MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 9 FRETTIR Morgunbtaðið/Guðmundur Ingólfsson VIÐ undirritun samnings við ístak um byggingu bæjar Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð á Græn- landi. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, og Jonathan Motzfelt, forsætisráðherra, skoða samninginn en við borðið eru Árni Johnsen, alþingismaður, formaður byggingarnefndar Brattahlíðar. Lengst til vinstri er Tómas Tómasson, verkfræðingur Istaks. Nýtt björg- unarskip til Raufarhafnar Á SUMARDAGINN fyrsta er nýtt björgunarskip Slysavarnafé- lags íslands væntanlegt til Rauf- arhafnar frá Hollandi. Björgunar- skipið er það síðasta sem kemur til landsins af þeim fimm björgun- arskipum sem félagið keypti síðla árs 1996. Þrjú skip voru keypt frá Hollandi. Kom hið fyrra í desem- ber 1996 og er staðsett á Nes- kaupstað og annað skipið kom á Rif í lok ágúst á sl. ári. Tvö skip voru keypt frá Þýskalandi og komu í maí á sl. ári, þau eru stað- sett á ísafirði og Siglufirði. Björgunarskipið er hið þriðja sem keypt var af hollenska sjó- björgunarfélaginu og hefur verið í rekstri við björgunarstörf í Den Helder í Hollandi frá því að það var smíðað árið 1968. Skipinu hef- ur verið mjög vel við haldið, bæði bol og vélbúnaði. Það er um 34 tonn að stærð með tveim aðalvél- um og hámarkshraði er 10,7 sml á klst. Búið öllum fullkomnustu tækjum Skipið er búið mjög fullkomnum siglingartækjum til leitar- og björgunarstarfa og um borð er að- staða til að hlynna að sjúkum. Það lagði af stað frá Den Helder í Hollandi 16. apríl sl. og hafði við- komu í Stonehaven í Skotlandi og Þórshöfn í Færeyjum. I fyrradag lagði það af stað frá Þórshöfn og er væntanlegt til Raufarhafnar um kl. 15 í dag. Istak byggir bæ Eiríks rauða á Grænlandi I HEIMSOKN Jonathans Motzfelt formanns grænlensku heima- stjórnarinnar til íslands fyrir skömmu hélt Davíð Oddsson for- sætisráðherra boð honum til heið- urs í Ráðherrabústaðnum. Þar undirrituðu Árni Johnsen al- þingismaður og Páll Sigurjónsson forstjóri ístaks verksamning milli ístaks og byggingarnefndar um byggingu bæjar Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð að viðstöddum Jonathan Motzfelt og Davíð Oddssyni. Bygging bæjar Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkju í Brattahlíð í til- efni landafundar Ameríku og bú- setu norrænna manna á Grænlandi verður lokið um mitt sumar árið 2000. Áætlaður kostnaður við verk- ið er um 60 millj. ísl. kr. Forvinna unnin á íslandi Forvinna við gerð húsanna verð- ur unnin á íslandi en Grænlending- ar vinna við meginhluta byggingar- framkvæmda í Brattahlíð sem hefj- ast sumarið 1999. Staðarval hefur verið unnið í fullu samráði við bæj- aryfirvöld í Nasaq og Qassialsuk en byggingarnefnd er að undirbúa umsókn um formlega staðsetningu húsanna í Brattahlíð. Einnig eru áform um byggingu grænlenskra veiðimannahúsa í Brattahlíð miðað við sömu tíma- mörk árið 2000. Stakir S >. Borðstofu- borðstofljstólar/ jt/T \ borð iZtntm. , \ Full búð af fallegum munum Ai itík muii r, Klaj yyxirstíg 40, ssni 552 7977. www.mbl.is Gleðílegt sumar Stærðir 22-38 Verð kr. 2-480 Póstsendum samdægurs Aukakílóin og drungann í burtu Hefurðu áhuga á að grennast og bæta heilsuna á auðveldan hátt og/eða að skapa þér atvinnu við að hjálpa öðrum til þess sama? Hafðu endilega samband, Guðbjörg, sími 567 5684 Kaffihlaðborð í dag FRÁ 14 TIL 17 í' ¦ :v"?:"- '¦¦¦¦ iTTrí?!^ví * "r^ Skíðaskálinn Hveradölum Veitingahús og veisluþjónusta frá 1935 Hyeradölum, 110 Reykjavík, borðapantanir 567-2020, fax 507-2337 m Fyrir konur sem vilja klæðast vel í tilefni af sumarkomu: Tilboðsverð á öllum drögtum. 20-30% afsláttur. Mikið úrval. llvlan kvenfataverslun . Hverfisgötu 108, á horni Hverfisgötu og Snorrabrautar, sími 551 2509 Hjólbörur í mörgum stærðum og gerðum, verð frá 4.992- strákústur á tilboði 545-, bílaþvottakústur m. 1,5m skafti 2.830-, garðslanga 25m á 1470-, garðslanga 50m á 2.950- FELCO-greinaklippur nr. 5 aðeins 2.191- Svartfuglsskot kosta frá 677- pakkinn. Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855. Opið virka daga 8-18 og laugard. 10-14. Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Vettvangur fðlks í fasteignaleit <SE§ Í'M www.mbl.is/fasteignir