON, stjórnarformaður Sjómannafélags Reykjavíkur. ---------? ? ?--------- Athuga- semd vegna greinar Frá Andreu J. ísóifsdóttur: í TILEFNI af grein Hauks Guðlaugs- sonar, söngmálastjóra þjóðkirkjunn- ar, sem er svargrein til Björgvins Tómassonar orgelsmiðs, vil égundir- rituð taka fram að fyrirtækið ísólfur Pálmarsson hljóðfæraumboð sf. hefur um árabil haft umboð fyrir Kiss- elbach orgelverksmiðjuna í Þýska- landi, en sú verksmiðja framleiðir hvers konar orgel, jafnt lítil heimilis- orgel sem kirkjuorgel. Sóknarnefndum var á sínum tíma sent bréf þar um -og raunar einnig Tónskóla þjóðkirkjunnar. Einnig hefur verslun okkar umboð fyrir sembala frá J.C. Neupert í Þýska- landi. Það er þvi ekW rétt hjá Hauki Guðlaugssyni að á Islandi þekkist ekki umboðsmenn fyrir orgel. ANDREA J. ÍSÓLFSDÓTTIR framkvæmdastjóri. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. : « s i 4