Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998     53

ir

MINNINGAR

RAGNHILDUR RUN

GUNNARSDÓTTIR

+ Ragnhildur Rún

Gunnarsdóttir,

Eyrarvegi           20,

Grundarfírði,

fæddist á Húsavík

28.           september

1994. Hún lést á

Landspítalanum 16.

apríl síðastliðinn.

Foreldrar hennar

eru Hrafnhildur

Jóna Jónasdóttir, f.

26.4. 1969, og

Gunnar Jóhann

Elísson, f. 29.4.

1972. Bróðir Ragn-

hildar er Jónas Elís Gunnars-

son, f. 29.10.1997.

Utför Ragnhildar Rúnar fer

fram frá Grundarfjarðar-

kirkju í dag og hefst athöfnin

klukkan 14.

Ó,bHJesú,blessaþú

það barn er vér þér færum nú,

tak það í faðm og blítt það ber

með börnum Guðs á örmum þér.

(V. Briem.)

Nú þegar sólin er farin að skína og

fuglarnir að syngja, fá afi og amma

ekki lengur að heyra í litla söngfugl-

inum sínum. Hún sem kom með svo

margt fallegt og gott inn í okkar líf

er nú farin frá okkur. Aldrei hefðum

við trúað því, eftir yndislega páska-

viku hjá langafa og langömmu á

Húsavík, að við ættum ekki eftir að

hittast aftur öll kát og glöð. Litla

prinsessan okkar sem hefur háð

hverja orustuna á fætur annarri og

alltaf sigrað þar til nú. Hún var

augasteinninn okkar allra enda

kenndi hún okkur óspart að trúa á

hið góða í lífinu.

Það er erfitt að sjá ekki bjarta

brosið þitt, heyra þig syngja eða

hlæja og geta ekki tekið utan um þig

og knúsað meir. Við sem ætluðum að

gera svo margt. Afi, amma og þú

læra á tölvuna, fara saman í sumar-

bústaðinn, labba í kjallaranum og

hjóla á pallinum sem afi var að byrja

á að gera svo það væri pláss fyrir öll

litlu börnin okkar til að leika sér á.

En þú, elsku engillinn okkar, hefur

eflaust verið kölluð til annarra verk-

efna á æðri stöðum, allavega verða

afi og amma að reyna að trúa því.

Megi góður Guð gefa mömmu,

pabba og litla bróa styrk í þeirra

miklu sorg.

Guð geymi þig.

Þinn,

afi Jónas og amma Sigríður.

Vertu yfir og allt um kring

með eilífri blessun þinni,

sitji Guðs englar saman í hring

sænginni yfir minni.

(Sig. Jónsson frá Presthólum)

Guð gefi ykkur öllum

styrk á þessari sorgar-

stund.

Kveðja,

Anima Þóra, afi

Pétur, Þorgerður,

Guðlaug, Rúna og

fjölskyldur.

Elsku litli engill. Nú

ertu farin frá mér

bara sisvona, eins og

þú þurftir að hafa

fyrir að vera hjá okk-

ur í upphafi. Það var

með ólíkindum hvað

þú varst dugleg að

berjast fyrir þínu og öll krafta-

verkin sem þú gerðir fyrir okkur

hin eru alveg ótrúleg. Þú kenndir

okkur svo margt um lífið og hvað

maður má vera þakklátur fyrir

það sem maður hefur. Gleði þín og

útgeislun var hreint með eindæm-

um.

Ég veit að þar sem þú ert núna líð-

ur þér vel og þú hleypur um og leik-

ur þér, þú átt lfka eftir að stelast nið-

ur í kjallara til afa, að æfa þig að

labba eins og þið afi gerðuð alltaf og

þér fannst svo gaman. Eg þakka fyr-

ir þann tíma sem við áttum saman þó

ég hefði viljað að hann hefði varað

miklu lengur.

Ég sakna þín alveg ofboðslega.

Þín,

Þórunn Hilda (Tótla).

Elsku litla frænka mín er farin frá

mér. Það var alltaf svo gaman hjá

okkur þegar við sváfum saman í

Sæyó hjá afa Skafa og ömmu Sirru.

Ég mátti ekki af þér sjá þegar þú

komst til Reykjavíkur og stundum

kom ég til þín í Grundarfjörð.

Það var svo gaman hjá okkur á

Húsavík, hjá afa gamla og ömmu

gömlu um páskana. Þú varst svo sæl

og ánægð í afmælinu hans afa gamla,

við sungum og dönsuðum og alltaf

varst þú brosandi og sæl, sama hvað

gekká.

