Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						42     FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998

MORGUNBLAÐIÐ

Nýkomin sending af

mexikóskum

sveitahúsgógnum.

vm

Nýbýlavegi 30 (Dalbrekkumegin),

sími 554 6300.

m

IHÍflfea

JStoíjTlJ

Mörkinní 3 • sími 588 0640

E-matl: casa@ishndia.is •www.cassina.il

• www.roseI.de

• www.artemide.com

• www.rilzenhoff.de

• www.kartell.it

•  www.fontanaarte.it

» www.zanotta.it

»www.flos.it

i www.alessi.it

i www.fiam.it


PBKKur

Lagermal eru okkar sergrem

Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi

fyrir vélvædd vörugeymsluhús

sem minni lagera.

Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.

Aðeins vönduð vara

úr sænsku gæðastáli.

Mjög gott verð.

Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.

Leitið ráða vifl skipulagningu

og byggingu lagerrýma.

Þjonusta - þekking - raogjöl. Aratuga reynsla.

UMBOÐS' OG HEILDVERSLUN

SUNDABORG 1, RVK • SÍMI568 3300 - FAX 568 3305

LISTIR

Alúð og sönggleði

TONLIST

Digraneskirkja

KÓRTÓNLEIKAR

Flutt voru kórlög eftir innlenda og

erlenda höfunda. Samkór Kópavogs

ásamt Auði Gunnarsdóttur, sópran

og Claudio Ki/./.i, píanóleikara.

Stjórnandi Dagrún Hjartardóttir.

ÞAÐ er til merkis um gildi tón-

listarinnar fyrir þessa þjóð hve

margir taka þátt í söngstarfi vítt og

breitt um landið. Hlutfallslega eru

kórarnir flestir úti á landi en kórar í

þéttbýli láta ekki heldur sitt eftir

liggja. Daginn fyrir síðasta vetrar-

dag blés Samkór Kópavogs til tón-

leika í Digraneskirkju og fékk til

liðs við sig Auði Gunnarsdóttur,

sópran, og ítalska píanóleikarann

Claudio Rizzi. Á efnisskrá voru kór-

lög frá ýmsum tímum eftir íslenska

og erlenda höfunda, einnig verk úr

söngleikjum og óperum.

Fyrri hluti efnisskrárinnar var

einkum eftir íslensk tónskáld. Tón-

leikarnir hófust á lögunum Þú ert

eftir Þórarin Guðmundsson og Jeg

elsker dig eftir Jón Þórarinsson,

bæði í útsetningu Björgvins Þ.

Valdimarssonar. Auður Gunnars-

dóttir söng einsöng með kórnum í

síðara laginu. Næst söng kórinn

fjögur erlend lög: Að lindum,

franskt lag frá 16. öld, Fann ég á

fjalli eftir ungverska tónskáldið La-

jos Bárdos og síðan tvö norræn lög:

Vögguljóð á vetri eftir Tove Knut-

sen og Næturljóð eftir Evert

Taube. Efnisskránni fyrir hlé lauk

með fjórum lögum eftir Jón Ás-

geirsson: Vorvísu, Vorum hinsta

degi, Fyrirlátið mér og Lokakór úr

Þrymskviðu. Auður söng Vorn

hinsta dag með kórnum og var

flutningurinn hinn ágætasti.

Eftir hlé kvað við nýjan tón. Þá

söng kórinn lög úr West Side Story

eftir Bernstein, Tonight og Maria,

þá söng hann Nú vetur dvín úr

Showboat eftir Kirm og Þú ert

aldrei einn á ferð úr Carousel eftir

Rodgers. Lagið úr Showboat var

sérlega vel sungið; kórinn komst á

flug og áheyrendur gleymdu sér um

stund í þessum lifandi vorsöng. En

kórinn hafði ekki sagt sitt síðasta

orð: eftir fylgdu þrjú lög úr

Carmínu búrönu eftir Carl Orff:

Swaz hie gat umbe, Chume, chum,

Geselle min og Were diu werlt alle

min. Þar reyndi heldur betur á þol-

rif stjórnandans í örri og sveigjan-

legri hrynjandi; kórinn söng lögin

frábærlega vel undir öruggri stjórn

Dagrúnar Hjartardóttur.

Tónleikunum lauk með þremur

óperuverkum: Auður Gunnarsdóttir

söng Casta diva úr Normu eftir

Bellini, þá söng kórinn Veislukórinn

úr Luciu di Lammermoor eftir Don-

izetti og loks sameinuðust allir flytj-

endur í Heia in den Bergen úr Tsj-

ardasfurstynjunni eftir Kalman.

Þessi verk eru alls ekki einföld í

flutningi en voru engu að síður

sungin af miklu öryggi.

Samkór Kópavogs er skipaður

hátt á fimmta tug söngfélaga. Kór-

inn hefur góðan hljóm, raddbeiting

er óþvinguð og flutningur allur lif-

andi. Hann söng alla efnisskrána ut-

anbókar sem er til fyrirmyndar og

textaframburður var mjög góður.

