Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						10     FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998

MORGUNBLAÐIÐ

FRETTIR

Utandagskrárumræða um Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri

Nefnd skiptir 500 milljón-

um króna fyrir miðjan maí

GERT er ráð fyrir að tillögur

fagnefndar um það hvernig skipta

eigi samtals 500 milljónum króna,

samkvæmt fjáraukalögum og fjár-

lögum, milli sjúkrahúsanna í land-

inu liggi fyrir um miðjan næsta

mánuð. Þetta kom fram í máli Ingi-

bjargar Pálmadóttur heilbrigðis-

og tryggingaráðherra við umræður

utan dagskrár um Fjórðungs-

sjúkrahúsið á Akureyri á Alþingi í

gær. Annars vegar er um að ræða

200 milljóna króna pott samkvæmt

fjáraukalögum vegna ársins 1997

og hins vegar 300 milljóna króna

pott samkvæmt fjárlögum þessa

árs. Að sögn heilbrigðisráðherra er

ljóst að Fjórðungssjúkrahúsinu á

Akureyri verður veitt fé úr báðum

þessum pottum.

Steingrímur J. Sigfússon, þing-

maður Alþýðubandalags og óháðra

og málshefjandi umræðunnai-,

gagnrýndi það að tillögur nefndar-

innar skuli ekki liggja fyrir fyrr en

um miðjan maí og sagði það óverj-

andi vinnubrögð að skipta fyrst

fénu þegar nær fimm mánuðir

væru liðnir af árinu. Forsvarsmenn

sjúkrahúsanna væru nú þegar í al-

gerri óvissu um hvað kæmi í þeirra

hlut úr pottunum. Fleiri þingmenn

tóku undir gagnrýni Steingríms og

sagði Sighvatur Björgvinsson,

þingflokki jafnaðarmanna, það m.a.

ámælisvert að tillögur nefndarinn-

ar yrðu ekki kynntar fyrr en eftir

þinglok í vor.

Við þessu sagði ráðherra að fjár-

Einn banka-

stjóri verði

við ríkis-

bankana

ÁGÚST Einarsson, Guð-

mundur Arni Stefánsson og

Jóhanna Sigurðardóttir, þing-

menn þingflokks 'jafnaðar-

manna, hafa lagt fram á Al-

þingi frumvarp til laga um

breytingu á lögum frá síðasta

ári um stofnun hlutafélaga um

Landsbanka^ íslands og Bún-

aðarbanka íslands. Er með

frumvarpinu lagt til að við

lógin bætist við setning sem

kveði á um að við hvorn hluta-

félagsbanka starfi ekki fleiri

en einn bankastjóri.

„I núgildandi lögum um

Landsbanka íslands hf. og

Búnaðarbanka íslands hf.,

sem voru afgreidd á síðasta

þingi, er kveðið á um ráðn-

ingu bankastjóra. Þótt ákvæð-

ið geti átt við um einn eða

fleiri bankastjóra er Ijóst að

viiji ríkisstjórnarinnar stóð til

að hafa fleiri en einn banka-

stjóra, enda felldi meirihlut-

inn breytingartillögu stjórn-

arandstöðunnar um að hafa

aðeins einn bankastjóra við

Landsbanka_ íslands og Bún-

aðarbanka íslands," segir í

greinargerð.

Þar segir ennfremur að nú

hafi viðskiptaráðherra og

bankaráð          Landsbankans

ákveðið að ráða einn banka-

stjóra að Landsbanka í stað

þriggja áður. Flutningsmenn

telja því eðlilegt að lögin séu

löguð að þessu og leggja því

til í frumvarpinu að kveðið

verði skýrt á um það að við

bankana starfi aðeins einn

bankastjóri.

laganefnd      Al-

þingis yrði kynnt

málið nánar fyrir

þinglok.       Ráð-

herra benti enn-

fremur     á     að

vinna   fagnefnd-

arinnar        væri

vandasöm og að

hún   ynni   mjög

gott starf. Full-

trúar     nefndar-

innar hefðu  farið  mjög vel  yfir

rekstur sjúkrahúsanna eins og til

hefði verið ætlast af þeim og í því

fælist mikil vinna.

Framlög verið aukin

I upphafi umræðunnar benti

Steingrímur J. Sigfússon á fjár-

hagsvanda Fjórðungssjúkrahúss-

ins á Akureyri. Hann tók fram að

forsvarsmenn þess hefðu fengið

hrós fyrir ráðdeild í rekstri undan-

gengin ár, en á síðustu tveimur ár-

um hefði sjúkrahúsið verið rekið

með halla. Sagði hann að rekstrar-

halli síðasta árs hefði verið um 56

milljónir og uppsafnaður vandi um

síðustu áramót um 90 til 100 millj-

ónir kr. Þá sagði hann að fjár-

skortur til rekstrar á þessu ári,

meðal annars vegna aukningar í

starfsemi, væri milli 60 til 70 millj-

ónir króna.

f máli heilbrigðisráðherra kom

m.a. fram að þrátt fyrir mikla um-

ræðu um niðurskurð væri stað-

reyndin sú að framlög til Fjórð-

ALÞINGI

ungssjúkrahúss-

ins á Akureyri

hefðu verið auk-

in á undanfórn-

um árum. „I ráð-

herratíð minni

hafa þau hækkað

um 99 milljónir

króna eða 8,35%

umfram hækkun

verðlags og hafa

þau aukist meira

en til annarra sjúkrahúsa," sagði

hún og benti m.a. á að með auknum

fjárframlögum væri viðurkennt að

Fjórðungssjúkrahúsið gegndi lykil-

stöðu í heilbrigðisþjónustu á Norð-

urlandi.

