Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 21 Watson laus úr haldi PAUL Watson, formaður Sea Shepherd-samtakanna, hefur verið látinn laus úr haldi í Þýskalandi og verður ekki framseldur til Noregs. Var hann handtekinn í Bremen að ósk Norðmanna en þeir eiga við hann óuppgerðar sakir fyr- ir ýmis skemmdarverk á norskum hvalbátum. Hefur hann verið dæmdur í 120 daga fangelsi fyrir þau en þýsk yfir- völd telja, að sakir sé of litlar til að þær réttlæti framsal. Hefur því verið mótmælt í Noregi og er bent á, að sam- kvæmt evrópskum samning- um nægi 120 daga fangelsis- dómur til framsals. Toblerone úr hillunum í LJÓS hefur komið að Tobler- one-súkkulaði, sem framleitt er á þessu ári, inniheldur gena- breyttar sojabaunir og hafa ýmsar verslanir í Noregi, Svi- þjóð og Danmörku hætt sölu á súkkulaðinu. Súkkulaði frá því í fyrra er víða enn í sölu en það er laust við sojabaun- irnar genabreyttu, að því e_r fram kemur í Aftenposten. Á Norðurlöndum er mest sala í Toblerone í fríhöfnum. Fáir óvilhallir ILLA gengur að finna kvið- dómendur vegna réttarhalda yfir Timothy McVeigh, sem sakaður er um að hafa deytt 186 manns og slasað 500 með þvi að sprengja upp stjórn- sýsluhús í Oklahoma- borg i Okla- homa fyrir tveimur árum. Er vandfundinn sá, sem ekki hefur myndað sér einhveija skoðun á málinu, og þvi er búist við miklu stappi um skipan kviðdómsins. Ovissa á Indlandi KONGRESS-flokkurinn á Ind- landi hefur hætt stuðningi sín- um við ríkisstjórn Deves Gowda forsætisráðherra en hann ætlar að bera það undir þingið hvort hann verði að segja af sér. í gær lagði hann til, að fjárlögin fyrir nýbyijað fjárlagaár yrðu afgreidd áður þingið tæki afstöðu til stjórnar hans en stærsti flokkur stjórn- arandstöðunnar, hindúskír þjóðernissinnar, vildi ekki fall- ast á það. Er ástandið í stjórn- málunum farið að valda mik- illi óvissu í fjármálalífi lands- ins. Skæruliðar felldir ALSÍRSKIR stjórnarhermenn felldu meira en 20 skæruliða bókstafstrúarmanna í miklum aðgerðum í norðausturhéruð- um landsins. Hafa meira en 200 skæruliðar verið vegnir í sams konar aðgerðum það sem af er árinu. Sjálfsmorð 39 meðlima sértrúarsafnaðar í Kaliforníu Trúðu því að geim- skip myndi sækja þau Rancho Santa Fe. Reuter. LÍK meðlima sértrúarsafnaðarins Himnahliðs (Heavens Gate), sem frömdu sjálfsmorð sl. miðvikudag í Suður-Kaliforníu, voru flest flutt í gær til aðstandenda hinna látnu. Alls sviptu 39 manns sig lífi og telur lögregla fullvíst, að sjálfsmorðin hafi verið framin í hópum á nokk- urra daga tímabili. Sögu- sagnir voru um að leiðtogi safnaðarins, Marshall Applewhite, hefði verið með krabbamein en læknar sem krufðu lík hans segja ekkert benda til þess. Lík fólksins fundust seint á miðvikudag og töldu lög- reglumenn fyrst að allir hinna látnu hefðu verið karl- ar, þar sem fólkið var nauð- rakað, í svörtum fötum og í íþróttaskóm. í ljós kom hins vegar að rúmur helmingur var konur, 21 talsins, og er jafnframt talið að tvær kon- ur hafí hafi síðastar framið sjálfs- morð eftir að hafa aðstoðað hina og gengið frá líkum þeirra. Átján hinna látnu voru karlar en fólkið var á aldrinum 20-72 ára. Fólkið lést af of stórum skammti af svefnlyfinu phenobarbitol, sem var blandað í ávaxtabúðing og skol- að niður með vodka. Samkvæmt bréfum sem fólkið lét eftir sig, taldi það að geimskip, sem væri í felum á bak við Hale-Bopp halastjörnuna, myndi flytja það til himna. Lögregla telur að hinir fyrstu hafi svipt sig lífi laugardaginn fyrir pálmasunnu- dag. Hinir látnu voru langflestir Bandaríkjamenn en einnig voru Kanadamenn í hópnum. Einn úr hópnum var bróðir leikkonu úr hin- um vinsælu Star Trek-kvikmyndum en þær munu hafa verið í miklu uppáhaldi sértrúarhópsins. Söfnuð- urinn hafði aðsetur í glæsihýsi í út- hverfi San Diego í Kaliforníu, þar sem meðlimir hans unnu heimasíður á alnetinu. Algert bann við áfengis- drykkju og kynlífi ríkti í hópnum og voru nokkrir karlar í hópnum vanað- ir, eins og leiðtoginn, Marshall Applewhite. Á myndbandi, þar sem nokkrir félagar í Himnahliði lýsa væntanlegu sjálfsmorði, segjast þeir ekki óttast að deyja, þar sem þeir trúi því að þeir muni sameinast geimverum, sem þeir töldu fylgja í kjölfar hala- stjörnunnar. Hugljómun á geðsjúkrahúsi Leiðtoginn Applewhite var 66 ára og var afar trúaður á sínum yngri árum, enda þykja predikanir hans hafa