Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						12     FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998

MORGUNBLAÐIÐ

FRETTIR

Viðbygging á

Laufásvegi

Málið ekki

hlotið af-

greiðslu

MAGNÚS Sædal byggingar-

fulltrúi í Reykjavík gerir at-

hugasemd við þau ummæli

íbúa á Laufásvegi 77 og Berg-

staðastræti 86 að þeim hafi

ekki borist tilkynning um sam-

þykkt byggingarnefndar.

„Skýringin á því er sú að

byggingarnefnd sendir aldrei

út tilkynningu um samþykkt

fyrr en málið hefur hlotið af-

greiðslu borgarstjórnar. Málið

er ekki afgreitt fyrr en borgar-

stjórn hefur staðfest fundar-

gerð byggingarnefndar," segir

Magnús.

Ólöf Rún

á Stöð 2

ÓLÖF Rún Skúladóttir, sem

um árabil var fréttamaður á

fréttastofu Sjónvarpsins, hefur

störf hjá ís-

lenska út-

varpsfélaginu

í næsta mán-

uði.

Hún sagði í

samtali við

Morgunblað-

ið að það

legðist mjög vel í sig að fara að

starfa í sjónvarpi aftur, þar

sem það væri vettvangur sem

henni hefði þótt afar skemmti-

legt að vinna á.

FLOTKVÍIN á reki djúpt útaf Reykjanesi. Tvö varðskip eru í grenndinni.

Morgunblaðið/Ámi Sæberg

Flotkvíin er tryggð fyrir

250 milljónir króna

EIRIKUR Ormur Víglundsson,

annar eigandi flotkvíarinnar sem er

á reki um 200 sjómílur vestur af

Reykjanesi, segir að það að kvíin

skuli ekki vera komin tíl hafnar hafi

ekki áhrif á rekstur fyrirtækisins.

„Þetta hefur engin áhrif á rekstur-

inn hjá okkur nema hvað það tekur

tíma fyrir okkur að standa í þessu.

„Flotkvína átti ekki að opna fyrir

þjónustu fyrr en seinni hluta ársins

svo það að hún skuli ekki vera kom-

in hefur enn ekki nein áhrif á rekst-

urinn," sagði Eiríkur í samtah við

Morgunblaðið ígær.

Vélsmiðja Orms og Víglundar

hefur orðið fyrir stórtjóni vegna

málsins en Eiríkur vildi ekki gefa

upp hve há sjálfsáhætta vélsmiðj-

unnar væri, sagði einungis: „Fyrir-

tækið hefur orðið fyrir stórtjóni,

það er engin spurning." Flotkvíin

Kærunefnd jafnréttismála um skipun orkumálastjóra

Ekki brot á jafnréttislögum

KÆRUNEFND jafnréttismála tel-

ur að iðnaðar- og viðskiptaráðherra

hafi ekki brotið gegn ákvæðum jafn-

réttislaga þegar hann skipaði Þorkel

Helgason i embætti orkumálastjóra.

Hrefna Kristmannsdóttir, jarð-

efnafræðingur og deildarstjóri jarð-

efnafræðisviðs og rannsóknastofu í

jarðefnafræði hjá Orkustofnun,

óskaði eftir því að kærunefndin tæki

afstöðu til þess hvort ráðningin

bryti gegn ákvæðum jafnréttislaga.

I niðurstöðum kærunefndarinnar

segir að Þorkell teljist hafa meiri

formlega menntun en Hrefna. Bæði

Hrefna og Þorkell uppfylli skilyrði

orkulaga um verkfræðilega mennt-

un. Hann hafi doktorspróf í stærð-

fræði en hún cand.real. gráðu í jarð-

efnafræði og verði ekki dregin sú

ályktun að menntun hennar jafngildi

doktorsgráðu.

Hins vegar hafi bæði að baki lang-

an fræðiferil. Vegna starfa og rann-

sókna Hrefnu á starfs- og fræðasviði

Orkustofnunar teljist þau jafnhæf

hvað menntun og fræðistörf varðar

þrátt fyrir þennan mun á formlegri

menntun.

Þá segir að Hrefna hafi starfað hjá

Orkustofnun frá því hún lauk námi,

og hafi í rúm 20 ár gegnt stjórnunar-

stöðu hjá stofnuninni. Þorkell hafi

kennt við Háskóla íslands í tæp 20

ár, fyrst sem dósent en í 6 ár sem

prófessor og svo hafi hann starfað

sem aðstoðarmaður ráðherra og

ráðuneytisstjóri í fimm ár.

