Morgunblaðið - 11.02.1998, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
NORÐUR-AMERÍKU
PLATA
Jjörnes-
brotábeltiö
kjálftabetti
lUÖuriands
EVRO-ASIU
PLATA
Jarðskjálftasvæðin
Landið er fagurt og frítt,
og fannhvítir jöklanna tindar
himinninn heiður og blár
hafið er skínandi bjart
ÞANNIG lýsti Jónas
Hallgrímsson landinu
okkar, og þannig viljum
við hafa það. Við íyllumst
líka stolti þegar heims-
byggðin horfír hingað á
1 náttúruna leysa úr læð-
ingi sinn innri kraft, stolti
yfir því að eiga hlutdeild í
þessu öllu saman. Oðru
hverju erum við svo
minnt á ógnina sem okk-
ur stafar af hamforum
náttúrunnar. Kannski er
sá staðui- ekki til hér á landi þar sem
engin ógn stafar af henni. Með þessari
ógn verðum við að lifa eins og með
fegurðinni. Við þurfum að vinna sam-
eiginlega að því að gera lífið hér gott
þrátt fyrir hættuna, læra að lifa með
hættunni og læra að lifa hana af.
Við verðum að gera þá kröfu til
okkar sjálfra og stjómvalda að grípa
til vamaraðgerða, sem byggðar em á
^ rannsóknum og skynsamlegri yfirveg-
un. Oft er freistandi að loka augunum
fyrir hættunum og eðlilega mikla
sumir fyrir sér, að húsið þeirra
verði lítils virði ef lóðin sem það
stendur á er lýst hættusvæði. Á
þessu verður samfélagið að
taka með samábyrgð. Ef við
neitum að horfast í augu við
hættuna, hvort sem það er af
mannlegum eða efnahagslegum
ástæðum, munum við ekki læra
að lifa með henni.
Á Islandskortinu hér með er
- því lýst hversu miklum jarð-
skjálftaáhrifum megi búast við
á hveijum stað á 500 ára fresti.
Kortið er unnið af Páli Hall-
dórssyni upp úr sögulegum
heimildum um jarðskjálfta frá
því um 1700 og svo mældum
jarðskjálftum sem orðið hafa á
þessari öld. Kortið er unnið með
tölfræðilegum aðferðum sem al-
mennt eru notaðar við slíka
matsgerð, út frá heimildum og
með þvi að taka tillit til þess al-
mennt sem við vitum um eðli
plötuskriðsins á Islandi. Á
þessu korti hafa svo verkfræð-
ingar byggt jarðskjálftastaðal,
sem notaður er við mannvirkja-
gerð.
Þetta kort segir ekki allan
sannleikann um jarðskjálfta-
hættu á Islandi. Það jafnar
áhrif út á stórum svæðum, m.a.
vegna þess hversu heimildimar
eru ónákvæmar og fáar. Oft er
byggt á munnlegum heimildum
sem eru misgóðar, og mjög
takmarkaðar á sumum svæð-
um, sérstaklega þar sem lítil
byggð var. Það tekur heldur
ekki tillit til staðbundinna
Ragnar
Stefánsson
áhrifa, vegna yfirborðs-
jai-ðlaga og nálægðar við
sprungur. Síðast en ekki
síst byggist kortið á því
að jarðhræringar síð-
ustu 300 árin gefi rétta
mynd af því sem hér
gæti gerst, sem auðvitað
er ekki öruggt.
Kortið er hins vegar
mikilvægur og góður al-
mennur grundvöllur,
sem við þm-fum að nýta
okkur sem best meðan
annað og betra er ekki
til. Jafnframt þarf við
mannvirkjagerð að taka
tillit til sérstakra að-
stæðna á hverjum stað,
og áfram þarf að vinna að almennum
rannsóknum, til að gera smám saman
ný og bætt áhrifakort með vaxandi
þekkingu og skilningi á eðli náttúru-
aflanna.
Island er á Mið-Atlantshafshryggn-
um, sem eru skil tveggja platna þar
sem aðra, Ameríkuplötuna, rekur í
vestur, en hina í austur, og er sú plat-
an gjarnan kennd við Evrópu og Asíu.
