Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 8
ÍÞRDMR HANDKNATTLEIKUR Vorbragur á íslendingum ISLENDINGAR sigruðu Kín- verja, 27:24, ífyrri vináttu- landsleik þjóðanna í hand- knattieik í gærkvöldi en þá mættust landslið þjóðanna á ísafirði. Það var nokkur „vor- bragur" á leik íslenska liðsins, eins og fyrirliðinn Geir Sveins- son orðaði það, en engu að sfður sáust ágætis tilþrif á köfl- um og undirbúningur liðsins fyrir HM virðist því lofa góðu. Islendingar fengu sannkallaða óskabyijun. Reynir Þór, sem hóf leikinn í markinu, varði þijú fyrstu skot gestanna og í Skúli Unnar sókninni^ gengu leik- Sveinsson menn á lagið og skrífar skoruðu úr fyrstu fjórum sóknunum og komust raunar í 7:1. Kínveijar léku 3-2-1 vörn mjög framarlega og voru ansi ágengir og satt best að segja gekk íslensku strákunum illa að eiga við þessa vörn, eins og venjulega, þegar stilla þurfti upp í sókninni. Þorbjörn kom á óvart með byij- unarliðinu. Jón Freyr byrjaði í hægra horninu, en þetta var fyrsti lands- leikur hans, og Reynir stóð í mark- inu. Annað sem kom á óvart í leikn- um var að ekkert var skipt inn á á milli varnar og sóknar, nema rétt í lokin á leiknum. Kínveijar, sem hafa sjálfsagt verið þreyttir, kunna greinilega ýmislegt fyrir sér í hand- knattleik og það er enginn tilviljun að þeir eru Asíumeistarar. Síðast þegar þjóðirnar léku, árið 1988 í A-Þýskalandi, sigraði ísland, 39:19, en slíkur sigur mun ekki sjást á næstu árum. Kínveijar komust smátt og smátt í gang og tókst að minnka muninn. íslenska liðið lék 5-1 vörn eða 3-2-1 frekar aftarlega og gekk þokkalega framan af en þegar þeir kínversku vöknuðu og fóru að ógna með hraða sínum og stökkkrafti vantaði að koma betur út á móti þeim. í síðari Island - Kína 27:24 Iþróttahúsið Torfunesi, vináttulandsleikur í handknattleik, miðvikudaginn 2. apríl 1997. Gangur leiksins: 3:0, 7:1, 7:4, 11:6, 11:8, 13:11, 16:11, 15:12, 16:12, 18:14, 18:16, 21:16, 23:17, 23:21, 25:24, 27:24 Mörk tslands: Patrekur Jóhannesson 7/1, Júlíus Jónasson 6/2, Geir Sveinsson 4, Gústaf Bjarnason 3, Dagur Sigurðsson 2, Jón Freyr Egilsson 2, Valgarð Thoroddsen 1, Rúnar Sigtryggsson 1, Róbert Sighvats- son 1, Ölafur Stefánsson, Gunnar Berg Viktorsson. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 7 (þaraf 1 til mótheija), Guðmundur Hrafnkelsson 5 (þaraf 1 til mótheija. Utan vallar: Aldrei! Mörk Kína: Wang Xindong 6, Zhang Jingmin 4/1, Song Gang 3, Wu Jian 3, Ma Haiyong 2, Mo Zhujian 2, Yu Hongquan 2, Yan Tao 1, Guo Weidong 1. Varin skot: He Jun 13 (þaraf 6 til mót- heija), Wang Bin 9/2 (þaraf 5/1 til mót- heija). Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Gunnar Kjartansson og Guðjón L. Sigurðsson. Áhorfendur: Ríflega 900. SOKNAR- NÝTING Vináttulandsleikur á ísafirði miðvikudaginn 2. apríl 1997 II--- ISLAND K I k KINA Mörk Sóknir % 15 26 58 F.h 12 26 46 12 25 48 S.h 12 24 50 27 51 53 Alls 24 50 48 7 Langskot 12 3 Gegnumbrot 1 5 Hraðaupphlaup 5 3 Horn 2 6 Lína 3 3 Viti 1 Morgunblaði/Golli NÝLIÐINN Jón Freyr Egllsson var í byrjunarllói íslands gegn Kínverjum, stóó slg vel og skoraAI tvö mörk. hálfleik var skipt í flata vörn og hún gekk betur þó svo menn hefðu að ósekju mátt koma meira út á móti skyttunum. Þriggja marka munur var í leik- hléi og hann hélst lengstum. Þegar íslendingar féllu í þá gryfju að leika jafn hratt og Kínveijar í sókninni tókst gestunum að minnka muninn ennfrekar og