„Kærunefnd telur að við mat á

umsækjendum verði ekki litið fram

hjá því að [Þorkell] hefur gegnt

starfi aðstoðarmanns ráðherra og

síðar starfi ráðuneytisstjóra í iðnað-

ar- og viðskiptaráðuneytinu í alls

fimm ár. Staða ráðuneytisstjóra er

æðsta stjórnunarstaða innan stjórn-

sýslunnar. Sem ráðuneytisstjóri hef-

ur [hann] óhjákvæmilega öðlast

bæði þekkingu og reynslu af þeim

málaflokkum sem undir ráðuneytið

heyra, þ.m.t. orkumálum, auk víð-

tækrar reynslu af almennri stjórnun

og opinberum rekstri. Telja verður

að sú starfsreynsla ásamt reynslu

hans af að sinna ráðgjöf við stjórn-

völd geri hann hæfari til að gegna

stöðu orkumálastjóra."

Því telur nefndin að jafnréttislög

hafi ekki verið brotin við skipun í

stöðuna.

er tryggð hjá Tryggingu hf. fyrir

um 250 milljónir króna, sem er

upphæð á við tryggingu gamals

togara, að sögn Ágústs Karlssonar

forstjóra Tryggingar hf. Mikið

tjón hefur orðið á flotkvínni en ekki

hefur verið unnt að meta hversu

mikið það er. Það verður gert um

leið og hún kemur til hafnar, að

sögn Eiríks. Annar tveggja krana

er farinn af kvínni og Eiríkur taldi

líklegt að hinn væri einnig ónýtur.

Kraninn sem datt af var helmingi

stærri en sá sem enn er á kvínni og

var talinn á annað hundrað tonn að

þyngd. „Ég er skíthræddur um

kranann sem enn er á kvínni og

hann er eflaust ónýtur líka," sagði

Eiríkur.

Dráttarbáturinn

ekkioflítill

Niðurstaða úr sjóprófum lá fyrir

í gær og bentí hún til þess að í fyrra

skiptið sem kvíin losnaði frá bátn-

um hafi bilað bremsa í tromlunni og

öll línan því farið út. I seinna skipt-

ið slitnaði taugin hins vegar vegna

núnings. Ekkert benti til um að

viljaverk hefði verið að ræða, en

sögur höfðu gengið um að klippt

hefði verið á taugina.

Spurður um þær sögur sem farið

hafa af því að dráttarbáturinn hafi

verið of lítill til þess að draga kvína

sagði Eiríkur: „Ef verið er að reyna

að hengja okkur á því að við höfum

valið of lítinn dráttarbát þá völdum

við ekki bátinn. Breska fyrirtækið

Salvage Association tekur að sér að

reikna út stærð dráttarbáta fyrir

flotkvíar og pramma eða annað sem

á að draga. Þegar búið er að velja

dráttarbát er hann tekinn út áður

en hann hefur verkið. Bæði flotkví-

in, dráttarbáturinn og allur búnað-

ur þeirra voru því tekin út áður en

lagt var af stað úr höfn. Ef starfs-

menn dráttarbátsins hafa verið að

segja að við höfum verið að spara

með því að taka minni bát, þá get

ég hér með staðfest að það er al-

rangt."

Atburðarás sem

enginn sá fyrir

Eiríkur sagði að vissulega hefði

atburðarás síðustu daga verið mjög

erfið og stressandi. ,Að svo skuli

vera komið eru auðvitað mjög mikil

vonbrigði fyrir okkur en þetta eru

að sjálfsögðu hlutir sem enginn

reiknaði með að myndu gerast. Það

má finna ástæður fyrir þessu öllu

saman og ég tel að þær séu orðnar

nokkuð ljósar."

Eiríkur sagði að það væri líklega

ekki fyrr en á laugardaginn að

hægt væri að hengja taug í flot-

kvína, það tæki langan tíma fyrir

sjóinn að ganga niður á þessum

slóðum eftir svo slæmt veður. „Eg

reikna ekki með kvínni hingað fyrr

en eftir helgina."

Að sögn starfsmanna Landhelg-

isgæslunnar biðu varðskipin Ægir

og Oðinn enn við kvína í gær eftir

tækifæri til að koma í hana taug.

Halldór Ásgrímsson utanrfkisráðherra um úran frá Georgíu til Dounreay

Oviðunandi fyrir

hagsmuni Islendinga

HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-

ráðherra segir að fyrirætlanir

breskra stjórnvalda um að flytja 5

kg af auðugu úrani frá Georgíu til

eyðingar í Dounreay kjarnorkuver-

inu í Skotlandi séu óviðunandi fyrir

hagsmuni íslendinga.

