MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 73 FRETTIR Óskað eftir tilnefningum til Foreldra- verðlauna LANDSSAMTÖK foreldra, Heimili og skóli munu í vor veita Foreldra- verðlaunin í þriðja sinn. Með Foreldraverðlaununum vilja samtökin vekja jákvæða eftirtekt á grunnskólanum og því gróskumikla starfi sem þar er unnið á fjölmörgum sviðum. Sérstaklega er litið til verk- efna sem efla tengsl heimila og skóla og auka virkni foreldra, kennara og nemenda í því mikilvæga samstarfí. I fyrra hlaut verkefnið Tilvera í Grundarfirði Foreldraverðlaunin en meginmarkmið þess er að efla sjálfs- traust og sjálfsvitund unglinga. Und- ir merkjum Tilveru voru haldin ýmis námskeið og fyrirlestrar fyrir ung- linga og foreldra í Grundarfirði. Hver sem er getur sent inn til- nefningu s.s. foreldrar, kennarar, nemendur og sveitarstjórnarmenn en sérstaklega verður leitað til for- eldrafélaga, foreldraráða og skóla eftir ábendingum. Tilnefningar sendist skriflega til Landssamtakanna Heimili og skóli, Ægisgötu 10 í Reykjavík og þar eru veittar allar nánari upplýsingar. Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 30. apríl nk. Samkoma í Friðrikskapellu DRENGIR sr. Friðriks efna að venju síðustu ára til samveru í Frið- rikskapellu að Hlíðarenda á sumar- daginn fyrsta og hefst hún kl. 13 og lýkur kl. 14. Þar mun Gunnar Eyjólfsson, fyrr- verandi skáta- höfðingi og leik- ari, endurflytja eina af sígildum ræðum sr. Frið- riks frá fyrri tíð. Söngvar úr Söng- bók sr. Friðriks verða sungnir við undirleik Arna Sigurjónssonar fyrrverandi for- ingja Skógarmanna KFUM. Állir eru velkomnir meðan rúm kapellunnar leyfir, bæði drengir og stúlkur á öllum aldri. Að lokinni athöfn í Friðrikskapellu er ráðgert að bregða sér í sumar- kaffi hjá Skógarmönnum í Aðal- stöðvum KFUM og K við Holtaveg. Hátíðarhöld í Seljahverfi HÁTÍÐARHÖLD verða í Selja- hverfi í tilefni sumardagsins fyrsta. Dagskráin hefst kl. 11 á Breið- holtshlaupi við ÍR heimilið, því næst er skrúðganga sem leggur af stað kl. 13.30 frá verslunarhúsinu á Seljabraut 54. Að henni lokinni hefst guðsþjónusta í Seljakirkju kl. 14 og dagskrá í Hólmaseli hefst kl. 14.30. Þar verður margt að gerast s.s. dansatriði, söngatriði og Eyrún eyðslukló úr Latabæ kemur í heim- sókn. Fornbílaklúbburinn verður með sýningu á glæsikerrum. Fuglar og tækni við fuglaskoðun ORN Óskarsson, líffræðingur og fuglaskoðari, heldur fræðsluerindi í umhverfíssetrinu Alviðru föstudag- inn 24. apríl kl. 20.30. I erindi sínu fjallar hann um sjaldgæfa og algenga fugla sem halda til í Alviðru og nágrenni og sýnir litskyggnur af fuglum. Þá fjallar hann einnig um margskonar tækni við fuglaskoðun. Kaffiveitingar verða. Allir eru velkomnir á fundinn. BJÖRN Jónsson með veggspjaldið sem sigraði í keppninni. Samkeppni um veggspjald í tilefni af ári hafsins í LOK síðasta árs skipaði sjávarút- vegsráðherra starfshóp til að koma með tillögur um viðburði í tilefni af því að Sameinuðu þjóðirnar ákváðu að árið 1998 skyldi verða ár hafsins. Á vegum hópsins var efnt til opinn- ar samkeppni um veggspjald undir yfirskriftinni, Hafið - líf á okkar ábyrgð. Samkeppnin var haldin í samvinnu við Félag íslenskra teikn- ara. Öllum var heimil þátttaka. Hinn 15. apríl var haldin sýning á innsendum tillögum og úrslit til- kynnt. Sérstök dómnefnd var skipuð og var hún einhuga um að velja til- lögu merkta Öngull". Höfundur er Bjöm Jónsson grafískur hönnuður. í rökstuðningi dómnefndar segir: Tillaga Önguls" er góð útfærsla á góðri hugmynd, skýr og einföld, skilaboðin augljós og grafískt yfir- bragð nútímalegt og sterkt. Lífið verður til í hafmu, framtíð mann- kyns og hafs er samtvinnuð. Hafið er undirstaðan, uppspretta lífsins. Textaborði myndar ölduform sem skilur að mann og físk. Litirnir eru