Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						30     FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998

MORGUNBLAÐIÐ

ERLENT

Fulltrúi fórnarlamba Lockerbieslyssins nýkominn frá Trípólí

Líbýustjórn sátt við

réttarhöld í Hollandi

Kaíró. Reuters.

FULLTRÚI fjölskyldna breskra

fórnarlamba Lockerbieslyssins

greindi frá því í gær að líbýsk

stjórnvöld hafi fallist á að Líbýu-

mennirnir tveir, sem grunaðir eru

um að hafa staðið að sprengingunni

sem grandaði þotu Pan Am yfir

Lockerbie í Skotlandi 1988, komi

fyrir dóm í Hollandi samkvæmt

skoskum lögum.

Fulltrúinn, Jim Swire, kom til

Kaíró frá Trípólí, höfuðborg Líbýu,

á þriðjudag, þar sem hann hafði átt

fund með Muammar Gaddafi, for-

seta, og stjórn hans. Swire kvaðst

telja að mikilvægast væri að Líbýu-

menn hefðu ítrekað tilboð sitt frá

1994 um að mennirnir tveir verði

kallaðir fyrir dóm í hlutlausu ríki.

270 manns. þ.á m. dóttir Swires,

fórust með Pan Am þotunni, sem

var af gerðinni Boeing 747.

Swire og skoski lögfræðingurinn

Robert Black gerðu það að tillögu

sinni að efnt yrði til réttarhalda í

Hollandi eða öðru hlutlausu ríki en

skoskum lögum fylgt og dómarar

yrðu frá ýmsum löndum. Swire

sagði í gær að Líbýuforseti hefði

fallist á þessa tillögu.

„Vandinn er auðvitað sá, að ekki

er einhlítt að Vesturlönd séu reiðu-

Bandaríkin hafna

tillögunni

búin til að setja þann rétt sem nauð-

syn krefur. Ég veit ekM hvað Líbýu-

stjóm gæti gert frekar til þess að

taka af allan vafa um að henni er

full alvara með að [mennirnir tveir]

myndu mæta [til réttarins]," sagði

Swire við Reuters.

Bandarísk stjórnvöld hafa hafnað

tillögu Swires og Blacks, og sagði

lögmaður fjölskyldna bandarískra

fórnarlamba slyssins að Swire

mælti ekki fyrir munn þeirra. Bret-

ar og Bandaríkjamenn hafa krafist

þess að mennirnir tveir, sem grun-

aðir eru um verknaðinn, verði

dregnir fyrir dómstóla annaðhvort í

Skotlandi eða Bandaríkjunum og

hafa Sameinuðu þjóðirnar stutt

kröfuna með refsiaðgerðum gegn

Líbýu.

Swire sagði ennfremur í gær að á

fundinum með líbýskum yfirvöldum

hefði verð rætt um öryggisgæslu

fyrir hina grunuðu og tilnefningu

dómara. Eftir að tillögur hans og

Blacks hefðu verið „skilgreindar

nánar" hefðu Líbýumennirnir fallist

áþær.

I Trípólí ræddu Swire og Black

einnig við lögfræðing hinna grun-

uðu, Ibrahim Legwell, og tjáði hann

þeim að skjólstæðingar sínir væru

reiðubúnir til að mæta fyrir dóm-

stóla í hlutlausu ríki.

Til stóð að Swire myndi eiga fund

með leiðtoga Einingarsamtaka Afr-

íkuríkja, Salim Ahmed Salim, og

hugsanlega framkvæmdastjóra

Arababandalagsins, Esmat Abdel

Meguid. Öryggisráð SÞ hefur beitt

Líbýu refsiaðgerðum síðan 1992

fyrir að vilja ekki framselja hina

grunuðu, Abdel Baset Ali Mohamed

al-Megrahi og Al-Amin Khalifa

Fhimah, sem taldir eru vera starfs-

menn líbýsku leyniþjónustunnar.

Breska          utanríkisráðuneytið

greindi frá því í gær að það vænti

þess að ræða við Swire þegar hann

kæmi heim og lagði áherslu á að

hann hefði farið til Trípólí í eigin

nafni. Lee Kreindler, lögmaður í

New York, kveðst vera fulltrúi rúm-

lega 20 breskra fjölskyldna og

einnig ættingja bandarískra fórnar-

lamba slyssins og segir hann að

samkomulag Swires við Líbýustjórn

sé ógilt. „Eg lít svo á að Swire sé

einungis fulltrúi Swires," sagði

Kreindler.

