Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.06.1997, Blaðsíða 4
 jMMMMMIHnsng fceámo Ær'f KNATTSPYRNA Bjarni Sigurðsson og Einar Guðmundsson stjórna Stjörnunni gegn KR Þórður Lárasson leystur frá störfum STJÓRN knattspyrnudeildar Stjörnunnar úr Garðabæ ákvað á fundi sínum á mánudagskvöld að segja Þórði Lárussyni, þjálfara meistaraflokks karla, upp störfum. Ástæðan er slakt gengi liðsins í deildinni það sem af er sumri en Stjarnan situr nú í neðsta sæti með aðeins tvö stig eftir sjö leiki. Lúðvík Örn Steinarsson, for- maður knattspymudeildar Stjörnunnar, sagði að tapið á móti Grindavík hafi verið dropinn sem fyllti mælinn. „Staða liðsins er óviðunandi og því töldum við að eitthvað yrði að aðhafast í málinu. Það er ekki skemmtilegt að þurfa að reka þjálfara, en eitt- hvað urðum við að gera. Þórður stóð sig vel með liðið í fyrrá og náði þá sjötta sæti, en nú hefur ekkert gengið. Það er kannski ekki við hann einn að sakast því töluverð meiðsli hafa hijáð leik- menn en við töldum að liðið hefði átt að geta gert betur á móti Grindavík," sagði Lúðvík. Bjarni Sigurðsson, fyrrverandi markvörður Stjörnunnar og lands- liðsins, og Einar Guðmundsson, aðstoðarþjálfari, munu stjórna lið- inu í bikarleiknum gegn KR annað kvöld en að sögn Lúðvíks er nú unnið að því hörðum höndum að ganga frá ráðningu nýs þjálfara. BJARNI Slgurðsson mun stjórna Stjörnunnl í blkarlelknum á móti KR á morgun eftlr brottrekstur Þórðar Lárussonar. Þjálfarar og pokinn ÞÓRÐUR Lárusson er annar þjálfarinn sem hefur fengið að taka pokann sinn á stuttum tíma - hann var leystur frá störfum hjá Sljörnunni. Þórður er fyrsti þjálfarinn sem er látinn taka pokann sinn hjá Garðabæjarliðinu síðan það vann sér sæti í 1. deild 1989. Þess má geta að sæti Sigurlás- ar Þorleifssonar var heitt 1994, þegar Stjarnan féll í 2. deild. Þórður tók þá við liðinu og stjórnaði því í 2. deild 1995. Undir sljórn hans tryggði Stjaman sér 1. deildarsæti og varð í sjötta sæti í deildinni í fyrra. Lúkas Kostic var leystur frá störfum hjá KR á dögunum eða eftir aðeins fimm umferðir. Hann var þá fjórði þjálfar- inn hjá vesturbæjarliðinu, sem hefur verið leystur frá störf- um. Magnús Jónatansson var látinn hætta hjá KR í 1. deild 1980 eftir tíu umferðir og tók Alec Stuart við starfi hans. 1981 var Manfred Stevens látinn taka pokann sinn og tók Guðmundur Pétursson við starfi hans og 1993 var Ivan Sochor látinn hætta og tók Janus Guðlaugsson við starfi hans. Það er segin saga, þegar ilia gengur, þurfa þjálfarar að taka afleiðingunum — það eru þeir sem eru á launum í starfi sínu. í fyrra var einn þjálfari leystur frá störfum - Magnús Pálsson hjá Fylki, sem féll. 1995 voru þrír þjálfarar leystir frá störfum - Marteinn Geirsson hjá Fram, sem féll, Ingi Björn Aibertsson hjá Keflavík og Hörður Hilmarsson hjá Val, sem bjargaði sér frá falli á ævintýralegan hátt undir stjórn Kristins Bjömssonar. Grikkimir koma LEIFTUR og forráðamenn gríska félagsins AEK Aþena hafa komist að samkomulagi um að menn frá AEK komi hingað til lands í næstu viku til að ræða kaup á Arnari Grétarssyni. Arnar var í Aþenu fyrir helgi og