Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.02.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR1998 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Olafur Gottskálksson Hibernian Kristján Finnbogason AyrUtd. Bjarni Guðjónsson Newcastle ' Arnar Gunnlaugsson Bolton Leikir landsliðsins: 5. feb. Slóvenía - ísland 7. feb. Slóvakía - ísland 9. feb. ísland - ? / Auk þessara þjóða taka þátt í mótinu landslið Kýpur, Noregs og Finnlands Lárus Orri Sigui Stoke. Hermann Hreiðarsi Crystal Palace Landsliðsmenn úr öllum áttum ísienska landsliðið / í knattspyrnu tekur þátt í 6 þjóða keppni á Kýpur 3.-10. febrúai __ ■ HERMANN Hreiðarsson og fé- lagar í Crystal Palace töpuðu 2:0 fyrir Leeds í ensku úrvalsdeildinni í knattspymu og hafa ekki unnið deildarleik á heimavelli á tímabilinu. „Þeir skoruðu snemma tvö mörk og þar við sat þótt við höfum sótt meira,“ sagði Hermann. ■ HERMANN, sem lék allan tím- ann að vanda, var besti maður Palace að mati enskra dagblaða. Hann var nálægt því að skora í leiknum; Nigel Martin varði frá- bærlega eftir að Hermann skallaði að marki. „Við erum í stórum pakka við botninn og verðum að fara að hala inn stig,“ sagði hann við Morg- unblaðið. ■ BOLTON stendur illa að vígi í ensku úrvalsdeildinni, er í næst neðsta sæti með stigi minna en Tottenham og Crystal Palace en stigi meira en Barnsley. Félagið tapaði 1:5 heima fyrir Coventry um helgina. ■ „ÞETTA var hrikalegt," sagði Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton, sem lék ekki vegna leikbanns en Arnar Gunnlaugsson spilaði ekki heldur með Bolton vegna meiðsla í nára. ■ SIGURÐUR Jonsson lék mjög vel FOLK með Dundee United, þegar liðið tap- aði 0:2 fyrir Hearts í Skotlandi. Sig- urður var nálægt því að skora í leiknum. ■ GUÐNÝ Eyþórsdóttir, sprett- hlaupari úr Ht, setti tvö stúlknamet á Gautaborgarmótinu um helgina. Hún hljóp 60 metrana á 7,81 sek. og sigraði í flokki 18 ára og yngri. Hitt metið setti hún í 200 metra hlaupi, sem hún hljóp á 25,23 sek. ■ SVEINN Ernstsson úr ÍR náði besta árangri sínum í 1.500 metra hlaupi á sama móti, hljóp á 4.00,56 mín. og var Gautaborgarmeistari. Þetta er betri tími en Sveinn hefur náð í 1,500 m hlaupi utanhúss. ■ TÓMAS Hilmarsson úr ÍR, sem er aðeins 18 ára og býr í Gautaborg, varð annar í hástökki, stökk 1,85 metra. ■ ROMAN Serble sigraði í sjöþraut á meistaramóti Tékklands sem fram fór um liðna helgi. Hann fékk 6.132 stig sem er hans besti árangur í greininni. ■ TOMAS Dvorak heimsmeistari í tugþraut og Robert Zmelik heims- meistari í sjöþraut náðu sér ekki á strik. Þess vegna eiga tékklensk frjálsíþróttayfirvöld í vanda; hvorn eiga þeir að senda með Serble til keppni í sjöþraut á heimsmeistara- mótinu í Valencia um næstu mán- aðamót? ■ MAURICE Green frá Bandaríkj- unum og heimsmeistari í 100 m hlaupi karla utanhúss jafnaði um helgina heimsmet landa sín Andre Casons í 60 m hlaupi á móti í Stutt- gart. Green hljóp á 6,41 sek. ■ ÞÝSKA handknattleiksliðið Lemgo hefur framlengt samninginn við ungverska landsliðsmanninn Laszlo Marosi í eitt ár, til loka keppnistímabilsins vorið 1999. Marosi er nú á 36. ári. ■ PHILLIP Cocu, hollenski lands- liðsmaðurinn hjá PSV Eindhoven, hefur gert þriggja ára samning við Barcelona og fer til liðsins eftir þetta keppnistímabil. Cocu er 