Morgunblaðið - 22.08.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.08.1997, Blaðsíða 2
2 B FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ I DAGLEGT LÍF TRÚ á byggð huldufólks hef- ur loðað við Hegranes í Skagafirði og þar eru álaga- blettir eins og víða í íslenskri nátt- úru. Álfatrú og trú á hulin öfl í náttúrunni er ekki fölsk heldur reist á því að fólk hefur „fundið fyrir einhverju" og Valdimar Tr. Hafstein þjóðfræðingur, sem hefur undanfarin ár skráð reynslu fólks af álagablettum og bústöðum, efast ekki um heilindi viðmælenda sinna. Tröllaskarð í Hegranesi vafðist fyrir vegagerðarmönnum fyrir um það bil 20 árum og leiddi það til einhvers furðulegasta og stór- felldasta umstangs sem um getur vegna árekstra við álagablett. Valdimar telur að náttúrusýn Is- lendinga felist í að landið sé lifandi og álfatrúin mótist af virðingu fyrir landinu og að ekki skuli brjóta gegn bannhelgi. Hann telur at- burðina í Hegranesi einstaka og að þeir sýni samningaumleitanir manna við ósýnileg öfl. í atburðarásinni tvinnast saman með óvenjulegum hætti skyggni, miðilsfundir, draumfarir og slys vegna verklegra framkvæmda, og allt vegna þess að kona nokkur, Gríma að nafni, lagði álög á Trölla- skarð sökum deilna við prest ein- hvem tímann á 15. eða 16. öld. Miðilsfundur Hafsteíns á Sauðárkróki Hin óvenjulega saga hófst með miðilsfundi Hafsteins Björnsonar á Sauðárkróki, sem Erla Einarsdótt- ir sat, með setningu að handan sem hljómar svo: „Hvað er að frétta af Tröllaskarði?" Hún kom af fjöllum en frétti síðar að þar ætti að leggja nýjan veg. Erla er gift Gísla Felixsyni, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Sauðárkróki, sem upplýsti hana um að verið væri að mæla fyrir veginum. Hún fór aftur á fund Haf- steins miðils næsta kvöld og sagði handanheimsstjómandanum að nú vissi hún um Tröllaskarðið. Rúnki hét stjórnandinn að hand- an sem starfaði „í gegnum“ Haf- stein, eins og sagt er. Hann til- kynnti Erlu að álög Grímu hvfldu á Tröllaskarði og að dánir væm á móti því að klöppin yrði sprengd. Hefnd fylgdi því. Erla Einarsdóttir fékk þau tilmæli að koma þessum til sölu og í handhægum umbúðum Áfram veginn í einkavæddu andrúmslofti þar sem hinir fjáðu hafa einir tök á þvl að nota lungun! Eða hvað? Helga Kristin Einarsdóttir, viljalaust verkfæri tískukónga og kaupahéðna, hringdi til Lundúna og pantaði súrefni á brúsa. SKYLDI einhvem hafa órað fyrir því að fólk þyrfti að taka upp budduna til þess að fá að draga inn andann? Sú er einmitt raunin á súrefnisbörum Toronto, New York og Los Angeles þar sem tískudrósir og dárar borga um 1.200 krónur fyrir 20 mínútna skammt gegnum slöngu í nefið. Ekki smart, en með á nótunum. Einhverjum kynni að þykja súr- efnissala fjarstæðukennd en er ýkja mikiil munur á henni og tískuvatni á brúsa við öll hugsanleg tækifæri? Flöskuvatnið sigraði heiminn undir formerkjum bættrar heilsu og nú eiga súrefniskaupmenn næsta leik. Einn þeirra, Mohammed Reza Pasdar, framkvæmdastjóri Med- oroux Medical Ltd. í Lundúnum, dreifír svotil hreinu súrefni á litlum dunkum í breskar lyfjaverslanir. 