Morgunblaðið - 08.08.1998, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 08.08.1998, Blaðsíða 60
* MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI1 Windows 98 www.ejs.is LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sljórnvöld og sparisjóðirnir ræða saman um sölu á öllu hlutafé ríkisins í FBA Eru tilbiínir til að selja öðrum 45-48% hlut ÞÓR Gunnarsson, formaður Sam- bands íslenskra sparisjóða, segir að sparisjóðimir vilji kaupa allt hlutafé ríkisins í Fjárfestingabanka atvinnu- lífsins, en geri í sínum áætlunum ráð fyrir að selja aftur 45-48% hlut til annarra aðila. Hugmyndir sparisjóð- anna gangi út á að sameina FBA og Kaupþing, sem er í eigu sparisjóð- anna, og ná þannig fram verulegri hagræðingu. 11 Iðnaðarráðherra og sjávarútvegs- ráðherra, sem sameiginlega fara með hlut ríkisins í FBA, ákváðu í gær að fela Framkvæmdanefnd um einkavæðingu að annast undirbúning sölu hlutafjár í FBA. Sem lið í undir- búningi á þessari sölu var jafnframt tekin ákvörðun um að hefja könnun- arviðræður við Samband íslenskra sparisjóða um kaup sparisjóðanna á öllu hlutafé ríkisins í FBA. Sameining við Kaupþing hugsanleg Þór sagði að sparisjóðimir hefðu fyrr á þessu ári óskað formlega eftir viðræðum um kaup á FBA. Málið hefði verið rætt við viðskiptaráð- herra og forsætisráðherra. Hann sagði að sparisjóðirnir hefðu undir- búið sig undir slíkar viðræður í meira en eitt ár og hefðu þegar lagt ramma að því hvernig svona sala gæti farið fram. „Við höfum hug á að kaupa Fjár- festingabankann að fullu, en síðan kæmi til greina að sameina bankann Kaupþingi, sem er í eigu sparisjóð- anna. Af því yrðu mjög öflug sam- legðaráhrif því að hvor um sig vegur upp veikleika hins. Við höfðum síðan hugsað okkur að selja 45-48% af hlutafé bankans til annarra aðila inn- an þriggja ára. Ef við sameinuðum bankann og Kaupþing yrði til stofnun sem yrði tafarlaust tilbúin til starfsemi á ís- lenskum fjármálamarkaði. Félögin þyrftu ekki að fara í langan samein- ingarferil þar sem þau era staðsett í sama húsi. Styrkleiki FBA liggur í því að vera mjög öflugur heildsölu- banki, en hann hefur ekki mikið dreifí- eða sölukerfi, en þar liggur hins vegar styrkleiki Kaupþings,“ sagði Þór. Þór sagði að sparisjóðirnir hefðu ekki enn sett fram hugmyndir um kaupverð bankans, en sparisjóðirnir væra búnir að meta verðmæti hans og hefðu gert upp við sig hvað þeir væra tilbúnir til að borga fyrir hann. Hann sagði að stjórnvöld hefðu lýst því markmiði sínu að tryggja dreift eignarhald á FBA og með því að selja fljótlega 45-48% af hlutafé bankans til annarra aðila væra spari- sjóðirnir að koma til móts við sjónar- mið ríkisstjórnarinnar. ■ Liður í að/6 Apple-vörur seldar hjá Aco Verðlækkun boðuð á næstunni FYRIRTÆKIÐ Aco hf. tekur eftir helgina við sölu á Apple-vörum af Apple-umboðinu á Islandi. Bjami Akason, framkvæmdastjóri Aco, segir að í kjölfarið verði verð á vör- um Apple lækkað um 10-40% á næstunni. Tilgangurinn sé að auka markaðshlut Apple á tölvumarkað- inum. Bjarni segir Aco áforma að hefja mikla markaðssókn fyrir Apple- vörur. M.a. verður söluaðilum fjölgað verulega. Flestir starfs- menn Apple-umboðsins koma til með að starfa hjá Aco. í kjölfar kaupanna er áformað að auka hlutafé í Aco hf. og skrá fyrirtækið á hlutabréfamarkaði. ■ Aco tekur/16 Fuglar _ yfir Leiru VEÐRIÐ hefur leikið við kylfing- ana sem þátt taka í Meistaramót- inu í golfi sem fram fer á Suður- nesjum. íslandsmeistarinn frá í fyrra, Þórður Emil Olafsson, lék best allra í gær og fór hringinn á golfvellinum í Leiru á fimm höggum undir pari. Náði hann efsta sætinu. f kvennaflokki er Ragnhildur Sigurðardóttir efst sem fyrr. Fuglager