Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						40     FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998

MORGUNBLAÐIÐ

Fasteicjn til sölu

Skrifstofu minni hefur verið falið að annast sölu á fasteigninni

Lynghóli í Aðaldælahreppi. Nánar tiltekið er um að ræða 137

fm hús, byggt 1993 ásamt 3000 fm lóðarréttindum úr landi

Knútsstaða. Fasteignin er mjög vel staðsett, rétt við Laxá og í

ca 15 km fjarlægð frá Húsavík. Tilvalið fyrir félagasamtök.

Nánarí upplýsingar veitir Berglind Svavarsdóttir hdl.,

Höfða 2, Húsavík, sími 464 2545.

LISTIR

Aðalfundur

Aðalfundur Jökuls hf. verður haldin í Hótel Norður-

Ijósum, Raufarhöfn, laugardaginn 25. apríl 1998 og

hefst kl. 14.00

Dagskrá:

1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr.

samþykkta félagsins.

2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa

3. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á

eigin hlutabréfum í félaginu

4. Önnur mál löglega upp borin.

Ársreikningar félagsins fyrirárið 1997 ásamt þeim tillögum

sem liggja fyrir fundinum verða hluthöfum til sýnis á

skrifstofu félagsins, Aðalbraut 4-6, Raufarhöfn.

Raufarhöfn 31. mars 1998

Stjórn Jökuls hf.

DILBERF

alla fimmtudaga í

VIDSiaPTIAIVINNULÍF

Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Molde

Vigdís setur hátíðina,

Heaney flytur ljóð sín

BJ0RNSONHATIÐIN, alþjóðlega bókmenntahátíðin í

Molde í Noregi, hefst að þessu sinni 9. ágúst og stendur

til 16. ágúst. Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti,

setur hátíðina. Forseti hátíðarinnar, Knut 0degárd

skáld, segir að Vigdís muni að öllum líkindum tala í anda

þess sem hún lagði hvað mesta áherslu á í forsetatíð

sinni, það er að segja máli menningarinnar og skáld-

skaparins, ekki síst halda fram gildi bókmenntanna fyrir

sjálfsvitund þjóða og mannlegan skilning milli þeirra.

írska Nóbelsskáldið Seamus Heaney flytur ljóð sín á

hátíðinni og mun sitja fyrir svörum. Meðal annarra

kunnra rithöfunda sem kynna verk sín eru Ruth Rendell

sem kemur fram ásamt norskum sakamálasagnahöfund-

um, Anne Holt, Karin Fossum, Kim Smáge og Jo Nes-

b0.

Sérstakur ljóðadagur

Fleiri höfundar en þeir sem skrifa um sakamál láta að

sér kveða á hátíðinni. Sérstakur ljóðadagur verður með

Heaney í fararbroddi, en þátttakendur auk hans verða

m.a. Áse Marie Nesse, Kolbein Falkeid, Arne Ruset og

Gro Dahle.

Norrænar bókmenntir eiga fulltrúa á hátíðinni sem

eru m.a. nýr verðlaunahafi Norðurlandaráðs, finnska

skáldkonan Tua Forsström, Steinunn Sigurðardóttir,

Göran Tunström, S0ren Ulrik Thomsen og Kjartan

Fl0gstad.

Fjöldi norskra rithöfunda les að venju upp á hátíðinni.

Frá Bandaríkjunum kemur Richard Ford, Pulitzer-

verðlaunahafi og afganski rithöfundurinn Maryam

Azimi, sem fékk pólitískt hæli í Noregi 1994, kynnir

verk sín.

Hátíðin í Molde er alþjóðleg í eðli sínu og verður boðið

upp á margt fleira en bókmenntir. Leiklist, myndlist,

tónlist, djass og dagskrár með þjóðlegu efni eru fyrir-

hugaðar. Einnig verður efnt til sýningar á íslenskri sam-

tímalist, enda er hátíðin mjög íslensk að þessu sinni.

Verðlaun sem Rithöfundasambandið norska veitir í

nafni hins frjálsa orðs og prentfrelsis verða veitt og er

það í anda Bj^rnstjerne Bj0rnsons og hugsjóna hans.

Vigdís

Finnbogadóttir

Steinunn

Sigurðardóttir

Seamus Heaney

Knut 0degárd

Bj0rnsonhátíðin er nú haldin í sjötta sinn og er viður-

kennd sem stærsta og ein áhrifamesta norræna bók-

menntahátíðin.

Norrænu

útvarpsleik-

húsverð-

launin 1998

NORRÆNU útvarpsleikhúsverð-

launin hafa verið veitt útvarpsleik-

húsi norska ríkisútvarpsins fyrir

útfærslu sína á

leikritinu „Pétur

Gautur" eftir Hen-

rik Ibsen.

Útvarpsstjóri,

Markús Orn Ant-

onsson afhenti Nils

Heyerdahl, leiklist-

arstjóra norska

ríkisútvarpsins,

verðlaunin. Þau

nema átta hundruð

tuttugu og fimm þúsundum króna.