skrifaði þá undir þriggja ára samning við gríska liðið með þeim fyrirvara að félögin kæmust að samkomulagi. Grikkir höfðu samband við forráðamenn Leifturs í gær og varð niðurstaðan sú að grísk sendi- nefnd kæmi til landsins í næstu viku. FOLK ■ LOTHAR Matthiius, leikmaður Bayern Miinchen, heldur áfram að gagnrýna samheija sína. Nýlega sagði hann að Thomas Strunz væri lélegur leikmaður og að liðið hefði alls ekki orðið meistari vegna snilli hans. ■ MATTHAUS lýsti einnig yfir óánægju með yfirlýsingar Thomas Helmers þess eðlis að Mattháus væri ekki heill á geði. ■ SHEFF. Wed. hefur nælt sér í franska landsliðsmanninn Patrick Blondeau frá Mónakó - borgaði 1,8 punda fyrir Blondeau, sem er 29 ára. ■ JOHN Toshack, fyrrum þjálfari Deportivo La Conma, er nú staddur í Istanbul í lýrklaudi. þar sem hann ræðir við forráðamenn Besíktas. Johnson í París ÓLYMPÍUMEISTARINN og heimsmethafinn í 200 og 400 metra hlaupi karla, Banda- ríkjamaðurinn Michael John- son, mun i dag taka þátt í 400 metrunum í stigamóti Alþjóða fijálsíþróttasambandsins í Par- ís. Mót þetta er hið fyrsta sem Johnson tekur þátt í síðan hann meiddist á lærvöðva í einvígi við Kanadamanninn Donovan Bailey i 150 m hlaupi í byrjun júnímánaðar. Johnson ætlaði upphaflega að hlaupa 200 metrana í París en skipti um skoðun á síðustu stundu og mun því etja kappi við ekki ómerkari menn en Bandaríkja- mennina Anthuan Maybank og Butch Reynolds og Bretann Roger Black. Mörgum er eflaust enn í fersku minni ummæli þau er Bailey lét faila um Johnson i kjölfar 150 metra einvígisins í Toronto en Bailey mun einnig mæta til leiks í París og taka þar þátt í 100 metra hlaupi. Talið er að baráttan í þeirri grein muni standa á milli Bai- leys og Bretans Linfords Christies, sem var í sigursveit Breta í Evrópubikarkeppninni í Mjinchen síðastliðna helgi. Ólympíumeistari kvenna í 200 og 400 metra hlaupi, Marie-Jose Perec frá Frakk- landi, mun sömuleiðis taka þátt í stigamótinu í París. Eyjólfur kynnist nýjum félögum Hertha Berlín tekur þátt í móti með AC Milan, Bayern Munchen og París St. Germain Eyjólfur Sverrisson, landsliðs- maður í knattspyrnu, sem hef- ur verið í sumarfríi, á að vera mættur til æfinga hjá Herthu Berl- ín 30. júní. Hann mun þá kynnast mörgum nýjum köppum — frægast- ur þeirra er hollenski landsliðsmað- urinn Brian Roy, fyrrum leikmaður hjá Ajax, Foggia á Ítalíu og Nott- ingham Forest. Hertha borgaði Forest 168 millj. ísl. kr. fyrir Roy. Aðrir nýir leikmenn eru Hollend- ingurinn Dick van Burik, sem kem- ur frá Utrecht, Norðmaðurinn Kjet- il Rekdal, frá franska liðinu Renn- es, Jendrik Herzog frá Stuttgart og Sergej Mandreko frá Rapid Vín. Eyjólfur og samheijar fara í æf- ingabúðir til Seefeld í Austurríki 7. júlí, þar sem þeir verða í tíu daga og leika nokkra æfingaleiki — þar af tvo leiki gegn landsliði ísra- els. Hertha Berlín tekur þátt í keppn- inni um Svartaskógarbikarinn 17. til 20. júlí, ásamt Kaiserslautern, Karlsruhe og Stuttgart Kicker. 28. júní tekur liðið þátt í meistaramóti Opel, ásamt AC Milan, Bayern Múnchen og París St. Germain.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.