var yfir Leirunni í gær og var engu lík- ara en fuglinn væri að fylgjast með því hvort kylfíngarnir næðu fugli eða jafnvel erni... ? ■ Golflandsmótið/Bl-B3 Ut af und- ir Hafnar- fjalli BILL fór út af veginum við Hafnará undir Hafnarfjalli síð- degis í gær og lenti á toþpnum í árfarveginum, sem var þó að mestu þurr. Fjögurra manna fjölskylda var í bflnum og var þrennt flutt á Sjúkrahús Akra- ness. - Yngra barnið, sem var í barnabílstól, slapp ómeitt. Að sögn Jóns Tómassonar deildar- læknis er ekkert hinna þriggja alvarlega slasað og er líðan þeirra eftir atvikum góð. Þau voru öll í bflbeltum. * Arekstur á Hvolsvelli ÁREKSTUR varð skammt austan við Hvolsvöll skömmu eftir hádegi í gær. Tveir bflar rákust á á gatnamótum. Tals- vert eignatjón varð og var annar bíllinn óökufær. Engin meiðsl urðu á fólki enda vora allir í bfl- beltum. Að sögn lögreglu áttu beltin mikinn þátt í að fólk slapp svo vel úr óhappinu. Fjórir vora i öðram bflnum og einn í hinum. Morgunblaðið/Björn Gíslason Forsætisráðherra um endurskipulagningu á fjármálamarkaði og sölu rflrisbanka Lögbinding á dreifðri eign gæti verið skynsamleg DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, segir að mik- ilvægt sé að tryggja dreifða eignaraðild við sölu ríkisbankanna og endurskipulagningu á fjármála- markaði hér á landi. Ef einhverjum aðilum í við- skiptalífinu takist að ná mjög sterkum tökum á einstökum bönkum sé hætt við að einkasjónarmið þeirra og skammtímahagsmunir geti bitnað á arð- semikröfum. Nauðsynlegt sé að tryggja hlutleysi bankakerfisins gagnvart efnahagslífinu, einstak- lingum og fyrirtækjum, þannig að hagsmunirnir séu ekki aðrir en þeir að skapa eigendum sínum arð. „Sumar þjóðir hafa það reyndar svo að þær binda það í lög hversu mikil eignarhlutdeild ein- stakra aðila má vera í bönkunum. Ég hygg að það sé til að mynda þannig í Noregi. Það má vel vera að slíkt gæti verið skynsamlegt að gera einnig hér á landi. A.m.k. er það æskilegt að menn hafi ekki á tilfinningunni að það séu einhver önnur sjónar- mið sem ráði stefnu banka en almenn arðsemi- sjónarmið eins og einhverjir þröngir hagsmunir ráðandi hóps,“ sagði Davíð í samtali við Morgun- blaðið. Mikilvægt að tryggja þátttöku almennings Hann sagði að það væri mjög mikilvægt að tryggja þátttöku almennings í kaupunum og einnig sé mikilvægt að lífeyrissjóðirnir komi þar að. Tryggja verði hins vegar að slík fjárfesting sé eingöngu gerð í arðsemiskyni „en ekki til þess að tryggja einstökum komissöram lífeyrissjóðanna, hvort sem þeir era frá atvinnurekendum eða launþegum, persónuleg ítök í bankakerfínu." Davíð segir að hvort tveggja komi til greina að ríkið selji eignir sínar á markaði og/eða að sam- rani eigi sér stað og síðan verði hlutur ríkisins í þeim samrana seldur. Hann teldi að það hefði verið glapræði að fara ekki út í viðræður við er- lendan aðila sem sýnt hefði áhuga á því að kaupa hlut í íslenskum banka og skoða það mál til hlítar. „En eins og ég hef orðað það verða menn samt sem áður í lokin að vera afskaplega sannfærðir um að það sé skynsamlegt skref að selja lungann úr elsta banka landsins og þeim stærsta til eins ráðandi aðila,“ sagði Davíð. Hann sagði að línurnar í þessum efnum þyrftu að skýrast í þessum mánuði eða fyrrihluta þess næsta. Það sé ekki gott að málefni af þessu tagi hangi mjög lengi í lausu lofti. „Stjórnarflokkarnir þurfa að koma til þings með mótaða stefnu í þess- um efnum. Það er ljóst að það þarf að tryggja framgang laga fyrir áramót til þess að markmið fjárlagaframvarps nái fram að ganga,“ sagði for- sætisráðherra einnig. ■ Tryggja verður/30-31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.