Morgunblaðið - 01.10.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.1997, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA KNATTSPYRNA 1997 MIDVIKUDAGUR 1. OKTÓBER BLAÐ Körfudómarar á faraldsfæti Grikkinn fær ekki leikheimild SVO gæti farið að Grikkinn ungi, Konstantin Tsartsaris, leiki ekki með Grindvíkingum í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik sem hefst á morgun. Tsartsaris er aðeins 17 ára, verður 18 í næsta mánuði, og var á mála hjá grísku félagi, en hefur takmarkaðan áhuga á að vera þar áfram. Félagið vill fá hann og neitar að skrifa undir leikheimild fyrir hann. Grindvíkingar vona að Bos- man-reglan svonefnda nái yfir þetta mál þannig að hann fái leikheimild en FIBA hefur ekki treyst sér til að gefa út leik- heimild. Hjá sambandinu er gömul regla sem segir að leik- menn geti ekki skipt um félög á milli landa fyrr en þeir verða 19 ára, nema með samþykki liðs síns í heimalandinu. Það skýtur nokkuð skökku við að reglan var í upphafi sett til höfuðs Grikkjum þvi þeir tóku svo marga efnilega unglinga frá Júgóslavíu hér á árum áður. KRISTINN Albertsson og Helgi Bragason körfu- knattleiksdómarar eru þessa dagana að dæma ytra í Evrópumótum félagsliða. Kristinn dæmdi í gær, þriðjudag, viðureign belgiska félagsins Charleroi og Libertel Dolphins frá Hollandi í Evrópukeppni bikarhafa og í kvöld verður hann á ferðinni á ný með flautuna á leik Houthalen frá Belgíu og spænska félagsins Taugres í Evr- ópukeppni félagsliða. Helgi var einnig að dæma í gærkvöldi en hann er staddur í Svíþjóð. Fyrri leikurinn var á milli lieimaliðsins Luleá og FMP Zeleznik frá Júgó- slavíu, en viðureign liðanna var í Evrópukeppni bikarhafa. Síðari leikurinn sem Helgi dæmir í ferðinni er í kvöld þegar sænska félagið Astra Basket og pólska liðið Komfort-Forbo eigast við í Evrópukeppni félagsliða. Leifur Garðarsson hefur einnig fengið verkefni við dómgæslu á erlendri grundu. Hann dæmir 21. október nk. leik London Towers og þýska félagsins TVB Tatami Rhönd- orf í Evrópukeppni bikarhafa. ÓLAFUR Adolfsson, einn burðarása Akranesiiðsins sl. ár, lék sinn síðasta leik í efstu deild sl. laugardag er ÍA sótti Keflavík heim. Ólafur sagðist eftir leikinn vera sáttur við að hætta núna þó vissu- lega kveddi hann Akranesiiðið og efstu deild með söknuði. „Þegar ég byijaði að leika með ÍA í 2. deild árið 1991 ætlaði ég bara að vera með í tvö ár, en það teygðist aðeins úr þessu hjá mér,“ sagði Ólafur. „Ástæðan er sú að okkur hefur gengið vel og á þessum tíma hef ég feng- ið fjölmörg tækifæri sem ella hefðu ekki gefist, fimmfaldur íslandsmeistari, fengið tækifæri til að leika með landsliðinu og ýmsar aðrar vegtyllur hafa mér gefist." Hann sagði ennfremur að það hefði verið skemmtilegra að enda á meistarat- itli en að taka við silfrinu, en því miður hefði sú von farið út í veður og vind fyrr í sumar. „Eyjamenn hafa verið sterkastir í sumar likt og við höfum verið síðustu ár og eru vel að titlinum komnir.“ Ólafur flytur nú norður á Sauðárkrók og sagði ekki útilokað að hann léki með Tindastól á næsta sumri. Á myndinni má sjá félaga Ólafs í Akranesliðinu „tollera" Olaf að loknum síðsta leik hans með félag- inu á laugardaginn. Morgunblaðið/Þorkell KORFUKNATTLEIKUR Valur og félagar eru enn á sigurbraut Valur Ingimundarson og félagar hjá danska liðinu BK Odense í Öðinsvéum sigruðu í fyrsta leik sínum í dönsku úrvalsdeildinni, lögðu lið Horsholm 101:97, en Horsholm varð í öðru sæti í deildinni í fyrra. Valur þjálfar og leikur með Odense eins og hann hefur gert undanfarin tvö tímabil. Hann tók við lið- inu í 2. deild og eftir tvö ár er hann kominn með það í úrvalsdeildina; sannarlega glæsileg- ur árangur. „Við setjum stefnuna á að halda okkur í deildinni, annað er fullmikið svona á fyrsta ári. En þessi leikur gekk mjög vel og við íslend- ingamir stóðum okkur ágætlega," sagði Valur í samtali við Morgunblaðið í gær. Auk Vals leika Henning Henningsson og Kristinn Frið- riksson með liðinu og í næsta leik bætist einn við, Pétur V. Sigurðsson. Kristinn var með 21 stig, þar af 3 þriggja stiga körfur í lok- in.Valur 18 og Henning 12. Valur segir talsverðan áhuga á körfuknatt- leik á Fjóni og að liðið hafi fengið góða dóma í dagblöðum þar. En þegar hann hélt til Dan- merkur var ætlunin að fara í nám. „Já, ég byijaði í skóla en svo var svo mikið að gera í körfunni þannig að ég hætti, eða frestaði náminu. Ég ætlaði að vera að gera eitthvað allt annað hér en þjálfa og leika körfubolta, en þetta er svo gaman,“ sagði Valur. Lið hans er komið í 16-liða úrslit bikar- keppninnar, lagði VH 97:62 um helgina þann- ig _að það er nóg framundan. í Þýskalandi gengur hvorki né rekur hjá Bayreuth, liði Jónatans Bow, það tapaði um helgina fyrir Oberelchinge 78:76 á útivelli og geðri Bow 2 stig en Roney Eford var með 23 og er hann í 7. sæti yfir stigahæstu menn deildarinnar. Liðið vann Speyer í bikarkeppn- inni og þar gerði Bow 16 stig og tók 8 frá- köst og Eford var með 15 stig. í Belgíu töpuðu Herbert Arnarson og félag- ar í Antwerpen 84:80 fyrir Pepinster. HLYNUR STEFÁNSSOIM OG ÓLAFUR ÞÓRÐARSON EFSTIR Á BLAÐI / D2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.