Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.04.1998, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1998 DAGLEGT LIF MORGUNBLAÐIÐ Eitt elsta hús Reykja- víkur geymir minning- ar um mikla ást, píu- böll og Jónas Hall- grímsson en þar var einnig veitingasala og til er um 150 gamall matseðill sem notaður er enn í dag. Hrönn Marinósdóttir sökk á bólakaf í söguna. AARBÆJARSAFNI hefur Dillonshús staðið í 37 ár og þar eru seldar veiting- ar á sumrin en saga þess er mun lengri og er sérstæð í meira lagi. Húsið var reist í Reykjavík árið 1835 á mótum Suð- urgötu og Túngötu að tilstuðlan Bretans Arthurs Edmunds Dennis Dillons lávarðar sem átti ástkonu á Islandi og eignaðist með henni barn. Gerður Róbertsdóttir, safn- fræðslustjóri á Arbæjarsafni, seg- ir Dillon þennan hafa ferðast um heiminn og kannað ókunn lönd, eins og þótti fínt hjá heldri manna sonum á þeim tíma. Til íslands kom hann árið 1834 í þeim til- gangi að skoða landið og skrifa ferðabók en þá greip ástin hann heljartökum. „Hann kynnist ís- lenskri konu, maddömu Sire Ottesen sem var fráskilin tveggja barna móðir sem vann á veitinga- og samkomustaðnum Klúbbnum svokallaða í Aðalstræti. Sire var þrettán árum eldri en Dillon en þau felldu hugi saman og fyrr en varir verður Sire barnshafandi eftir hann.“ Sire giftist fjórtán ára Margt hefur verið ritað um Dillonshús og ástarsöguna sem fylgir, m.a. BA-ritgerð í sagnfræði 1994, eftir Brynju Björk Birgis- dóttur og heitir ritgerðin Maddama Ottesen og Dillon lá- varður. Tómas Guðmundsson rek- ur sögu þeirra í Skammdegisörlög- um og Klemens Jónsson hefur rit- að um þau m.a. í Sögu Reykjavík- ur. Sire, sem fullu nafni hét Sigríð- ur Elísa Þorkelsdóttir Bergmann, fædd árið 1799, er talin hafa verið ein nafntogaðasta kona í bænum allan fyrri hluta aldarinnar. Fjórt- án ára giftist hún Lárusi Ottesen verslunarmanni og eignaðist með honum tvo syni en hjónin skildu að borði og sæng fjórum árum síðar. Sire fór þá að vinna fyrir sér sem stofupía eða vinnukona og eignað- ist tvö börn í lausaleik með sitt- hvorum manninum. Hún var því dæmd fyrir hórdóm en Lárusi varð ekki um sel þegar hann frétti af líf- erni eiginkonunnar svo lögskilnað fékk hann árið 1828. Börnin henn- ar létust bæði á fyrsta ári vegna veikinda. Lítið er til af persónulegum lýs- ingum af Sire og engin ljósmynd, aðeins vaxmynd í Arbæjarsafni sem líklega var gerð eftir henni. Sagan segir hún hafí verið með eindæmum glæsileg og falleg kona. Fráskilin og 35 ára kynnist Sire Bretanum Dillon en hann var í fæði í Klúbbnum þar sem hún réð ríkjum. Astin tók völdin og í júni 1835 fæddist þeim dóttir sem hlaut nafnið Henrietta eftir móður Dillons. Dillon hugðist kvænast §ire og lét smíða hús fyrir þau til að búa í á Ullarstofutúni sem til- heyrði Suðurgötu 2 . Húsið var enn í smíðum þegar dóttirin fæðist en þau flytja inn síðla sumars. Gerður segir Dillonshús hafa verið vel byggt og ljóst er að engu Morgunblaðið/Þorkell GERÐUR Róbertsdóttir safnfræðslustjóri og Árný Hallvarðsdóttir veitingamaður fyrir framan Dilionshús. Eldheit ást fylgir Dillonshúsi var til sparað. „Þetta er einlyft bindingshús, með háu risi sem var algeng húsagerð á timburhúsum þessa tíma,“ segir Gerður. En giftingin gekk ekki eftir. Dillon var kaþólskur og þurfti að sækja um giftingarleyfí til danska kansellísins en íyrir áhrif ættingja hans mun því hafa verið hafnað. Bæjarslúðrið mun hafa verið óvæg- ið um hina óvígðu sambúð Dillons og Sire og af þeim sökum hrökklað- ist Dillon af landi brott haustið 1835. Nútímalegur matseðill en hundgamall Þegar til Englands kom var ást- arævintýri Dillons hins unga þagg- að niður hið bráðasta og í ferðabók hans um ísland sem kom út fimm árum síðar minntist hann ekki einu orði á Sire né dóttur sína. Aður en Dillon fór gaf hann barnsmóður sinni húsið við Suður- götu og um árabil rak hún þar veit- ingasölu, hélt dansleiki og leigði út herbergi. Frægasti leigjandi henn- ar var sennilega Jónas Hallgríms- son skáld en hann bjó í herbergi uppi á lofti í Dillonshúsi síðasta vet- ur sinn á íslandi, 1841 til 1842, en fór síðan alfarinn til Kaupmanna- hafnar. Arný Hallvarðsdóttir hefur séð um veitingasölu í Dillonshúsi und- anfarin ár og í fyrra hafði hún upp á matseðli sem Sire hafði á borðum fyrir um 150 árum. „Hann er alveg lygilegur," segir Arný, „því hann er svo nútímalegur. Sire hafði baunasúpu í forrétt, í millirétt var lax í geli, síðan hangikjöt með pip- arrótarsósu og svo var rabar- barapæ á eftir með kaffinu. Greini- legt er að ýmislegt var til í gamla daga en matur eins og piparrót hefur sennilega komið með vor- skipum." Álla jafna var þó á boðstólum al- I RISINU er talið að Sire hafi sofið en nú eru þar seldar veitingar á sumrin. Ljósmynd/Árbæjarsafn VAXMYND sem talin er vera af Maddame Sire Ottesen. Ljósmynd/Úr Mann- lífsmyndum DILLON lávarður sem kom til lands- ins 22 ára til að skrifa ferða- bók. Ljósmynd/Ur Keykjvík 200 ára EIN elsta ljósmynd sem til er af Reykjavík. Dillonshús er fremst fyrir miðju hægra megin. PÍUSTOFA svokölluð, en þar dönsuðu vinnukonur í gamla daga. i i í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.