38 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 MORGUNBLADIÐ LISTIR Morgunblaðið/Ásdís SINFÓNfUHLJÓMSVEIT áhugamanna heldur tónleika í Neskirkju á sunnudaginn. Þetta verða síðustu tónleikar sveitarinnar á þessu starfsári. Sinfóníuhlj ómsveit áhugamanna í Neskirkju SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT áhuga- manna heldur tónleika í Nes- kirkju undir stjórn Ingvars Jónas- sonar, sunnudaginn 26. apríl kl. 17. Þetta verða síðustu tónleikar sveitarinnar á þessu starfsári. Að þessu sinni verður frum- flutt verk eftir Hildigunni Rún- arsdóttur er nefnist blandaðir dansar fyrir htjónisveit og er það samið sérstaklega fyrir hljóm- sveitina. Þá mun Helga Þórarins- dóttir leika víólukonsert eftir Telemann. Einnig mun Hulda Guðrún Geirsdóttir syngja þrjár óperuaríur eftir Tsjaíkovskí og Puccini. Sinfóníuhljómsveit áhuga- manna var stofnuð árið 1990 og hefur starfað óslitið siðan. Aðal- stjórnandi hennar er Ingvar Jón- Kuran Swing á tón- leikaferð um Norðurland KURAN SWING kvartettinn held- ur í tónleikaferð laugardaginn 25. apríl nk. um Norðurland. Fyrstu tónleikarnir verða í félagsheimilinu á Blönduósi og hefjast tónleikarnir kl. 15. Næstu tónleikar verða sama dag á Kaffi Króki á Sauðárkróki í tilefni af Sæluviku Skagfirðinga. Þeir tónleikar hefjast kl. 17. Lokatónleikar Kuran Swing verða svo á Kaffi Menningu á Dalvík og hefjast kl. 21. Kuran Swing er skipað þeim Szymoni Kuran fiðluleikara, Birni Thoroddsen gítarleikara, Ólafí Þórðarsyni gítarleikara og Bjarna Sveinbjörnssyni kontrabassaleik- ara. Kuran Swing var stofnað í jan- úar 1989 til þess að leika í eitt skipti, en þeir félagar hafa haldið hópinn og leikið víða, m.a. hefur Kuran Swing leikið í Finnlandi og Kanada, komið fram í sjónvarpi og útvarpi og gefið út einn geisladisk. Tónlist Kuran Swing er í ætt við Dj- ango Reinhard sveifluna, enda hljóðfæraskipan lík. Tveir kassagít- arar, kontrabassi og fiðla. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt, m.a. Iög eftir þá félaga og ýmsir þekktir djassstandardar. -----------? ? ? Sýning á tréskurði VORSÝNING skurðlistarskóla Hannesar Flosasonar verður í íspan- húsinu við Smiðjuveg í Kópavogi á laugardag og sunnudag kl. 14-18. Efnilegur píanóleikari Við sendum okkar hjartanlegustu þakkir til allra, bði skyldra og óskyldra, sem sendu okk- ur gjafir, blóm, skeyti, símtöl og önnur vinahót, vegna gullbrúðkaups okkar 9. apríl sl. Guð blessi ykkur öll. Unnur og Jóhannes Proppé. IIIIEIIII IIIIIIIII Félagsvísindadeild býður upp á M.A. nám við uppeldis- og menntunarfræðiskor við Háskóla íslands haustið 1998. Hægt er velja um tvær línur: I. Mat á skólastarfi II. Almennt rannsóknarnám Um er aö ræöa tveggja ára nám (60e). Nemendur sem ekki stunda fullt nám geta tekið námið á lengri tíma. Markmið M.A. námsins er að efla faglega þekkingu og færni á sviði uppeldis- og menntamála á íslandi með því að búa fólk undir rannsóknir og þróunarstörf. Umsækjendur skulu hafa lokið B.A.- prófi í félagsvísindum eða öðrum greinum eða kennaranámi á háskólastigi. Fjöldi nem- enda er takmarkaður. Við inntöku er tekið mið af einkunnum og að jafnaði gerð krafa um fyrstu einkunn (7,25). Auk þess er Iitið til starfsreynslu. