Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 16.07.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ég mun ekki gefast upp Dómari í Istanbúl í Tyrklandi dæmdi Halim Al, barnsföður Sophiu Hansen, í um eitt hundrað króna sekt vegna umgengnisréttarbrots hans í sakadómi í gærmorgun. Þór- oddur Bjarnason ræddi við Sophiu Hansen um viðburði síðustu daga en hún segir að fundir sínir og dætranna hafi valdið því að dómur- inn varð ekki þyngri en raun bar vitni. Hurriyet SOPHIA Hansen og Halim A1 horfast í augu í dómsal í Istanbúl í Tyrklandi í gærmorgun. Á milli þeirra standa lögræðingar þeirra, Hasip Kaplan, við hlið Sophiu, og Hayati Yazici við hlið Ilalims. „FG HEF það svona þokkalegt, miðað við aðstæður, en er ekkert alltof hamingjusöm,“ sagði Sophia Hansen þegar Morgunblaðið náði tali af henni stuttu eftir að dómari í sakadómi í Istanbúl hafði dæmt Halim Al, barnsfóður hennar, í eins dollara og þrjátíu senta sekt, um eitt hundrað íslenskra króna, fyrir brot á umgengnisrétti. Dómarinn dæmdi Halim fyrst í eins mánaðar og fimm daga fangelsisvist en breytti svo dóminum eins og fyrr greinir. Að sögn Sophiu kom það á óvart í gærmorgun að sá dómari sem hefur haft með málið að gera hingað til hafði verið sendur í annað verkefni. Hún sagði að sá dómari hefði ávallt tekið málin föstum tökum og Halim hafi óttast hann. „Málið hafði verið tekið úr hans höndum og sá sem tók við ákveður þarna að dæma strax í málinu. Af því ég hafði fengið að um- gangast börnin mín í fjóra daga í síðustu viku breytti hann dóminum í peningasekt. Þetta er alveg með ólíkindum,“ sagði Sophia. Heilsa mín leyfir ekki erfíð ferðalög Hún sagði dóminn með ólíkindum ekki síst vegna þess að þær aðstæð- ur sem hún fékk að hitta dætur sín- ar Dagbjörtu og Rúnu við, voru ekki viðunandi. „Því tel ég að það hefði verið í lagi að láta fangelsisdóminn standa. Að vísu skammaðist dómar- inn í Halim og sagði honum að leggja af þennan leiðinlega vana sinn og leyfa mér að umgangast bömin eins og ég vildi, og Halim lof- aði því.“ Sophia segir þó erfitt fyrir sig að láta reyna á umgengnisrétt sinn ef dætur hennar verða áfram í fjalla- þorpinu Divrigi, vegna þess að heilsa hennar leyfi ekki erfið ferða- lög af því tagi sem leiðin til Divrigi krefst. Sophia hefur meðal annars átt við bakveiki að stríða og mikil vökvasöfnun í líkamanum, sem stafar af ókunnum ástæð- ~ um, háir henni mikið. Þœr hafa engu Halim A1 kom í saka- gleymt og dóminn í gærmorgun en spyrja margs þær Dagbjört og Rúna Kannski hafa dómsyfirvöld verið að bíða eftir þessu máli sem tekið var fyrir í morgun [í gærmorgun], ég veit það ekki, en ég vona að það fari að líða að því að hæstiréttur taki málið fyrir,“ sagði Sophia. Halim er til dæmis einu sinni bú- inn að fá tæplega fjögurra mánaða fangelsisdóm, sem hann áfrýjaði, en Sophia vonar að hann verði látinn afþlána hann á þessu ári. Það var stutt í grátinn dvöldu, ásamt fósturmóður sinni og öðrum fjölskylduvinum, í borginni Erzurum í Austur-Tyrklandi, ekki langt frá þeim stað þar sem mæðgurnar hittust í síðustu viku. Ætlar ekki að una sektinni Samkvæmt því sem Sophia heyrði frá fólki í réttinum ætlaði Halim A1 ekki að una dómnum þar sem hon- um finnst með honum vegið að mannorði sínu. Fjögur