Rek platnanna hvorrar frá annarri er
tæpir 2 cm á ári. Heiti reiturinn eða
möttulstrókurinn undir Islandi mótar
þó ekki síður hvar og hvemig rekið er
hér á landi. Mest gliðnar landið út frá
eystra gosbeltinu, fyrir ofan möttul-
strókinn. Þvergengisbelti eða snið-
gengisbelti myndast hins vegar þar
sem plöturnar færast hvor fram með
annarri og tengja gliðnunina inni á
landinu við rekið úti á hryggnum sjálf-
um (mynd 2). Það er á þessum
þvergengisbeltum sem mest spenna
getrn- hlaðist upp og jarðskjálftamir
*
I nokkrum greinum
fjallar Ragnar Stefáns-
son um jarðskjálfta á
—7-----------------------
Islandi og rannsóknir
sem í gangi eru til að
skilja betur eðli þeirra.
verða stærstir. Á Suðurlandsundir-
lendi og fyrir Norðurlandi geta jarð-
skjálftar náð stærðinni 7 á
Richterkvarða.
Kvik möttulefni sem hlaðast upp
fyrir ofan möttulstrókinn og leiða til
hraungosa og kvikuinnskota, þiýsta
plötunum hvorri frá annarri. Rekið er
Mesta líkleg lárétt
hröðun á 500 árum
MYM) 1
Áhrifakort. Línurnar hér eru jafnáhrifalínur og tölurnar tákna hversu mikilli hröðun vegna jarðskjálfta megi búast við á 500
ára tímabili á hverjum stað. Hröðunin (eða krafturinn í hreyfingunni) er gefin upp sem prósenta af þyngdarhröðun jarðar. Töl-
ur eru ekki sýndar innst á svæðunum, þar sem hröðunin er allra mest. Það er vegna þess m.a. að þar valda sprungur og stað-
bundin áhrif afar miklu um hver kraftur hreyfingarinnar verður.
MYND 2
Kort af hryggnum og heita reitnum, ásamt þvergengisbeltum og
gliðnunarbeltum. Myndin sýnir hvernig Mið- Atlantshafshryggurinn
hlykkjast gegnum Island. Á honum eru gliðnunarbelti, yfirleitt í
norð-suðlæga stefnu, þar sem gos eru tíð, og svo þvergengisbelti frá
austri til vesturs þar sem skjálftaspennur magnast frekar upp. Heiti
reiturinn ræður miklu um þetta. Rætur hans eru möttulstrókur sem
kemur af miklu dýpi. Hér eru sýndar útlínur möttulstróksins á 300-400
km dýpi niðri í jörðinni.
þó ekki nógu hratt til að taka
við efninu sem upp kemur
svo það sígur eða hnígur til
hliðar eftir gosbeltum og
skjálftabeltum. Sjá má áhrif
efnis sem á milljónum ára
hefur borist frá heita reitn-
um á Islandi í mörg hundruð
km fjarlægð frá landinu út
eftir Atlantshafshryggnum,
einkum til suðvesturs eftir
Reykjaneshrygg. Jarð-
skjálftar verða yfirleitt ekki
stórir á gossvæðunum eins
og t.d. í eystra gosbeltinu þar
sem yftrleitt er ekki gert ráð
fyrir að skjálftar verði stærri
en 6. Það sama er uppi á ten-
ingnum á Reykjanesskagan-
um, gliðnun og eldgos sem
stafar af uppstreymi kviku
kallast þar á við jarðskjálfta
sem geta verið tíðir en ekki
mjög stórir.
Mynd 1 er einkum byggð á vinnu
Páls Halldórssonar sem birst hefur í
skýrslum frá Veðurstofu íslands.
Mynd 2 er byggð á vinnu fjölmargra
jarðfræðinga, jarðeðlisfræðinga og
haffræðinga. Útlínur möttulstróksins
í myndinni byggjast á grein Krist-
jáns Tryggvasonar, Eysteins Huse-
bye og Ragnars Stefánssonar: Seis-
mic image of the hypothesized
Icelandic hot spot, sem birtist í tíma-
ritinu Tectonophysics 1983, nr. 100:
bls. 97-118. Rannsóknir á síðustu ár-
um með svipuðum aðferðum en öðr-
um mælum og mælastöðvum hafa í
grófum dráttum staðfest þá mynd af
möttulstróknum, eins og t.d. rann-
sóknir undir forystu Inga Th. Bjama-
sonar, sbr. grein í Nature, nr. 385,
1997 (höfundar: Wolfe, C.J., I.Th.
