Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.11.1997, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Nýjar bækur • KÆRI Keith er eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur. Jóhanna hefur sent frá sér allmargar bækur, skáldsögur, ferðasögur og met- sölubókina Perlur og steinar sem fjallar um stormasöm hjónabandsár hennar og hins þjóðþekkta rit- höfundar, Jök- uls Jakobsson- ar. I bókinni Kæri Keith segir Jóhanna frá ástarsam- bandi sínu við kvæntan mann, Keith R. Flatman, stjórnarformann og framkvæmda- stjóra tryggingarfélags í Sydney í Astralíu. „Þau hittast fyrir tílvilj- un á hótelbar í London, taka tal saman og eiga saman ástarfund. I framhaldi af því hefja þau bréfa- skipti sem ganga í fyrstu stirðlega en að því kemur áð þau ákveða að hittast aftur í fjarlægu heimshorni og þar með fer samband þeirra að verða meira,“ segir í kynningu. Útgefandi er Fróði. Kæri Keith er 152 bls. Kápu hannaði Hildur Bjömsdóttir. Bókin er prentuð og bundin í Prentsmiðjunni Odda hf. Verð kr. 2.990 m. vsk. • DUGGA frönsk og framboðs- fundir - Nokkrir þættir um fólk- ið og lífíð í landinu - er eftir Vil- hjálm Hjálmarsson fyrrverandi menntamála-ráðherra. I kynningu segir: „Vil- hjálmur fer á kostum sem sögumaður eins og löngum fyrr. Hann rekur forvitnilega ástar- og ör- lagasögu fransks skip- stjóra og ís- lenskrar heimasætu á 19. öld, rifjar upp snjöll tilsvör og fyndin atvik á framboðsfundum, greinir frá for- sögu tengingar hringvegar 1974 og forvitnilegum umræðum hvort brýr á Skeiðarársandi geti staðist hlaup, segir frá skörpum ágrein- ingi um hentugustu „sjávargötu" Héraðsbúa - og lýsir dæmigerð- um tilburðum strjálbýlisfólks við „vegarruðslu“ um torleiði áður. Utgefandi er Æskan. Bókin er 214 bls. með fjölda mynda. S. Jóna Hilmarsdóttir setti texta og braut bókina um. Prentsmiðjan Oddi hf. annaðist filmuvinnu, prentun og bókband. Ljósmynd á kápu (af duggum) tók Björn Björnsson. XYZETA auglýsinga- stofa hannaði kápu. • MEÐ bros í bland - minninga- brot er heiti bókar Magnúsar Óskarssonar, íyrrverandi borgar- lögmanns. í bókinni lítur Magnús yfir sviðið og rifjar upp kynni sín af „skemmti- legum og merkilegum mönnum"; seg- ir frá fyndnum atvikum, skrítnum lög- fræðimálum og ferðalögum víða um heim, Magnús svo dæmi séu Óskarsson nefnd um efni bókarinnar. Meðal þeirra sem hann nefnir til sögunnar eru Gunnar Thoroddsen, Ólafur Thors, Ólafur Jóhannesson, Guðmundur Jaki, Gunnar Huseby og Sverrir Her- mannson. Skáldin Steinn Stein- arr, Tómas Guðmundsson og Jök- ull Jakobsson koma við sögu ásamt Jónasi stýrimanni, Sigurði Ólasyni hrl. og fleiri starfsbræðr- um og samstarfsmönnum Magn- úsar. Ymsir kynlegir kvistir eru Magnúsi einnig hugleiknir eins og Pétur Hoffmann, Ljón Norðurs- ins, Stefán frá Möðrudal og Lási kokkur að ógleymdum Jóni kadett. „Magnús dregur upp ógleyman- lega mynd af Akureyri æsku sinn- ar og honum eru háskólaárin eft- irminnileg. Hann rifjar upp gam- ansamar sögur frá síldarsumrum til sjós og lands og segir meðal annars hlýlega og skemmtilega frá Raufarhöfn og fólkinu þar“, segir í kynningu. Útgefandi er Bókafélagið. Bók- in er 248 bls., prýdd 50 ljósmynd- um. Leiðbeinandi verð er kr. 3.480. Jóhanna Kristjánsdóttir Jólahlaðborð Listaskálans í Hveragerði Nú þcgar aðventan nálgastkominn t,ími til að huga að jólastemmningunni ;Og þeim góðu kræsingum er herini