27 ára miðvallarleikmaður og hefur leikið 15 landsleiki fyrir Holland. HVATNING Island á ekki marga afreksmenn í íþróttum en vel er gert við þá sem skara fram úr. Fyrst og fremst ber að þakka íþrótta- og Ólympíusambandi íslands og samstarfsfyrirtækjum þess. í lið- inni viku ákvað Afreksmanna- sjóður ÍSÍ að veita nokkrum sér- samböndum tæplega 16 milljónir króna í ár vegna ákveðinna íþróttamanna. Helsta afreksfólkið, tveir frjálsíþróttamenn og einn skíðamaður, fær hvert um sig 160.000 kr. á mánuði úr þessum sjóði. Það getur því helgað sig íþrótt sinni án þess að þurfa að halá áhyggjur af því hvort endar nái saman. Það eru forréttindi sem annað íslenskt af- reksfólk í íþróttum hefur ekki bú- ið við. Við fyrrnefnt tækifæri undir- ritaði ÍSÍ samstarfssamning við þrjú fyrirtæki um stuðning við af- reksíþróttir fram yfir Ólympíu- leikana í Sydney 2000. í ólympíu- fjölskyldunni, eins og samstarfið er nefnt, eru Flugleiðir, íslands- banki og Visa ísland, fyrirtæki sem hafa stutt vel við bakið á íþróttahreyfingunni á liðnum ár: um en bæta nú um betur. ÍSÍ metur samninginn á um sjö millj- ónir króna á ári sem renna beint til íslensks afreksfólks og ís- lenskrar afreksíþróttastefnu. Það munar um tuttugu og eina milljón á þrenmr árum og til að fyrir- byggja misskilning skal þess get- ið að þetta er viðbót við Afreks- mannasjóðinn. Þegar rætt er um afreksfólk í íþróttum einskorðast umræðan yfirleitt við einstaklinga enda eðlilegt - hafi landinn skarað framár í alþjóða keppni hefur í nær öllum tilvikum verið um íþróttamenn í einstaklingsgrein- um að ræða. Að sama skapi hafa styrkir Afreksmannasjóðs að mestu leyti verið eyrnarmerktir ákveðnum íþróttamönnum. Hins vegar var gerð breyting á starfs- reglum sjóðsins ekki alls fyrir löngu. Sjóðurinn styrkir landslið - íþróttahóp sem hefur skipað sér í hóp 16 bestu íþróttaflokka í heiminuni í sinni íþróttagrein - sem er að búa sig undir áfram- haldandi keppni. Landsliðið í handknattleik nýtur góðs af þess- ari breytingu. Afreksmannasjóður ÍSÍ er mjög mikilvægur og samræmdur stuðningur stórfyrirtækja við af- reksstefnuna sýnir hug þeirra í verki. Hins vegar verður sú spurning æ áleitnari hvort ekki sé kominn tími til að leita leiða til að styrlya bestu félagsliðin, íslands- meístai-a í handknattleik, knatt- spymu og körfuknattleik, vegna þátttöku í Evrópukeppni. Starfs- reglur Afreksmannasjóðs ná ekki yfir félagslið en ljóst er að þátt- töku í Evrópukeppni fylgir mikill kostnaður. Reyndai- fá knatt- spymuliðin útlagðan kostnað í keppninni endurgreiddan frá Knattspyrnusambandi Evrópu en til að eiga möguleika á árangri hafa þau talið nauðsynlegt að búa sig undir átökin í æfingabúðum erlendis þar sem aðstæður heima fyrir eru ekki fyrir hendi á undir- búningstímanum. Þetta hlýtur að vera næsta skref í stuðningi við afreksíþróttafólk. Steinþór Guðbjartsson íslenskt afreksfólk í íþrótfum er vel styrkt til frekari dáða Ber Njarðvíkingurinn ÖRLYGUR STURLUSON körfuknattleikshæfileikana íblóðinu? Sjálfstraustið hefur aukist TÆPLEGA sautján ára leikstjórnandi Njarðvíkur í körfuknatt- leik, Örlygur Sturluson, komst óvænt í byrjunarliðið hinn 7. desember sl., er liðið lék gegn Skagamönnum, og hefur haldið sæti sínu síðan. Síðastliðinn fimmtudag gerði hann sigurkörf- una i jöfnum