2 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ t- l FRETTIR 700 börn á Andrésar- leikum ANDRÉSAR andar-leikarnir voru settir á Akureyri í gærkvöldi. 727 krakkar, frá 23 skíðafélögum á aldrinum 6-12 ára eru skráðir til Ieiks og senda Hólmvíkingar kepp- endur nú í fyrsta skipti. Þetta er í 23. sinn sem leikarnir eru haldnir, en fyrst fóru þeir fram 1976 og voru keppendur þá 148 talsins. 12 grænleiiskir krakkar frá Nuuk og Ammassalik verða með og hafa þeir aldrei verið fleiri. Setning leikanna hófst með skrúðgöngu frá Lundarskóla og niður að Iþróttahöll í gærkvöldi. Sr. Pétur Þórarinsson fluttí andakt og Sveinn Brynjólfsson, skíðamað- ur frá Dalvík og einn dlympíufar- anna í Nagano, setti síðan form- lega mótiö og eldur leikanna var tendraður. Keppni hefst síðan í Hlíðarfjalli í dag kl. 10. Lítil telpa datt yfír handríð og slasaðist í Mýrarhúsaskóla Bent hafði verið á að hand- riðið væri slysagildra LÍTIL telpa slasaðist þegar hún datt yfír handrið og féll niður þrjá eða fjóra metra í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi á mánudag. Fyrir nokkrum vikum fól foreldraráð Mýr- arhúsaskóla og Slysavarnadeild kvenna á Seltjarnarnesi Herdísi L. Storgaard, barnaslysavarnafulltrúa Slysavarnafélags íslands, að koma með ábendingar um það, sem betur mætti fara í skólanum, og gerði hún þá meðal annars athugasemdir við þetta handrið. Herdís gerði skýrslu um málið, sem dagsett er 9. febrúar, og þar er bent á að hylja þurfi handriðið með plexigleri og hækka það verulega. Ég var beðin um að koma með ábendingar bæði um skólalóðina og húsið sjálft," sagði Herdís. Ég heyrði síðan ekkert af skýrslu minni og vissi ekki í hvaða farvegi hún var fyrr en ég heyrði af þessu slysi í gær og var mér þá náttúrulega brugðið því að þarna datt telpa niður þar sem ég hafði bent á að þyrfti að laga." Hringdi í bæjarstjórann Herdís kvaðst í gær hafa hringt í Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóra Seltjarnarness, vegna þessa slyss og hann hefði sagt að málið hefði verið Morgunbladið/Þórhaliur Jónsson KEPPENDUR gengu fylktu liði í íþróttahöllina í gærkvöldi. Þessi hópur er frá Leiftri f Ólafsfirði. Nafn mannsins sem lést MAÐURINN sem lést eftir bílslys á Breiðholtsbraut í Reykjavík síðdegis á þriðjudag hét Hallgrímur Eyfells Guðna- son. Hann var Reykvíkingur, fæddur 16. febrúar 1935 og því 63 ára að aldri. Ekki er vitað nánar um dán- arorsök en talið var að Hall- grímur hefði fengið aðsvif und- ir stýri og því hefði bíllinn lent á skilti og ljósastaur. Var hann látinn þegar komið var með hann á Landspítalann. Sýslumannafélagið ræð- ir við Sigurð Gizurarson FELAGSFUNDUR í Sýslumanna- félagi Islands samþykkti í gær að fela stjórn félagsins að ræða við Sigurð Gizurarson, sýslumann á Akranesi, og meta í framhaldi af því hvort stjórnin, fyrir hönd fé- íagsins, hafi frekari afskipti af ákvörðun dómsmálaráðherra um að flytja Sigurð og sýslumanninn á Hólmavík milli embætta. I ályktun fundarins kemur fram að vegna áforma dómsmálaráð- herra hafi stjórn Sýslumannafé- lagsins átt fund með dómsmálaráð- herra og ráðuneytisstjóra dóms; málaráðuneytisins á þriðjudag. I framhaldi af þeim fundi gerði stjórnin þessa tillögu um viðræður við Sigurð og ákvörðun um frekari afskipti í framhaldi af því og var tillagan samþykkt á fundi félagsins í Reykjavík í gær. Samræmd próf S AMRÆMD próf grunn- skólanna hófust í gær og standa fram á þriðjudag. Um 4.300 unglingar þreyta prófin að þessu sinni. Þessir nemendur í tíunda bekk í Hvassaleit- isskóla þreyttu fyrsta prófið sem fram fór í gær, en það var próf í ís- lensku. Próf í ensku verður á föstudag, í stærðfræði á mánudag og í dönsku á þriðjudag. skoðað og væri í vinnslu. Herdís sagði að Maggi Jónsson arkitekt, sem hannaði skólabygginguna, hefði verið kallaður á fund skólastjóra Mýrarhúsaskóla, Regínu Höskulds- dóttur, vegna þessa máls. Herdís vissi ekki hvernig á því stæði að handriðið hefði ekki verið lagað. Það er nú oft þannig að þegar komið hefur verið með ábendingar tekur tíma að laga hlutina," sagði hún. En menn vissu af þessari