Að auki var veittur verðlaunagrip-

ur; listaverk eftir Þórunni S. Þor-

grímsdóttur, en kjarni þess er

hlust úr steypireyð.

Utvarpsleikgerðin að Pétri Gaut

var unnin af Carl Henrik Grön-

dahl, Aasmund Feidje samdi tón-

list og Arne Barca sá um hljóð-

vinnslu. Leikstjóri var Steinar

Berthelsen, en hann hefur leikstýrt

bæði í leikhúsi og útvarpi frá því

hann útskrifaðist frá Dramatiska

Institutet í Stokkhólmi. Hann hlaut

hin virtu verðlaun Prix Italia árið

1992 fyrir leikstjórn á útvarpsleik-

ritinu Alvhild, eftir Karl Hoff.

Inga Faarborg flutti dómnefnd-

arálit dönsku dómnefndarinnar, en

þar segir m.a.: „...sagan fangar

mann, vekur til umhugsunar og er

á sama tíma heill hljómheimur út

af fyrir sig. Tónlistin, hljóðmynd-

irnar og kraftmikill leikurinn

skapa í sameiningu smekklega

heildarmynd. Það sýnir hversu

mikil og góð forvinna hefur verið

unnin, að tónlistin fær sitt pláss og

kemur manni sífellt á óvart... Leik-

urinn er frábær.

Þíða í Peking

KVIKMY]\ÐIR

Kringlubíó

„RED CORNER" • *

Leikstjóri: Jon Avnet. Handrit:

Robert King. Aðalhlutverk:

Richard Gere, Bai Ling. Metro

Goldwyn Meyer. 1997

í SPENNUMYNDINNI

„Red Corner" leikur Richard

Gere bandarískan kaupsýsk-

mann sem vaknar við það á hót-

elherbergi í Peking að vera rif-

inn upp úr rúminu af kínversku

lögreglunni og hent í fangelsi

sakaður um að myrða kín-

verska lagskonu sína, sem ligg-

ur í blóði sínu í herberginu.

Gere hafði aldrei séð hana fyrr

en hann fylgdi henni upp á her-

bergið kvöldið áður og man

óglöggt atburði næturinnar en

neitar staðfastlega að hafa átt

þátt í morðinu á henni. Kín-

versk yfirvöld blása á þesskon-

ar væl og við manninum blasir

dauðadómur sem framfylgt er

viku eftir dómsuppkvaðningu

og reikningur fyrir byssukúl-

una, sem skotið verður í hnakk-

ann á honum, mun sendur fjöl-

skyldu hans.

Þetta         er         dæmigerð

Hollywoodsaga sem gerst hefði

í Moskvu ef blessað kalda stríð-

ið væri enn við lýði. Nú hefur

Kína tekið við sem hið illa

heimsveldi og saklausi Amer-

íkumaðurinn upplifir þar

martröð einræðis og kommún-

istastjórnar en eygir von um

betri framtíð og bjartara stjórn-

arfyrirkomulag í ungu kynslóð-

inni. Fulltrúi hennar er gullfal-

legur og harðákveðinn kven-

maður, lögfræðingur i Peking,

sem Ameríkananum er skipað-

ur. Myndin kemur inná allar

helstu gömlu lummurnar úr

svipuðum myndum sem áður

gerðust í Sovétgúlaginu og er að

því leyti talsvert fyrirsjáanleg; í

hvert sinn sem Gere gagnrýnir

Kína fær hann andsvar um tíðni

glæpa og ungbarnadauða í

blessuðum Bandaríkjunum.

En „Red Corner" er einnig

fyrirsjáanleg sem spennumynd.

Það liggur ljóst fyrir frá upp-

hafi að veríð er að koma Gere í

klípu og það er aðeins einn aðili

sem kemur til greina í þeim

efnum. Myndin er of löng og

svipljótum Kínverjum tekst

ekki að draga úr því hætishót.

Einnig dregur nokkuð úr krafti

myndarinnar að morðmálið er

notað sem einskonar uppfylling

í sögu um ólík lífsviðhorf sem

endurspeglast í kínverska lög-

fræðingnum og bandaríska

kaupsýslumanninum. Myndin

virkar fyrst og fremst sem lýs-

ing á batnandi sambúð og skiln-

ingi á milli Kína og Bandaríkj-

anna. Kínversk stjórnvöld eru

ekki gersneydd mannúð. Kóka-

kóla er bara gosdrykkur.

Gere virðist í toppformi sem

fórnariambið í myndinni, gáfu-

legur með gleraugun og brattur

alltaf þrátt fyrir miklar raunir.

Bai Ling heitir unga konan sem

fer með hlutverk lögfræðings

hans og virðist ástríðufull leik-

kona. Aðrir fara með mun

minni hlutverk.   •

Fyrir þá sem hafa áhuga á

því gleymda hugtaki þíðu á milli

tveggja stórvelda er „Red

Corner" myndin. Hún hefur all-

ar réttu meiningarnar. Það er

engin óþægð í henni og það er

kannski hennar stærsti galli.

Arnaldur Indriðason

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88