þegar rúmar þijár mínútur voru eftir var munurnn eitt mark, 25:24. íslendingar gerðu síð- ustu tvö mörkin, Patrekur braust glæsilega í.gegn, og sigurinn var tryggður. „Ég sá glufu og auðvitað renndi maður sér í hana,“ sagði Patrekur. Allir sem fengu að reyna sig í íslenska liðinu stóðu sig ágætlega. Júlíus lék best og leysti hlutverk skyttunnar hægra megin mjög vel auk þess sem hann var sterkur í vörninni eins og venjulega. Patrekur var líka ágætur og mikilvægur und- ir lokin er á reyndi. Geir stóð sig vel á línunni og í vörninni og sama má segja um alla leikmennina, þó skal það áréttað að leikurinn var alls ekki neinn stórleikur, en margt lofar góðu. Um tíma á þeinra hraða Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari á skemmtilegt en erfitt verk fyrir höndum, að velja þá leikmenn sem taka þátt í HM í Japan í vor. „Það er þægileg staða þegar svona margir banka á dymar, en það verður erfitt að velja hópinn í lokin. Það verður að hafa það. Landsliðsþjálfari verður að gera það og taka síðan afleiðingunum af ákvörðun sinni í lokin,“ sagði Þorbjöm eftir leikinn á ísafírði í gærkvöldi. „Kínveijar léku eins og ég átti von á, pressuðu framarlega í vöminni og léku hratt í sókninni. Sóknarleikurinn hjá okkur var dálítið stirður enda vantaði Ólaf hægra megin, en Júlíus leysti hlutverk sitt þar vel. Við verðum að æfa það ef eitthvað kæmi upp þannig að Ólafur gæti ekki leikið og þetta var fín æfíng. Ég vissi að sú vöm sem ég lét liðið leika lengstum hentaði okkur ekki gegn Kínveijum, en ég vildi samt prófa hana því til hvers eru æfíngaleikir? Flata vömin hentar betur því það er betra að hafa múr á móti þeim en að lenda of oft maður á móti manni því hreyfimynst- ur þeirra er allt annað en okkar. Sókn- in var hröð hjá þeim og við lentum í því í síðari hálfleik að fara á sama hraða og þeir og það hentar okkur alls ekki,“ sagði Þorbjöm. Það er óvenjulegt að sjá að ekki er skipt. á leikmönnum milli varnar og sðknar. Hver var tilgangurinn með því? „Mig langaði að sjá nokkra menn vinna saman og langaði líka að sjá hvemig þetta kæmi út, en það er rétt hjá þér, oftast skiptum við einum eða tveimur leikmönnum út af á milli vamar og sóknar," sagði þjálfarinn. Þeir voru þreyttir Geir Sveinsson fýrirliði var jarð- bundinn og yfírvegaður sem endra- nær. „Það var nú hálfgerður vorbrag- ur á þessu hjá okk- ur, það vantaði alla fínheit í sókn- ina og hún var dálítið ryðguð og mér fannst menn vera að reyna fullmikið á eigin spýtur. Kínver- jamir voru þreyttir enda engin furða eftir allt ferðalagið og við hefðum not- að það sem afsök- un hefðum við ver- ið í þeirra sporum. Þannig að ég veit ekki hvort á að þakka okkur frá- bæra byijun eða hvort þreyta þeirra vó ekki þyngra en góður leikur okkar,“ sagði fyrirliðinn. Júlíus Jónasson hefur ekki leikið eins mikið í landsleik í fjölda ára, en hann sagðist vera vanur að leika mikið með sínu félagsliði. „Ég var samt aðeins farinn að lýjast undir lokin enda leika Kínveijar hratt og það er erfítt að eiga við þá, sérstaklega þegar við fórum að leika á sama hraða og þeir. Við hefðum mátt vera grimmari í að fara úr á móti þeim í vörninni og sóknin var dálítið stirð. Það er auðvitað ekki uppáhaldsstaða mín að vera hægra megin, en það verður ein- hver að leysa það verk nú um sinn og það er betra að vera þar en annar eða þriðji maður í skyttu- stöðuna vinstra megin,“ sagði Júlíus. „Þetta var gaman