einfaldir og táknrænir; hafið kalt, mannlífið heitt. Tillagan nýtur sín einnig vel í smærra formi sem póst- kort. Myndefnið vekur jákvæð hug- hrif hjá skoðandanum og eykur skilning hans á mikilvægi þess að ganga vel um lífríki hafsins." Yamaha vél- hjólasýning MERKÚR HF. verður með kynn- ingu á nýjustu Yamaha mótorhjól- unum um nk. helgi. Kynnt verður lína af hippahjólum" m.a. Royal Star 1300, Drag Star 650, Virago 1100 og Virago 535DX, segir í fréttatilkynningu. Einnig verður til sýnis nýtt og öflugt alhliða hjól sem hefur hlotið nafnið FZS 600 (Phazer) ásamt fleiri hjólum. Samhliða kynnir Merkúr hf. úrval auka- og fylgi- hluta fyrir vélhjól og ökumenn þeirra m.a. AGV hjálma, Rukka og IXS fatnað, skó og hanska, auk Yamaha aukahluta á hjól. Sýning þessi verður 25. og 26. apríl í húsa- kynnum Merkúr hf. Karlakdr Eyjafjarðar Tónleikar á Austurlandi KARLAKÓR Eyjafjarðar heldur í söngför um Austurland um helgina og kemur fram á tvennum tónleik- um. Þeir fyrri verða í Egilsstaða- kirkju föstudagskvöldið 24. apríl og hefjast þeir kl. 21, en þeir síðari verða í félagsheimilinu Egilsbúð í Neskaupstað á laugardag, 25. apríl, kl. 21. Einsöngvarar verða Bryngeir Kristinsson, Stefán Birgisson og Þorsteinn Jósepsson og undirleik- arar Daníel Þorsteinsson, Eiríkur Bóasson og Rafn Sveinsson. Stjóm- andi kórsins er Atli Guðlaugsson. Efnisskráin verður fjölbreytt, en eyfirsk tónskáld og ljóðskáld skipa þar veglegan sess. Árshátíð Grikklands- vinafélagsins STOFNUN Dante Alighieri, ítalska menningarfélagið á íslandi, heldur árshátíð ásamt Grikklandsvinafélag- inu laugardaginn 25. apríl kl. 19 í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni 6. Boðið verður upp á ítalskt hlað- borð með grísku ívafi sem Paolo Thurci ítölskukennari og meistara- kokkur hefur umsjón með. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Bergþór Pálsson gleðja gesti með söng sínum. Claudio Rizzi leikur á píanó. Halldóra Geir- harðsdóttir leikkona flytur gaman- þátt og skemmtir gestum. Ræðu- maður kvöldsins er Kristján Árna- son formaður Grikklandsvinafélags- ins. Dans stiginn fram á nótt. Ferðagetraun verður í boði Úrvals Útsýnar. Þar verður dregið um viku- ferð til Toscana, svo og afslátt á ítal- íuferð 12. júní og Grikklandsferð 16. ágúst. Miðaverð kr. 2.900. Veislu- stjóri og gestgjafi, Thor Vilhjálms- son rithöfundúr, er forseti Dante Alighieri-stofnunarinnar. Sumri fagnað í Hafnarfírði ÆSKULÝÐS- og tómstundaráð Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarleik- húsið standa fyrir sýningu á atriðum úr leikritunu Síðasti bærinn í daln- um. Hver veit nema tröllið komi í heimsókn? Einnig verða nokkur önnur skemmtiatriði. Skemmtunin hefst kl. 13. Lagt verður af stað í skrúðgöngu frá Skátaheimilinu Hraunbyrgi kl. 10:00 þar sem gengið verður út Flatahraun, Álfaskeið, niður hjá Sól- vangi og loks Lækjargötuna þar til komið verður niður að Hafnarfjarð- arkirkju en þar hefst skátamessa kl. 10.45. Skátar lesa ritningarlestra og leiða söng. Prestur er séra Þórhall- ur Heimisson. Sumarhátíð í Garðabæ MIKIÐ verður um að vera í Garða- bæ á sumardaginn fyrsta. Skátar úr Skátafélaginu Vífli sjá um dag- skrána. Klukkan 11 verður fánaat- höfn við Vídalínskirkju og strax að henni lokinni hefst skátamessa. Skátar munu standa heiðursvörð og nýliðar verða vígðir inn í félagið. Ræðumaður verður Gunnar Einars- son forstöðumaður Fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar. Klukk- an 14 fer skrúðganga frá Vídalíns- kirkju við undirleik lúðrasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar. Gengið verður að Hofsstaðaskóla og þar verður mikið um dýrðir. Stór og mikil þrautabraut verður við skólann, svifbraut og koddaslagur. Einnig verður boðið upp á andlits- málun o.fl. Árleg kaffisala