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsvísindadeildar í Odda við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Um- sóknarfrestur er til 1. maí. TOIYLIST Islenska óperan PÍANÓTÓNLEIKAR Unnur Vilhelmsdóttir flutti verk eftir Chopin, Brahms, Ravel og Beethoven þriðjudagurinn 21. aprfl 1998. ÞAÐ ERU nokkur tíðendi er ungt tónlistarfólk lýkur löngum námsferli með því að halda einleiks- tónleika. Þar sker úr hversu vel var til lagt og hve vel viðkomandi er undirbúinn til frekari átaka og far- sælla starfa í framtíðinni. Unnur Vilhelmsdóttir er efnilegur píanó- leikari og kann margt fyrir sér í tækni og hefur til að bera tilfinn- ingu fyrir því ljóðræna í tónlistinni. I heild, með smá gleymskubrotum, lék hún alla tónleikana af öryggi. Hún hóf tónleikana á F-dúr ballöð- unni, op. 38 eftir Chopin, sem hefst á sérlega ljóðrænum þætti. Chopin leikur sér oft með sterkar andstæð- ur og í F-dúr ballöðunni er miðþátt- urinn sérlega erfiður, þar sem kraf- an um kraftmikinn en þó um leið liðlegan leikmáta, er í fyrirrúmi og þar átti Unnur nokkuð erfitt um vik og ekki víst að vel hafi verið ráðið, að hefja tónleikana á þessu erfiða verki. Næstu viðfangsefni Unnar voru Átta píanóverk op. 76 eftir Brahms. Ekki er vitað til þess að Brahms hafi hugsað þessi verki sem eins konar lagaflokk en í bréfi til Sim- roek, útgefanda síns, segist Brahms vera í vandræðum með að gefa verkunum nafn, þó líklega sé Ca- priccio réttnefni á verki nr. 2, en það er frægast úr þessu safni, sem í heild er ekki sérlega erfitt en þarf að flytja fallega eins og Unnur gerði. Eftir hlé lék Unnur Valse nobles et sentimentales eftir Ravel. Valsar þessir eru samdir 1911 og má segja að þeir séu eins konar spásögn um hljómsveitarverkið La Valse (1920), svo sem heyra má í valsi nr. 7. Fyrsti valsinn er nokkuð erfiður, en aðrir eru leikur Ravels með blæbrigði, dægurleg stef og skemmtilega hfjómskipan, sem var aðal Ravels. Ollu þessu skilaði Unnur fallega mótuðu, enda á hún margt að leggja með sér, þó enn verði að gefa henni tækifæri á að stemma enn frekar saman tæknina og túlkunina, sem var á köflum helst til hófstillt. Þetta kom sérlega vel fram í einu sér- kennilegasta píanóverki Beet- hovens, As-dúr sónötunni, op. 110. Fimm síðustu píanósónötur Beet- hovens mynda sérstæðan flokk, þar sem meistarinn hefur umturnað öllu sem áður einkenndi sónöturnar og er sú op. 110, sem er næstsíðasta pí- anósónatan, léttust af þessum fimm en gerir miklar kröfur til píanistans í túlkun og mótun tónhendinga og blæbriða. Þarna stendur Beethoven á tímamótum sem skáld og þykir mörgum að síðustu verk hans liggi nærri því að vera hástemmd orð- ræða. Það þýðir að verk hans eru annað og meira en leikur með tóna, tónarnir og samkipan þeirra hafa öðlast dýpri merkingu og þá merk- ingu ná þeir einir að túlka, sem hafa fetað alla einstigu, sem verkaröð Beethovens myndar, allt frá óþoli HINIR árlegu vortónleikar Söngfélags Skaftfellinga verða haldnir í Fella- og Hólakirkju í dag kl. 17. Söngfélag Skaftfellinga með vortónleika HINIR árlegu vortónleikar Söng- félags Skaftfellinga verða haldn- ir í Fella- og Hólakirkju í dag, sumardaginn fyrsta. Tónleikarn- ir hefjast klukkan 17. Kórinn heldur upp á 25 ára af- mæli sitt á þessu starfsári og helgina 1.-3. mai'halda söngfé- lagar austur í Skaftafellssýslu þar sem kórinn mun halda tón- leika í Vík og á Kirkjubæjar- klaustri. ungs manns, til heimspekilegra hugleiðinga þroskaðs listamanns. Þannig var ef tll vill ekki vel til fallið að hefja tónleikana á F-dúr ballöðunni eftir Chopin og enda á op. 110, þessari einstæðu sónötu, sem ekki er tæknilega erfið en sér- lega erfið í túlkun. Margt var fal- lega gert hjá Unni, sérstaklega í fyrri þáttunum en hún náði ekki að skila spennu fúgunnar, þannig að leikur hennar var þar í heild heldur grannhljómandi. Þrátt fyrir að efnisskráin