Morgunblaðið - 22.08.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998 19
VIÐSKIPTI
Hlutabréfasjóður Norðurlands og
Sjávarútvegssjóður Islands
Þróun í takt
við markaðinn
Gengishækkanir hafa orðið hjá
sjóðunum í júlí og ágúst
HLUTABRÉFASJÓÐUR Norðurlands hf. var rekinn með 23 millj-
óna króna hagnaði og Sjávarútvegssjóður Islands hf. skilaði liðlega
4 milljóna króna hagnaði samkvæmt rekstrrareikningi fyrstu sex
mánaða ársins. Hagnaður Hlutabréfasjóðsins er minni en á sama
tíma í fyrra en þá var Sjávarútvegssjóðurinn rekinn með halla.
Báðir sjóðirnir eru í umsjá Kaup-
þings Norðurlands hf. Tryggvi
Tryggvason, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, segir að afkoma
beggja sjóðanna sé mjög í sam-
ræmi við þróunina á hlutabréfa-
markaðnum.
Heildareignir 725
milljónir króna
Hlutabréfasjóðurinn er hefð-
bundinn hlutabréfasjóður og er
gengi hlutabréfa sjóðsins mjög í
takt við almenna þróun á markaðn-
um. Sjávarútvegssjóðurinn fjár-
festir einkum í hlutabréfum sjávar-
útvegsfyrirtækja, eins og nafnið
bendir til. Heildareignir Hluta-
bréfasjóðs Norðurlands námu 725
milljónum kr. í lok júm'. Þar af nam
hlutabréfaeign 443 milljónum eða
um 61% af heildareignum.
Sjóðurinn á hlutahréf í 45 félög-
um og eru 37 þeirra skráð á Verð-
bréfaþingi íslands. Sjávarútvegs-
sjóðurinn á eignir fyrir 259 milljón-
ir kr., þar af hlutabréf í 24 félögum
að verðmæti 219 milljónir kr.
Gott útlit
Tryggvi segir að gengi hluta-
bréfa beggja sjóðanna hafí lækkað
verulega fyrstu þrjá mánuði ársins.
Það hafi heldur jafnast aftur, en
aðalhækkunin hafi þó ekki orðið
fyrr en í júlí og ágúst og komi því
ekki fram í milliuppgjörinu.
Að teknu tilliti til útgreidds arðs
var ávöxtun hlutabréfa í Hluta-
bréfasjóðnum um 5% fyrstu sex
mánuði ársins en er að sögn
Tryggva um 10% frá áramótum til
dagsins í dag. Ávöxtun hlutabréfa í
Sjávarútvegssjóðnum var um 1%
fyrstu sex mánuðina en er 9,5% í
dag.
Telur Tryggvi að útlitið sé gott
með rekstur sjóðanna á síðari árs-
helmingi, að því gefnu að afkoma
þeirra fyrirtækja sem eiga eftir að
birta afkomutölur verði í samræmi
við væntingar.
Málþing um
viðskipti
íslenskra
og breskra
fyrirtækja
Viðræð-
ur hjá
Hyundai
FORSETI launþegasamtaka
starfsfólks Hyundai-bifreiða-
verksmiðjanna í Suður-Kóreu,
Kom Kyong-sik, í fylgd lífvarða
er hann yfírgaf verksmiðjurnar
í gærmorgunn, en þá stóðu yfir
samningaviðræður milli forystu-
manna launþega, framkvæmda-
sljórnar verksmiðjanna og
s-kóreskra stjórnvalda. Hafa
yfirvöld reynt að miðla málum
í Iaunadeilu í fyrirtækinu, en
um 5.000 starfsmenn og íjöl-
skyldur þeirra hafa sest að í
verksmiðjunum og vilja yfir-
völd forðast að öryggislögregla
verði kvödd til og Iátin rýma
verksmiðjurnar.
Reuters
Landsbank-
inn sýndur
gestum
LANDSBANKINN í Austurstræti
11 verður opinn í dag, laugardaginn
22. ágúst, frá kl. 18-21 í tilefni
Menningamætur í Reykjvík.
Þar mun Aðalsteinn Ingólfsson
listfræðingur fara með gestum um
húsakynni bankans í Austurstræti
11, kl. 18, 19 og 20 og segja frá
veggmyndum Jóns Stefánssonar í
afgreiðslusal, myndum Kjarvals á 2.
hæð, og mósaik-mynd Nínu
Tryggvadóttur í afgreiðslusal. Guð-
jón Ketilsson myndlistarmaður
heldur sýningu í afgreiðslusal á
verkum sínum. Álfurinn Mókollur
verður einnig á staðnum og leikur
við bömin meðan foreldrarnir skoða
listaverkin.
ÍSLENSK fyrirtæki, sem valin hafa
verið af viðskiptadeild Breska
sendiráðsins, fá tækifæri til að kom-
ast í kynni við bresk fyrirtæki á sér-
stöku málþingi, sem haldið verður
nk. mánudag í Hóteli Holti.
Breska sendiráðið á Islandi
stendur að málþinginu ásamt sam-
tökunum „Furness Enterprise“ í
N orðvestur-E nglandi.
I frétt frá sendiráðinu kemur
fram að samtökin telji að á starfs-
svæði þeirra sé gott sóknarfæri fyr-
ir íslensk fyrirtæki. Á svæðinu búi
um sjö milljónir manna og þar sé
mikið um hátæknivöra og -þjón-
ustu. „Þetta málþing er kjörið tæki-
færi fyrir Fumess Enterprise til að
kynna fyrir forráðamönnum ís-
lenskra fyrirtækja þá möguleika
sem bjóðast og til að færa saman ís-
lensk og bresk fyrirtæki, þar sem
mikil þekking er fyrir hendi á báð-
um stöðum.
Heimsókn fulltrúa Fumess
Enterprise til íslands kemur í kjöl-
far heimsóknar íslenskrar sendi-
nefndar, sem heimsótti Kumraland
í október á síðasta ári.
Forráðamenn samtakanna von-
ast til að geta fengið fulltrúa ís-
lenskra fyrirtækja í fremstu röð til
fundar við sig mánudag til að sýna
þeim þá vöra og þjónustu sem í
boði er. Dagana 23.-25. ágúst gefst
áhugasömum íslenskum fyrirtækj-
um síðan tækifæri til að ræða þró-
un nýrra viðskiptasambanda í
einkaviðtölum.
Sigurður Sigurðarson skoðar alþjóðlegt samfélag á hálendi íslands
í blaðinu á sunnudaginn.
-rOFN.^*’
' „.. .tíér er- máðu'rinn
a m ' • -
einrí-með nátturunni...“
Igiil