0- PUR heitir vara hans; 160 gramma, átta lítra og 99,5%. Hver brúsi kost- ar um 1.150 krónur og á að duga í tvær vikur, missi viðkomandi ekki stjóm á neyslunni. Allt frá hatti oní skó Fyrirtæki Pasdars selur lyf og sjúkragögn af ýmsu tagi; hjólastóla, tæki til endurhæfingar, sjúkrabíla. „Hjá okkur fæst allt sem þarf á eitt sjúkrahús," segir hann og bætir við máli sínu til stuðnings. „Við höfum 30 ára reynslu af sölu og framleiðslu sjúkragagna." Hugmyndin að brúsasúrefni í handhægum umbúðum kviknaði fyrir fimm árum að sögn Pasdars, sem líka rak læknastofu í Abu Dhabi um þriggja ára skeið. Pasdar segir vöru sína handa fólki sem ekki dugir hefðbundið 21% súrefnishlutfall, til dæmis vegna öndunarerfiðleika, áreynslu, þreytu eða streitu. Þá segir hann gott að hafa birgðir við hendina í þungri umferð, þegar einbeiting dvín, í óhreinu lofti, ósonmengun, loftlausu herbergi og gegn líkam- legu og andlegu sleni. Hvergi er minnst á lánlítil hjóna- bönd. Mælt er með að notandinn súpi stuttar súrefnishveljur fímm til tíu sinnum á dag. „Súrefnið er til hressingar. Hefðbundnir súrefn- iskútar eru mjög þungir og sá sem ætlar að skreppa út eftir dagblaði eða þess háttar getur ekki haldið á slíkum búnaði. Brúsinn okkar er 160 grömm og auðvelt að skreppa með hann út í tíu mínútur til þess að versla." Einnig segir hann súrefnið sitt af bestu gerð, án auka-, bragð-, og lyktarefna. O-PUR dunkarnir eru framleidd- ir í Sviss og segir Pasdar vöru sína hafa náð fótfestu þar, í Frakklandi og Bretlandi. Nýbúið er að gera tvo samninga um sölu, annars vegar á milljón brúsum og 25.000 stykkjum hins vegar, en sala í Bretlandi er um 30.000 eintök á ársgrundvelli. skilaboðum áfram til Vegagerðar- innar, sem hún gerði. Skyggn kona fær skilaboð Framkvæmdh- á veginum hófust en Tröllaskarðið var síðasti spott- inn sem átti að vinna. Handan- heimurinn hófst samt strax handa. Rekstrarstjórinn Gísli Felixson fékk heimsókn ungs bónda á skrif- stofuna sem bar skilaboð frá skyggnri móður sinni. Hún hafði skynjað skartbúinn mann með hund sem varaði mjög við að sprengt yrði fyrir vegarstæðinu. Konan, sem búsett var á ísafirði, þekkti ekki málið en talaði við son sinn í Hegranesi og hann við Gísla. Samningafundir í gegnum miðla Vegagerðarmenn hikuðu við þessi tíðindi en bæði á miðilsfund- inum og hjá huldumanninum kom fram að hefndin yrði í réttu hlut- falli við spjöllin. Ákveðið var að leita liðsinnis Hafsteins miðils og fór Jón Birgir Jónsson, yfirmaður framkvæmdadeildar, Eymundur Runólfsson, starfsmaður hennar, Hákon Sigtryggson, hönnuður veg- arins, Gísli Felixson og Erla Ein- arsdóttir, kona hans, á fund hans. Sennilega hafa fá fyrirtæki á ís- landi staðið í jafnalvarlegum samn- ingaumleitum á íslandi við handan- heimsöfi, en viðleitnin sýnir, eins og Valdimar Hafstein hefur bent á, respekt fyrir steinum. Hafsteinn miðill var tráverðugur og framliðnir kunningjar töluðu við vegagerðarmennina með hjálp Rúnka. Væntanlegum fram- kvæmdum í Tröllaskarði vora gerð greinargóð skil á fundinum og eftir hann vildu vegargerðarmennirnir virða bannhelgina. Hönnuðurinn var samt ekki búinn að gefa upp alla von og gat fengið samstarfs- menn sína til að æskja leyfis huldu- manna og Grímu fyrir nokkrum Ljósmynd/Hjalti Pálsson á miðilsfundi vegna meints álagabletts í Hegranesi Látnir bændur, huldufólk, draumverur og önnur dulin öfl lögðust gegn Valdimars Tr. Hafstein þjóðfræðings að dæma. Gunnar Hersveinn sá eins og í skuggsjá samningaumleitanir Vegagerðarinnar við annan heim á fundi með Hafsteini miðli árið 1977. sprenging- um svo blind- hæðin í Tröllaskarði yrði ökumönn- um ekki afleit. Vegagerðar- mennirnir vegaframkvæmdum í Tröllaskarði við Hegranes - af gögnum Andað úr brúsa Fjarlægið innsiglið af öndun- argrímunni. Losið grímuna af brúsanm. Snúið við og festið grímuna á stútinn. Haldið brúsanum með annarri hendi og þrýstið grímunni að vitunum. Gætið þess að grím- an nái yfir nefið. Andið að og frá með eðiileg- um hætti. Gætið þess að halda við stút- inn með hinni hendinni þegar þið andið svo ekkert súrefni fari til spillis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.