Allir þessir þættir gerðu tónleika

Samkórsins mjög ánægjulega og

bera vinnubrögðum stjórnandans

fagurt vitni. Auður Gunnarsdóttir

hefur skipað sér á bekk með okkar

fremstu söngkonum; hún söng

Casta diva sérlega glæsilega og var

kórnum líkt og vítamínsprauta í öðr-

um lögum sem hún söng. Claudio

Rizzi píanóleikari setti ferskan svip

á tónleikana með ítölsku tempera-

menti sínu; hann átti ekki minnstan

þátt í að vekja þá alúð og sönggleði

sem ríkti á tónleikum Samkórsins í

Digraneskirkju.

Gunnsteinn Ólafsson

Tvö ný verk

eftir Snorra

Sigfús

frumflutt

TVÖ NÝ tónverk eftir Snorra

Sigfús Birgisson verða frumflutt

á tónleikum í Norræna húsinu kl.

12.30 á laugardaginn kemur.

Tónleikunum lýkur kl. 13. Annað

verkið, fyrir einleikspíanó, mun

Snorri sjálfur leika en hitt, sem

samið er fyrir einleiksflautu,

verður flutt af Martial Nardeau.

Flautuverkið, sem Snorri seg-

ir að sé aðalverk tónleikanna,

nefnist Partita. Er það samið

sérstaklega með Martial Nar-

deau í huga og tileinkað honum.

„Martial átti stórafmæli í fyrra,

varð fertugur, og er verkið

samið af því tilefni. Það er alltaf

jafn gaman að semja fyrir Marti-

al því honum er fátt, ef nokkuð,

óyfirstíganlegt í flautuleik," seg-

ir Snorri.

Partita er í tíu samtengdum

köflum og kveðst Snorri hafa

leitast við að semja það í „einum

Morgunblaðið/Kristinn

MARTIAL Nardeau flautuleikari og Snorri Sigfús Birgisson tónskáld

og píanóleikari verða ekki við matarborðið í hádeginu á laugardag

enda bókaðir á tónleikum í Norræna húsinu.

dramatískum boga". „Ég vona að

það hafi tekist."

Píanóverkið er hið fjórða í röð

verka sem Snorri kýs að kalla

Portrett. Er það í einum kafla.

Yrkir tónskáldið þar um ákveðn-

ar persónur en velur, sem fyrr, að

láta nöfn liggja milli hluta. Por-

trett nr. 4 var samið í febrúar og

mars síðastliðnum en Snorri von-

ast til að röðin eigi eftir að vinda

upp á sig á næstu misserum.

Ert þú að verða sköllóttur?

Eða er hárið farið að

þynnast?

i Þetta er ekki hárkolla!

Við leysum það með Apollo hári,

sem verður hluti af þér allan

sólarhringinn.

Viltu nýtt útlit?

Viltu meira hár?

Áhugasamir hafi

samband í síma:

552 2099, Apollo hárstúdíó,

453 6433, Pýramídinn,

474 1250, Hársnyrtist. Herta.

J^rn Petersen, Apollo

sérfræðingur, kynnir

Apollohár og Megaderm við

hárlosi

í Reykjavík        29.-30. apríl

og 3. maí,

á Sauðárkróki   1. maí,

á Reyðarfirði     2. maí.

A-HOjL/jL/O hárstúdíó,

Hringbraut 119, Reykjavik.

Sj-STEtAS

Sími 552 2099.

Burtfararpróf

í Fella- og

Hólakirkju

TÓNLEIKAR verða haldnir á veg-

um Tónlistarskólans í Reykjavík í

Fella- og Hólakirkju sunnudaginn

26. aprí kl. 20.30.

Tónleikarnir eru

burtfararpróf

Berglindar Maríu

Tómasdóttur,

flautuleikara frá

skólanum. Anna

Guðný           Guð-

mundsdóttir leik-

ur með á píanó.

Auk þeirra koma

fram Ögmundur

Jóhannesson gítar, Ari Þór

fíðla, Álfheiður

víóla   og

Bergflind María

Tdmasddttir

Þór

Vilhjálmsson

Hrönn   Hafsteinsdóttir

Kristín Lárusdóttir selló.

A efnisskrá eru Sónata í e-moll

efitr MWV 1034 eftir J.S. Bach,

Image fyrir einleiksflautu eftir

Eugéne Bozza, Bordel 1900 eftir

Astor Piazolla, Kvartett í D-dúr

KV 285 fyrir flautu og strengi eftir

W.A. Mozart og Chant de Linos

eftir André Jolivet.

Burtfararpróf

í Fella- og

Hólakirkju

TÓNLEIKAR verða haldnir á

vegum Tónlistarskólans í Reykja-

vík í Gerðubergi, laugardaginn 23.

apríl kl. 17. Tón-

leikarnir         eru

burtfararpróf

Áka Ásgeirssonar

trompetleikara

frá       skólanum.

