Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.11.1997, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson Snemma beygist krókurinn JÓN Axel hefur mikinn áhuga á körfubolta og á ekki langt að sækja þann áhuga. Hér undirbýr þessi eins árs körfuboltamaður skot af stuttu færl enda boltinn bæði stór og þungur. Gaman að kljást viðþástóm Guðmundur Bragason er fyrirliði íslenska lands- liðsins í körfuknattleik og varafyrirliði hjá BCJ Hamborg í Þýskalandi bar sem hann er á sínu öðru ári sem atvinnumaður. Hann sagði í viðtali við Skúla Unnar Sveinsson á dögunum að fjöl- skyldunni liði vel í Hamborg og að talsvert væri upp úr atvinnumennskunni að hafa þó að hann yrði enginn milljónamæringur. Tólf æfing- ar á viku LEIKMENN BCJ Hamborg æfa tólf sinnum í viku. Æft er á hveiju kvöldi, nema hvað menn eiga frí á sunnudags- kvöldum. Skotæfingar eru þrisvar í viku og svo er ætl- ast til að menn fari í Iyftinga- salinn þrisvar í viku og ráða menn hvenær það er gert. „Það er alveg nóg að gera en samt gæti maður vel verið í skóla eða vinnu hálfan dag- inn,“ segir Guðmundur, en hann og Sirrý eru tvo tíma á dag í þýskunámi. Áratug í lands- liðinu GUÐMUNDUR Bragason á 130 landsleiki að baki en fyrsta landsleikinn lék hann 3. janúar 1987 við Svía í Stokkhólmi og tapaði ísland honum með einu stigi 71:72. íslenska landsliðið hefur alls leikið 325 landsleiki og eftir að Guðmundur lék sinn fyrsta leik í upphafi árs 1987 hefur hann aðeins misst af 13 leikjum. Hann er í fjórða sæti hvað fjölda landsleikja varðar en á miðvikudaginn kemst hann að hlið Torfa Magnússonar, fyrrum lands- liðsþjálfara úr Val, með 131 leik. Landsliðsþjálfarinn, Jón Kr. Gíslason, er I öðru sæti með 158 landsleiki og Valur Ingimundarson hefur leikið 164 landsleiki. Nóg að gera hjá Stefáníu STEFANÍA Ásmundsdóttir, „au pair“ stúlka hjá Guð- mundi og Sirrý, hefur nóg að gera. Hún gætir Jóns Ax- els þegar foreldrarnir eru að læra þýskuna og æfir og keppir með meistaraflokki Bergerdorf ásamt Sirrý, og einnig unglingaliði félagsins. Það er því nóg að gera hjá hinni hávöxnu körfubolta- konu. Sjaldan fellur eplið... ÞAÐ sannast hjá Guðmundi og Sirrý að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Sonur þeirra, Jón Axel sem er eins árs, er „gjörsamlega sjúkur í körfubolta," eins og Stefan- ía „au-pair“ stúlka orðaði það. Hún sagði að hann væri aldrei stilltari en þegar hann sæti í kerrunni sinni í íþrótta- húsinu og horfði á leik eða æfingu. Blaðamaður Morg- unblaðsins fékk lítillega að kynnast þessu því snáðinn linnti ekki látunum fyrr en við vorum komnir I körfu- bolta, bæði í eldhúsinu og í stofunni. Og hann, þ.e.a.s Jón Axel, er greinilega mikið efni. Guðmundur Bragason, fyrirliði íslenska landsliðsins í körfu- knattleik, er á öðru ári sínu sem atvinnumaður í íþróttinni, Hann leikur með Hamborg í Þýskalandi, eða BC Johanneum Hamborg Tig- ers eins og liðið heitir fullu nafni, og er einn af burðarásum liðsins. Það kemur þeim sem þekkja Guð- mund ekki á óvart því hann er mik- ill baráttumaður og stendur jafn- framt fyrir sínu þó að hann þurfí stöðugt að eiga við sér talsvert stærri menn. Guðmundur hefur komið sér þægilega fyrir ásamt eiginkonu sinni, Stefaníu Jónsdóttur eða Sirrý eins og hún er kölluð, í einu út- hverfi Hamborgar, skammt frá íþróttahúsinu. Þar una þau sér vel ásamt syninum Jóni Axeli, sem varð eins árs 27. október þegar Morgunblaðið heimsótti þau. Á heimilinu býr einnig „au-pair“ stúlkan Stefanía Ásmundsdóttir, sem er nýorðin 17 ára, en þær nöfn- ur léku körfuknattleik með Grinda- vík áður en haldið var til Hamborg- ar og leika nú báðar með Berger- dorf í 3. deildinni í Þýskalandi. Áður en Guðmundur hélt til Hamborgar í atvinnumennskuna hafði hann alla tíð leikið með Grind- víkingum og verið fyrirliði liðsins í nokkur ár og tók sem slíkur við íslandsbikarnum á vordögum 1996. „Það hafði alltaf verið draumur minn að spreyta sig í atvinnu- mennskunni og þegar reglunum var breytt í kjölfar Bosman-málsins sá maður tækifærið og ákvað að prófa,“ segir Guðmundur. Á f lakki í rúman mánuö Hann er menntaður rafeindavirki og vann í eigin fyrirtæki í Grinda- vik og gerði þar við siglingatæki skipa og ýmis heimilistæki með. „Þetta var dálítið erfitt því það gekk vel í fyrirtækinu, en ég gat leigt það þannig að við ákváðum að slá tii eftir miklar vangaveltur. Tómas Tómasson í Keflavík og Sig- urður Hjörleifsson [umboðsmenn körfuknattleiksmanna] töluðu við mig og töldu líklegt að hægt væri að koma mér að. Þá fór ég að velta þessu fyrir mér fyrir alvöru og við hjónin ákváðum að slá til. Ég fékk ágætt tilboð frá London Towers í Englandi og æfði með þeim í þijár vikur og fór síðan í viku æfíngaferð til Ítalíu. Samning- urinn var tilbúinn til undirritunar og það var búið að komast að sam- komulagi um ákveðin laun eftir skatta og annað en síðan vildu þeir breyta því þannig að ég ætti að borga skatt af laununum og þá lækkaði upphæðin um 35%. Ég var ekki alveg sáttur við það auk þess sem Englendingar heimila fimm SJÁ BLS. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.