borið þess nokkur merki. í upphafi áttunda áratugarins fékk hann hugljómun um það að geimskip væru væntanleg til að frelsa mannkynið. Það gerðist á geðsjúkrahúsi. í grein í Washington Post seg- ir að Applewhite hafi verið rekinn úr starfi sínu sem tón- listarkennari fyrir aldarfjórð- ungi eftir að upp komst að hann átti í ástarsambandi við karlkyns nemanda sinn. Hann lét leggja sig inn á geðsjúkrahúsið til að láta „lækna sig“ af samkyn- hneigðinni. Á sjúkrahúsinu kynntist Applewhite hjúkrunarkonunni Bonnie Lu Nettles en saman stofn- uðu þau sértrúarsöfnuðinn Himna- hlið. Nettles lést árið 1990. Safnaðarmeðlimir voru hvattir til að yfirgefa fjölskyldur sínar, taka sér ný nöfn, ýmist kristileg eða óhefðbundin nöfn á borð við „Gluggi“ og „Peningapoki". Trúðu þeir því að geimskip myndu sækja þá og flytja til „orkuþrunginna staða“. Árið 1976 yfirgáfu margir söfnuðinn eftir að loforð Applewhit- es um ferð í geimskipi stóðust ekki. Illviðra- samir páskar í Noregi Ósló. Morgunblaðið. NÝLIÐNIR páskar verða lengi í minnum hafðir í Noregi fyrir slysfarir, þær mestu, sem orð- ið hafa á þessum tíma í 30 ár. Týndu fjórir menn lífi á flöllum, sex fórust í bílslysum og aðrir 50 slösuðust. Samkvæmt upplýsingum frá norska Rauða krossinum fóru sjálfboðaliðar á hans veg- um í 51 leit að 106 mönnum eða að helmingi fleiri en á síð- ustu páskum. Auk þess var aðstoðað við að koma fólki burt úr 90 fjallakofum vegna ótta við skriðuföll. Talsmaður björgunarmið- stöðvarinnar í Suður-Noregi sagði, að þar hefði verið um að ræða 78 aðgerðir um pásk- ana, tvisvar eða þrisvar sinn- um fleiri en vanalega, og í Norður-Noregi voru þær 30. 800 manns urðu fyrir einhvers konar meiðslum, aðallega beinbroti, en ekki fer neinum fréttum af því, að fólk hafi orðið fyrir sólbruna að þessu sinni eins og oft hefur þó gerst áður. Versta veður var víða í Noregi um páskana og hefur ekki verið verra síðan 1967 þegar 18 manns fórust á fjöll- um. Marshall Applewhite. Gingrich tek- ið sem höfð- ingja í Taipei Taipei, Peking. Reuter. NEWTS Gingrich, forseta fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings, bíða höfð- inglegar móttökur er hann kemur í dag í þriggja klukkustunda opin- bera heimsókn til Taipei, höfuð- borgar Taiwans. Stjórnvöld líta á heimsóknina sem vott um batnandi samskipti við bandaríska þingið og fagna yfirlýsingum Gingrich í Peking um helgina þar sem hann sagði að Bandaríkin myndu koma Taiwan til bjargar yrði landið fyrir árás frá Kína. Gingrich gagnrýndi Kínveija í ræðu sem hann flutti í alþjóða- samskiptarannsókna- stofnun Peking- háskóla sl. laugardag. Frammi fyrir um eitt- hundrað stúdentum sagði hann að Banda- ríkjamenn gætu ekki þagað yfir þeim skorti sem væri á grundvall- arréttindum í Kína, tjáningarfrelsi, trúfrelsij fundafrelsi og fjölmiðla- frelsi. „I aðalatriðum erum við að biðja kínversku stjómina að fram- fylgja eigin stjórnarskrá," sagði hann og vísaði því á bug, að með því að gagnrýna skort á mannrétt- indum í Kína væru Bandaríkja- menn að skipta sér af kínverskum innanríkismálum. Kínveijar brugðust mildilega við yfirlýsingum Gingrich og var það rakið til þess að þeim er annt um að afla sér aukins stuðnings á Bandaríkjaþingi á kostnað Taiw- ans. Bandaríkjamenn sýni varfærni Þingforsetinn lofaði efnahags- umbætur kínversku stjórnarinnar en sagði að í fyllingu tímans yrði hún að slaka á forsjárhyggju sinni. Gingrich átti fund með Jiang Zemin for- seta Kína þar sem sá síðamefndi sagði þýð- ingarmikið, að Banda- ríkjamenr sýndu var- færni í málum Taiw- ans. Stjórnmálaskýr- endur í Peking og Tai- pei sögðu harðorðar yfirlýsingar Gingrich um nauðsyn þess að standa vörð um sjálf- stæði Taiwans miklu fremur ætlaðar til að auka álit hans og hróður í Banda- ríkjunum. Veitti honum ekki af eftir að hafa glatað trausti vegna spillingarmála. Vestrænn stjórnar- erindreki í Taipei sagði í gær, að þar um slóðir væri Gingrich þekkt- ur fyrir að gefa eftir í málefnum Taiwans þrátt fyrir gífuryrðin. „Það ætti engum að koma á óvart þótt hann móðgaði Lee Teng-hui forseta með því að krefjast þess af honum að Taiwanar lýsi ekki yfir sjálfstæði,“ sagði fulltrúinn. Gingrich UOCKEY Einlitar og röndóttar. Útsölustaðir um land allt! Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. hf. sími 552 4333
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.