hættu og fólk í skólanum hafði sjálft bent mér á hana." Að sögn Herdísar er handriðið lágt, þótt ekki sé það ólöglegt sam- kvæmt byggingareglugerð. Hins vegar væri hegðun barna í hópi þannig að gera þyrfti aðrar kröfur í skólabyggingum en í öðrum opinber- um byggmgum og breyta þyrfti byggingareglugerðinni. Herdís kvaðst hafa farið á fund Björns Bjarnasonar menntamálaráð- herra með ábendingar um að í skól- um ætti að setja svipaðar öryggis- reglur og væru til dæmis í sundlaug- um. Betra væri að gera ákveðnar kröfur þannig að hægt væri að upp- fylla þær þegar byggingin væri reist í stað þess að þurfa að benda á gall- ana eftir á. Hún sagði að málinu hefði verið vísað frá, en nú hefði hún beðið um viðtal hjá menntamálaráð- herra á nýjan leik í ljósi tíðra slysa í skólum eftir áramót. Þessi slys und- irstrika það, sem ég hef verið að benda á," sagði hún. Undanfarnar vikur hefur verið eitt alvarlegt slys á viku í skólum á landinu." Mildi að ekki fór verr Sérfræðingur á barnadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur sagði að mikil mildi væri að ekki hefði farið verr fyrir stúlkunni, sem er m'u ára göm- ul. Hún væri með sprungur í andlits- beinum, framhandleggsbrot og sprungu í mjaðmagrind, en liði vel og myndi sennilega útskrifast á morgun. Starfsmenn fjölskylduþjónustu Grafarvogs óánægðir með fréttaflutning Umboðsmaður barna beðinn að kanna málið MIÐGARÐUR, fjölskylduþjónusta í Grafarvogi, hefur sent frá sér yfir- lýsingu vegna fréttaflutnings af máli drengs sem fannst fáklæddur í Grafarvogi mánudagskvöldið 20. apríl sl. Umboðsmanni barna hefur verið sent erindi vegna málsins auk þess sem skýringa verður leitað hjá lögreglu. Regína Ásvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Miðgarðs, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að starfsmenn Miðgarðs hefðu fengið viðbrögð frá foreldrum í Grafarvogi á mánudagskvöld og þeir hefðu fundið fyrir miklum titringi meðal þeirra. Hún sagði að alltof harka- lega hefði verið farið af stað í frétta- flutningi og viðtal hefði verið tekið við tvær sjö ára stúlkur án samráðs við foreldra þeirra. Okkur finnst að farið hafi verið offari og ekki lagt nógu mikið mat á fréttina áður en hún var flutt. Við erum búin að skrifa umboðsmanni barna bréf þar sem álits er leitað á því hvort fjölmiðlar geti tekið svona viðtöl við börn án samráðs við for- ráðamenn," segir Regína. Hefðu viljao samráð Þá segir hún að starfsmenn Mið- garðs hefðu einnig viljað að lögregl- an hefði haft samráð við þá áður en hún gaf út yfirlýsingu um að tvær stúlkur hefðu viðurkennt að hafa af- klætt drenginn í leik. Miðgarður, sem sinnir allri fjölskylduþjónustu í Grafarvogi, átti fulltrúa við yfír- heyrslur yfir telpunum á þriðjudag og segir Regína að starfsmenn Mið- garðs hefðu einnig viljað vera með í ráðum um samskipti við fjölmiðla. Þetta var borið undir Guðmund Guðjónsson, yfirlögregluþjón og yf- irmann rannsóknardeildar lögregl- unnar í Reykjavík. Hann sagði að augljóslega hefði verið nauðsynlegt að gefa almenningi umræddar upp- lýsingar vegna þess að umfjöllun hefði verið með þeim hætti að fólk, ekki síst foreldrar, hefði verið hrætt um að þarna hefði kynferðisafbrota- maður verið á ferðinni. Nauðsynlegt hafi verið að aflétta þeirri óvissu eins fljótt og hægt var. Með yfirlýs- ingu lögreglunnar hafi hins vegar ekki verið lagður neinn dómur á það sem börn gerðu í óvitaskap. Varðandi fréttaflutning af málinu í upphafi vill Guðmundur taka fram að þar hafi lögreglan hvergi komið nærri. Ekki náðist í Þórhildi Lindal, um- boðsmann barna, vegna málsins i gær. i Sérblöð í dag viÐsrapnfflviNNUiJF fslenskar ¦ iíi'ih.iir;i tvö akip Stofnar dóttur- fyrirtæki ihúx Selur hlulabr^rin IGnuida AUKABLAÐ P UmLand- græðsluskóga \M mmmhlMm HtoraiwMattt TIL FRAMTÍÐMt ; '¦' í:,, >.,'.!¦,¦¦ ¦ FimnUjlitiirtt IWÍljM Landið, lífið, menningin og listin '-w^lPP Jrækta íngarð annarra .. ¦ _. ... ¦-.'.*> Fylgstu með nýjustu fréttum .www.mbl.is ...,*$ttlf...... Falur sá besti að matí Stefni alltaf á toppinn, segir Jón Kristjáns- son þjálfari Vals/B4 \