umgengnis- réttarmál Sophiu gegn Halim A1 bíða nú dóms í hæstarétti í Ankara. „Þetta er búið að taka ótrúlega lang- an tíma og það er búið að gera allt til að fá þessum málum flýtt. Aðspurð um fundi hennar og dætra hennar í síðustu viku segir hún að þeir hafi verið miklar gleði- stundir. „Þetta var afskaplega erfitt en jafnframt var það mikil gleði- stund þegar ég fékk að faðma þær og snerta og tala við þær. Það var stutt í grátinn hjá þeim, og okkur öllum, en við gerðum allt til að harka sem mest af okkur til að láta ekki bera á því. Þetta var afskaplega erfitt and- lega, einkum vegna þess að við gát- um ekki mikið talað saman í ein- rúmi. Það var einungis fyrsta dag- inn sem við fengum frið frá Halim en annars var hann alls staðar á vappi,“ segir Sophia en þær mæðgur hittust á heimili Halims og hann var að sögn Sophiu alltaf nálægt og fylgdist með samtölum þeirra. „Við sátum stundum úti á verönd og hann var í næsta herbergi með opið inn til sín. Hann gerði sér grein fyrir því að þær hafa ekkert breyst. Þær eru sömu elskulegu stúlkurnar og þær voru, og það hefur farið í taugarnar á honum. Þær elska mig og hann er ekki ánægður með að á þessum átta árum, sem hann hefur verið með þær, hefur honum ekki tekist að þurrka mig úr hjarta þeirra og sál.“ Sophia segir þær mæðgur hafa náð vel saman á fundum sínum. Hún segir að þær hafi haldið sig innan- dyra og þrátt fyrir að þær hafi lang- að að komast út í gönguferð hafi við- vera fjölmiðla í bænum ekki gert það mögulegt. Þær skoðuðu saman myndaalbúm með mynd- um af íslenskum ættingj- um og vinum. „Þær hafa engu gleymt. Þær muna eftir hverju smá- atriði sem þær upplifðu heima á ís- landi og spurðu mikið um fjölskyldu- meðlimi og frændsystkini sem þær eiga á svipuðum aldri, hvað þau hefðust að, hvaða menntun þau hefðu valið sér og annað," sagði Sophia. Hún sagði að þær hefðu þó ekki fengið næði við að skoða mynd- irnar þar sem Halim var alltaf yfir þeim og fékk að skoða hverja mynd. Hann gerði þó enga athugasemd við þetta að hennar sögn. Aðspurð hvað muni gerast þegar stúlkurnar fái sjálfræði 18 ára gaml- ar segist hún ekkert vita. „Þá ættu þær að vera frjálsar, en ég veit ekki hvað mér tekst að vera mikið með þeim og hversu mikil áhrif faðir þeirra getur haft á framtíð þeirra.“ Bökuðu köku handa móður sinni Sophia segir að kveðjustundin í Divrigi síðastliðinn laugai-dag hafi veið afskaplega erfið. „Við borðuðum saman morgunmat sem þær undh- bjuggu. Þær bjuggu til köku handa mér og við ræddum ýmislegt á með- an við snæddum. Síðan útbjuggu þær nesti handa mér því það var fjögurra tíma ferð út á flugvöll í bfl og síðan þurfti ég að fljúga til Ankara og þaðan til Istanbúl. Báðar leiðir, frá Istanbfl til Divrigi og til baka, eru samtals um 2.000 kflómetr- ar og þetta var mjög erfitt ferðalag." Hún sagði að þegar þær skildu hafi fylgt óskir um að þær myndu hittast fljótt aftur. „Ég lofaði að hringja í þær til að láta vita hvernig ferðin hefði gengið og það gerði ég á laugardaginn. Þær voru afskaplega hamingjusamar og sögðust geta sof- ið rótt að vita af mér heilli. Þær sögðust ætla að biðja fyrir velferð minni og lýstu yfir áhyggjum af heilsufari mínu en það hefur ekki verið gott. Ætla í læknaskóla Um skólagöngu stúlknanna sagði Sophia að