Hótel-

gestir á

götuna?

(Jslíí. Morgunblaðið.

GESTIR á hótelum víðs vegar

um Noreg eiga á hættu að

vera reknir úr hótelherbergj-

um sínum í bítið á föstudags-

morgun, ef ekki semst í launa-

deilu starfsmanna á hótelum

og veitingahúsum og vinnu-

veitenda. Starfsmennirnir

hafa boðað verkfall á föstudag

og mun það í fyrstu koma nið-

ur á tæplega 50 hótelum víðs

vegar um Noreg en kann svo

að breiðast út.

Verkfallið skellur á í Ósló,

Þrándheimi, Troms0 og

Hammerfest og beinist að

flestum stærstu hótelkeðjun-

um, svo sem SAS-hótelunum,

Rica-hótelunum og-Rainbow-

hótelkeðjunni. Verkfallið er

boðað frá og með kl. 6 á fóstu-

dagsmorgun og skelli það á

verður gestum vísað út þegar í

stað. Verða yfirmenn hótel-

anna þeir einu sem geta skráð

gesti út.

Ohugnanleg rað-

morð í Mexíkó*

VÆGÐARLAUS raðmorðingi

gengur laus í suðvesturhluta

Mexíkó og veldur miklum óhug

meðal kvenna í borginni Juarez í

nágrenni Chihuahua-eyðimerkur-

innar. Á undanfórnum fimm árum

hafa fundist lík að minnsta kosti

70 kvenna í Chihuahua-eyðimörk-

inni nálægt Juarez og þykir fjöldi

fórnarlambanna með algerum ein-

dæmum. Nú þegar hafa 12 lík

fundist á þessu ári og er óttast að

þeim eigi eftir að fjölga.

Fram kemur í frétt bandaríska

dagblaðsins The New York Times,

að morðinginn, eða morðingjarnir

því ekki er útilokað að þarna sé

um hóp manna að ræða, nauðgi

konunum áður en hann myrðir

þær og skilur lík þeirra eftir í

eyðimörkinni, fjarri mannabyggð-

um. Lögreglan í Juarez stendur

ráðþrota gagnvart morðunum því

þótt hún hafi tvisvar á undanförn-

um árum kært menn fyrir glæpina

og tilkynnt í bæði skiptin að henni

hafi tekist að handsama morðingj-

ann hafa líkin haldið  áfram  að

hrannast upp.

Kvenréttindasamtök gagnrýna

framkvæmd lögreglurannsóknar

harkalega og segja lögreglufull-

trúa ekki valda starfi sínu. Þau

segja reyndar morðin enn fleiri en

opinberar tölur gefa upp því alls

hafi 118 konur verið myrtar í Ju-

arez á undanförnum fimm árum

en í borginni býr ein milljón

manns.

Reuters.

STUÐNINGSMENN Ranariddhs prins fögnuðu komu hans

til Siem Reap í gærdag.

Ranariddh kem-

ur til Kambódíu

Siem Reap, Kambódíu. Reuters.

NORODOM Ranariddh prins kom

til Kambódíu í gær til viðræðna við

föður sinn, Sihanouk konung, um

væntanlegar kosningar í júlí.

Prinsinn hugðist ræða um mikil-

vægi þess að kosningarnar færu

löglega fram að allir frambjóðend-

ur nytu sanngirni en líklegt þykir

að Ranariddh hyggi á framboð í

kosningunum. Hann lofaði í gær að

taka á innflytjendamálum og þóttu

ummæli hans, þess efnis að hann

vilji láta vísa öllum Víetnömum úr

landi, nokkuð umdeilanleg.

Ranariddh segist reiðubúinn til

að taka höndum saman með Hun

Sen, forsætisráðherra Kambódíu,

um að koma á nauðsynlegum sátt-

um í Kambódíu en benti á að þótt

andlát Pol Pots í síðustu viku hefði

markað kaflaskil í sögu kam-

bódísku þjóðarinnar mættu menn

ekki gleyma því að Pol Pot stóð

ekki einn að verki ódæðisverkum

ógnarstjórnar Rauðu Khmeranna

1975-1979 og að margir helstu að-

stoðarmanna hans væru enn á lífi.