Núna ert þú á himninum í hvítum

kjól og með vængi og hleypur á eftir

kisunni minni, honum Pobrúsk, sem

er líka á himninum.

Elsku frænka, ég kveð þig með

þessu erindi sem ég er búin að vera

að raula síðan þú fórst.

Tunglið, tunglið, taktu mig

og berðu mig upp til skýja.

Hugurinn ber mig hálfa leið

í heimana nýja.

Þín frænka,

Unnur Osp.

Elsku Ragnhildur Rún. Nú kveðj-

um við þig í síðasta sinn. Þú varst

alltaf svo dugleg sama hvað var að,

og alltaf svo indæl og góð. Ég man

alltaf eftir því þegar ég sá þig á

Vökudeild Landspítalans og þú virt-

MARIA JULIANA

KJARTANSDÓTTIR

+ María Júlíana Kjartansdótt-

ir fæddist í Stykkishólmi 21.

maí 1920. Hún lést á Sjúkrahúsi

Reykjavíkur 8. apríl síðastliðinn

og fór útför hennar fram frá

Keflavíkurkirkju 18. apríl.

Dís minna drauma, kona engri

lík. Á stundum sem þessum, þegar

sorgin nístir, er erfitt að gleðjast en

minningin um þig er samt svo ljúf.

Alltaf varstu full af bjartsýni og

gleði. Bros þitt og hlátur. Alltaf eitt-

hvað að gerast, alltaf á ferð og flugi.

Svo lipur og létt í lund. Svo aðdáun-

arverð í alla staði. Ég veit með þér

kveðjum við merka konu. Konu sem

bjó yfir mikilli visku. Konu sem bjó

yfir þeim yndislega eiginleika að líta

á mann sem jafningja, sem þótti

mikið til unga fólksins koma. Konu

sem var stödd í núinu. Að tala við

Mðllu var eins og að vera með vin-

konu sinni. Það var enginn aldurs-

munur. Þess vegna er svo erfitt að

skilja að hún skuli ekM lengur vera

lifandi, gangandi á meðal okkar.

Það hvarflaði aldrei að mér að hún

myndi deyja. Ef til vill er það af því

að Malla var alltaf svo full af lífi.

Ég er þakklát fyrir að hafa

kynnst Möllu minni og fyrir það

veganesti sem hún hefur gefið mér.

Allt sem hún var mér, allar þær

stundir sem við áttum saman eru

mér sem fjársjóður.

Það sakar ei minn saung, því minníng þín

í sálu minni eilíft líf sér bjó.

Af yndisþokka, ást og mildri ró

eins og þú komst í fyrsta sinn til mín.

Eins og þú hvarfst í tign sem mál ei tér

með tár á hvarmi í hinsta sinn frá mér.

(Halldór Laxness)

Laufey Brá.

ist vera alveg heilbrigð. Eins þegar

við sáumst á Barnad'eild Hringsins

og Særós fékk að sjá þig í fyrsta

skipti. Hana langaði svo að leika við

þig en þú gast það ekki svo Særós

lék sér ein. Svo fékkst þú loksins að

koma heim í fallega bæinn okkar,

Grundarfjörð.

Eftir að þú byrjaðir að tala, þá lá

við að þú stoppaðir ekki. Þú og

Særós tókuð stundum lagið saman

þó ungar væru. Svo má ekki gleyma

þegar þið Ragna amma fóruð að

syngja saman og þá sérstaklega

„Undir dalanna sól" og var það bara

byrjunin. Þú varst alltaf svo góð við

hana.

Þú varst líka svo góð við okkur

systkinin og alltaf komstu mér á

óvart. Eg gleymi t.d. aldrei þegar ég

var í tölvunni hjá ykkur og þú sast

ein inni í eldhúsi en ég var frammi og

þú sagðir: „Hjalti, komdu til mín."

Þetta var í fyrsta sinn sem þú sagðir

nafnið mitt. Svo voruð þið Særós líka

góðar vinkonur og Særós vildi alltaf

passa þig þó þið væruð jafhgamlar.

Svo þegar litli bróðir þinn fæddist þá

varst þú svo góð við hann og ef það

þurfti að snýta honum sagðir þú:

„Oj, hann er með hor," og fleira í

þeim dúr.