nær alveg víst væri að þær gengju í islamskan skóla þótt Halim A1 vilji ekki viðurkenna það. „Þær sögðu mér að þær hefðu feng- ið fulla menntun og sögðust eiga eitt ár eftir í menntaskóla." Þrátt fyrir að eitt ár sé á milli þeirra Dagbjartar og Rúnu, eru þær á sama ári í skóla og útskrifast á sama tíma. Þær sögðu móður sinni að eftir menntaskóla langaði þær báðar í læknanám. „Það er háskóli í Istanbúl sem þær gætu gengið í en þær höfðu áhyggjur af því að þeim yrði ekki hleypt inn vegna þess hvernig þær eru klædd- ar,“ sagði Sophia en dæt- ur hennar klæðast skó- síðum kápum með slæður yfir höfði. „Það er bannað að vera klæddur á þann hátt í há- skólanum. Það er einkum vegna hættu á hryðjuverkum því hægt er að fela vopn innan slíkra klæða.“ Næsta skref hjá Sophiu og dætr- um hennar verður að fá að hittast á ný og þá helst í Istanbúl. „Ég treysti mér varla í aðra svona ferð, og ég sætti mig ekki við að Halim sé yfir okkur allar stundir. Við mæðgur eigum þennan rétt á að vera saman í júlí og ágúst samkvæmt hæstarétt- ardómi, en á sama tíma vil ég ekki að þetta skaði þær á nokkurn hátt. Ég vil ekki að þær verði þvingaðar til að koma til mín. Þær báðu mig líka um það sjálfar að láta ekki taka sig með valdi heldur að reyna frekar samningaleiðina.“ Kom með mysing og flatkökur Gríðarleg öryggisgæsla var í Di- vrigi þessa daga sem Sophia dvaldi þar en að hennar sögn varð hún ekki fyrir neinni áreitni. Allir sem á vegi hennar urðu í Divrigi voru elskuleg- ir og fundu til með þeim mæðgum. Eftir því var tekið hve vel Halim A1 kom fram í málinu í síðustu viku og segir Sophia að ekki hafi orðið breyting þar á í réttinum í gær- morgun. „Hann heilsaði mér að fyrra bragði og talaði við mig og lof- aði því að hann léti stelpurnar hringja til mín. Hann gaf jafnframt út yfirlýsingu um að hann stæði ekki í vegi fyrir að ég fengi að hafa þær hjá mér. Næsta skref er eins og ég sagði áðan að reyna að fá þær til að koma til mín til Istanbúl,“ segir Sophia en í íbúð hennar í Istanbúl bíður matur frá Islandi sem hún kom sérstaklega með handa dætrum sínum. „Ég kom með mysing, cocoa puffs, flatkökur og annað sem þær voru alltaf mjög hrifnar af.“ Lagalega séð er næsta ski'ef í stöðunni að bíða eftir að hæstiréttur taki málið fyrir. Meðferð tyrkneskra stjórnvalda á málinu í heild sinni hefur verið kærð til mannréttinda- dómstólsins í Strassborg og óvíst er hvenær málið verður tekið fyrir þar, að sögn Sophiu. Sophia þarf að fara úr landi í haust þegar landvistarleyfí hennar rennur út. Hún segir að tyrknesk yf- irvöld hafi ekki verið að létta henni róðurinn, eins og hún orðar það, með því að láta hana fá lengra land- vistarleyfi. Hún segist þakklát fyrir hlýhug fólks á íslandi og aðstoð þess og einnig aðstoð utanríkisráðuneytisins í málinu. Hún lætur engan bilbug á sér finna. „Ég er þreytt og brotin, því þetta er búið að vera mjög átak- anlegt og erfitt þótt það hafi fært mér hamingju. En ég mun ekki gefast upp og ég fer ekki heldur að bregðast þeim stuðn- ingi sem ég hef fengið frá íslensku þjóðinni og utanríkisráðuneytinu með því að gefast upp.