MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 37 LISTIR Heiðurstónleikar haldnir í Hallgrímskirkju LISTVINAFÉLAG Hallgríms- kirkju gengst fyrir tónleikum nk. sunnudag undir yfirskriftinni, Sópr- an, selló og orgel. Þar koma fram sópransöngkonan Arndís Halla Ás- geirsdóttir, Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari og Hörður Askelsson organisti Hallgrímskirkju. Þau flytja fjölbreytta efnisskrá, innlend og erlend kirkjulög eftir J.S. Bach, Jón Leifs, Pál ísólfsson og Askel Jónsson, einsöngskantötu eftir ítalska barokktónskáldið G.B. Brevi og verk fyrir selló og orgel eftir Sa- int-Saens og Karl Höller. Tónleik- arnir eru haldnir til heiðurs þýska listunnandanum Peter-Paul Schautes, sem hefur um árabil verið einn af dyggustu stuðningsmönnum Listvinafélagsins, en hann hélt ný- lega upp á sjötíu ára afmæli sitt. Tónleikarnir hefjast klukkan 17. Þýski lögfræðingurinn Peter- Paul Schautes frá Mönehenglad- bach er mikill áhugamaður um kirkjutónlist. Þegar hann kom í fyrsta skipti til Islands, árið 1991, var að hefjast lokaáfangi fjáröflunar fyrir kaup á konsertorgeli Hall- grímskirkju með sölu orgelpípa. Schautes varð einn fyrstur manna til að festa kaup á einni af stærstu pípum orgelsins. Hann gekk í List- vinafélag Hallgrímskirkju og hefur síðan komið árlega til landsins til að fylgjast með helstu viðburðum í kirkjutónlistarlífi Hallgrímskirkju. Til að halda upp á sjötíu ára af- mæli sitt kaus hann að kosta tón- leika með hjónunum Ingu Rós Ing- ólfsdóttur og Herði Áskelssyni, ásamt sópransöngkonunni Arndísi Höllu Ásgeirsdóttur sem hann hafði Gítargóð- gæti fyrir jazz- geggjara HL JÓMDISKUR Björns Thorodd- sen, Jazz Guitar (Jazzís 107) hefur farið víða og hlotið góðar viðtökur. I febrúar sl. birtust dómar um hann í bandaríska jazztímaritinu Cadens og helsta dagblaði Dana, Politiken. Diskurinn fær fjórar stjörnur af sex mögulegum og er hann þar kallaður gítarnammi fyrir jazz- geggjara af hinum hefðbundna svingskóla". Þá segir m.a. að allar gítarstjörnunar sex: Björn, Philip, Catherine, Doug Raney, Jakob Fischer, Paul Weeden og Leivur Thomsen eigi það sameiginlegt að svinga eins og fjandinn væri á hæl- unum á þeim en sýna samt snyrti- mennsku og djörfung í leik sínum". Danirnir eru ánægðir með sinn mann: Jakob Fischer er kominn í frábæran félagsskap og það á hann líka skilið." Dómurinn í Cadens hefst þannig: Sem gítarleikara og hlustanda fell- ur mér fátt verr en gítarfhigelda- sýningar þar sem nótunum er skot- ið í allar áttir án takmars né til- gangs. Sem betur fer fellur enginn í þá gryfju á þessum diski." Síðan er fjallað um einstök verk á disknum og m.a. farið fógrum orðum um frammistöðu gítarist- anna, ekki síst Raneys á Völuspá Björns, Catherine á Straight No Chaiser Monks og dúett Jakobs Fishers og Björns: Softly As In A Morning Sunrise. Gagnrýnandan- um, Larry Nai, þykir Jakob Fischer skyldastur Birni af gítar- leikurunum á diskinum og hrífst sérstaklega af innileikanum í spila- mennsku þeirra. Dóma um hljómdisk Björns er að vænta á næstunni í tímaritum víða um heim. fm ^^ " ;. Í&' 1 'íi^ . ___aS jfag *m> ¦ ' -^ -¦ r1 W ¦-¦ *".x m ''mjs2.% : w ^' . * . ft i; - '' i jOtt Wmm r\ \ 7 £'¦>>-:¦ ' "mMI V~ \ % \ *H " \ Síðasta sýningarhelgi DeSign-Y DESIGN-Ý sýningu á leðurfatnaði úr íslensku hreindýraleðri í galleríi Handverks & hönnunnar að Amt- mannsstíg 1, lýkur nú á laugardag. Sýningin er opin virka daga kl. 11-17 og laugardaga kl. 12-16. Hafnarborg SÝNINGU Gunnlaugs Stefáns Gíslasonar á vatnslita- og olíuverk- um og sýningu Louisu Matthíasdótt- ur á pastelmyndum í Hafnarborg lýkur á mánudag 27. apríl. Norræna-húsið í SÝNINGARSÖLUM Norræna hússins hefur staðið yfir sýningin Norrænt grafíkþríár