Ieng Sary, sem gegndi embætti

utanríkisráðherra í stjórnar tíð

Pots, hefur á síðustu dögum haft

milligöngu um friðarviðræður milli

Rauðu khmeranna og stjórnvalda.

Tea Banh, varnarmálaráðherra

Kambódíu, sagði í gær friðartillög-

ur Rauðu khmeranna, sem kynntar

voru í fyrradag, „einskis virði" og

efaðist um gildi þeirra staðhæfinga

að Ta Mok, harðlfnumaður innan

Rauðu khmeranna, væri sestur í

helgan stein.

Juncker vísar ásök-

unum Tyrkja á bug

senda

bæklinga

AJ.LAKI

SOLAR

HRINGINN

y»OQ

4*>00

BM'Vaílá hjálpar þér að fegra hús og

garð. Pantaðu bæklingana Húsið og

framkvæmdirnar og Garðurinn og |

umhverflð.

jW BM-VALLA

lioriii. Reuters.

JEAN-Claude Juncker, forsætis-

ráðherra   Lúxemborgar,  vísaði  í

vikunni á bug ásökunum hins tyrk-

neska  starfsbróður   síns  um   að

hann hafí hlýtt skipunum frá þýzku

stjórninni þegar ákvörðun var tek-

in á leiðtogafundi ESB í Lúxem-

borg í desember um að Tyrklandi

skyldi ekki boðið að taka upp við-

ræður  um   aðild   ^______

að sambandinu.

„Mér finnst

ásökunin eklá

meiðandi vegna

þess að hún er fá-

ránleg. Ég er vin-

ur Helmuts Kohls

[kanzlara Þýzka-

lands], en ekki hestasveinn hans,"

sagði Juncker í viðtali við þýzka

vikuritið Stern.

Dyrnar sagðar opnar

I síðustu viku lét Mesut Yilmaz,

forsætisráðherra Tyrklands, þau

orð falla í viðtali við annað þýzkt

blað, Die Zeit, að Kohl væri um að

kenna að Tyrkir skyldu ekki hafa

verið meðal þeirra þjóða sem boðið

var til aðildarviðræðna. Juncker,

sem þá var í forsæti í ráðherraráði

ESB, framfylgdi að sögn Yilmaz

aðeins skipun Kohls.

„Við krefjumst þess einfaldlega

af Tyrklandi sem við krefjumst af

öllum umsækjendum um ESB-að-

ild - virðingar fyrir mannréttind-

um, að allar landamæradeilur við

nágrannaríki séu leystar og viður-

____  kenningar á lög-

sögu Alþjóða-

dómstólsins í

Haag," sagði

Juncker. Hann

bætti við að ekk-

ert ESB-ríkj-

anna: 15 hefði

samþykkt að að-

ildarviðræður yrðu hafnar nú við

Tyrkland.

Tyrkneskir ráðamenn hafa á

undanförnum mánuðum gagnrýnt

þýzku stjórnina harkalega í sam-

bandi við þessa ákvörðun ESB, en

hún hefur ítrekað lagt áherzlu á

að aðild að ESB standi Tyrkjum

opin, svo fremi að þeir uppfylli að-

ildarskilyrðin. Um helgina hvatti

Klaus Kinkel, utanríkisráðherra

Þýzkalands, Tyrki til að „aftengja

sig ekki úr Evrópulestinni".

í fyrradag lýsti talsmaður Tyrk-

landsstjórnar því yfir að hún kærði

sig ekki um að spilla frekar sam-

bandinu við Þýzkaland vegna þessa

máls.

EVROPA*.

EFTA semur

um fríverzlun

við Kanada

VONIR eru bundnar við að

viðræður um fríverzlunar-

samning milli EFTA og

Kanada verði til lykta leiddar

fyrir lok þessa árs.

Aftenposten greinir frá því

að þessa dagana séu Norð-

menn, síðastir EFTA-þjóð-

ánna fjögurra, að ganga frá

tvíhliða samningum við

Kanada og í sumar hefjist

formlega viðræður í nafni allra

EFTA-ríkjanna við Kanada-

menn um fyrstu fríverzlunar-

samninga samtakanna sem ná

yfir Atlantshafið.

J

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88