Morgunblaðið - 31.07.1998, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.07.1998, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 B B DAGLEGT LÍF Morgunblaðið/Jim Smart SPARISTELLIÐ skreytt Kötlugosi er í vörslu á Árbæjarsafns. HÉR er Jóhann Ólafsson á mynd með japönskum starfsmönnum Chika Amachi verk- smiðjunnar árið 1933. Jóhann, er fyrir miðri mynd í ljósum jakkafötum. irnir skreyttu nokkur bollastell fyrir Jóhann. Kötlugos í japönskum litum Jóhann á þrjá diska úr bollastell- unum japönsku, sem sýna Gullfoss, I Þingvelli og Skógarfoss og er skemmtilegt að sjá hvemig ís- lenskt landslagið er umlukið aust- rænni birtu og sterkum litum. Á Árbæjarsafni er til eitt af þessum kaffistellum til þar sem Kötlugosið 1918 er aðal myndefnið. Jóhann segir að þegar faðii’ hans hafi kom- ið með bollastellin til landsins hafi þau verið seld á 75 krónur stellið, en þá hafi venjuleg japönsk stell kostað um 25 krónur. „Þrátt fyrir hærra verð seldust öll bollastellin, enda ekki víst að þau hafi verið mjög dýr miðað við evrópsk bollastell," segir hann. „Eg tel að bollastellin hafi verið mjög vinsæl til brúðkaupsgjafa og eins hef ég heyrt af fólki sem fór til Vesturheims og hafði með sér bollastell til minja um gamla land- ið,“ segir Jóhann og hlær. Hann MÆÐGURNAR Sigríður og Gunnlöð. Fjölskyldan kemur einatt heim til ís- lands á sumrin en Sigríður rekur ásamt mágkonu sinni húfubúðina skemmtilegu Hlæjandi húfur. Skrifar á ensku og íslensku Gunnlöð fer aftur út Englands snemma í ágúst. Hún segist hlakka til að byrja í skólanum aftur og hitta alla félaga sína. Skólinn heitir Scraptoft Valley Primary School en í honum byrja krakkar fimm ára gamlir. En hvað finnst henni skemmtilegast að gera fyrir utan að teikna? „Leira og skrifa og syngja,“ svarar hún að bragði. Hún sýnir mér haganlega gerðan bolla sem hún er nýbúin að móta en á eftir að mála og brenna. En skrifar hún mikið? „Já. í skólanum í Englandi. Stundum þegar sunnudagar eru búnir þá spyr kennarinn okkur hvað við höfum verið að gera og biður okkur að skrifa það í bókina okkar.“ Gunnlöð skrifar auðvitað líka á íslensku og fær góða æfingu við bréfaskriftir heim til íslands. Ekki kæmi það á óvart að rekast á nafn Gunnlaðar síðar meir í sam- bandi við listsköpun af einhverju tagi. Hún tjáir mér það reyndar að í deiglunni sé að öll fjölskyldan standi saman að bókagerð, þær mæðgur og feðgamir Rúnar og Loki. Afrakstur þessarar listfengu fjölskyldu verður eflaust gaman að sjá og njóta. gesv KÖKUDISKUR úr „Skógarfossstellinu“. GULLFOSS málaður í Japan HÉR hefur Jóhann Ólafsson rit- eftir póstkorti í lit, 1965. að nafn sitt sem síðan var brennt í diskinn undir gler- ungnum. Ártalið er 1933. telur líklegast að flestir hafi notað stellin sem skraut- muni í stofu, og að þau hafi ekki verið notuð nema á hátíða- stundum. „Þessi málun er viðkvæm ög slitnar ef mun- imir em mikið not- aðir því myndin er máluð á glemnginn," seg- irhann. Hugmyndin endurvakin ÞÓRSMÖRK máluð eftir póstkorti á veggplatta. Jóhann segist stundum sjá hluta bollastellana hjá fornsölum í bænum, en núna sé verðið ekki 75 krónur heldur nær 75 þúsundum króna. Ekki vom mörg bollastell flutt til landsins árið 1933 og líklegt er að fá heilleg stell séu eftir. En Jóhann endurvakti hugmynd fóður síns þegar hann sendi japanska fyrirtækinu Noritake póstkort í lit frá íslandi og bað þá um að mála á veggdiska árið 1965. Hann segir að 48 stykki af hverjum disk hafi ver- ið framleiddir og allir selst. „Það sést á þessum disk- um að málaramir hafa tekið sér meira skáldaleyfi í myndagerðinni og litimir em nær íslensku litaflóranni en á bollastellunum frá 1933,“ segir Jóhann. Eins og áður sagði er á heimili Jóhanns margt fallegra muna og greinilegt að áhugi er á að varðveita anda gamalla tíma. En einnig vekja athygli skemmtilega litrík málverk eftir Harald Bilson, en hann sýndi verk sín í Gallerí Fold fyrir nokkmm ámm. „Bilson er af íslenskum ættum og ég hreifst mjög af verkum hans,“ segir Jóhann og bætir því hlæjandi við að tíglamir á hálsbindinu sem hann sé með séu í anda Bilsons. SKÓGARFOSS á þýskum veggplatta gerðum eftir svart-hvítu póstkorti. VEGGPLATTI frá 1929 með mynd af Þingvöllum, áður en Valhöll var flutt á núverandi stað. Allt til bútasaums! Úrval fallegra bútasaumsefna ásamt bókum og blöðum um bútasaum. Einnig hlífar fyrir bútasaumshnífa, alls konar skæri, platínunálar í ýmsum stærðum, frystipappír og fingurbjargir sem þú límir á fingurinn. v VOgue -búðirnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.