og tals- vert mikið öðru- vísi en að leika með Haukum," sagði Jón Freyr Egilsson, eini nýliðinn í hópn- um. Hann var í byijunarliðinu. • KÍNVERJARNIR lentu á ísa- fjarðarflugvelli kl. 17.48 í gær, rúmum tveimur tímum fyrir leik- inn, fslenska liðið kom um morg- uninn. Kínveijamir hljóta að hafa verð þreyttir því þeir komu til landsins í gærmorgun frá Kaup- mannahöfn en þangað komu þeir á þriðjudaginn beint frá Kína. • KÍNVERJARNIR lentu í Kaupmannahöfn í fyrrinótt og um hádegi í gær í Keflavík. Ástæða þess hversu seint liðið er á ferðinni er að það fer héðan til Þýskalands og þýska sendiráð- ið var lokað um páskana og vega- bréf leikmannanna voru þar yfir hátíðimar þannig að þeir urðu að seinka för sinni frá Kína. Kristinn sigraði í svigi á Dalvík KRISTINN Björnsson og Petra Olamo frá Finnlandi sigruðu á alþjóðlegu móti í svigi á Dalvík í gær. Sigur Kristins var öruggur en Bryiya Þorsteinsdóttir var ekki langt á eftir finnsku stúlkunni. Kristinn fór fyrri ferðina á 47,70 sek. og þá síðari á 49,38. Samanlagður tími hans var því 1.37,08 min. Herman Schiestl frá Austur- riki varð annar á 1.39,03 mín. (48,65 og 50,38) og Finninn Juha Jarve þriðji á 1.39,03. Arnór Gunnarsson varð fjórði á 1.40,16 og Pálmar Péturs- son fimmti á 1.44,86. Kepp- endur voru 37. Haukur Arn- órsson og Jóhann Haukur Hafstein voru meðal þeirra sem luku ekki keppni. Finnska stúlkan Petra 01- amo fór fyrri ferðina í gær á 44,67 sek. og þá seinni á 46,92. Samanlagður tími hennar var 1.31,59 mín. Brypja Þorsteinsdóttir varð önnur á 1.31,95 (43,72 og 48,23), Katja Jantunen frá Finnlandi þriðja á 1.33,29 (45,76 og 47,53) og Theódóra Mathiesen fjórða á 1.34,93 (46,31 og 48,62). Dagný Linda Kristjánsdóttir varð sjötta á 1.38,80. Keppendur voru 20. faúmR FOLX ■ LÁRUS Orri Sigurðsson var rekinn af velli þegar Stoke tapaði 1:0 í Bradford í vikubyijun. Lou Macari, knattspyrnustjóri Stoke, var allt annað en sáttur við þessa ákvörðun dómarans, var sendur upp í stúku vegna mótmælanna og á sekt^ yfir höfði sér. ■ ÓLAFUR Gottskálksson æfði hjá Stoke fyrir páska en hafnaði tilboði um að vera varamarkvörður liðsins út tímabilið. ■ SUNDERLAND sýndi líka áhuga á markverði Keflavíkur en þar sem hann var úti í boði Stoke fór hann aldrei til Sunderland. Félagið vantaði varamarkvörð og fékk Chris Woods, fyrrum mark- vörð Englands, til að vera hjá sér út tímabilið. ■ STIG Björnebye, sem hefur verið fastamaður í liði Liverpool í vetur hefur gert nýjan samning við félagið og er hann til fimm ára. Norðmaðurinn er 27 ára. ■ KENNY Dalglish keypti miðju- manninn Des Hamilton frá Brad- ford og var kaupverðið tvær millj. punda. Hamilton er 20 ára. ■ MART Poom, sem lék undir stjórn Teits Þórðarsonar hjá Flora Tallinn í Eistlandi, verður í marki Derby þegar liðið sækir Manchester United heim á laugar- dag. Derby greiddi 500.000 pund fyrir markvörðinn sem á 49 lands- leiki að bakL ■ KANADÍSKI markvörðurinn Craig Forrest verður í herbúðum Chelsea næsta mánuðinn. Félagið fékk hann lánaðan frá Ipswich. ■ ARSENE Wenger, knatt- spyrnustjóri Arsenal, lánaði Luton varnarmanninn Gavin McGowan en ætlar ekki að selja hann. ■ DARREN WassaJI, varnarmað- ur hjá Derby, leikur með Birming- ham út tímabilið. ■ LIVERPOOL greiddi 400.000 pund fyrir danska markvörðinn Jörgen Nielsen hjá Hvidovre. VIKINGALOTTO: 4 15 27 35 41 43 / 11 20 39

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.