leik gegn Haukum í Hafnarfirði þar sem Njarðvík vann með eins stigs mun. Svo virðist sem körfuknattleik- br sé Örlygi í blóð borinn. For- eldrar hans eru þau Sturla Örlygs- ■■■■■■I son og Særún Lúð- Eftir víksdóttir en Sturla Edwin Jék áður með Rögnvaldsson Njarðvík við góðan orðstír og Teitur, bróðir hans, leikur sem kunnugt er við hlið Örlygs bróðursonar síns í græna búningnum. Þá lék Gunnar Örlygsson, bróðir Teits og Sturlu, einnig með liðinu um tíma. Örlygur er ekki í skóla sem stendur en hef- ur hug á að leika með bandarísku menntaskólaliði áður en langt um líður. Örlygur hafði aldrei verið í leik- mannahópi Friðriks Rúnarssonar, þjálfara meistaraflokks karla í Njarðvík, áður en hann valdi bak- vörðinn unga í byrjunarliðið fyrir leikinn við IA á Akranesi á dögun- um. Veit Örlygur hvemig stóð á því? „Nei, þetta er alveg ótrúlegt. Friðrik er óútreiknanlegur en hann kann vissulega að þjálfa,“ segir Örlygur. Lá ekki beint við að fara í körfuknattleik þar sem þú ólst upp innan um alla þessa körfubolta- menn? „Jú, þetta er í blóðinu. Ég fór oft með pabba á æfingar þegar ég var lítill. Ég byrjaði að æfa fyrir al- vöru þegar ég var átta eða níu ára. Ég er ekki alveg viss um hvort ég hafi verið sendur á æfingu eða far- ið af sjálfsdáðum en vitaskuld hafði ég áhuga á körfubolta eins og margir aðrir í fjölskyldunni. Að auki stundaði ég knattspyrnu með Njarðvík um nokkurt skeið - sem markvörður.“ Hafa skyldmenni þín verið iðin við að ráðleggja þér varðandi leik þinn? „Já, mamma gefur mér oft holl ráð sem snúa að sálfræðilegu hlið- inni og pabbi er auðvitað búinn að kenna mér öll helstu grundvallar- atriðin. Ég á heima í Keflavík og móðir mín var ávallt reiðubúin að keyra mig á æfingar." Telurðu ekki að það geti reynst jafn ungum manni og þér hættu- Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ÖRLYGUR Sturluson, bakvörðurinn ungi. „Þetta er í blóðinu. Ég fór oft með pabba á æfingar þegar ég var lítill." legt að njóta svo skyndilegrar vel- gengni? „Jú, það getur eflaust verið mjög hættulegt. Maður verður bara að nota höfuðið og koma sér niður á jörðina. Það þýðir ekkert að vera með einhverja „töffarastæla" en ég vil bæta mig og stefni því að því að komast í menntaskóla í Bandaríkj- unum.“ Nú gerðir þú sigurkörfuna í leik gegn Haukum sl. fimmtudag. Hvaða þýðingu telurðu að það haíi fyrirþig? „Sjálfstraustið eykst vitaskuld mikið við það eitt að vita að maður getur skorað svona þýðingarmikla körfu. Þá ætti maður að geta skor- að oft. Ef ég get skorað á svo mikil- vægu augnabliki get ég skorað hvenær sem er.“ Hefur þú ailtaf verið leikstjórn- andi? „Nei, í rauninni ekki nema síð- ustu tvö árin eða svo. Ég var lengst af „kantmaður", þ.e.a.s. í skyttu- hlutverkinu, en ég get alveg leikið báðar stöður.“ Hvað fínnst þér um gengi Njarð- víkurliðsins í vetur og hvaða vonir gerirðu þér um það sem eftir lifír tímabils? „Við höfum verið að leika mjög vel og vinna mikilvæga sigra en þess á milli höfum við tapað stórt. Við höfum mjög sjaldan unnið tvo leiki í röð.“ Veistu nokkuð af hverju það er? „Ég er ekki viss, hugsanlega einbeitingarleysi. Við erum ekki nógu stöðugir en það er hægt að laga það. Eg held að við komum sterkir til leiks í úrslitakeppn- inni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.