hafi verið óvarlega valin, er ljóst að Unnur Vilhelmsdóttir er efnilegur píanóleikari og hefur á valdi sínu nokkuð góða tækni og mótar verkin oft mjög fallega, það sem helst vant- ar er meiri styrkur í hægrihandar- tæknina, svo að á stundum skorti á sönginn í mótun stefja. Debut tón- leikar eru aðeins upphafið og rétt er að spyrja að leikslokum og þangað til er löng leið að fara. Jón Ásgeirsson Burtfararpróf í einsöng ÞÓRUNN Freyja Stefánsdóttir mezzósópran heldur tónleika í Digraneskirkju laugardaginn 25. apríl kl. 16. Tónleikar þessir eru burtfararpróf hennar frá Tónlist- arskóla Garðabæj- ar. Við píanóið er Kolbrún Ósk Óskarsdóttir. Þór- unn Freyja hóf nám í Söngskólan- um í Reykjavík en s.l. 5 ár hefur hún stundað söngnám hjá Snæbjörgu Snæbjarnardóttur við Tónlistarskóla Garðabæjar. Á efnisskránni eru verk eftir Caccini, Durante, Gluck, Bizet, Schubert, Schumann, Fauré, Saint- Saéns, Sigfús Halldórsson, Inga T. Lárusson og Jón Asgeirsson. -----------?-?-?--------- Þórunn Freyja Stefánsdóttir Kyrjurnar í Víðistaðakirkju KVENNAKÓRINN Kyrjurnar halda sína fyrstu vortónleika í Víði- staðakirkju sunnudaginn 26. apríl kl. 17. Söngstjóri kórsins er Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og píanóleikari er Sigrún Grendal. Efhisskráin er fjölbreytt s.s. ís- lensk og erlend þjóðlög og sönglög. Einnig munu Kyrjurnar syngja nokkra negrasálma. Eru djöflar dauðlegir? KVIKMYNDIR liílílliil I í II FALLEN"*% Leiksrjóri Gregory Hoblit. Handrit Nicholas Kazan. Tónlist Tan Dun. Kvikmyndatökustjóri Tom Sigel. Aðalleikendur Denzel Washington, John Good- man, Donald Sutherland, Em- beth Davidtz, James Galdofini, Elias Koteas. 123 mín. Banda- rísk. Turner Pictures/Warner Bros 1998.. ILLT og gott er í brennideplin- um í nýjustu mynd Gregory Hoblits, sem hóf feril sinn sem kvikmyndaleikstjóri með vel við- unandi árangri, með Primal Fear. Hún lofaði góðu, því er Fallen janvel enn meiri vonbrigði. Hún hefst á að lögreglumaðurinn Hobbes (Denzel Washington), fylgir harðsvíruðum fjöldamorð- ingja (Elias Koteas) til aftöku. Að endingu tilkynnir hann Hobbes að þeir eigi eftir að hittast aftur og raular kotroskinn gamlan slagara með Stones - Tíminn vinnur með mér", uns gasið kæf- ir. Nú skyldi maður ætla að Hobbes hafi losnað endanlega við þennan forherta djöflamerg, en svo er ekki. Morðin halda áfram af fullum krafti og Hobbes flæk- ist æ meira inní yfirnáttúrlega at- burðarás þar sem koma m.a. við sögu guðfræðiprófessor og her- sveitir fordæmdra, á tæknimáli prófessorsins, fallnir englar. Það er því miður sárafátt gott að segja um þessa fáránlegu mynd, sem á að vera ógnvekjandi blanda af The Exorcist og In- vasion of the Body Snatchers, en er í rauninni aldrei annað og meira en langdregin, leiðinleg mistök. Hoblits nær aldrei nein- um tökum á áhorfandanum, út- færsla sögunnar er slöpp og frá- sagnarmátinn á þann veg að sí- fellt er verið að minna á að maður er að horfa á bíómynd, með að öðru leyti tilefnislausum sögu- mannsinnskotum. Hersveitir for- dæmdra sem arka um torg, eru ósköp skátalegur söfnuður, a.m.k. ef maður ber þær saman við önn- ur Satans handbendi í alvöru hryllingsmyndum, einsog Rose- mary's Baby. Maður bíður á þriðja tíma eftir að atburðarásin hrökkvi í gang en það gerist fátt áhugavert og endahnykkurinn, sem er á sinn hátt nokkuð skond- inn, og það skásta í myndinni, er skemmdur með grínaktugu loka- atriði sem virðist þjóna þeim til- gangi einum að geta blandað öðru klassísku Stones-lagi í hljóðrás- ina. Sæbjörn Valdimarsson