Ráðherra sagði einnig frá því að

fagnefndin sem hefði fengið það

verkefni að úthluta 500 milljónum

króna til sjúkrahúsanna væri m.a.

að fara ofan í það, í samráði við

stjórnendur Fjórðungssjúkrahúss-

ins, hvað hefði valdið auknum út-

gjöldum sjúkrahússins á síðasta

ári. „Stjórnendur sjúkrahússins

hafa rökstutt breytingar á kostnaði

með aukinni þjónustu og það sama

hefur gerst varðandi margar aðrar

stofnanir. Fyrir liggja tillögur

þeirra um með hvaða hætti sé unnt

að halda rekstri innan ramma fjár-

laga."

Blaðamannafundur

kom á óvart

I ljósi þessa sagði ráðherra að

blaðamannafundur       stjórnarfor-

manns og aðstoðarframkvæmda-

stjóra sjúkrahússins hinn 30. mars

sl., þar sem kynntar voru sparnað-

araðgerðir sjúkrahússins, hefði

komið á óvart. „Þessi framsetning

olli eðlilega ótta og óöryggi meðal

starfsfólks og íbúa svæðisins. Það

er að mínu mati ábyrgðarhluti að

kynna neyðaráætlun þegar verið er

að vinna með ráðuneytinu að lausn

málsins. Þetta kom ráðuneytinu

verulega á óvart eftir það sem á

undan var gengið og ekki síst að

stjórnendur skyldu velja þá leið að

kynna hugsanlegar ráðstafanir í

fjölmiðlum áður en þær voru rædd-

ar inni í ráðuneyti og við

fagnefnd," sagði ráðherra. Val-

gerður Sverrisdóttir, þingmaður

Framsóknarflokks, tók undir þessa

gagnrýni ráðherra.

Miður að ráðherra gagnrýndi

starfsfólk

Steingrímur J. Sigfússon, þing-

maður Alþýðubandalags og

óháðra, sagði að sér þætti það mið-

ur að ráðherra skyldi gagnrýna

stjórnendur Fjórðungssjúkrahúss-

ins fyrir það að kynna starfsfólki

sínu, bæjarstjórn Akureyrar og

„eftir atvikum fjölmiðlum", eins og

hann orðaði það, þá stöðu sem

blasti við þeim. Hann sagði auk

þess að menn ættu að hugleiða

þær aðstæður sem stjórnendum

væru búnar við þessar kringum-

stæður, þ.e. óvissuna sem þeir

byggju við.

Seðla-

bankinn

spáir

minni

verðbólgu

SEÐLABANKI íslands spáir

lægri verðbólgu í nýrri verð-

bólguspá sinni en hann gerði í

síðustu spá í janúar. Bankinn

spáir að verðbólga verði 2,3%

milli áranna 1997 og 1998 og

2,1% frá upphafi til loka árs-

ins 1998, en í janúarspánni

var gert ráð fyrir að verðbólg-

an yrði 2,6% milli áranna og

2,3% frá upphafi til loka árs-

ins 1998.

Aðalástæðan er hækkun

húsnæðis

Vísitala neysluverðs hækk-

aði um 0,4% á milli síðasta

ársfjórðungs 1997 og fyrsta

ársfjórðungs í ár, en það jafn-

gildir 1,7% verðbólgu á heilu

ári. „Hækkunin er að mestum

hluta til komin vegna hækk-

unar á markaðsverði húsnæð-

is og á húsaleigu auk þess

sem verð á þjónustu hækkaði

nokkuð. Athygli vekur hins

vegar að innlendar vörur án

búvöru og grænmetis hækk-

uðu nánast ekkert í verði frá

desember 1997 til aprfl í ár.

Spá Seðlabankans frá því í

janúar gerði ráð fyrir töluvert

meiri hækkun vísitölunnar,

eða 0,8%. Frávikið er þó inn-

an tölfræðilegra vikmarka,"

segir í frétt frá Seðlabankan-

um.

Þá kemur fram að á öðrum

og þriðja fjórðungi ársins

megi gera ráð fyrir að verð-

bólga verði nokkru meiri en á

fyrsta ársfjórðungi, en að hún

lækki undir lok ársins eins og

undanfarin ár. I spánni er

gert ráð fyrir að launaskrið

verði 2% á árinu í stað 1,5% í

síðustu spá og að markaðs-

verð á húsnæði hækki um-

fram almenna verðlagsþróun

og hafi þannig áhrif til hækk-

unar vísitölunnar.

Innflutningsverð óbreytt

í erlendri mynt

,Á nióti kemur að gert er

ráð fyrir að framleiðni vaxi

um 3% á árinu í stað 2,5%,

eins og gert var ráð fyrir í

spánni í janúar. Með hliðsjón

af kreppunni í Asíulöndum og

fyrirliggjandi spám alþjóð-

legra efnahagsstofnana er

gert ráð fyrir að innflutnings-

verð í erlendri mynd verði

óbreytt á árinu 1998," segir

ennfremur.

Stólaskipti

Geirs og

Friðriks

GEIR H. Haarde og Friðrik

Sophusson hafa haft stólaskipti í

ríkisstjórn, eins og alkunna er.

En þeir hafa einnig haft stóla-

skipti á Alþingi. Geir er sestur

við hlið Ingibjargar Pálmadótt-

ur heilbrigðisráðherra og Frið-

rik er sestur við hlið flokkssyst-

ur hennar, Valgerðar Sverris-

dóttur, úti í þingsalnum. Þing-

sætum er úthlutað með hlutkesti

í þingbyrjun. Hins vegar hefur

Geir verið mjög fhaldssamur og

vujað sitja í sama sætinu. Hefur

hann gjarnan skipt á sætum við

þá þingmenn sem það sæti hafa

hreppt. Er það einmitt sætið

sem Friðrik situr nú í.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88