III. Sýningin verður opin kl. 14-18 um helgina, og síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 26. apríl. Morgunblaðið/Kristinn SÓPRANSÖNGKONAN Arndís Halla Ásgeirsdóttir, Hörður Áskelsson organisti og Inga Rós Ingólfsdóttir sellóleikari koma fram á tónleik- um á sunnudag, sem Listvinafélag Hallgrímskirkju gengst fyrir. kynnst í Þýskalandi, en hún starfar í Berlín. Þau munu flytja efnisskrá, sem samanstendur af verkum eftir höf- unda sem Schautes hefur dálæti á. Flutt verða þrjú kirkjulög við texta Hallgríms Péturssonar og þrjár orgelprelúdíur eftir Jón Leifs, en Schautes hefur hrifist mjög af verk- um Jóns. Stærsta söngverkið á tónleikun- um er verkið Deliciae terrenae eftir ítalska barokktónskáldið Giovánni Battista Brevi, en það er kantata fyrir sópran og fylgirödd sellós og orgels, samin um aldamótin 1700. Kantatan samanstendur af mörgum aríum og tónlesi og er gott dæmi um kröfuharða sönglist barokktím- ans. Arndís Halla syngur auk þess sönglag Bachs, Bist du bei mir" og Máríuvers eftir Pál ísólfsson og Áskel Jónsson. Þau Inga Rós og Hörður flytja Priére eftir franska tónskáldið Saint-Saéns og Tilbrigði við sálmalagið Dýrlegi Jesú" eftir þýska tónskáldið Karl Höller. Þessir tónleikar eru síðustu tón- leikar á vetrardagskrá Listvinafé- lagsins, en framundan er orgeltón- leikaröðin Sumarkvöld við orgel- ið", sem hefst í byrjun júlí. STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður umjean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á nsta skólaári 1998-1999. Veittur er styrkur að upphæð kr. 500.000. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og framtíðaráfbrm sendist fyrir 25. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar J óhan nssona r, pósthólf3372, 123 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjanda. Kaldársel Sumarbúðir KFUM o - Hafnarfirði Sumarbúðirnar eru á fallegum stað skammt fyrir ofan Hafnarfjörð í nágrenni Helgafells. Þar rennur Kaldá og hraunið í kring býður upp á fjölbreytt leiksvæði þar sem virki eru reist og farið í búleiki. Umhverfis er stórfengleg náttúra, vinin Valaból, eldstöðin Búrfell og móbergsfjallið Helgafell, spennandi hellar og margt fleira sem hægt er að skoða og njóta. Ýmiskonar íþróttir og leikir eru eðlilegur þáttur í starfinu. Daglega er veitt fræðsla um kristna trú og Biblíuna, kenndar bænir og vers og sungnir fjörugir söngvar. I SUMAR VERÐA FLOKKARNIR SEM HER SEGIR: DRENGIR 1.fl. 2.júní- 9.júní 7-12 ára 2.fl. 9.júní-16.júní 7-12 ára 3.fl. 18.júní-25.júní 7-12 ára HLÉ 4.fl.29.júní-6.júlí7-12 ára STULKUR 5.fl. 7.júlí-14.júlí7-12 ára 6.fl. 15.júlí-22.júlí7-12 ára 7.fl.23.júlí-30.júlí7-12 ára HLE 8.fl. 4.ágúst-11ágúst 7-12 ára Verð fyrir eina viku er kr. 15.600.- og er fargjald innifalið. Innritun fer fram á skrifstofu KFUM og KFUK við Holtaveg í Reykjavík, sími 588 8899 frá kl. 8-16 á virkum dögum. Einnig er skráð á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 17-19 á Hverfisgötu 15 í Hafnarfirði til 6. maí. Síminn þar er 555 3362. Eftirtalin fyrirtæki fa bestu þakkir fyrir veittan stuðninj Samúel V. Jónsson Pípulagningarmeistari Bæjarbakarí Bæjarhrauni 2 Tryggvi Ólafsson Ursmiður I lóprci-ðabílar K. Wdlatzen STEINAR WAAGE I ' *T " ^USGAGNAVERSLUN DDMUS WEDIC* & KIUNGIUNNI Sigga og Timo gullsmíði, s. 565 4854 Halli rakari Strandgötu 39, Harharfirði Súfistinn, kaffihús, Hafnarfirði Verslunin Embla Harharfirði Hárgreiðslustofan Guðrún Linnetsstíg 6. Hafharfirði Filmur og framköllun Hafharfirði Bólstrun Ragnars Björnssonar hf Dalshrauni 6, Hafharfirði Heimsmarkaðurinn Lækjar^ötu 30, Hafharfirði Vélaverkstæði Jóhanns Ólafs hf Bókabúð Böðvars Hafharfirði Vestfjarðarleið Ostahúsið Hafharfirði Þvottahús og efhalaug Hraunbrún 40