Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.01.1998, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA 1997 ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1998 BLAÐ B KNATTSPYRNA Jón Amar til Belgíu Jón Amar Ingvarsson, lands- liðsmaður úr Haukum, hefur gert samning við belgíska 1. deild- ar félagið Castors Braine um að leika með félaginu út þetta tíma- bil. ,A-uðvitað er maður spenntur að prófa eitthvað nýtt. Ég hef leik- ið með Haukum alla tíð og hef ver- ið í meistaraflokki í tíu ár. Ég þekld ekkert annað og ekki félagið heldur,“ sagði Jón Amar í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann sagði að umboðsskrifstofa hefði haft samband við sig á gaml- ársdag og gengið hefði verið frá málinu um helgina. „Ég fer út á þriðjudag eða miðvikudag og þarf að standast læknisskoðun hjá lið- inu, en ég er búinn að skrifa undir samning þannig að þetta er allt frágengið," sagði Jón Amar. Hann sagði að félagið, sem varð í þriðja sæti í deildinni í fyrra, sé í neðsta sæti um þessar mundir. „Það vora tveir Bandaríkjamenn í liðinu fyrir áramót, leikstjórnandi og miðherji, en leikstjómandinn var látinn fara um áramótin og ég kem í hans stað. Annar Banda- ríkjamaður var fenginn og leikur hann stöðu framherja þannig að þetta ætti að vera nokkuð spenn- andi og gott tækifæri fyrir mig að sýna mig. Þjálfari liðsins er fyrr- verandi landsliðsþjálfari Belga þannig að ég er mjög spenntur að takast á við þetta verk,“ sagði Jón Amar. Hann hefur verið lykilmaður hjá Haukum undanfarin ár og því hlýtur það að vera mikill missir fyrir liðið að hann skuli vera á fór- um. „Jú, þetta er bölvanleg staða, en ég samgleðst honum að komast til útlanda að spila,“ sagði Einar Einarsson þjálfari Hauka í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við höfum ekki marga sem geta tekið við stöðu leikstjómanda af Jóni Arnari, en við verðum að venjast því að leika án hans. Við sláum Grindavík út úr bikarkeppninni um næstu helgi og sjáum svo til því óneitanlega er þetta dálítið sérstök staða, en við verðum að vinna úr henni,“ sagði Einar. SUND íslandsmet hjá Láru Hrund Lára Hrund Bjargardóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar, setti íslandsmet í 400 m baksundi á Jólametamóti SH í Sundhöll Hafnarfjarðar 29. desember sl. Lára synti á 5.05,11 mín. og bætti gamla metið veralega en það var 5.21,73 í eigu Margrétar Bjarnadóttur, Ægi, sett 19. desember 1991. Þessi tími Lára er jafnframt stúlknamet og gamla metið var hið sama og Islandsmet- ið. Þetta er annað Islandsmetið sem Lára setur, en hún hefur verið að sækja veralega í sig veðrið í sundlaugun- um á síðustu misseram. A sama móti setti karlasveit SH Islandsmet í 4X100 m flugsundi, synti á 4.01,38 mín. og bætti gamla metið sem karlasveit Ægis setti 1994 um tæpar 4 sek- úndur, en það var 4.05,37 mín. Sveit SH skipuðu að þessu sinni: Hjalti Guðmundsson, Þorvarður Sveinsson, Ómar Snævar Friðriksson og Davíð Freyr Þórannar- son. Enn bætist f Kópinn á ÍR-mótið ENN bætast íþróttamenn í hóp þeirra sem mæta til leiks á frjálsíþróttamót ÍR í Laugar- dalshöll 24. janúar nk. Nú hefur þýski gi’inda- hlauparinn Ingeborg Leschnik samþykkt að koma og etja kappi við Guðrúnu Arnardóttur, Ármanni, í 50 m hlaupi með og án grinda. Leschnik hefur best hlaupið 100 m grinda- hlaup á 13,15 sekúndum sem er ívið betra en íslandsmet Guðrúnar er í greininni, en það er 13,18 sek. Má því búast við hörkukeppni þeirra í milli í þessum tveimur greinum. Þá á hún best 11,61 sek. í 100 m hlaupi. HANDKNATTLEIKUR: LANDSLIÐIÐ TIL EGYPTALANDS? / B5 Reuters | VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN 03.01.1998 12, Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæö 1 . Saf 5 2 1.428.130 r\ 4 af 5 p /L. plús L 70.960 3.4a,s 121 7.080 4. 3 af 5 3.662 540 Samtals: 3.792 1.506.710 HEILDARVINNINGSUPPHÆÐ: 6.187.140 IviNNINGSTÖLUR MIÐVIKUDAGINnJ 31.12.1997 AÐALTÖLUR 17W18W22; 25M30M42 BONUSTOLUR ® Lottómiiarnir með 1. vinningi í aðalútdrættinum sl. laugardag voru seldir í Söluturninum Bltabæ við Ásgarð í Garðabæ og Hýung við Hafnargötu í Keflavík. Lóttómiðinn sem gaf kr. 1.000.000 í aukaútdrætti var seldur í Mat og myndum við Freyjugötu í Reykjavík @ Næsti aukaútdráttur verður miðvikudaginn 11. mars í tilefni 5 ára afmælis Víkingalottós. Næsti aukaútdráttur í Lottói 5/38 verður laugardaginn 20. júní í tilefnl sumarsðlstaða 21. júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.