Að lokum viljum við systkinin

þakka þér fyrir allar samverustund-

irnar sem við áttum með þér. Við

biðjum Guð almáttugan að styrkja

Hanna, Hrafhhildi Jónu, og aðra

ættingja í sorginni.

Guð veri með okkur öllum.

Sofðu blíða barnkind mín!

Byrgðu aftur augun þín,

friðarins guð þér frelsi bjó,

fyrir það sofðu í góðri ró.

Geymi þín drottinn dýrðarhæstur

og dillidó.

(Steingr.Thorst.)

Hjalti Vignir

og Særún Ósk.

Við kveðjum þig með sárum sökn-

uði, elsku litla Ragnhildur Rún, og

þökkum þér fyrir allt sem þú gafst

okkur. Við þökkum björtu brosin

þín, þau lýsa okkur fram á veginn.

Við munum fallegu glettnu augun

þín og svo margar gleðistundir sem

við áttum með þér. Þú verður áfram

í hugum okkar og hjörtum og hjálp-

ar okkur að skilja lífið og tilveruna.

Við biðjum góðan Guð að blessa og

styrkja alla ástvini þína í sorg þeirra.

Við ljúkum þessum orðum með

hluta úr ljóði eftir Tómas Guð-

mundsson:

En meðan árin þreyta hjörtu hinna,

sem horfðu eftir þér í sárum trega,

þá blómgast enn og blómgast ævinlega,

þitt bjarta vor í hugum vina þinna.

Og skín ei pfast ævi þeirra yfir,

sem ung á morgni lífsins staðar nemur,

og eilíflega, óháð því sem kemur,

í æsku sinnar tignu fegurð lifir?

Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki

um lífsins periu í gullnu augnabh'ki.

Börn og starfsfólk í leikskólan-

um Sólvöllum, Grundarfirði.

t



Þegar andlát

ber að höndum

Útfararstofa kirkjugarðanna ehf.

Sími 5511266

Allan sólarhringinn

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,

tengdafaðir og afi,

GÍSLI TÓMASSON,

lést á Landspítalanum mánudaginn 20. apríl

síðastliðinn.

Jarðarförin     fer    fram     frá     Grensáskirkju

þriðjudaginn 28. apríl kl. 15.00.

Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á

STYRK,    samtök   krabbameinssjúklinga   og

aðstandenda þeirra.

Kristbjörg Sigjónsdóttir,

börn, tengdabörn og barnabörn.

t

Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-

móðir, amma og langamma,

STEFANÍA MAGNÚSDÓTTIR,

Fagrahvammi,

Blesugróf,

verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-

daginn 24. apríl kl. 15.00.

Þorgeir Einarsson,

Einar Þorgeirsson,               Sigrún Edvardsdóttir,

Magnús Þorgeirsson,          Sigríður Gunnarsdóttir,

Ingigerður Þorgeirsdóttir, Ingólfur Guðnason,

Anna Þorgeirsdóttir,

barnabörn og barnabarnabörn.

t

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,

MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR,

Bakkabraut 5,

Vík i Mýrdal,

verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn

25. apríl kl. 14.00.

Sigurlín Guðlaugsdóttir,

Guðrún Guðlaugsdóttir,   Helgi Þorsteinsson,

Jóna Guðlaugsdóttir,        Hrafn Þórhallsson,

Guðmundur Guðlaugsson

og barnabörn.

t

ÖLAFUR VIGFÚSSON,

Hafnargötu 2,

Keflavík,

lést fimmtudaginn 16. apríl.

Útför hans fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 25. apríl kl. 16.00.

Vandamenn.

t

Sonur minn, bróðir okkar, sambýlismaður og fósturfaðir,

FRANKLÍN ÞÓRÐARSON

bóndi,

Litla-Fjarðarhorni,

Strandasýslu,

verður jarðsettur frá Kollafjarðarneskirkju laugardaginn 25. apríl

W. 14.00.

Ingibjörg Bjamadóttir,

Jóna Þórðardóttir,

Ingunn Þórðardóttir,

Þórdís Kristjánsdóttir,

Steinar Magnússon.

		

+		

1 Hjartans þakkir til ykkar allra, sem auðsýndu mér samúð og aðstoð við útför eiginmanns míns, BÖÐVARS STEFÁNS DANÍELSSONAR.		BH^Hí

Einnig þakka ég starfsfólki á lungnadeild Vífils-staðaspítala fyrir góða hjúkrun í veikindum hans. Guð blessi ykkur öll og gleðilegt sumar.	A :	__B____

Guðrún Helga Sigurðardóttir.		

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88