Vífils verður í hátíðarsal Hofsstaðaskóla og tertuhlaðborð skáta úr Garðabæ. Skátakórinn syngur nokkur lög fyr- ir kaffigesti og skátahljómsveitin Frá fjöri til fjalla leikur létt tónlist. Lokaprédikun í guðfræði við HI RÚNAR Már Þorsteinsson, guð- fræðinemi, flytur lokapredikun í Há- skólakapellunni laugardaginn 15. apríl. Athöfnin hefst kl. 14 og eru allir velkomnir. Spurninga- keppni átthagafélaga SEX átthagafélög í Reykjavík halda sameigmlega spurningakeppni í Súlnasal á Hótel Sögu sunnudaginn 26. apríl kl. 20. Þriggja manna lið verða frá Átt- hagafélagi Strandamanna, og félög- um Breiðfirðinga, Húnvetninga, Rangæinga, Skaftfellinga og Önfirð- inga. Stjórnandi er Ragnheiður Erla Björnsdóttir. Björn Ingi Bjarnason kynnir. í hléi syngur Signý Sæ- mundsdóttir við undirieik Þóru Fríðu Sæmundsdóttur. Jóhannes Kristjánsson fer með gamanmál. Forsala miða er 23. og 24. apríl kl. 18-20 í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, Húnabúð, Skeifunni 11, Skaft- fellingabúð, Laugavegi 178 og Cata- línu, Hamraborg 11. Opið hús í Bjarkarási STYRKTARFÉLAG vangefmna átti 40 ára afmæli 23. mars sl. Af því til- efni verður Bjarkarás með opið hús laugardaginn 25. apríl kl. 14-17 til að kynna starfsemina öllum sem hafa áhuga. Er velunnarar Bjarkaráss hvattir til að koma og þiggja veitingar í leið- ¦ HARMONIKUFÉLAG Reykjavík- ur og Almenna umboðsskrifstofan standa fyrir harmonikutónleikum og balli á Hótel Stykkishólmi laugar- dagskvöldið 25. apríl. Dagskráin hefst með tónleikum kl. 22. A meðal þeirra sem fram koma eru heima- maðurinn Hafsteinn Sigurðsson og Stórsveit Harmonikufélags Reykja- víkur ásamt einleikurum og minni hópum. Að tónleikum loknum verður síðan slegið upp harmonikuballi með hljómsveitinni Neistum með söng- konunni Örnu Þorsteinsdóttur og Léttsveit Harmonikufélags Reykja- víkur ásamt söngkonunni Ragnheiði Hauksdóttur. Almenna umboðsskrif- stofan mun við þetta tækifæri kynna Brandoni, Pigini og Delicia hamonik- ur og Solton og AA Craaft hijóðkerfi. LEIÐRETT Heiður þeim sem heiður ber I GREIN minni um nýjan hugsunar- hátt í fangelsismálum hér í Morgun- blaðinu sl. þriðjudag 21. aprfl, er sagt að greinargerð dómsmálaráðu- neytisins vegna höfnunar á reynslu- lausn fyrir fanga á Litla-Hrauni hafi birst í Morgunblaðinu. Þetta var rit- að eftir minni sem reyndist mis- minni. Hið rétta er að greinargerðin birtist á baksíðu DV fyrir nokkru. Rétt skal rétt vera og þetta leiðrétt- ist hér með. Haukur Már Haraldsson Rangt föðurnafh í UMFJÖLLUN um viðburði á Lista- hátíð í Reykjavík í Lesbók sl. laugar- dag, 18. apríl, var farið rangt með föð- urnafn fiðluleikara Chilingrian String Quartet, Ásdísar Valdimarsdóttur. Beðist er velvirðingar á því. Leiðrétting á fermingum Á FERMINGARLISTA í gær mis- ritaðist nafn prestins í Langholts- kirkju. Hún heitir Guðný Hallgríms- dóttir en ekki Halldórsdóttir eins og stóð í blaðinu. Er beðist velvirðingar á þessu. Eins var nafn eins ferming- arbarnsins rangt. Heitir hann Þrá- inn Imanuel Kim Knudsen, Stranda- seli 7, Reykjavfk. Líknar- og vinafélagið BERGMAL gengst fyrir orlofsdvöl fyrir blinda og langveika á Sólheimum í Grímsnesi dagana 24. til 31. maí. Dagana 17. til 24. ágúst mun BERGMÁL aftur vera með orlofsviku á Sólheimum og þá fyrir krabbameinssjúka. Verður nánar auglýst síðar. Báðar vikurnar eru gestum að kostnaðarlausu. Fjölbreytt dagskrá verður alla daga og kvöldvaka á hverju kvöldi með úrvals listafólki. Sundlaug er á staðnum og aðstaða til útivistar góð. Reykingar innanhúss eru ekki leyfðar á þessum stað. Umsóknir berist fyrir 18. maí nk. til: Kolbrúnar Karlsdóttur, s. 587 1567. Karls Vignis Þorsteinssonar, s. 552 1567. Sveinbjargar Guðmundsdóttur, s. 552 8730 og 554 2550. Veita þau allar nánarí upplýsingar.