Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Kristinn Ben. Konunglegar mótlökur GRINDAVÍKURSTÚLKUR fengu góöar móttökur þegar þær komu meö íslandsbikarinn heim eftir aö hafa sigraö KR þriðja sinni. Grindvíkingar íslandsmeistarar í kvennaflokki í fyrsta sinn Ævintýrin gerast enn Skúli Unnar Sveinsson skrifar Ævintýrin gerast enn og einu slíku lauk í íþróttahúsi Hagaskóla á skírdag þegar Grinda- víkurstúlkur urðu ís- landsmeistarar fyrsta sinn í körfu- knattleik kvenna, lögðu KR 62:55 í framlengdum leik, en UMFG sigraði einnig í tveimur fyrstu leikjum lið- anna. Arangur Grindavíkurstúlkn- anna er frábær. Eftir rysjótt gengi í vetur komu þær tvíefldar til leiks í úrslitakeppnina, unnu Keflavík í tveimur leikjum og síðan KR í þrem- ur, nokkuð sem enginn bjóst við. „Það er ótrúlegt að vinna 5:0 í úrslitakeppninni," sagði Ellert Magnússon þjálfari stúlknanna eftir sigurinn á skírdag. „Það hafði eng- inn trú á að við myndum sigra. Við trúðum því ekki einu sinni sjálf í upphafi. Svo unnum við Keflavík í fyrsta leik, og svo aftur og þá sáum við að þetta var hægt, en Keflavík hefur verið sú grýla sem hefur stað- ið í okkur,“ sagði Ellert. Þegar tíu mínútur voru til leiks- loka á skírdag hafði KR 11 stiga forystu, 46:35, og fátt sem benti til að Grindavíkurstúlkur myndu tryggja sér titilinn. En Ellert þjálf- ari lumaði á trompi. Hann lét súlk- urnar breyta í svæðisvörn og hún gekk svo ljómandi vel að á síðustu tíu mínútunum gerðu KR-ingar að- eins þtjú stig á meðan Grindavík gerði 11 og þegar klukka tímavarðar gall var staðan jöfn, 49:49, og því þurfti að framlengja, þar sem Grind- víkingar voru mun sterkari og sigr- uðu. KR-ingar geta engum kennt um hvernig fór nema sjálfum sér. Eftir góðan fyrri hálfleik þar sem baráttan var til fyrirmyndar, bæði í sókn og vörn, var með ólíkindum að þær skyldu tapa leiknum. Lið sem tekur 21 sóknarfrákast á móti 6 hjá móthetjunum á ekki að tapa. En það gerðist nú samt og þetta er í fjórða sinn á fimm árum sem KR-stúlkur verða að sætta sig við silfurpening. Helga Þorvaldsdóttir var mjög góð framan af leik og Kristín Jónsdóttir einnig, hún gerði t.d. öll sex stig KR í framlengingunni. Nafna hennar Magnúsdóttir lék vel í vörninni, þar sem hún gætti Penni Peppas, og Linda Stefánsdóttir gerði slíkt hið sama. Sóley var grimm í fráköstun- um en Guðbjörg Norðfjörð náði sér ekki vel á strik. Hjá nýbökuðum Islandsmeistur- um var Peppas best og fer ekkert á milli mála að hún er best kvenna hér á landi í körfuknattleik, enda varð hún íslandsmeistari í hitteð- fyrra með Breiðabliki. „Svæðisvörn- in gekk mjög vel hjá okkur og þetta er frábært. Við erum með ungt lið, tvær stelpur í 10. bekk og ein var að fermast í dag,“ sagði Peppas eft- ir leikinn. „Það var rosalega gaman að vinna með Blikum á sínum tíma en þetta er ekki síðra,“ sagði hún. Anna Dís Sveinbjörnsdóttir átti mjög góðan leik og Sólveig Gunnlaugsdóttir var sterk í svæðisvörninni. Þá átti Rósa Ragnarsdóttir einnig góðan dag en annars var liðsheildin sterk hjá Grindvíkingum. Fögnuður Morgunblaðið/Kristinn Ben. ELLERT Magnússon, þjálfari Grindvíkinga, fagnaði innilega þegar Ijóst var að stúlkurnar hans höföu komið öllum á óvart meö því að sigra í fimm leikjum í úrslitakeppninni. Fyrir aft- an þjálfarann er Rósa Ragnarsdóttir og aftast er fermingar- barniö, Hekla M. Siguröardóttir. Dagur með stórleik DAGIJR Sigurðsson átti stór- leik með Wuppertal þegar lið- ið lagði Flensburg II að velli í Flensburg í norðurrili 2. deildar í þýska handknatt- leiknum, 28:18. Dagur skoraði fimm mörk. Meiðsli Ólafs Stefánssonar á ökkla tóku sig upp í byijun leiks og lék hann ekki með. „Ég var ipjög ánægður með leik liðsins og vona að strákarnir haldi áfram á þessari braut. Það er jjóst að um hreint einvígi um fyrsta sætið er á milli okkar og leikmanna Bad Schwartau. Þeir unnu þýðing- armikinn leik gegn Rostock, 26:20. Við erum með eins stigs forskot á þá og þrjátíu mörk í plús þegar fjórar umferðir eru eftir,“ sagði Viggó Sig- urðsson, þjálfari Wuppertal. Gummers- bach náði að bjarga sér FORRÁÐAMENN þýska handknattleiksliðsins Gumm- ersbach náðu að bjarga þessu heimsfræga liði frá gjaldþroti um helgina. Þeir fengu verð- bréfafyrirtæki í Diisseldorf til að verða aðalstyrktaraðili Uðsins. Fyrirtækið gerði þriggja ára samning við Gummersbach, sem fær 200 miLIj. ísl. króna. Villeneuve sigraði í Brasilíu JACQUES Villeneuve frá Kanada, sem ekur fyrir Mans- ell, sigraði í brasilíska kapp- akstrinum á sunnudaginn. Villenevue hóf keppni fremst- ur en þrátt fyrir það blés ekki byrlega fyrir honum í byijun; bíll Kanadamannsins skaust út af brautinni strax í fyrstu beygju, fjórir fylgdu í kjölfarið og því var keppni stöðvuð og ökuþórarnir ræst- ir á ný. Villeneuve, sem er 25 ára, kom 4,1 sekúndu á undan Austurríkismanninum Ger- hard Berger í mark, en hann ekur fyrir Benetton. Frakk- inn Oliver Panis varð þriðji á bíl nýja Prost liðsins. Úrslitakeppnin í körfuknattleik 1997 Þriðji leikur liðanna fúrslitum, leikinn i Reykjavik 27. mars KR Grindavik 55 Skoruð stig 62 5/13 Vítahfttni 12/17 4/22 3ja stiga skot 4/10 19/49 2ja stiga skot 19/45 26 Varnarfráköst 20 21 Sóknarfráköst 6 14 : Boita náð 8 18 Bolta tapað 17 6 Stoðsendingar 8 21 Villur 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.