fylgja. Pé eru.fáir staðir betur.upplagðir heldur en Lislaskálinn i Hveragerði þar sem hlaðborðið avignar undan krásunum og jólagleðin ræður ríkjum. Jólahlaöborðjð býrjar 27. nóvember og vefóur allar helgar fram. til 21 desember. Hláþpíðið bjóðjim viðjíka. Jiópum,./)'rir.20 manns og íléifi 'alla vifka daga. <Skötuveisla verður á hádcgi borláksmessu þarscm v estfirsk skata, hnöðmör og hamsar vcrða é borðum. ftúist er við'góðri:þátttöku, tryggið jkkur því borð tímanlega og njotið hátiðanna. Listflskálínn í Hveragerði, Austurmörk 21, 810 Hveragerði. ftorðapantanir í síma 483 4858. Fax 483 4857. CYNDY Sherman, án titils, 1981. Leikhús raunsæisins MYNPLIST Kjarvalsstaðir LJÓSMYNDAVERK 30 AMERÍSKIR LJÓSMYNDARAR Opið alla daga frá 10-18. Til 22. nóv- ember. Aðgangur 300 krónur. Sýn- ingarskrá 1.200 krónur. „LÍFIÐ sjálft er ekki raunveru- leikinn, Það erum við sjálf sem gæð- um stokka og steina lífi.“ Frederick Sommer. Það er mikilvæg framkvæmd sem Kjarvalsstaðir bjóða uppá og nefn- ist, Að skapa raunveruleikann, „Making it real“ og er farandsýn- ing. Kemur frá The Aldrich Muse- um, Connecticut og heldur aftur til Bandaríkjanna og fleiri borga þar. Hefur með nýja sýn á ljósmyndinni að gera, helst afmarkað svið leik- rænna tilfærslana á veruleikanum allt um kring. Gerendurnir eru þá sjálfir að búa til raunveruleika, sjónrænar blekkingar, frekar en að endurvarpa honum ómenguðum til skoðandans og þó er þessi mynd- heimur ofurraunsær hvað ytra byrði snertir. Bæði er verið að hnika til því sem er í næsta sjónmáli og gera myndefnið á sinn hátt áhugaverðara með ýmsum brögðum tækninnar, ekki síst tölvunni og stafrænni ljósmyndun. Einnig leitað til eldri aðferða í bland. Ljósmyndin í sjálfri sér túlkar mikinn sannleika, en um leið er mögulegt að umtuma þessum sann- indum, ljósmynduðum viðfangsefn- um, á marga vegu og búa til nýjan heim, skáldaðan raunveruleika. Inn- an handar að brengia, mistúlka og falsa eins og hver og einn hefur viija og hugarflug til. Þetta er engin ný uppgötvun, en hátækni nútímans hefur heldur betur margfaldað þessa möguleika á undanfömum ár- um og það færa menn sér eðlilega í nyt. A seinni áram hefur ljósmyndin öðlast sérstakan sess í myndlistar- heiminum eins og víða sér stað, og listrænar ljósmyndir eru jafnt farn- ar að keppa við máiverkið á upp- boðum beggja vegna Atlantsála sem á hinum stóru listakaupstefn- um svo sem í París, Köin og Berlín. Það er um leið ekki lengur neitt feimnismál, að myndlistarmenn hafa stuðst við ljósmyndatæknina og ýmis sjónræn, optísk, tækni- brögð í gerð myndverka sinna um aldaskeið. Hér er þannig um ná- skylda miðla að ræða, sem báðir hafa ótvíræða og markaða yfirburði yfir hinn innbyrðis, en um leið er í flestum tilvikum snöggtum annað hugsæi á bak við stílfærsluna. Ann- ars vegar era yfirburðir hinnar köldu, optísku, tækni við að fanga raunsæa mynd af umhverfi og at- burðum, hins vegar hin sérstaka mannlega skynjun á andrúminu á vettvangi, sem er aldrei nákvæm- lega hið sama frekar en fingraförin. Því sérstæðari og þroskaðari skynj- un, þeim mun magnaðri og háleitari útkoma. Sérstaða og markaðir yfirburðir ljósmyndavélarinnar koma afar vel fram á sýningunni, sem sam- anstendur mikið til af ljósmyndum í yfirstærðum, einkum em þær í tengiálmunni áhrifaríkar fyrir lif- andi niðurröðun. Hér sjáum við meðal annars tvær myndir hinnar víðfrægu