Kristinn         Örn

Kristinsson leikur

með á píanó.

Auk þeirra

koma fram Helga

A. Jónsdóttir,

blokkflauta, Kristín Lárusdóttir,

selló, Hallveig Rúnarsdóttir, sópr-

an, og Steingrímur Þórhallsson,

orgel.

A efnisskrá eru Sonata a 3 (1610)

eftir Giovanni Paolo Cima, Úr „7

Arie con Tromba Sola" (ca. 1700)

eftir Alessandro Scarlatti, Sónata

(1957) eftir Kent Kennan, Tower

Music (1988) eftir Þorkel Sigur-

björnsson og Einleiksverk (1998)

eftir Aka Asgeirsson.

Áki

Ásgeirsson

Guðrún og

Camilla

sýna í Lista-

safni ASÍ

TVÆR sýningar verða opnaðar í

Listasafni ASÍ, Freyjugötu 21 á

föstdaginn kemur kl. 17.1 Ásmund-

arsal sýnir Guðrún Gunnarsdóttir

þrívíðar teikningar unnar úr vír,

gúmmí og plasti og í Gryfjunni sýn-

ir Camilla Vasudeva tví- og þrívíð

verk unnin úr handgerðum pappír.

Þetta er fjórtánda einkasýning

Guðrúnar og auk þess hefur hún

tekið þátt í mörgum samsýningum

hérlendis og erlendis.

Camilla er íslensk/indversk, býr á

Englandi en hefur dvalið hér á landi

undanfarna fimm mánuði. Camilla

útskrifaðist úr textíldeild Háskólans

í Dundee, Skotlandi 1997.

Sýningarnar standa til 10. maí og

eru opnar alla daga nema mánu-

daga frá kl. 14-18.

? ??

Vindur og ljós í

Möguleikhúsinu

FRANSKI leikhópurinn Abal

Company sýnir leiksýninguna Vind-

ur og ljós í Möguleikhúsinu við

Hlemm, laugardaginn 2. maí kl. 14.

Vindur og ljós er sýning án orða.

sem ætluð er börnum á aldrinum 4-

12ara.

í sýningunni renna tónlist og

boltakúnstir saman í sögu fyrir

unga áhorfendur. Tilgangurinn er

að leiða börnin inn f heim þar sem

tónlist og myndir eru eitt, en leyfa

þeim um leið að búa til sína eigin

sögu innan sögunnnar.

„Leikritið hefst við sólarupprás í

friðsælli veröld: heimi tveggja

spaugilegra vina, annar leikur sér

með bolta af mikilli kúnst, hinn er

tónlistarmaður. Þeir hafa alla tíð

búið í litlum kofum sínum og fylgt

æðaslætti náttúrunnar. Líf þeirra

tekur þó miklum breytingum er

þeir finna dularfulla lýsandi steina í

dimmum helli og bera fer á ósætti

milli þeirra.

Þeir verða að standast þessa

prófraun til að fínna hamingjuna að

nýju," segir í kynningu.

Flytjendur eru leikarinn Eric

Patrois og saxófónleikarinn Fréder-

ie Bodu en leikstjóri er Laurent

Merienne.

----------???--------

„Sól og vor ég

syng um"

KÓR Hafnarfjarðarkirkju heldur

vortónleika sunnudaginn 26. apríl

kl. 16 í Hafnarfjarðarkirkju. Tón-

leikarnir bera yfirskriftina „Sól og

vor ég syng um".

Dagskráin er fjölbreytt, allt frá

gömlum kirkjulögum til vor- og

sumarlaga. Nokkir kórmeðlimir

sem stundað hafa söngnám syngja

einsöng með kórnum. Stjórnandi

kórsins er Natalía Chow og undir-

leikari er Helgi Pétursson.

Kórinn mun því næst halda í tón-

leikaferð austur á land. Þann 30.

maí kl. 16 mun kórinn syngja í

Egilsstaðakirkju.

Aðgangseyrir er 500 kr.

-----------«-*4---------

Vöfflur og

tónlist

TÓNLISTARFÉLAG Akraness og

Tónlistarskólinn á Akranesi halda

upp á sumarkomuna með því að

gefa fólki kost á að koma í tónlistar-

skólann sumardaginn fyrsta frá kl.

15-17 og fá sér kaffi og vöfflu um

leið og flutt verður tónlist af ýmsum

toga. Flytjendur tónlistar eru nem-

endur og kennarar tónlistarskólans,

sönghópurinn Sólarmegin og Kór

eldri borgara.

Allur ágóði af þessum vöfflutón-

leikum rennur í byggingarsjóð Tón-

listarfélagsins.

•

!

i

I

I

»

!.

»

P

f

»

»

»

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88