Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Morgunblašiš

og  
S M Þ M F F L
. . . 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |



Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Morgunblašiš

						MORGUNBLAÐIÐ

FIMMTUDAGUR 23.

Oí!

APRÍL1998     61

í

<

i

J



4

1

I

J

I

AÐSENDAR GREINAR

Hugmyndafræði

endurhæfingar og

þáttur hjúkrunar

GRENSASDEILD,

endurhæfingar- og

taugadeild Sjúkrahúss

Reykjavíkur á 25 ára

starfsafmæli um þessar

mundir. Grensásdeild

er eina endurhæfingar-

deild sinnar tegundar

hér á landi og þjónar

því mikilvæga hlut-

verki að veita frum-

eða bráðaendurhæf-

ingu eftir slys eða sjúk-

dóma. Fjölmargir ís-

lendingar ungir sem

aldnir hafa notið þjón-

ustu deildarinnar og

flestir fengið nokkurn

bata. Markviss endur-

hæfing hefur gert þeim kleift að

komast út í þjóðfélagið að nýju þar

sem þeir eiga meiri möguleika á að

njóta betra og auðugra lífs en ella.

Hugmyndafræðin í starfsemi

endurhæfingar er byggð á þverfag-

legri samvinnu og teymisvinnu ým-

issa faghópa heilbrigðisstétta,

skjólstæðingsins og fjölskyldu

hans og felur í sér m.a. lækningu,

hjúkrun, þjálfun og ráðgjöf. Allir

vinna þeir að sama markmiðinu að

auka færni og sjálfsbjargargetu

sjúldingsins til að gera honum

kleift að útskrifast heim, oft við

breytt lífsskilyrði. Um leið er reynt

að hámarka gæði þess lífs sem

honum verður mögulegt að njóta

við breyttar forsendur. Þetta

krefst mikillar aðlögunar fyrir

sjúklinginn og aðstandendur hans.

Búast má við félagslegri röskun á

högum fólks sem verður fyrir

skyndilegri fötlun, og ekki síður

maka þess. Breyting getur orðið á

venjubundnum athöfnum daglegs

lífs, röskun verður á þátttöku í fé-

lagslegu lífi og vinnutengdum at-

burðum.

Starf við hjúkrun í endurhæf-

ingu veitir fjölbreytta sýn á flesta

þætti mannlegra þarfa. Hjúkrun á

endurhæfingardeild byggist fyrst

og fremst á umönnun einstaklings

þar sem einn þáttur mannlegra

þarfa verður ekki aðskilinn frá

öðrum. Andlegar, líkamlegar og

félagslegar þarfir sjúklingsins

mynda eina heild og hjúkrunin

verður að vera byggð á umhyggju

fyrir einstaklingnum. Að vera

þatttakandi í baráttu hans og sorg

yfir því sem tapast hefur veitir sýn

á misjöfn gæði lífsins og er lær-

dómsríkt. Að taka þátt í gleði hans

yfir framförum og bata, er stór-

kostleg 'sigurtilfinning. Þegar

máttur og líkamlegur styrkur

eykst, örlítið líf kemur í hönd eða

fót, hægt er að mynda orð eða tjá

heilar setningar er miklum áfanga

náð. Oft þarf að læra að ganga upp

á nýtt, svo einfalt atriði sem var að

beita fæti, útheimtir nú óbilandi

kjark, fullkomna einbeitingu og

allt það þrek sem fyrir hendi er.

Það getur þurft að læra að matast

á nýjan leik og nú með vinstri

hendi. Þetta kallar á þolinmæði og

þrautseigju, eiginlega baráttuvilja

og auðvelt er að missa vonina um

betri hag. Sjálfsímyndin skerðist

og sjálfsvirðingin bíður hnekki.

Vitrænt ástand getur raskast, ein-

beiting, minni og dómgreind eru

ekki sem áður. Athafnir daglegs

lífs svo sem að klæðast, matast og

að leysa úr einföldum atriðum

verða flóknar og óviðráðanlegar.

Kvíði og vanlíðan þjaka vegna

óvissu um batahorfur og hvort tak-

ist að ná fyrri færni og komast til

fyrra lífs. Ahyggjur af vinnu og af-

komu fjölskyldunnar læðast að.

Þannig geta allir þættir mannlegra

þarfa orðið samofnir á endurhæf-

ingardeild.

Hjúkrun sjúklinga á

endurhæfingardeild

þarf að vera veitt á for-

sendum     sjúklingsins

og  miðast  við   þarfir

hans, lífsgildi og getu.

Hún byggist á því að

efla   sjálfsbjargargetu

einstakhngsins með því

að veita honum stuðn-

ing og hjálp við fram-

kvæmd   daglegra   at-

hafna,   hvatningu   og

von, og vera til staðar

þegar   þarf.   Viðhalda

IngibjörgS.            og    efla    sjálfsímynd

Kolbeins              hans og sjálfsvirðingu

og veita  honum  um-

önnun með umhyggju og virðingu.

Þeir sem vinna við hjúkrun í end-

urhæfingu hafa þá sérstöðu að vera

í 'nálægð við sjúklinginn allan sól-

arhringinn. Miklu skiptir að sá tími

sé nýttur vel í þágu hans með stöð-

ugu mati á einkennum, líðan hans,

getu og framförum. Snerting og

hlýja getur glætt nýja von og eflt

þrek til að takast á við það sem áð-

ur byrgði sýn.