Cindy Sherman, sem á verk á flestum meiri háttar mynd- listarsýningum úti í heimi, var m.a. með afar sterka myndaröð á hinni mikiu sýningu á módernistum ald- arinnar í Berlín nú í sumar. Ekki veit ég til þess að myndir hennar hafi verið sýndar áður hérlendis, er því í sjálfu sér drjúgur viðburður, og einar sér tilefni til að gera sér ferð á staðinn. Á veggnum and- spænis vekja myndir þeirra Sandy Skoglund og Boyd Webb óskipta at- hygli, annars vegar íyrir grófa efn- islega fyrirferð, andlegt eðli holdi klætt, en hins vegar gagnsæja og loftræna útfærslu eggjarauða á bakka, þar sem lýsingin kemur inn- an frá í þá vem að ljós og litur stafa frá myndunum líkast sjálfslýsandi röntgengeisla. Hvemig töfra má fram raunveru- leika er hinn hvassi sjónræni skurð- ur myndarinnar af Victoríu drottn- ingu eftir Hiroshi Sugimoto skýrt dæmi, og mynd hans af Elisabetu Taylor er engu síðri. Laurie Simm- ons lætur leikbrúður túlka depurð, vonbrigði, vanmetakennd og eftir- sjá. Hún finnur fullkomna hvfld í andlitum brúðanna og hinni stirðn- uðu leikrænu depurð. Flókna og há- leita tilfinningu sem hún telur mun æðri gleði og hryggð. Hér er sem svo oft á sýningunni um sviðsett og leikræn fyrirbæri að ræða þótt út- færslan tengist hefðbundnum gild- um á borð við myndbyggingu og fjölbreytni í frásögn ásamt fegurð í ljósmyndun. Allt annars og huglæg- ara eðlis em öskumyndir Charles Griffins, sem snúast um að endur- vekja lífsanda og orku látins vinar sem er fallin frá. Þær lýsa tilraun til að „skapa raunveruleika“ í þeirri von að upp spretti nýtt samband, eins og listamaðurinn orðar það. Á svipuðu róli eru ruslteikningar Mi- ke Kelly, af einhverju sem ekki virðist eiga sér form en hefur þó einhvers konar útlit. Catherine Chalmers notar formaldehyd til að bregða upp lífrænum fyrirbærum úr náttúraríkinu og skordýramynd- ir Gregory Crewdson búa yfir sér- stæðri fegurð. Loks er rétt að vekja athygli á andstæðunum í hinum ströngu byggingarfræðilegu mynd- um Thomas Demands og hinni mjúku óformlegu áferð í myndum Jan Henle frá umturnaðri kaffi- ekru, ekkert upphaf, enginn endir. Hér voru einungis nokkrir hinna ágætu ljósmyndara taldir upp til að bregða ljósi á fjölbreytni sýningar- innar, sem era kostir hennar, en hins vegar er hún um margt erfið fyrir hinn almenna sýningargest. Hún telst á einn veg full fagleg og sértæk á köflum, en er þannig séð mikill hvalreki fyrir atvinnuljós- myndara og eldheita áhugamenn í faginu. Bót í máli er að hinn al- menni skoðandi fær tækifæri til að setja sig vel inn í aðferðir og hug- myndir einstakra listamannanna, þvi á veggjunum eru víða skilmerki- legar útskýringar á myndferlinu. Þetta ættu sem flestir að nýta sér og þá er meira en óhætt að mæla með innliti á staðinn, vísa loks til nýrrar upphengingar á myndum Kjarvals í Áustursal. Bragi Ásgeirsson Morgunblaðið/Jón Svavarsson FÉLAGAR í Kór Félagsstarfs aldraðra. Sönghátíð í Ráðhúsinu KÓR Félagsstarfs aldraðra í Reykjavík heldur sönghátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur á sunnudaginn, 16. nóvember, klukkan 15. Söngstjóri er Sigurbjörg P. Hólmgrímsdóttir og undirleikari Sigurgeir Björgvinsson. Á efnisskránni eru létt íslenzk lög og erlend, m.a. lög eftir söngstjórann. Kórinn er blandaður kór og í sumum laganna skiptist hann upp í karlakór og kvennakór.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.