íslensk stjórnvöld hafa áður mót-

mælt fyrirætlunum um að auka

endurvinnslustarfsemi í Dounreay

og segir Davíð Egilsson, fram-

kvæmdastjóri         mengunarvarna

sjávar hjá Hollustuvernd ríkisins,

að íslendingar styðji það almenna

viðmið, sem sett var á fundi Sa-

meinuðu þjóðanna árið 1997, að

lönd sem bera ábyrgð á geislavirk-

um úrgangi eigi eftir því sem kost-

ur er að leysa þau mál heima fyrir

en ekki flytja úrganginn annað til

vinnslu.

Halldór Ásgrímsson sagði að við

hefðum um langt skeið fylgst mjög

vel með starfsemi og þróun mála í

sambandi við stöðvarnar í Doun-

reay og Sellafield. Þessi mál hefðu

verið til reglulegrar umfjöllunar á

fundum norrænu umhverfisi'áð-

herranna og þeir hefðu síðast samið

sameiginlegt mótmælabréf vegna

losunar frá stöðvunum í febrúar í

vetur.

Leitað upplýsinga hjá

Bandarfkjamönnum

„Það er að sjálfsögðu mikilvægt

að koma úrani frá óvissusvæðum

eins og Georgíu einhvers staðar

fyrir. Við getum hins vegar ekki

sætt okkur við það að vandinn verði

fluttur í næsta nágrenni við okkur.

Lífríki hafsins er mjög viðkvæmt

og það er þegar búið að taka of

mikla áhættu í því sambandi. Þetta

er mál sem varðar allar þjóðir sem

land eiga að hafsvæðinu," sagði

Halldór.

Hann sagði að gerðar hefðu verið

ráðstafanir til þess að afla upplýs-

inga um þetta mál í gegnum sendi-

ráð íslands í London og einnig

hefðum við snúið okkur til banda-

ríska sendiráðsins hér til að fá upp-

lýsingar þaðan.

„Eg reikna með að í framhaldi af

því muni umhverfisráðuneytið taka

málið upp. Það verður fyrst og

fremst gert á norrænum vettvangi

og tvíhliða við þessar þjóðir. Fyrir

um það bil tveimur árum voru uppi

fyrirætlanir um að flytja kjarnaúr-

gang frá Astralíu til Dounreay. Við

mótmæltum því og sem betur fer

varð ekkert úr þeim fyrirætlunum.

Ég geri mér ekki grein fyrir því

hvað þetta mál er langt komið, en

ég tel þetta alls ekki ásættanlegt

fyrir okkar hagsmuni," sagði Hall-

dór ennfremur.

Hollustuvernd telur ástæðu til

að óttast en Geislavarnir ekki

Davíð Egilson sagðist telja ís-

lendinga hafa fulla ástæðu til að

óttast alla flutninga af því tagi sem

fyrirhugaðir eru frá Georgíu til

Skotlands, sérstaklega þá sem fara

um eða yfir sjó.

„Það er mjög alvarlegt að okkai'

mati hversu lítið við höfum um slíka

flutninga   að   segja,"   segir  hann.

„Verði einhver óhöpp við flutninginn

eru allar líkur á því að við verðum

þolendur. Það hljóta því að teljast

eðlilegar áhyggjur matvælafram-

leiðenda, sem eiga allt sitt undir

sjónum, þegar menn eru að flytja

slík efni. Einnig er Dounreay mjög

óheppilegur staður hvað okkur varð-

ar vegna hafstrauma og nálægðar

við hafsvæði okkar. Endurvinnsla

þessara efna er alltaf áhættusöm og

prátt fyrir fullyrðingar breskra yfir-

valda um að alls öryggis sé gætt er

nokkuð sérkennileg tilviljun að slík-

ar stöðvar eru alltaf staðsettar sem

lengst frá breskum þrýstihópum,"

sagði Davíð.

Sigurður Magnússon, hjá Geisla-

vörnum ríkisins, segir að mjóg

strangar alþjóðlegar reglur gildi

um flutning geislavirkra efna og að

hann gangi út frá því að þessi flutn-

ingur verði í samræmi við þær regl-

ur. Hann telji því enga ástæðu til

að óttast þessa flutninga svo fram-

arlega sem þeir fari eðlilega og

áfallalaust fram.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88