Bjarnason, J.C. VanDecar og S.C.
Solomon).
Hröðun, %g
30 20 10 0
UM HÆTTUR AF VÖLÐUM JARÐSKJÁLFTA - 1. GREIN
Hvern misnotar
Hannes Hólmsteinn?
HINN 6. febi-úar síðastliðinn
skrifaði Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson grein í Morgunblaðið þar
sem hann vænir Össur Skarphéð-
insson, ritstjóra DV; um misnotkun
á fjölmiðli sínum. Ástæða þessara
tilhæfulausu aðdróttana er sú að
undirritaður, blaðamaður DV, lét
svar Hannesar Hólmsteins víkja
fyrir svari Árna Sigfússonar í dálk-
- inum með og á móti í DV sem birt-
ist 2. febrúar síðastliðinn.
Spurningin þennan dag var: „Er
rétt af Ama Sigfússyni að koma
fram í auglýsingum fyrir FÍB í að-
draganda kosninga?"
Undirrituðum fannst eðlilegast
að Árni Sigfússon svaraði þessari
spumingu sjálfur og reyndi ítrekað
Össur Skarphéðinsson
kom þar hvergi nærri,
segir Róbert Róberts-
son, enda vissi hann
hvorki af spurningunni
né viðmælanda
blaðamanns.
að ná í hann fyrripart dags hinn 29.
janúar, þegar dálkurinn var í
vinnslu. Það tókst hins vegar ekki.
Hringdi ég þá þennan sama dag í
Hannes Hólmstein Gissurarson og
bað hann að svara þessari spum-
ingu. Varð það að samkomulagi að
Hannes Hólmsteinn myndi senda
svar sitt á myndsendi síðar um
daginn.
Eftir að hafa rætt við Hannes
Hólmstein æxluðust mál þannig að
undirritaður náði sambandi við
Árna síðar sama dag. Hann var fús
til að svara spurningunni þar sem
hún fjallaði um hann persónulega.
Svar hans var að mínu mati mál-
efnalegt og gott innlegg í þá um-
ræðu sem undanfarið hefur spunn-
ist um auglýsingar FIB. Eg var því
mjög ánægður með að fá svar
Árna, enda hann efstur á óskalist-
anum, þar sem málið varðaði hann
beinlínis. Lagði undirritaður því
lokahönd á vinnslu fréttarinnar.
Eftir að ég hafði
unnið grein Ama barst
svar Hannesar Hólm-
steins í mínar hendur.
Þar sem ég hafði nú
þegar í höndum svar
Áma sjálfs ákvað ég
að leggja svar Hann-
esar Hólmsteins til
hliðar. Reyndi ég
nokkrum sinnum að ná
símleiðis í Hannes
Hólmstein til að láta
hann vita af málalykt-
um en tókst ekki. Að
lokum las undirritaður
inn þau skilaboð á sím-
svara að þar sem svar
væri komið frá Árna
myndi undirritaður ekki nota svar
Hannesar Hólmsteins.
Hannes Hólmsteinn gerði engar
athugasemdir við mig til að kynna
sér hvers vegna svar hans hafði
ekki birst í DV. Þess í stað lagði
hann saman á eigin spýtur tvo og
tvo og fékk út fimm. Það var undir-
ritaður sem tók ákvörð-
un um að nota svar Árna
Sigfussonar og leggja
svar Hannesar Hólm-
steins til hliðar. Össur
Skarphéðinsson kom þar
hvergi nærri, enda vissi
hann hvorki af spuming-
unni né viðmælanda
blaðamanns. Það hefur
ekki tíðkast í tíð undir-
ritaðs að ritstjórar DV
hafi afskipti af því hverj-
ir svara spurningum
blaðamanna. Vinnsla
frétta og skil á efni fer
alfarið fram á milli
blaðamanna og vakthaf-
andi fréttastjói’a.
Málið er ekkert flóknara en
þetta. Hannes Hólmsteinn verður
hins vegar að eiga það við sjálfan
sig hvort hann kýs að misnota fjöl-
miðla til að koma höggi á þá sem
hann álítur andstæðinga sína.
Höfundur er blaðamaður.
Róbert
Róbertsson