Miklu skiptir að vel takist til við

innlögn sjúklingsins þar sem oft er

um langa dvöl að ræða. Hjúkrunar-

fræðingar og sjúkraliðar eru þeir

aðilar sem gefa sjúklingnum fyrstu

sýn á nýjan dvalarstað og andleg

og líkamleg líðan þeirra skiptir

miklu máli upp á daglega getu til

þjálfunar. Rannsóknir sýna að virk

Brýnt forgangsmál er

að skapa endurhæfing-

arstarfsemi í landinu

tryggan starfsgrund-

völl, segir Ingibjörg S.

Kolbeíns í tilefni af

endurhæfingu á Grens-

ási í aldarfjórðung.

og ábyrg þátttaka fjölskyldunnar í

meðferðinni flýti fyrir bata sjúk-

linga í endurhæfingu og stytti um

leið fjölda legudaga. Félagslegt ör-

yggi þeirra hefur einnig áhrif á

framgang meðferðar en ekki er

óalgengt að breyting verði á efna-

hagslegu öryggi fólks við skyndileg

veikindi eða áföll.

Mikilvægt er að aðlögun og allur

undirbúningur fyrir útskrift heim

sé vel skipulagður og markviss.

Það getur þurft að fara í heimilis-

athugun og jafnvel að breyta hús-

næði heima fyrir. Koma þarf á

sambandi við heimahjúkrun, út-

vega nauðsynleg hjálpartæki og

heimilishjálp. Ganga þarf frá

tryggingar- og bótamálum og upp-

lýsa um leiðir við úrlausnir mála

sem upp koma við breyttar aðstæð-

ur.

Þannig er endurhæfingarstarf-

semi Grensásdeildar byggð upp á

samvinnu ýmissa faghópa heil-

brigðisstétta sem að meðferð sjúk-

lingsins koma í samvinnu við hann

og fjölskyldu hans.

Skjólstæðingar okkar ganga oft í

gegnum ferli baráttu og þrauta-

göngu við að endurheimta fyrri

færni. Þeir upplifa depurð og sorg

yfir óvæntum, breyttum og erfið-

um aðstæðum. Þeir upplifa líka til-

finningu gleði, stolts og sigurs þeg-

ar vel tekst tií. Það er þess virði að

vera þátttakandi í því.

Óvissutímabil hefur ríkt um

rekstur, uppbyggingu og heildar-

skipulag endurhæfingar. Fjárveit-

ingar hafa verið takmarkaðar.

Rekstrarlegar ákvarðanir hafa ver-

ið teknar um skipulagningu í mál-

efnum endurhæfingar en þær ekki

gengið eftir.

Islenskt heilbrigðiskerfi mun

þurfa að leggja til fjármagn fyrir

endurhæfingarstarfsemi á íslandi

ekki síður en heilsugæslu eða

þjónustu við aldraða. Það er orðið

forgangsmál og mjög brýnt að

skapa endurhæfingarstarfsemi í

landinu stöðugan og tryggan

starfsgrundvöll, hlúa að henni og

að gera þar langtímamarkmið og

áætlanir.

Heilbrigði fyrir alla árið 2000

byggist á bættu heilsufari lands-

manna, lfðan þeirra og velferð.

Forvarnir og heilsuefling draga úr

áhættu á sjúkdómum og slysum og

um leið þörfinni fyrir dýra heil-

brigðisþjónustu. En markviss og

vel skipulögð meðferð í endurhæf-

ingu þeirra íslendinga sem verða

fyrir þeirri ógæfu að hljóta skaða

eða fötlun af völdum sjúkdóma eða

slysa í framtíðinni skiptir sköpum

fyrir vellíðan þeirra og möguleika á

að lifa mannsæmandi lífi úti í þjóð-

félaginu.

Höfundiir er bjúkrunardeildar-

sljórí á Grensásdeild, endurhæf-

ingar- og taugadeild Sjúkrahúss

Reykjavíkur.

ESTEE LAUDER

¦  K    *    I ¦JL"

Lesiö i hti

• ••••

.gg^     Æjm^   ^g^   Æg^   ^^

Nú geturóu látið greina húðlit þinn... fljótt, auðveldlega og

nákvæmlega. Estée Lauder nýtir sér tölvutæknina til að lesa í

húðliti eins og spákona í lófa.

Litgreinirinn les á augabragði hvaða litur af Estée Lauder andlits-

förðunum fer hverri konu best.

Líttu inn og láttu sannfærast!                          q.....u

Estée Lauder býður viðskipta-

vinum sínum þessa þjónustu í

Hygeu Kringlunni, á morgun,            H   Y   G   E   A

fÖStUdag frá kl. 13 til 18, Og á                 inyrúyðr'utcréiun

laugardag frá kl. 12 til 17.                        sími 533 4533

tilefni sumars

10 rósir

Pottarosir

bltewd

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Blašsķša 65
Blašsķša 65
Blašsķša 66
Blašsķša 66
Blašsķša 67
Blašsķša 67
Blašsķša 68
Blašsķša 68
Blašsķša 69
Blašsķša 69
Blašsķša 70
Blašsķša 70
Blašsķša 71
Blašsķša 71
Blašsķša 72
Blašsķša 72
Blašsķša 73
Blašsķša 73
Blašsķša 74
Blašsķša 74
Blašsķša 75
Blašsķša 75
Blašsķša 76
Blašsķša 76
Blašsķša 77
Blašsķša 77
Blašsķša 78
Blašsķša 78
Blašsķša 79
Blašsķša 79
Blašsķša 80
Blašsķša 80
Blašsķša 81
Blašsķša 81
Blašsķša 82
Blašsķša 82
Blašsķša 83
Blašsķša 83
Blašsķša 84
Blašsķša 84
Blašsķša 85
Blašsķša 85
Blašsķša 86
Blašsķša 86
Blašsķša 87
Blašsķša 87
Blašsķša 88
Blašsķša 88