Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.04.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 1997 29 Francisco og uppsiglingu Beat- hreyfingar barst snemma til ís- lands og hefur án efa haft einhver áhrif á hérlend skáld enda sjálfsagt síst minna um yfirdreps- og tepru- skap hér á hjara veraldar. Jóhann Hjálmarsson, skáld og gagnrýn- andi, þýddi ljóð eftir Ginsberg (Til Lindsaý) og kynnti hann og beat- kynslóðina í því ágæta tímariti Birtingi (4:1960). Dagur Sigurðar- son þýddi svo ljóðið Ameríka í ljóðabók sinni Rógmálmar oggrá- silfur sem kom út 1971. Leiðarljós Ginsberg í skáld- skapnum er vægðarlaus hreinskilni og heiðarleiki. Með ljóðunum sínum afhjúpar hann sjálfan sig, nekt sína. Á ljóðaupplestrum (og á öðr- um mannamótum) átti Ginsberg það reyndar til að klæða sig, bók- staflega, úr hverri spjör og hvetja aðra til að gera það sama. Hann vildi ólmur fá fólk með í eina alls- herjar ástarorgíu. Ginsberg dregur ekkert undan, segir sínar innstu tilfinningar og afneitar með því skömminni sjálfri ogtrúir því að ekkert mannlegt geti verið ógeðs- legt né niðrandi. Samkynhneigðin, eiturlyfjanotkunin (hann var alla tíð talsmaður þess að leyfa marijú- ana) og undandráttarlaus gagnrýni á misrétti í bandarísku þjóðfélagi varð til þess að Ginsberg var sett- ur á svartan lista hjá alríkislögregl- unni FBI og skráður sem varhuga- verður „undirróðursmaður." Það má reyndar til sanns vegar færa því Ginsberg með alla sína nekt og hugmyndir um fijálsar ástir, var einn af „höfundum" blómabylt- ingar 7. áratugarins og tók virkan þátt í mótmælum 68-kynslóðarinn- ar gegn Vietnam og kerfinu. Það kom fram í fréttatilkynn- ingu að Allen Ginsberg orti nánast fram á síðustu stundu. Kannski hann hafi ort um dauðann. Og hafi hann gert það er ekki ósenni- legt að tónninn í þeim ljóðum hafi verið súrsætur og húmorískur eins og í eftirfarandi ljóði sem hann orti 1984. Þetta er svo stutt Ég verð að skilja við mig Bækur, tékka, sendibréf Skjalaskápa, íbúð Kodda, líkama og skinn Meira að segja tannpínuna. Með von um að Allen Ginsberg hafi öðlast sitt Nirvana. OM. Kjarvalsstaðir MIÐNÆTURBIRTA Hrings Jóhannessonar. Veggspjald og kort eftir Hring LIST4SAFN Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir hafa nýverið gefið út veggspjald með mynd af málverkinu Fífa frá árinu 1992 eftir Hring Jóhannesson og kort sem sýna annars veg- ar verkið Miðnæturbirta frá árinu 1983 og hins vegar verkið Sólmóða við mýrina eftir listamanninn . Hringur Jóhannesson er einn þekktasti og virtasti myndlistamaður þjóðarinnar, en hann lést langt fyrir aldur fram seinasta sumar. Fyrir skömmu var haldin viðamikil yfirlitssýning á verkum hans seinustu áratugi á Kjarvals- stöðum. Veggspjaldið kostar 1.200 kr. og kortin kr. 150 og 200 og eru þau til sölu í safna- _ verslun Kjarvalsstaða og As- mundarsafns. PIPARKÖKUBAKSTUR hjá Dýrunum í Hálsaskógi. Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir í Stykk- ishólmi LEIKFÉLAG Hafnarijarðar leggur land undir fót um helgina og sýnir í félagsheimili Stykkishólms laugar- daginn 12. apríl. Sýnd verða atriði úr barnaleikritum Thorbjörns Egn- ers. Leikstjóri er Ásdís Þórhallsdóttir. Rifjuð eru upp lög og atriði úr leikritum sem Egner er hvað þekkt- astur fyrir, s.s. Karíus og Baktus, Hinir síglöðu söngvarar, Dýrin í Hálsaskógi og Kardemommubærinn. Fjöldi leikara á öllum aldri tekur þátt í sýningunni. Sýnt var fyrir fullu húsi í Hafnar- firði í mars sl. við mjög góðar undir- tektir, segir í kynningu. Miðaverð er kr. 600. VIÐEYJARSTOFAI FAEG^ VAMPYR léttar og með- færilegar ryksugur \. á goðu verðify VERÐ STGR.: Óko Vampyr 8251 • Sexföld ryksíun • Stillanlegur sogkraftur • Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla f • þrír auka sogstútar V • Inndraganleg snúra x • Rykpoki 5,5 lítrar • 900vött ( Nýr Öko-mófór skilar sama sogkrafti og 1500 vatta mótor) Ver&:18.936,- stgr. 17.990,- „ERGO- GRIFF“ Nýtt handfang fer betur í hendi. Vampyr 6400 Sexföld ryksíun* Ultra- filter (Skilar útblásturs- • lofti 99,97% hreinu) Stillanlegur sogkraftur • Stillanlegt Sogrör • Fylgihlutageymsla • Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 4 lítrar • 1400 vött • Þyngd 7 kg • Ver&:17,842,- stgr. 16.950,- VERÐ STGR. VAMPYR Lausn á geymslu- vanda. soqrörinu er fest vio botn \ ryksugunnar. A Vampyr 61OO • Fjórföld ryksíun • Stillanlegur sogkraftur • Fylgihlutageymsla • Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 4 lítrar — • 1300 vött i • Þyngd 7 kg Ver&: 15.409,- 1 stgr. 14.639,- VERÐ STGR. it j Vampyr 5010 / Fjórföld ryksíun • Stillanlegur sogkraftur • Tveir auka sogstútar • Inndraganleg snúra • Rykpoki 4 lítrar • 1300 vött • Þyngd 6 kg • Verft:13.674,- stgr. 12.990,- a 8 • Sími 533 2800 Umbobsmenn um allt land Reykjavík: Byggt og Búiö Kringlunni. Vesturland: Málningarpjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Guðni E.Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestfirðlr.Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröi. Norðurland: Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúö.Sauðárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Stál, Seyöisfirði. Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúösfiröi.KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.