“ Að lokum sagði Sophia það hafa verið erfitt fyrir sig hingað til að tjá sig um málið. „Það er voðalega erfitt að opna sig því maður fær ekki útrás strax. Maður má ekki gráta til að koma stelpunum ekki í uppnám og byrgir því tilfinningar inni,“ segir Sophia sem fær góðan stuðning frá vinum sínum og fjölskyldu á Islandi meðal annars og þau stappa í hana stálinu. „Sigurður Pétur Harðarson, stuðningsmaður minn, stendur líka sem klettur við bakið á mér og hann bregst ekki.“ Átakanlegt og erfitt en færir hamingju íslandi líkt við risastóra erfðafræði- rannsóknar- stofu í UMFJÖLLUN blaðsins The Wall Street Journal Europe um sviss- neska lyfjafyrirtækið Roche, nýjan yfirmann þess dr. Jonathan Know- les, og vaxandi áherslu fyrirtækisins á erfðafræðirannsóknir í framtíðar lyfjaframleiðslu sinni, er fjallað um fimm ára og 200 milljóna dollara, (14,3 milljarða ki'óna), samning fyr- h-tækisins við íslenska erfðagrein- ingu. Starfsemi Islenskrar erfða- greiningar miðar að því, eins og greinarhöfundur orðar það, að „breyta íslandi í risastóra erfða- fræðirannsóknarstofu." í greininni kemur fram að sér- fræðingar hafi dregið gildi samnings Roche og ÍE í efa, og sagt að pen- ingum fyrirtækisins hefði hugsan- lega verið betur varið í að treysta lyfjadeild fyrirtækisins með hefð- bundnum samningum við lyfjafyrir- tæki. Roche er í dag sjötta stærsta lyfjafyrirtæki heims á sviði lyfseðils- skyldra lyfja. Veðja á erfðafræðirannsóknir Forstjóri Roche segir að þrátt fyrir gagnrýni sem þessa megi ekk- ert standa í vegi fyrir þróun í grein- inni, nú þegar örar breytingar eru í heilbrigðismálum. í greininni segir að Roche hafi veðjað á erfðafræðirannsóknir sem mikilvægan þátt í lyfjaframleiðslu framtíðarinnar og telur að þær rannsóknir gefi lyfjafyrirtækjum möguleika á að rannsaka lífefna- fræðilegan feril sjúkdóma, í þeirri von að bera kennsl á staði í erfða- uppbyggingu mannsins þar sem lyf geta haft áhrif. Þar kemur samning- urinn við ÍE inn í myndina. Greinarhöfundur segir að stóra spurningin sem lyfjaframleiðendur standa frammi fyrir sé hve mörg hinna um það bil 100.000 gena mannsins séu áhrifavaldar í sjúk- dómsvaldandi stökkbreytingum gena. „Ef það eru nokkur hundnið, yrði genamynstur sjúkdóma of flók- ið til að úr því yrði nokkum tíma ráðið,“ segir Knowles. „En ef fjöldi gena sem liggur að baki helstu sjúk- dómum er nær 10 en 100, sem við höfum trú á, er mögulegt að leita þessa sjúkdóma uppi og þróa lyf gegn þeim.“ Líkur þess að árangur náist í slík- um rannsóknu eru mestar í ríki eins og íslandi, segir í greininni, þar sem einangmn og „innrækt" fólksins auðvelda að rekja ættir og erfðir. St. Jósefs- systurnar flylja úr Garðabæ SÍÐUSTU Sankti Jósefssyst- umar flytja senn úr aðsetri reglunnar við Holtsbúð í Garða- bæ, en þangað fluttu þær eftir að starfsdegi þeirra lauk á Landakotsspítala. Verður heim- ilið leigt fyrir starf og heimili í'jTÍr aldraða í Garðabæ. Aðeins voru fjórar systur eft- ir í Garðabænum en þær vom flestar á annan tuginn. Tvær systranna flytja í byrjun næstu viku til Kaupmannahafnar og hinar tvær munu flytjast í að- setur systranna við Bámgötu í Reykjavík. Bæjaryfirvöld Garðabæjar hafa ákveðið að taka hús systranna á leigu sem aðsetur fyrir starf fyrir aldraða í bænum og sem hjúkrunar- heimili. Hefur heilbrigðisráðu- neytið fyrir sitt leyti samþykkt slíkan rekstur þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.